Tíminn - 27.03.1973, Side 10

Tíminn - 27.03.1973, Side 10
10 TÍMINN Þriðjudagur 27. marz. 1973 kichard Nixon varð sextugur i janúar og hefur aldrei verið við betri heilsu. Meö reglubundnum likamsæfingum á hverjum morgni, tekst honum að halda þyngd sinni stöðugri i 172 pund- um. „Einmitt rétta þyngdin lyrir tí feta háan mann”, segir Dr. Walter R. Tkach, sem hefur verið einkalæknir forsetans frá 1900. „Blóðþrýstingur hans hefur ekki breytzt meir en 5 stig, siðan óg kynntist honum. Hann syndir talsvert, þó ekki eins mikið og ég vildi. Ég er lika að reyna að fá hann til að leika oftar golf við Bob Hope. En hann heldur sér mjög vel miðað viö aldur. Eina breyt- ingin eru nokkur grá hár, sem þó er varla hægt að koma auga á". ■ iburðarmikilli 6 herbergja ibúð i kjallara Hvita Hússins, með mynd af Lady Bird Johnson fyrir utan dyrnar, heldur Dr. Tkach sér gangandi á Coca-Cola og sigarettum, sem hann keðju- reykir, meðan hann fylgist nákvæmlega með heilsu Nixons. Læknastofan er útbúin öllu þvi nýjasta á sviði lækningatækja. Fjöldi þungra stálkassa, fullir af öllu milli himins og jarðar, allt frá blóðbirgðum til tækja til að fjarlægja byssukúlur, standa tilbúnir ef forsetanum dytti i hug að skreppa út. Dr. Tkach hleypir honum ekki úr augsýn. „Ég krefst þess að vera alltaf við hlið hans. Flýg með sömu flugvélum og ek alltaf i næsta bil á eftir hans. Ég gleymi aldrei hvað kom fyrir lækni Kennedys i Dallas, sem sat fastur i almenningsvagni fullum af fréttamönnum, tólf bil- um aftan við bil Kennedys, þegar hann var skotinn. — Það var klúðursleg skipulagning". /l.llt þetta læknisstand i kring- um Nixon er kostað sameiginlega af stjórninni og hernum — og er lang kostnaðarsamasta læknis- eftirlil fyrir einn mann, sem þekkist i heiminum — sérstaklega fyrir mann, sem aldrei hefur kennt sér meins, siðan það var sett upp. Þó er landið, sem hann stjórnar, lamað af þvi stjórnlaus- asta, dýrasta og spilltasta lækningakerfi, sem fyrirfinnst i viðri veröld. rramfarir innan Bandarikj- anna á hinu vel fjármagnaða rannsóknasviði, hafa orðið til þess að læknastéttin, hvar sem er i heiminum, litur öfundaraugum, alla þá möguleika til fullkominn- ar lækningaþjónustu, sem fyrir hendi eru i Bandarikjunum. Ef þú ert rikur eöa vel tryggður og heppinn — þá er ekki til betra land að vera veikur i. Það er gagnvart hinum mikla meiri- hluta, miðlungs og láglaunafólks- • • Ofgarnar í banda- rískri lækna- þjónustu sjúklinga og fjölskyldur þeirra. En allt kom fyrir ekki — Harold Nixon lézt 1933. Lát hans hafði djúp og varanleg áhrif á hinn unga Richard, enda talaði hann' nýlega á fundi læknasamtakanna i Bandarikjunum um „hina dimmu ógn hrikalegs læknis- kostnaðar, sem grúfir yfir meiri hluta þjóðarinnar”. »En þessar áhyggjur stjórnvalda, sem hafa bælt niður kröftugar tilraunir til bættrar læknisþjónustu, eru litil huggun ibúum staða eins og Tulsa i Oklahoma, þar sem 60% allra gjaldþrota, eru rakin til kostnað- ar við læknisþjónustu. Þessi orð Nixons hljóma þvi tómlega i eyr- um frú Wagner i Elida i Ohio, sem fékk reikning að upphæð kr. 750.000, — fyrir 12 klst. sjúkravist, er lauk með andláti eiginmanns hennar og gerði hana eignalausa. "þegar ég er sjúkur”, sagði Nixon við læknasamtökin, „vil ég geta náö i lækni, en framar öllu vil ég lækni sem er góður læknir. Ég vil að hann hafi áhyggjur af mér, en ekki af einhverjum skýrslum sem hann þarf að fylla út fyrir stjórnina”. N lixon hefur orðið að ósk sinni. En flestir Bandarikjamenn þurfa að hugsa sig um tvisvar áður en þeir leita læknis og 24 millj. þeirra eru útilokaðir frá að geta fengið sér tryggingu. Það kostar a.m.k. kr. 1000,- að fara inn fyrir dyr hjá lækni. Siðan tekur við al- gjör seljandamarkaður, þar sem ekkert nema orð læknisins sjálfs, er trygging fyrir þvi að borgarinn fái eitthvað fyrir aurana. þeim, sem finnst sjúkrasamlag vera oröinn sjálfsagður hlutur, veitist erfitt að hugsa sér heil- brigðiskerfi, þar sem sum sjúkra- hús neita jafnvel dauðvona sjúkl- ingum um aðgang, án kr. 50.000,- i fyrirframgreiðslu. félaginu og rænulitill sjúklingur spyr ekki of margra spurninga. Farnarleysi sjúklinganna á öll- um sviðum, hefur gert læknana að rikustu menntastétt Bandarikjanna með 4,5 millj. króna meðaltekjur á ári (sumir ná 10-12 millj. kr.) fyrir 50 klst. vinnuviku. 1 sjúkrahúsi einu i Kaliforniu er sjónvarp við hliðina á skurðstofunni. Það er ávallt stillt á viðskiptafréttirnar, þvi að eins og einn læknirinn sagði: „Við viljum geta fylgzt með verðbréf- unum okkar”. Þegar læknasam- tökin héldu aðalfund sinn i San Fransiskó s.l. sumar, hafði ekki sézt þar annar eins floti einka- flugvéla, siðan læknarnir komu siðast saman i borginni. “aö er enginn vafi, að fjár- málaáhyggjur þær, sem kerfið skapar, auka sjúkdómstilfellin, sem það þarf að annast. Robert Schultz frá Albany i New York, sem er ljósmyndari með kr. 25.000,- i vikulaun, er gott dæmi um þetta. Þegar sonur hans varð fyrir þvi slysi að hálsbrotna við dýfingar, söfnuðust að Schultz, reikningar að fjárhæð kr. 7,5 millj. fyrir 28 mánaða meðferð, i sex sjúkrahúsum. Læknir hana staðfesti, að áhyggjurnar vegna þessara reikninga hafi orsakað það, að Schultz fékk hjartaáfall þrisvar sinnum með skömmu millibili, árið eftir slysið. Þetta varð til þess að reikningarnir hækkuðu um kr. 500.000,-. Allt fór þó betur en á horfðist, þvi að Schultz vann málssókn á hendur framleiðanda sundlaugarinnar, þar sem slysið varð, og jafnaði reikningana. En Schultz efast stórlega um að hann gæti lifað af, slika reynslu aftur. He Ba Lausleg þýðing: G.S. ins — sem kerfið bregzt hörmu- lega. Það má teljast kaldhæðni ör- laganna, að Nixon sjálfur hefur ekki sloppið við að kynnast . vandamálum kerfisins af eigin raun. Yngri bróðir hans, Arthur, lézt árið 1920 eftir skamma sjúkdómslegu, en eldri bróðir hans, Harold lézt 13 árum seinna, eftir þriggja ára veikindi. En á þessum þrem árum tvistraðist fjölskyldan um tima, þar sem móðir Richards Nixons fór með Harold i þurrara loftslag Arizona rikis. Þetta hafði sin áhrif fjár- hagslega og fjölskyldan þurfti að selja nokkuð af eigum sinum til að kosta læknismeðferö Harolds. Einnig þurfti móðirinað vinna i lækningastofnunum, þar til hún setti á stofn heimili fyrir berkla- landarikjamönnum er ráðlagt að fá hjartaslag á götunni, þvi að þá sé lögreglunni og slökkviliðinu skylt að flytja sjúklinginn á næsta sjúkrahús. En sjúkraflutninga- fyrirtækin láta hins vegar eigin- mann þinn eða föður , liggja kyrr- an á gólfinu þar til búið er að greiða kr. 7.500,- lágmarksgjald. En það þarf að velja réttu götuna, þvi að sjúkrahúsgjöldin geta munað um allt að 100% innan einna fermilu og hjá dýrari sjúkrahúsunum hugsa menn sig um tvisvar, áður en þeir hleypa þér inn, ef þú ert i lélegustu fötun- um þinum. tf þú hefur i vasanum skirteini fyrir alhliða sjúkratryggingu, skaltu ekki láta þér bregða þótt þú yfirgefir sjúkrahúsið, án eins eða tveggja auðlosanlegra lif- færa. Skurðlæknarnir vita, að þeir fá greiðslu hjá trygginga- leilsugæzla er orðin stór- kaupsýsla i Bandarikjunum i dag. Heildarveltan hefur aukizt um 300% á 10 árum og er orðin hærri en allt fjármagn til varnarmála Bandarikjanna. Margir hótel- hringir, eins og t.d. Sheraton hringurinn, eru nú farnir að snúa sér að sjúkrahúsrekstri — og þá auðvitað eingöngu með hagnaðarsjónarmið i huga. Óarðbærar sérgreina-deildir eru lagðar niður og breytt i t.d. gróðavænlegar botnlangadeildir. Smærri sjúkrahús stækkuð og þeim breytt, til að mæta hinum óþrjótandi markaði fyrir fæðingastofnanir með allskonar iburðamikilli aukaþjónustu. Cinstaka læknar eru farnir að helga sig eingöngu vel styrktum rannsóknarstörfum, þar sem þeir treysta sér ekki lengur til að starfa i þvi andrúmslofti, þar sem fyrsta spurningin er: „Hefur sjúklingurinn efni á þessu?”

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.