Tíminn - 27.03.1973, Síða 3
Þriðjudagur 27. marz. 1973
TÍMINN
3
Eyjabörn
í 118
skólum
BÖRN úr barnaskólum Vest-
mannaeyja (þ.e. 1.-7. bekk)
stunda nú nám I 91 skóla á 60
stöðum á landinu, en auk
þess eru tvö i Noregi og tvö I
Færeyjum.
Unglingar úr gagnfræða-
skólum (þ.e. 2.-5. bekk)
stunda nám i 27 skólum á 26
stöðum á landinu.
Fjöldi nemenda i barna- og
gagnfræðaskólum Vest-
mannaeyja þegar gosið hófst
var alls 1135, þar af 871 I
barnaskólum og 264 i Gagn-
fræðaskóla Vestmannaeyja.
íslenzkum systkinum
ólíft í sænskum skóla
Helgi Jónsson, þrettán ára.
3 AAENN
FLÓÐI Á
A SUNNUDAGINN féli snjóflóö á
nokkrum stöðum á Óshlið, og
urðu þrir menn fyrir síðustu spýj-
unni, og barst einn þeirra alla leið
niður undir sjó. Svo giftusamlega
tókst þó til, að tveir sluppu með
öllu ómeiddir, en hinn þriðji
maröist aðeins Htillega á baki.
Nýsnævi var vestra ofan á
gömlu hjarni og dró saman i
skafla á Öshlið. Kom fyrsta snjó-
skriða á sunnudagsmorguninn og
önnur um hádegisbilið, og voru
báðar mokaðar, án þess að til tíð-
inda bæri. í þriðja sinn kom snjó-
flóð rétt innan við svonefndan
Kross, utan til á Svuntu, um sex-
leytið á sunnudagskvöldið. Var þá
allmargt bila á ferð á Óshlið, þar
á meðal stór bill með börn eða
unglinga, sem voru að koma af
skfðamóti á Isafirði.
I SNJO-
ÓSHLIÐ
reiðar, sem áttu að sækja loönu út
iBolungavik, sagöi Jón Guðbjörns
son, er við ræddum við hann, og
voru þær fengnar til þess að snúa
við inn f Hnifsdal, til þess að fá
gröfu til þess að ryðja veginn.
Kom hún nokkru siöar, og biðu þá
ellefu bilar innan við snjóskrið-
una, en fjórtán utan við hana.
—JH.
ÞESS eru vafalaust mörg dæmi i
Islenzkum skólum, að setzt sé á
hinn óviðurkvæmilegasta hátt að
nemendum, sem að einhverju
leyti skera sig úr hópum sökum
málfars eða einhvers annars, svo
aö þeim verður dvölin þar hrein
og bein martröð. Fyrir sliku geta
Islenzkir unglingar lika orðið i
skólum erlendis. Nú að undan-
förnu hefur þetta gerzt I slikum
mæli I skóla i Eslöf á Suður-Skáni,
að þaö er orðiö blaöamál, hvað Is-
lenzkur systkinahópur hefur orðið
að þola.
Foreldrar þessara barna heita
Jón Helgason og Súsanna og eiga
heima i smáþorpi, sem heitir
Harlösa. Þau eiga fjögur börn á
skólaaldri — Eðvarð átján ára,
Helga þrettán ára, Fanneyju
ellefu ára og Þröst niu ár. Eövarð
átti eitt ár eftir til þess að ljúka
stúdentsprófi, en tók þann kost að
hætta námi og snúa heim til ts-
lands, þar sem hann stundar nú
sjómennsku. Eftir eru systkini
hans þrjú og eiga ekki sjö dagana
sæla.
Helga er orðið ólift I skólanum
siðan bróðir hans fór. Hann verð-
ur dag hvern fyrir aðkasti eldri
skólafélaga og getur ekki lengur
sofið á nóttunni. Hann liggur
grátandi fram eftir öllu og kviðir
hverjum nýjum degi, segir I
Aftonblaðinu, sem tekið hefur
þetta mál upp. Þegar hann bar
sig upp við skólameistarann, réð-
ust sökudólgarnir á hann fáum
dögum siðar og börðu hann. Sömu
útreið fékk hann einnig, er hann
neitaði að krjúpa niður og binda
skóreimar eldri pilts úr hópi
þeirra, sem setzt hafa að honum.
Helgi og systkini hans fara I
skólavagni til Eslöf, um fjörutiu
og fimm minútna ferð. Snúi hann
sér við I sæti eða liti um öxl i biln-
um, er hann barinn, og iöulega er
honum meinað að komast I sæti
sitt i bilnum. 1 friminútunum er
hann daglega hrakinn og hár-
reyttur.
Yngri systkini hans sæta einnig
aðkasti eldri félaga, þótt bekkjar-
systkini þeirra séu þeim góð.
Ókvæðisorð eru hrópuð á eftir
þeim og þeim sagt, að allir ís-
lendingar ættu að fylgja eldfjalla-
eyjunum sinum I hafið.
Foreldrar barnanna ræddu við
Aftonblaðið.
— Við stöndum uppi ráðalaus,
sögðu þau Jón og Súsanna. Við
þorum ekki að tala við foreldra
barnanna, sem leggja börn okkar
i einelti, þvi að við vitum ekki,
hvernig það yrði tekið upp. En
samt sem áður getum við ekki
horft lengur á þetta, án þess að
kvarta. Samt kviðum við þvi — og
það gera börnin lika —, að nú
keyri um þverbak, er þetta er
orðið blaðamál.
Bjargaði 4 börnumsín
um á síðustu stundu
Eldurinn gerir það ekki endasleppt við Eyjamenn
Menn fóru til að moka bflnum
braut gegn um snjóhrönglið með
skóflum, en er þeir voru að þvi
starfi, kom ný spýja, og hreif hún
með sér þrjá menn. Einn þeirra,
Birgir Finnbogason frá ísafirði,
staðnæmdist rétt við vegarbrún-
ina, annar, Jón Guðbjörnsson,
formaður slysavarnadeildarinn-
ar I Bolungavik, barst hálfa leið
til sjávar, en hinn þriðji, Pálmi
Karvelsson bifvélavirki, stað-
næmdist ekki fyrr en niðri við
fjöruborð. Það var hann, er
maröist á baki.
— Það voru þarna vörubif-
ERLINGI Einarssyni, sjómanni
frá Vestmannaeyjum, tókst að
bjarga fjórum börnum sinum á
siðustu stundu úr brennandi húsi
á sunnudagsmorgun. Bjó hann á
Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd,
ásamt konu sinni og börnum. Eru
þau á aldrinum eins til fimm ára.
Fjölskyldan hraktist frá Eyjum
vegna gossins og fengu inni á
Sjónarhóli. Varð Erlingi að orði
eftir brunann, — að þau hafi farið
úr öskunni i eldinn.
Sjónarhóll er timburhús, hæð,
kjallari og ris, en ekki var búið I
risinu. Um klukkan átta á sunnu-
dagsmorgun voru hjónin á fótum
og voru að fá sér kaffisopa i eld-
húsinu, sem er i kjallara hússins.
Börnin voru uppi aö leika sér.
Fundu hjónin þá brunalykt og
fóru samstundis upp. Var þá mik-
ill eldur i herbergi þvi, er börnin
höfðu verið i. En þegar eldurinn
kviknaði fóru þau þaðan og voru
komin inn I herbergi, sem var inn
af þvi og enn lengra frá útidyrun-
um. Mikill reykur var kominn I
ibúöina, en hjónin náöu öllum
börnunum og komust meö þau út,
heil á húfi.
Slökkviliðinu i Hafnarfirði var
gert viðvart og kom það von bráð-
ar og slökkti eldinn. Hæðin var
mikiö brunnin og kjallari
skemmdur af vatni og er húsið
óíbúöarfært.
Húsfreyjan á Knarrarnesi bauö
fólkinu að dvelja á sinu heimili
þar til úr rættist. OÓ.
„Hér eiga menn ah geta tekið af-
stöðu í listum og menningarmálum"
Kjarvalsstaðir formlega opnaðir
SJ-Reykjavik. Myndlistarhúsið á
Miklatúni var formlega opnað á
laugardag. Þar stendur nú yfir
sýning á nær 200 verkum Jó-
hannesar S. Kjarvals,en húsið er
reist i tilefni af áttræðisafmæli
hans. Aður hafa verið sýningar I
húsinu ófullgerðu. Þá getur nú að
lita I húsinu listaverk I eigu
Reýkjavikurborgar eftir aðra
listamenn, en borgin á drjúgt safn
listaverka, sem nú gefst tækifæri
til að sýna I nýja húsinu.
Birgir isleifur Gunnarsson
borgarstjóri sagöi i ávarpi við
opnun hússins, að þar ætti að vera
menningarmiðstöð fyrir borgar-
búa, þar sem þeir gætu tekið af-
stöðu til menningarmála. t regl-
um hússins segir, að markmið
Reykjavikurborgar sé, að i hús-
inu verði aðstaöa til listsýninga
innlendra og erlendra manna og
samtaka hvers konar. Gat Birgir
isleifur þess, að ætlunin væri, að
ungir listamenn yrðu kynntir þar
engu siður en þeir eldri.
Tveir sýningarsalir eru I hús-
inu, en jarðhæö þess er 2.100
fermetrar að flatarmáli. í hús
inu er einnig veitingasalur og hef-
ur Mikligarður hf. tekið að sér
veitingarekstur. Húsagarðar eru
672 fermetrar, en Myndlistarhús-
ið er I tengslum við skrúðgarðinn
á Miklatúni og ætlunin er að
starfsemigarös og húss veröi það
einnig.
Rekstur hússins er i höndum
hússtjórnar, en hana skipa Páll
Lindal borgarlögmaður, Jón Arn-
þórsson sölustjóri og Ólafur B.
Thors borgarráðsmaður. í sýn-
ingarráði Myndlistarhússins eru
nú Vilhjálmur Bergsson, Einar
Hákonarson, Kjartan Guðjónsson
og Valtýr Pétursson. Forstöðu-
maöur hússins er Alfreð Guð-
mundsson.
Vönduð sýningarskrá hefur
verið gefin út i tilefni Kjarvals-
sýningarinnar. 1 hana rita
borgarstjóri, Halldór Kiljan Lax-
ness og Geir Hallgrimsson fyrr-
um borgarstjóri. Þá eru 1 skránni
myndir og ágrip af Kjarvalsann-
ál. Sýningin er opin kl. 16-22
þriðjuJaga til laugardaga, en
14-22 á sunnudögum.
Fjöimenni var við opnunMyndlistarhússinsá Miklatúni á iaugardag.
Fremst á myndinni sjást eiginkonur forseta tsiands og borgarstjórans
I Reykjavik Halldóra Ingólfsdóttir og Sonja Bachmann, forsetinn
Kristján Eldjárn, Hannes Daviðsson formaður Bandalags islenzkra
listamanna og arkitekt hússins og Birgir Isleifur Gunnarsson borgar-
stjóri.
Ætla togaraútgerð-
armenn að afhenda
ríkinu skipin?
Alþingi leysti vinnudeiluna
á togarafiotanum, með þvi að
greiða þann hluta af launum
yfirmanna á togurunum, sem
útgerðarmenn treystu sér
ekki tii að greiða og allt
strandaði á.
Þar með gat engin deila
staðið iengur milli útvegs-
manna og skipshafna á
togurunum. Ctvegsmenn gátu
þvi sent skip sin á veiðar.
Einn útgerðarmaður, Tryggvi
Ófeigsson, sendi skip sin strax
úr höfn. Aörir halda skipum
sinum enn bundnum við
bryggju. Þeir eru I striði við
rikisstjórnina. Þeir krefjast
þess, að þeim verði greitt úr
almenningssjóðum allt
gamalttap og fyrirfram loforð
um að allt hugsanlegt tap á
þessu ári verði einnig greitt.
Hins vegar gera þeir á þann
fyrirvara, að hagnaður, sem
yröi með bættum afla-
brögðum, renni i þeirra vasa!
Eins og kunnugt er hefur
rikisvaidið I sambandi við þá
endurnýjun á togaraflotanum,
sem nú á sér stað, lagt fram
meginhiutann af kostnaöar-
verði hinna nýju togara, og
rikið ábyrgist nær allar skuld-
bindingar útgerðarmanna.
Þeir ieggja sjálfir fram ör-
litinn hluta kaupverösins. Ef
rikiö á siðan að þjóðnýta til
fulls, hvernig sem á stendur
og fyrirfram, allt tap, sem
kann að verða á útgerðinni, en
útvegsmenn að hirða gróðann
einir, þegar vel gengur, þá
hlýtur aimenningur að mót-
mæia þvi, að almannasjóöir
séu notaðir á þann hátt og
togaraútgcrðarmenn þannig
tryggðir margfalt á við það,
sem útvegsmenn bátaflotans
nokkru sinni hafa ieyft sér að
fara fram á. Ctvegsraenn ættu
að hafa það hugfast, að sú
framkoma, sem þeir sýna
núna, þegar áföll dynja yfir
þjóðarbúið, gæti leitt til þess
að þorri þjóðarinnar teldi að
það væri óþarfi að halda
þessum mönnum i sinum
stöðum, ef þeir ætluðu að
verða þjóðarbúinu tii
óþurftar, og krefjast þess að
rikið tæki yfir þann iitla hlut,
sem þeireiga I þeim togurum,
sem á annað borð er taliö
skynsamlegt að gera út og
ekki eru orönir of gamiir og
úreltir.
Vonandi vitkast togaraút-
gerðarmenn áður en langt um
liður og taka til við þjóönytja-
störf. En þær bæjarútgerðir,
sem halda togurum sinum
bundnum við bryggju nú,
skiija sannarlega ekki hiut-
verk sitt.
Staðreyndir
um kaupmáttar-
aukningu
Stjórnarandstæðingar hafa
kaliað stefnu rikis-
stjórnarinnar og aögerðir i
efnahags- og kjaramálum
„kaupránsstefnu.”
Byggt á tölum Hagstofu ts-
lands kemur i Ijós, að kaup-
máttur timakaups verka-
manna I fiskvinnu, byggingar-
vinnu, hafnarvinnu, vinnuvél-
stjórn, og fl. hefur hækkað um
22.3% - 26.3% frá stjórnar-
' skiptum i júlf 1971 til dagsins I
dag.
Þessar tölur eru byggðar á
gögnum, sem ógerningur er að
hrekja.
Rikisstjórnin hét þvi I mál-
efnasamningi sinum, aö stuöla
að þvi að kaupmáttur launa
ykist um 20% á tveimur árum.
Hún hefur setið rúmt eitt og
hálft ár að völdum og gert
Framhald á bls. 19