Tíminn - 30.03.1973, Síða 4
4
TÍMINN
Föstudagur 30. marz 1973.
Dýrgripir í
kartöflugarðinum
Ef þið eruð orðin þreytt og leið
á að setja niður kartöflur, eða
atast i blómabeðunum i garð-
inum ykkar getið þið glatt ykkur
við, að stundum getur það
borgað sig, ef fólk hefur augun
hjá sér, og tekur eftir þvi hvað
kemur upp með moldinni um
leið og hún er stungin upp.
Vörubilstjórinn David Beeton i
Englandi varð heldur en ekki
hissa, þegar hann sá allt i einu
105 smápeninga koma upp,
þegar hann var að stinga upp
garðinn sinn i Nottingham.
Peningarnir litu mjög hvers-
dagslega út, en þó fór svo, að
British Museum lét sig hafa það
að borga manninum hvorki
meira né minna en 1500 pund
fyrir 15 þessara peninga. beir
voru sem sagt sérlega sjald-
gæfir og afganginn af sjóðnum
tókst David svo að selja á upp-
boði fyrir 85 þúsund pund. Það
er kannski ekki mjög liklegt að
fólk finni dýrgripi af þessu tagi
i garðinum hjá sér, sérstaklega
ekki hér á Islandi, þar sem
minna er um fornar minjar,
heldur en i Englandi, en hver
veit, hvað gerzt getur. En
það er þó alltaf uppskeran úr
garðinum, sem fæst að
haustinu, hvað sem öðru liður.
Það er nefnilega ekki allt gull,
sem glóir, og það varð niður-
staðaná fundi Cecil Blakehurst
45 árs gamals manns, sem fann
skinandi gullpening i garðinum
sinum i Peterborough. En við
nánari athugun kom i ljós, að
þetta var mjög hversdagslegur
bronspeningur. Sydney Ross,
sem er 13 ára gamall, og á
heima i Newcastle, ætlaði að
vinna sér inn smávasapeninga
með þvi að hjálpa föður sinum,
að reyta arfann úr garðinum.
Hann fékk meira en hann hafði
búizt við, þvi hann fann 1900 ára
gaman pening, sem hann seldi
fyrir 200 dollara. Sennilega
aukast möguleikarnir á
miklum fundi i réttu hlutfalli við
það, hversu mikið maður
grefur. Þess vegna er það
fremur algengt i Englandi, að
menn, sem grafa fyrir húsum,
vinna á jarðýtum eða gröfum,
finni dýrgripi, ef þeir hafa
augun opin á meðan þeir eru i
vinnunni. En' það lá við að
Arthur Davey vinnumaður á
sveitabæ einum tapaði stórfé,
þegar sjö ára gamall sonur hans
reyndi að fá vin sinn til þess að
skipta við sig á litilli styttu og
leikfangabil, sem soninn
langaði mjög til að eignast Ekki
varð þó af skiptunum, enda var
það betra fyrir alla, Styttan
seldist fyrir 36.750 pund á upp-
boði i London. Arthur hafði
rekizt á styttuna, þegar hann
dag nokkurn var að leita að ein-
hverju úti á engi til þess að
skerpa með ljáinn sinn. Styttan
fannst nálægt Bury St.
Edmunds, Suffolk. Svo var það
Malclom Tricker ýtustjóri i
Ipswich, sem rakst allt i einu á
fimm gullbönd, sem hann hélt i
fyrstu, að hefðu verið einhvers
konar hankar eða höldur á lik-
kistu. 1 ljós kom við nánari
athugun, að þetta voru gullháls-
bönd, en þau voru talin eign
rikisins, vegna þess, hvar þau
fundust. Þratt fyrir það fékk
Malcolm 45 þúsund punda
fundarverðlaun. Hér með sjáið
þið svo myndir af háls-
böndunum, og litlu styttunni,
sem sonur Arthurs Davey ætlað
að skipta á og litlum leikfanga-
bíl.
Undarlegur þorskur
Aldrei hafði ljósmyndarinn,
sem þessa mynd tók, séð þorsk
likan þessum hér.Höfuðlagið er
lika eitthvað undarlegt. Það var
Jörgen Lindahl fiskimaður i
Bunnefjörden i Noregi, sem
■
Ævintýraleg
fallhlífarstökk
Starfsmenn i verksmiðju i San
Bernadino i Kaliforniu fengu
óvæntan fridag nú nýlega,
þegar fallhlifastökkvari lenti
óvænt á þaki verksmiðjunnar.
Lenti maðurinn i rafmagns-
linum, og sleit þær, með þeim
afleiðingum, að kviknaöi i verk-
smiðjunni. Annar óvæntur
gestur kom allt i einu fljúgandi
niður úr geimnum og lenti á
veizluborði I brúðkaupsveizlu,
sem haldin var utan dyra i
Denver i Colarado. Maðurinn,
sem heitir Larry Gold, lenti
niður i brúðartertunni, og annar
fóturinn fór niður i kampavins-
kælinn. Það gerðist svo i Rúss-
landi, að fallhlifastökkvari kom
einsog þruma úr heiðskiru lofti,
og lenti niður i miðri blóma-
sýningu, sem haldin var i Kiev.
Sá hét Igor Skorov. Og það hafa
fleiri furðuleg atvik komið fyrir
menn, sem, stokkið hafa út úr
flugvélum i fallhlif. Til dæmis
var það hann Bill Jackson, sem
hafði ætlað að stökkva mjög
hversdagslegt fallhlifarstökk.
Hann barst af réttri leið vegna
breyttrar vindáttar og endirinn
var sá, að hann lenti niður á
botni i gamalli kolanámu, 90 fet
undir yfirborð jarðar.
veiddi þennan skrýtna þorsk, og
hann sagði, að þrátt fyrir það,
að hann hefði stundað fiskveiðar
i milli 60 og 70 ár hefði hann
aldrei áður séð neitt þorskgrey
þessu likt.
Stútur við stýrið
1 Bandarikjunum létust 55 þús-
undir manna i umferðarslysum
á þjóðvegum siðastliðið ár. Eru
það 400 fleiri en árið 1970. Afengi
reyndist koma við sögu i 50-60 af
hverju hundraði dauðaslysa á
þjóðvegum þar vestra. Afengis-
neyzla olli þannig dauða a.m.k.
30 þúsund manna i 800 þúsund
umferðarslysum i Bandarikjun-
um árið 1971.
Byssuleikur
eða árekstur
Fólk kallaði i skyndi á Kaup-
mannahafnarlögregluna, eftir
að hafa heyrt hvell á Ráðhús-
torginu, og sá tvo menn ligg-
jandi alblóðuga á götunni. Kona
nokkur fékk aðsvif, af þvi að
hún hélt, að hún væri mitt i
götubardaga. En lögreglan
komst að raun um, við nokkra
athugun, að tveir fótgangandi
vegfarendur höfðu verið að
ganga yfir göngubraut, hvor i
sina áttina. Höfuðin höfðu þeir
sett undir sig og þeir sáu ekki,
hvað framundan var. Allt i einu
skullu þeir saman. Sören Vang
Nielsen, 79 ára gamall, reyndist
höfuðkúpubrotinn, en Holger
Lund 44 ára hafði fengið heila-
hristing. Báðir mennirnir voru
þegar fluttir á sjúkrahús.