Tíminn - 19.04.1973, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Fimmludagur 19. april 1973.
Stærsti
bræðsluofn
í Evrópu
Stærsti bræösluofn i Evrópu,
ofn. nr. 5 i járn-og stáliöjuver-
inu i Novolipetsk i Evrópuhlut
Sovétrikjanna, hefur skilað frá
sé fyrstu steypujárnsblokkinni.
Efnin tekur 3200 rúmmetra og
það þarf tvo járnbrautarfarma
af járnmálmi til þess að fylla
hann, enda er hann næstum 10
metra hár. Þessi risavaxni ofn
getur framleitt 2.2 milljónri
tonna á áriaf hrjájárni. Er fljót-
andi járn tappað af ofninum
16-20 sinnum yfir daginn. í sam-
ræmi við nútima tæknikröfur er
hið nýja járnbræðsluver buið
fullkomnustu loftræstingu og
tækjum til að hreisa brennslu-
gas og rykagnir úr loftinu til
þess að koma i veg fyrir loft-
mengun.
Drykkjusýki
mikið
vandamól
í Evrópu
Afengissýki er alvarlegasta
þjóðfélags- og heilbrigðis-
vandamál Evrópu á vorum
dögum samkvæmt umsögn
svissneska prófessorsins, dr.P.
Kielholz. A læknaráðstefnu,
sem haldinn var fyrir stuttu i
V-Þýzkalandi, sagði dr. Kielholz
um 2% af öllum ibúum Evrópu
þjást af ólæknandi drykkju-
sýki .Drykk jusýkin færist
stöðugt til yngri árganga. Frá
árinu 1959 til 1969 hækkaði tala
drykkjuskuklinga yngri en 19
ára um meira en helming.
Misnotkun áfengis hefur einnig
aukizt eysilega meðal kvenna,
og dr. Kielholz benti á, að i
öllum Evrópulöndunum hefði
aukning meðal kvenna yngri en
30 ára numið meira en 50%
seinustu 10 árin. Enn fremur
andmælti prófessorinn þeirri
almennu hugmynd, að alda
annarra eiturhefna hefði
minnkað áfengisneyzluna, en
benti á hið gagnstæða. Komið
hefur i ljós, að um 50% allra
drykkjusjúklinga, neyta eða
misnota önnur sterk efni eða lyf.
Nakti karlinn
bara brúða
Þýzkt fyrirtæki framleiddi ný-
lega mjög vel gerða tilrauna-
brúðu. Hún var i fullri likams-
stærð, og hægt var að taka af
henni hendur og fætur, og
sömuleiðis mátti losa hana við
hvaða vöðva sem var, hjarta og
innyfli. Akveðið var, að ein slfk
brúða færi til skóla nokkurs i
Val de Marne héraði i Frak-
landi. Starfsmaður verk-
smiðjunnar, sem framleitt
hafði brúðuna, tók að sér, að
fara með hana og afhenda hana
kaupendum. Þar sem brúðan,
sem reyndar var karlmaður,
var algjörlega klæðalaus,
sveipaði maöurinn um karlinn
teppi eftir aö hafa komið honum
fyrir i framsæti bilsins. Þegar
hann hafði komið karli sæmi-
lega fyrir, ákvað hann að
bregða sér i mat, áður en hann
lagöi af staö i ferðina. Læsti
hann bilnum og fór inn i næsta
veitingahús. Nokkru siðar gekk
kona framhjá. Henni varð litið
inn i bflinn og fannst sem sæi i
þann likamshluta karl-
mannsins, sem venjulega er
öllum hulinn. Brá henni heldur
betur i brúnj en horfði þó á
manninn nokkru lengur. Þá tók
hún eftir nöktum en stirðum
fótum, sem stóðu út undan
teppinu. Var stellingin likust
þvi, sem hér væri um lfk að
ræða. Nú brá konunni enn meir,
og hún flýtti sér strax i næsta
simaklefa og hringdi til lögregl-
unnar og tilkynnti að dauður
maður sæti i bilnum. Lögreglan
kom með vælandi sirenur. Sáu
þeir strax, að biilinn var læstur,
en létu sig hafa það að brjóta
rúðu og ná i ,,likið.” Þegar
starfsmaður brúðufyrirtækisins
kom aftur út úr matsölunni,
var billinn hans horfinn, og það
eina, sem eftir var, var smá-
hrúga af glerbrotum úr bil-
rúðinni, og þar hjá stóð
lögregluþjónn á verði. Lög-
reglumaðurinn varð að útskýra
fyrir manninum, hvað komið
hafði fyrir, en gekk það vist ekki
sem best. „Billinn þinn er á
lögreglustöðinni,” sagði hann,
„hinum megin i borginni. Við
gátum ekki skilið hann eftir hér
á götunni, þegar búið var að
brjóta úr honum rúðuna. Það
hefði einhver getað stolið
brúðunni þinni.” Lögreglu-
þjónninn brosti afsakandi, og
bætti svo við: „Þar við gætist.
að þú hafðir lagt bilnum ólög-
lega, svo hér er stöðumæla-
sektin.”
★
Fékk hníf
í höfuðið
Það gerist æði margt i bótbolta-
kappleikjum, sem efnter til i út-
löndum. Þessi mynd var tekin á
fyrstu deildar leik i Skotlandi nú
fyrir nokkrum dögum.
Lögreglumaðurinn heldur á
ungri stúlku, sem hefur fengið
hnif i höfuðið. Taldi lögreglan,
að einhver hinna 36.400
áhorfenda hefði hreiniega
kastað frá sér hnifnúm, án þess
að ætla að henda honum i ein-
hvernákveðinn. Leikurinn, sem
stóð yfir, var á milli Aberdeen
og Celtic i Pittodrei. Enginn
hefur enn verið handtekinn
vegna þessa atburðar. Nafn
stúlkunnar hefur verið birt.
Heitir hún Patricia Allan, 16
ára gömul. Henni var leyft að
fara heim til sin af slysavarð-
stofu, eftir að læknar höfðu gert
að sárum hennar. Patricia
hefur sagt, að þetta hafi ekki
reynzt eins slæmt og leit ut
fyrir, hún væri aðeins með kúlu
á höfðinu, og hnifurinn hafi rétt
aðeins farið i gegn um skinnið.
Þetta verður þó ekki til þess, að
ég hætti við að fara á fótbolta-
leiki, segir hún, en þó er hún
ekki viss um, hvort hún fari i
framtiðinni að horfa á áður-
nefnd lið. Mjög mikill fjöldi
fólks slasaðist á þessum kapp-
leik.allsum 50 manns, og þar á
meðal einn lögregluþjónn.
Tuttugu manns voru teknir
fastir á meðan á leiknum stóð.
Borðaði fólkið inatinn fyrir
framan útvarpið i gamla daga.
----------M
3-20
DENNI
DÆMALAUSI