Tíminn - 27.03.1973, Side 11

Tíminn - 27.03.1973, Side 11
Þriðjudagur 27. marz. 1973 TÍMINN 11 Helgi Haraldsson: Gullöld hin síðari EINS OG allir vita hefur söguöldin veriö nefnd Gull- öld islendinga og er það sjálfsagt að mörgu leyti réttnefni. Hins vegar hefur tímabilið frá 1890 og fram að fyrri heimsstyrjöldinni stundum verið nefnd //Gullöld hin síðari". Þessi aldarfjórðungur er um margt merkilegur. Það er eðlilegt, að við, sem höf- um lifað þetta timabil, höfum gaman af þvi að lita til baka, og þá er jafnvel hægt að sjá sumt i réttara ljósi, en á meðan það var að gerast. Hvað gerðist svo á þessum aldarfjórðungi? Erfitt er að meta hvað var merkast, en þó ætla ég fyrst að minna á tvennt. Þá lærðu bændur landsins að vinna saman i sam- vinnufélögum af mörgu tagi. Norðlendingar riðu á vaðið meö samvinnu i verzlun og gjörbreytti það verzlun þeirra. En Sunnlendingar lögðu þar á móti, að þeir fóru að selja smjör til Englands og var fyrsta smjörið flutt út á enskan markað alda- mótaárið. Þetta var hrein bylting i búskaparsögu bænda og bjarg- aði þvi öngþveiti, sem skapaðist, þegar sauðasalan til Englands var bönnuð 1896. Þá hafði á tima- bili verið selt lifandi fé úr landi, og hefur vafalaust verið ágæt sala, eftir þvi sem þá geröist. Rjómabúin breiddust um allt land á svipstundu. Upp úr þessu komu svo nautgriparæktarfélögin á fyrstu tugum aldarinnar. Þau fyrstu 1903 og eru þau nú 70 ára. Hvort sem þau fara nú að halda upp á þetta merkisafmæli á þessu ári? Næst komu svo Sláturfélög um allt land 1908 og þar i kring. Svo komu búnaöarfélögin og margur félagsskapur á öllum sviðum. Þetta var eldri kynslóð- in: — En hvað gerði unga fólkið? Þá var ekki til i málinu mengun um alla skapaða hluti og þvi sið- ur, að maður heyrði nefnt ung- lingavandamál. Þó að sjálfsagt hafi sitt hvaö verið sagt um ungu kynslóðina. Það hefur verið gert um allar aldir, allt frá dögum Sókratesar, sem kunnugt er. Unga kynslóöin var ekki að- gerðalaus á þessum áratugum. Hún stofnaði ungmennafélög um allt land. Félagshugmyndinni sló niður norður á Akureyri 1906. Hingað barst hún frá Noregi. Það fór ekki framhjá okkur unglingunum, að Norðmenn létu i það skina að frelsi sitt 1905 ættu þeir engum manni fremur að þakka en Islendingnum Snorra Sturlusyni og Heimskringlu hans, og settu hann á bekk með sinum höfuðskáldum Björnson og Ibsen. Hvað myndu þá okkar bókmennt- ir geta gert heima hjá sér. En við stefndum að þvi marki, sem Norðmenn náðu 1905, — aö heimta fullt frelsi úr hendi Dana. Um þetta timabil i sögu okkar segir skáldið Þorsteinn Erlings- son i Aldaslag, sem ort er 1911, á þessa leið: Þau væntu þess völdin á Fróni þeim væri ekki i tigninni hætt. Þau vissu þaö bezt hvaö þy mátti sin mest og myrkriö gekk tæplega úr ætt. Þau uggðu ekki neitt fyrr en útsker og sveit voru iðandi af vökuðum mönnum og dalurinn grænn undan fönnum Oft hef ég undrazt það, hvað dalurinn kom grænn undan fönn- um nitjándu aldarinnar og ber það bændamenningunni glæsilegt vitni. Þá var á þessu timabili merkur viðburður, þar sem voru aldamótin og þá sýndu skáldin hvað þau gátu. Matthias var auð- vitað i fararbroddi með þjóðsöng- inn „Ó, guð vors lands” og Stein- grimur með Vorhvöt. Það kvæði held ég að seint verði slegiö út. Ég hef stundum verið að huga að þvi, hvaða visa mér þætti mest lista- verk frá þessum tima og þá venjulega stanzað við þessa úr Vorhvöt Steingrims: En bót er oss heitið ef bilareidáð, af beiskju hiö sæta má spretta. Af skaða vér nemum hin nýtustu ráö oss neyðin skal kenna hið rétta, og jafnvel úr hlekkjunum sjóða má sverö i sannleiks og frelsisins þjónustugerð. Það er furöulegt, að geta komið jafn mörgum spakmælum i eina visu, en þetta gátu þeir um sið- ustu aldamót. Hvað fáum við að heyra 1974, þegar maður undrast næstum mest, hvaö hægt er að koma miklu af vitleysu i eina visu, ef visu skyldi kalla. En hvernig stóð á þessari þjóðarvakningu, ef svo mætti segja, á þessum árum. Nú höfðu gengið yfir samfelld harðindi allan niunda áratuginn, sem byrjuöu með gaddavetrinum 1880-1881 og svo fellisvoriö 1882, sem allt ætlaöi að drepa. Hafis á hverju vori, enda kvað Matthias á þessum árum: „Ertu kominn landsins forni fjandi”. Ég hef stundum brotið heilann um þetta, og i rauninni aldrei fundið nema eitt sennilegt tilefni, og það er, að um þetta leyti er farið að gefa út fornbókmenntirn- ar i svo ódýrri og handhægri út- gáfu, að almenningur gat keypt þær. CJtgefandi var sá mæti mað- ur Sigurður Kristjánsson bóksali. En Valdimar Asmundsson rit- stjóri bjó þær til prentunar. Forn- aldarsögur Norðurlanda gaf hann út 1891. Nú vildi Björn Jónsson, Helgi Haraldsson viö vegarskilti. ritstjóri Isafoldar gera eitthvað lika og fór að gefa úr Heims- kringlu Snorra 1893. Ég ætla að lofa mönnum að heyra smá-póst úr formála Björns fyrir Ólafssögu helga, það gefur ofurlitla hug- mynd um, hvernig okkar beztu menn hugsuðu þá, og þaö var ekki aðeins gróðasjónarmið, sem réð útgáfu góðra bóka. Björn skrifar svo 1893: Það er þeirra manna dómur, sem bezt kunna slikt að meta, að hvergi lýsi sér ritsnilld Snorra Sturlu- sonar glæsilegar en i skrásetn- ingu Ólafs sögu hins helga, og er vonandi að þjóð vor taki slikri gersemi með hæfilegum virktum. Verö bókarinnar er haft svo lágt, að einskis ábata er von fyrir kostnaðarmanninn, þótt hvert eintak seljist af upplaginu. Kostn- aðurinn virðist eiga að vera létt- ari á metunum, er slikur höfuð- snillingur á i hlut sem Snorri Sturluson, og annars vegar er hið ómetanlega gagn og sómi, er tungu vorri og þjóðerni hlýtur aö standa af þvi, að hver tslendingur sé handgenginn vorum helztu gullaldar-ritum. Ekki man ég hvað Ólafs saga helga kostaði óbundin, þvi að þá var allt selt óbundið, en ég man að Njála kostaði eina krónu og var langdýrust af tslendinga- sögunum, enda lengst, og sjálf- sagt hefur ólafssaga verið ámóta. Ég efast um að menn nú geti gert sér i hugarlund, hvaö mikill hvalreki þetta var fyrir ungling- ana að fá allar fornsögurnar á viðráðanlegu verði. Enda var það næstum metnaðarmál flestra að eiga allar þessar bækur i bóka- skápnum. Nú var mikið lesið á kvöldvökunum, enda voru þær eini skólinn, sem unglingarnir gengu i og gafst alveg ótrúlega vel, þvi að þarna var ekkert óæti á borð borið. Sjálfsagt er þarna lika að finna ástæðuna fyrir þvi, hvað margir eldri menn rituðu fagurt mál. Halldór Laxness sagöi nýlega, að sendibréf frá bændum um aldamót, væru hreinar bók- menntir, þau væru svo vel skrif- uð. Sturlungaöldin, sem gaf okkur þessar bókmenntir fær þessi eftirmæli hjá séra Magnúsi Helgasyni kennaraskólastjóra, þegar hann hefur sagt kost og löst á þessari umtöluðu öld: Sturlungaöldin verður að liggja undir þvi ámæli, aö hafa glatað frelsi tslands. Það verður aldrei af henni þvegið. En hún hefur lika fágað islenzka tungu og skilað henni i hendur komandi kynslóða i fegursta blóma, til ævarandi vitnis um mannvit sitt og snilli. Það verður aldrei af henni dregið. Hún er gullöld islenzkra bók- mennta. Doktor Richard Beck, hinn þekkti Vestur-Islendingur, hefur þetta að segja um fornbók- menntirnar: tslendingasögurnar hafa verið þessari þjóð kveikja manndóms og karlmennsku. Þær eru jafn snilldarlegar aö efnismeðferð, málfari og mannlýsingum. 1 ts- lendingasögunum er heiðrikja og hreinviðri. Þvi er þaö hugar- hressing og göfgan aö eiga þar samneyti við þá menn og konur, sem þar klæðast holdi og blóði fyrir sjónum lesandans. Þau verðbréf vor standa i gullgildi, hvað sem liður sveiflunum á hin- um stormasama heimsmarkaði. Ég ætla ekki að vitna i fleiri menn um ágæti fornbókmenntanna, þó að það væri auðvelt. Ég minnist þess, að þegar ég var 10 ára þá kom vinnumaðurinn heim af bókauppboði og hafði keypt allar Fornaldarsögur Norðurlanda, 3hefti. Þessi maður var ágætur lesari og hafði það starf, að lesa hátt fyrir fólkið á kvöldvökunum. Nú var aldeilis tekið til að lesa og auðvitaö byrj- að á Hrólfasögunum. Hvilik hátið! Enn minnist ég þess, eins og það hefði skeð i gær, aö þegar kom að Bósasögu og Herrauðs og Bósi fór að lyfta upp sængurfötun um hjá bóndadætrunum, hvað lesarinn fór hjá sér að lesa þetta yfir vinnukonunum. Þetta atvik rifjaöist upp fyrir mér nýlega, þegar það varð að blaðamáli, að islenzkur námsmaður úti i Svi- þjóð, sem var auralitill, gerði það gróðabragð, að gefa út Bósasögu og fékk málara til þess að mála viðeigandi myndir i söguna, og ætlaði að selja þetta fyrst og fremst i unglingaskólana. Þetta kom til umræðu i útvarpi og unga skólafólkið fór að lesa beztu póst- ana úr sögunni. Þá kom ég alveg af fjöllum, þetta var ekki i þeirri Bósa-sögu, sem við lásum um aldamótin. Ég fór að rannsaka málið. Valdimar hafði sleppt nokkrum köflum, sem honum þótti ekki prenthæfir. Svo gerðist það 1943-44, að Guðni Jónsson og Bjarni Vilhjálmsson gáfu söguna út i 5. sinn. Þetta er talin visinda- leg útgáfa og þar má engu sleppa. Þessi myndskreytta Bósa saga kom svo út og seldist vist sam- stundis. Enda er þar á kápu þetta: „Um elskhugann Bósa. Hneykslunarhella þjóðarinnar um aldir. Listilega samin frá- sögn. Full af djörfum ástafars- lýsingum. Myndskreytt og færð i nútima búning”. Þarna sjá menn hvað fram- farirnar eru miklar á öllum svið- um. I bókmenntum ekki siður en ööru. Það, sem ekki þótti prenthæft um aldamót er nú talinn hollastur lestur i unglingaskólum landsins. ' Þetta er aðeins ein staðreynd af mörgum. Finnst mönnum fjarri lagi aö uppskeran hafi lánast eftir sáningunni? Nú fer vonandi að liða að þvi, aö handritin komi heim, og við get- um farið að skoða þau i Árna- garði. Væri það nú fjarri lagi, að þing- mennirnir fögnuöu þeim með þvi að setja löggjöf um að þau væru friðhelg, og enginn mætti breyta þeim eftir eigin geðþótta. Svona lög eru Sviar búnir að setja hjá sér, og það þurfum við að gera lika. Ég veit að hérna er ritfrelsi (sem betur fer), en eigum við samt ekki að lofa mönnum að semja tekstann viö myndirnar sinar sjálfum, en ekki nota gull- aldarbókmenntirnar fyrir um- gerð. Það væri eins og skitaklessa á skautbúningi. Er ekki næsta nóg að eiga Gerplu og Bósa-sögu i þessu nýja formi. Til þess að menn sjái, að hér verður að setja punkt, og segja: Hihgað og ekki lengra. Skáldin láta það sjálfsagt ekki vanta i skáldskap komandi ára, ef áfram heldur sem nú horfir, — að i bókunum verði Kvenna-Bósi einn eða fleiri til þess að gera þær seljanlegri. En fyrir alla muni ættum við að láta bókmenntir fyrri alda i friði-, og hugsa ekki einhverjir likt og Guðmundur skáld Böðvarsson, en það er á þessa leið: Mútur bjóðast böölar tryllast blása i glóðina. Erl þú þjóð min ekki að viiiast út i móðuna. Útboð — Dalvík Dalvikurhreppur óskar eftir tilboðum i að gera heimavistarbyggingu á Dalvik fokhelda og jarðvegsskipti á lóð. Útboðsgöign verða afhent á skrifstofu Dalvikurhrepps frá og með miðvikudeginum 28. marz gegn 10.000.- kr. skila- tryggingu. Sveitarstjórinn Dalvik. Sáttmálasjóður Umsóknir um styrk úr Sáttmálasjóði Há- skólans stilaðar til háskólaráðs, skulu hafa borizt skrifstofu rektors fyrir 1. mai n.k. Tilgangi sjóðsins er lýst i 2. gr. skipulagsskrár frá 29. júni 1919. Rektor.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.