Tíminn - 27.03.1973, Blaðsíða 14
14
TÍMINN
I>riöjudagur 27. marz. l!)7:í
— Þú átt við að sænga hjá
konu. — A hvaða aldri má maður
það? _ það er ekkert ákveðið
aldrustakmark, sagði Hob. — Það
fer eftir þvi, hver i hlut á, en ég
geri ráð fyrir, að hinn venjulegi
aldur sé sautján, átján, nitján
ára. Það er eins og Hugh yrði
hægara. — Jæja, það er langt
þangað til að hann veröur sautján
ára. — Finnst þér .. .maður of
ungur til þess fjórtán ára? — Að
minu áliti er það nokkuð snemmt.
— Kona mundi tæplega gera ráð
fyrir þvi. — llugh var svo tauga-
óstyrkur, þegar hann bar fram
spurninguna, að hann lækkaði
röddina um eina áttund að
minnsU kosti. — Ef hún léti
undan, væri hún að minum dómi
anzi mikið fyrir karlmenn, ef ég
má taka þannig til orða, sagði
Kob.
— 0, sagði Hugh, og það fór
augsýnilega hrollur um hann. —
Eg get aldrei farið aftur heim á
sveitasetrið. Aldrei.
Þegar Hugh tók niður seglin á
Kortunu, varð honum fótaskort-
ur. — Vatnið náði mér i mitti, og
ég varð að fara heim til þess að
skipta um föt. Ég var á leiðinni
heim i naustið, en Giulietta ...
Það var bersýnilega nafnið á
örlaganorninni. Hann gat ekki
haldið áfram. Rob reyndi að láta
sem ekkert væri, en spurði: —
Giulietta? — Giulietta var að þvo
stigann. Orðin komu i gusum.
Þvostigann? Svona seint um
daginn? sagði Rob og reyndi að
vera eins og hann átti að sér. —
Já, ég veit ekki hvers vegna. Ef
til vill hafði hún ekki haft tima
til þess fyrr um daginn, eða ekki
gert það nógu vel. Hún var að
sópa. Og hún fór þannig að þvi, að
Ilugh nam staðar og horfði á
hana. Giulietta virtist gera þetta
alveg út i bláinn. Hún stráði sagi
á hver marmaraþrep, og siðan
þyrlaði hún saginu upp með sópn-
um. — Það er ævagamall siður til
þessað varna þvi að rykið þyrlist
upp, sagði Rob. — Haltu áfram.
Hún var svo vön að sjá Hugh og
niðursokkin i vinnu sina, að hún
leit ekki upp, en hann horfði á
hana af stigapallinum.
Giulietta stóð fyrir neðan hann,
kengbogin. Þegar hún snéri sér
við til þess að sópa úr hornunum
hreyfðust mjaðmir hennar undir
þröngu svörtu pilsinu eins og
lendar á fallegri hryssu. Svart
hárið hrundi niður yl'ir andlitið
svo að skein i hálsinn. — Ég býst
við, að ég þoli ekki að sjá háls,
sagði lhigh. Hálsinn á Giuliettu
var Ijósrauðbrúnn. og svo hraust-
legur, að hann minnti á epli. IJm
hálsinn hékk gullkeðja, sem var
svolitið rök eins og sagið. Hann sá
svitadropa glitra á keðjunni.
Sennilega hafði enginn á sveita-
setrinu glaðst yfir komu Hughs og
Caddiear nema Giulietta. Hún
var vingjarnleg við þau og sýndi
þeim áhuga, þó að hún hefði
meira að gera vegna þeirra. Það
var hún, sem kenndi þeim að
segja „Grazie”, „Tante Grazie”,
og siðan svaraði hún „Prego”, og
brosti, svo að undurfagrar, hvitar
tennurnar komu i ljós. Það var
Giuletta, sem gerði að gamni sinu
við Rob, sem var aldrei tilbúinn,
þegar hún hratt upp stóru gler-
hurðinni og kallaði á hann i mat
„Altavola” eöa „II pranzoi á
pronto”, þegar hún vildi vera
ráðsett. En nú sá Hugh hana með
öðrum augum. Hann horfði á
svitadropann á guilkeðjunni, og
hann vissi hvernig háls hennar
var viðkomu hlýr, rakur, örlitið
stamur, en kvenhold. — Haltu
áfram. Þessar stelpur búast við
þvi, — hefði Raymond sagt, en
þaö var ekki Raymond, sem fékk
Hugh til þess að rétta fram hönd-
ina. Það var Hugh sjálfur. Hann
beygði sig og þurrkaði dropann
burt með figrinum.
— Giulietta, hvislaði hann og
hann fór að gæla við háls hennar,
eins og Rob hafði gert við Fann-
eyju. Af þvi að hendur Hughs
voru litlar, hefði mátt segja, að
hann væri að „klappa” Giuliettu
en það var ekki um að villast að
þetta voru ástarhót. Þetta var að-
eins andartak. Giulietta spratt
upp. Hún var hærri en Hugh, en
hann stóð einu þrepi fyrir ofan
hana, og hann sá að dökku augun
hennar leiftruðu, en hvort það var
af reiði eða gleði, vissi hann ekki.
— Haltu áfram. Vertu ekki eins og
pelabarn, fannst honum
Raymond segja. — Haltu áfram,
og enn einu sinni þessar stelpur
búast við þvi. Þau stóðu augliti til
auglistis. Hugh hafði enga hug-
mynd um, hvað Giulietta ætlaði
að gera. Andlit hennar sýndist
stórt, og þegar hann sá augu
hennar svona nærri, voru þau
ekki svört, heldur brún með gul-
leitum blæ. Nefið var hátt, en
honum var um og ó að horfa á
munninn. Það var bæði vinlykt og
hvitlauksþefur út úr henni eins og
Celestinu. „Nú jæja, þetta var
ekki löngu eftir hádegisverðinn”.
Hugh fylltist skelfingu. Honum
fannst andardrátturinn stöðvast.
Ilann óskaði, að stigaþrepið
opnaðist og gleypti hann. — Vertu
ekki eins og pelabarn, hélt röddin
áfram að segja. Hann rétti aftur
fram höndina, en þó með hálfum
huga, og þreifaði á öðrum þúfna-
kollinum undir peysunni á Giuli-
ettu. Þeir voru ekki harðir, eins
og þeir virtust, heldur mjúkir og
I jaðurmagnaðir, hugsaði Hugh
undrandi. Það fór um hann heitur
straumur, sem byrjaði á fótunum
og fór alla leið upp i maga. Hann
þrýsti þessa stinnu hnúska. Giuli-
etta hló. Hlátur hennar var
dimmur og henni virtist standa á
sama þótt hláturinn heyrðist um
allt húsið. Hún lagði arminn um
hálsinn á Hugh og kyssti hann
beint á munninn. Hugh fannst hún
vera að kremja á sér varirnar, en
það kom honum mest á óvart, aö
kossinn var bæði rakur og heitur.
Hann fann tungu Giuliettu og
kipptist við, eins og hann hefði
brennt sig, en hún sleppti honum
ekki. — Loksins Cosi, sagði Giuli-
etta og i orðunum lá: „Þetta er
það, sem þú baðst um. Questo é
quantohai chiesto. Nú ertu búinn
að fá kossinn — og betur úti látinn
en þú vildir”. Og hún greip sópinn
og hélt áfram að hreinsa sagið úr
stiganum.
— Var þetta allt og sumt?
spurði Rob varfærnislega. — Allt
og sumt? Hugh komst einhvern
veginn ofan stigann og út úr hús-
inu. Hann flýði út i biskúr. Þar
stanzaði hann og þurrkaði sér um
munninn með handarbakinu eins
og barn. Siðan tók hann reiðhjólið
hans Mariós og hjólaði i einum
fleng til Riva, öfugumegin á veg-
inum, þar til maður á bifhjóli
stöðvaði hann og benti honum á
hægri brúnina, um leið og hann
kallaði eitthvað reiðilega á
itölsku. — Og svo komst ég til
Rive, sagði Hugh. — Og þú hefur
verið hérna siðan? — Ég held það.
Hugh dreypti á vininu, en það fór
hrollur um hann við bragðið. Rob
sá, hvernig hrollurinn færðist nið-
ur eftir bakinu á honum. Siðan
sneri Hugh sér að Rob aftur: —
Hefði ég átt að vera kyrr? spurði
hann angistarfullur. — Hefði ég
átt að vera? Er það það, sem ég
hefði átt að gera næst? Raymond,
sem var einn af strákunum i
skólanum, sagði mér.. — En ef ég
á að segja alveg eins og er, sagði
Hugh, sem varð fyrir hvern mun
að létta á hjarta sinu. — Þá er ég
hræddur um, að ég geti það ekki...
og þó. Hann leit á Rob, og það var
villtur glampi i augunum. — Ég
held aö hún vilji það. Setjum
svo... eins og það, sem gerðist?
— En spurningin er þessi, sagði
Rob. — Likaði þér þetta? — Nei.
Röddin brast, og veslings dreng-
urinn þagnaði i miðju kafi. — Þá
skaltu ekki halda áfram, sagði
Rob. — Gleymdu þvi ekki, að það
eru karlmennirnir, sem eiga að
stiga fyrsta skrefið. Það ert þú,
sem átt að velja. Þeir eru of
margir, sem lofa öðru fólki að
velja fyrir sig, sagði Rob. — Við
lofum konunum of oft að velja. Ef
þú gerir það, verðurðu aldrei að
manni. Karlmaðurinn á að velja,
og hann verður að standa við
ákvörðun sina, sagði Rob, og
kjálkar hans lýstu festu.
— Þú valdir mömmu, sagði
Rob. — Já, i fyrsta sinn, er ég sá
hana, sagði Rob. — En hvað á ég
að gera, þegar ég sé hana
Mömmu þina? Rob sagði þetta i
striðnistón, ef til vill til þess að
snúa þessu upp i gaman. — Nei,
Giuliettu, sagði Hugh, sem var
enn angistarfullur. — Hvað get ég
gert? — Ekkert. — En setjum svo,
að hún búist við, að eitthvað ger-
ist. — Ef hún skyldi búast við ein-
hverju, er ég þykist viss um, að
húngerir ekki, hættir hún þvi von
bráðar. — Þú verður vandræða
legur fyrst þegar þú sérð hana.
Ég er viss um það. Það getur
meira aö segja vel verið að það
valdi þér sársauka. Rob leit ekki
á Hugh, og Hugh var honum
þakklátur fyrir það, þvi að hann
roðnaði. — Það er eina ráðið, og
þegar til kastanna kemur, er bezt
að hafa allt á hreinu. Og ég held
Lárétt
1) Fiskur - 6) Tindi.- 8) ÉL-10)
Aa,- 12) Kind - 13) Fæði-. 14)
Dreif.- 16) Hár.- 17)
Reiðihijóð.- 19) Vökva,-
Lóðrétt
2) Hulduveru,- 3) Tónn,- 4)
Stórveldi.- 5) Verkfæri,- 7)
Skemmd.- 9) Gruna,- 11)
Afhendi,- 15) Andvari.- 16)
Grjóthlið.- 18) Muttering.-
Ráðning á gátu No. 1368
Lárétt
I) Oldur,- 6) Fastari,- 10) TU.-
II) Ós.- 12) Amsturs.- 15)
Frost.-
Lóðrétt
2) Los-3) Una.- 4) Oftar,- 5)
Vissa,- 7) Aum,- 8) TTT,- 9)
Rór,- 13) Sær,- 14) Uss.-
HVE
G
E
I
R
I
ÞRIÐJUDAGUR
27. marz
7.00 Morgunútvarp
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
13.00 Eftir hádegið Jón B.
Gunnlaugsson leikur létt lög
og spjallar við hlustendur.
14.15 Fræðsluþáttur um
almannatryggingar (endur-
tekinn)
14.30 Skólahættan og
tvenndarskóli Kristján
Friðriksson forstjóri flytur
erindi i tilefni af grunn-
skólafrumvarpinu.
15.00 Miðdegistónleikar:
16.00 Fréttir
16.15 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar.
16.25 Popphornið
17.10 Framburöarkennsla I
þýzku, spænsku og erper-
anto
17.40 Útvarpssaga barnanna:
„Nonni og Manni fara á
fjöll” eftir Jón Sveinsson.
Freysteinn Gunnarsson is-
lenzkaði. Hjalti Rögnvalds-
son les (2).
18.00 Eyjapistill. Bænarorð.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.20 Fréttaspegill
19.35 UmhverfismálSnæbjörn
Jónasson yfirverkfræðingur
talar
19.50 Barnið og samfélagiö
Maria Kjeld sérkennari
talar um uppeldisskilyrði
þroskaheftra barna á for-
skólaaldri.
20.00 Lög unga fólksins
20.50 íþróttir Jón Asgeirsson
sér um þáttinn.
21.20 Pianósónata nr. 4 op. 54
eftir Pál Kadosa Höfund-
urinn leikur.
21.25 i Ijóðahugleiðingum
Konráð Þorsteinsson les
nokkur ljóð i þýðingu
Magnúsar Asgeirssonar og
spjallar um þau.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Lestur
Passiusálma (31)
22.25 Rannsóknir og fræði Jón
Hnefill Aðalsteinsson fil. lic.
talar við dr. Þorvarð Helga-
son.
22.50 Harmónikulög
23.00 A hljóðbergi.
23.20 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrarlok.
Þriðjudagur
II! 27. marz
í&lí 20.00 Fréttir
ÍSÍí 20.25 Veður og auglýsingar.
M 20.30 Ashton-fjölskyldan.
Brezkur framhaldsmynda-
flokkur. 46. þáttur. Skyn-
semin ræður Þýðandi Heba
Júliusdóttir. Efni 45. þáttar:
Davið er á batavegi eftir
slysið. Hann hefur slasazt á
höfði og læknarnir telja að
honum verði ekki leyft að
fljúga framar. Sheila heim-
sækir hann á sjúkrahúsið.
Hann reynir að vekja
meðaumkur. hennar, og
eftir mikið táraflóð ákveða
þau að gera enn eina tilraun
til að lappa upp á hjóna-
bandið.
21.20 Vinran. Fræðsla fullorð-
||:| inna. Fræðsla utan hins
hefðbundna skólakerfis er
!!§ athyglisverður og þýðingar-
:§:§ mikill þáttur i menntun
fólks, til að fylgjast með i
:;:§:§ sinu starfi. Þessi þáttur er
filmaður á ýmsum stöðum,
þar sem slik kennsla fer
•;;;;;;;;; fram. Rætt er við nemendur
;;;;;;;;;; og formann nefndar sem
vinnur að lagasetningu á
;;;;;;;;;; þessu sviði. Umsjónar-
;§:;;í; maður Baldur Óskarsson.
22.00 Listhlaup á skautum.
:;;;;;;;; úrslit parakeppninnar á
;;;;;;;;; heimsmeistaramóti i list-
j;;;;;;;:; hlaupi á skautum, sem fram
fór i Bratislava i
Tékkóslóvakiu um siðustu
;;;;;;;§ mánaðamót. Þulur Ómar
;;;;;;;;;; Ragnarsson. (Evróvision —
í;;;;;;;; Tékkneska sjónvarpið)
§;;;§; 22.40 Ilagskrárlok.