Tíminn - 19.04.1973, Qupperneq 8

Tíminn - 19.04.1973, Qupperneq 8
8 TÍMINN Fimmtudagur 19. april 1973. Kappræðu- fundurFUF og Heimdallar Frásögn Ómars Kristjánssonar formanns FUF Myndin er af kappræðufundi FUF og Heimdallar í Sigtúni, cn salurinn var þéttsetinn. Tímamynd: Róbert. Félagungra framsóknarmanna i Reykjavik skoraöi á Heimdall, félag ungra sjálfstæðismanna til kappræðna fyrr i þessum mánuði. Tóku Heimdellingar boðinu og var fundurinn haldinn i Sigtúni, mánudagskvöld 11. april. Á fundinum var rætt um stefnu stjórnarandstöðunnar. Þrir ræðu- menn frá hvoru félagi töluðu og sluttu þeir fyrst framsöguræður og siðar á fundinum töluðu þeir allir. Ómar Kristjánsson, formaður FUF setti fundinn, og gat hann þess i setningarræðu sinni, aö stefna stjórnarandstöðunnar væri mjög óljós og ófullmótuð. Væri þvi full þörf á að fá unga sjálf- stæðismenn til að ræða málin til þrautar. Framsögumenn af hálfu ungra framsóknarmanna voru Guð- mundur G. Þórarinsson, verk- fræðingur, Elias Jónsson, blaða- maður og Björn Björnsson, fram- kvæmdastjóri SUF. Af hálfu Heimdallar töluðu, Ellert B. Schram, alþingismaður, Harald- ur Blöndal, lögfræðingur og Geir Waage, guöfræðinemi. 1 ræðu sinni sagði Guðmundur G. Þórarinsson m.a. að sú stjórnarandstaða, sem nú situr, er stefnulaus og úrræðalaus, hug- laus og grútmáttlaus. Taldi hann verkefni stjórnarandstöðu væri að finna beztu leiðirnar til hags- bóta fyrir land og þjóð, ef þeim likaði ekki stefna stjórnarinnar. En núverandi stjórnarandstaða bendir ekki á nein úrræði, en tönnlast sifellt á þvi, að eina heil- ræðið sem hægt væri að gefa land og þjóð, væri að fella þessa rikis- stjórn, sem nú situr. Taldi Guð- mundur, að stefnan einkenndist af málflutningi um ágreining milli ráðherra. Til þess væri mál- gagn Sjálfstæðisflokksins nýtt til þrautar, til að rægja ákveöna ráðherra, ota mönnum saman með slúðursögum og rógi. Guð- mundur galdi, að þetta væri þaul- hugsað herbragð, en að þetta yrði ekki til að auka traust almenn- ings á stjórnmálum og stjórn- málamönnum. Guðmundur benti á að land- helgismálið væri veigamesta málið, sem núverandi rikisstjórn heföi fengizt við og visaði i endur- minningar Mcmillans, þar sem hann tekur fram, að tslendingar megi ekki senda málflytjanda til Haag og benti Guð- mundur á hina slæmu samninga sem gerðir voru 1961. t siðari ræðu sinni sagði Guðmundur, að málsvörum stjórnarandstöðunn- ar færist ekki að tala um gengis- fellingar, og hafi enginn rikis- stjórn á tslandi fleiri gengisfell- ingar að baki en sú, sem nú er i stjórnarnandstöðu. Guðmundur benti á að viða i útlöndum reyndi stjórnarandstaða að benda á betri úrræði til lausnar vandanum og oft væri stjórnarandstaðan með meiri kröfur um sparnað i rikis- útgjöldum heldur en stjórnin. Ellert B. Schram sagði, að allur timi framsóknarmanna færi i það mikla baráttumál að leggja sinn eigin flokk niöur. Þá sagði hann, að þær gengis- lækkanir, sem sjálfstæðisflokkur- inn hefur staöið að, hefðu verið af illri nauðsyn, en gengisfellingin i vetur væri heimatilbúin og alls ekki raunhæf. Björn Björnsson gerði hin miklu fundahöld sjálfstæðis- manna að umtalsefni, sem væru mikið auglýst undir einkunnar- orðunum. Stöndum vörð um þjóðarhag. Þættust þessir ágætu menn halda þessa fundi til að finna strauma fólksins, en fólkið hefði ekki sýnt þessum funda- höldum mikla athygli. Nefndi hann sem dæmi, að á fundi á Bolungavik mættu 10 áheyrendur, og flestir þeirra á móti þeim ihaldsmönnum, sem þarna töl- uðu. Björn sagði, að þessi fundar- sókn ihaldsins sýndi vel, hvað þeir hefðu barizt vel i tveggja ára stjórnarandstöðu. Björn minnti á, að atvinnuástand á landinu hafi aldrei verið betra en nú og þyrftu menn ekki lengur að sækja út fyr- ir landsteinana til að fá vinnu við sitt hæfi, og væri hörgull á vinnu- krafti i landinu i dag. Björn minntist á landhelgis- málið og sagði að þjóðin hafi stað- fest, að samningurinn frá 1961 sé einn hinn mesti óheillasamning- ur, sem gerður hefur verið, og svo segir Gunnar Thoroddsen, að Þjóðin hafi staðfest samninginn við Breta. Geir Waage sagði, að þeir, sem sitja nú i rikisstjórn væru mestu stjórnmálaklaufar sem i ráð- herrastólana hefðu komið. Hann taldi, að hvorki hefði gengið eða rekið i landhelgismálinu vegna ósamkomulags milli ráðherra. Elias Jónsson taldi, að hið eina markverða, sem komið hefur frá núverandi stjórnarandstöðu væri vantrauststillagan, sem borin var fram rétt fyrir áramót og vitnaði hann i ummæli Ólafs Jóhannes- sonar, um þessa stjórnarand- stöðu, að hún væri óábyrgasta stjórnarandstaða, sem nokkru sinni hefði verið til, sem léti sig engu skipta um þjóðarhag. Hann benti á, að núverandi stjórnarandstaða hefði ekki bent á eitt einasta úrræði i efnahags- málum og minnti menn á að nú- verandi rikisstjórn hefði tekið við 1200millj. kr. skuldabagga af frá- farandi rikisstjórn 1971, en undir viðreisnarstjórninni áttu ts- lendingar heimsmet i verkföllum, en nú hafi verið tryggður vinnu- friður. Haraldur Blöndal gerði að um- talsefni, hve lengi Framsóknar- flokkurinn hefði þráð að eignast barn. Nú hefur honum orðið að ósk sinni, þegar hann eignaðist sina eigin rikisstjórn. Hann sagði að ráðherrar Framsói'narflokks- ins i rikisstjórn hafi algjöran for- gang, en sagði það sina skoðun, að þar hafi hvorki gengið né rek- ið. Halldór taldi alveg fásinnu, að verja ekki málið fyrir Haagdóm- stólnum. en þar lægi alveg ljóst fyir, að þar mundum við vinna og ságðist hann treysta framsóknar- manninum Sigurði Gizurarsyni, lögfræðingi, mjög vel til þess að verja málið fyrir hönd Is- lendinga. AÐALVINNINGUR ÁRSINS: Mjög fallegt einbýlishús aö Espilundi 3, aö verðmæti fnú þegar) kr. 6 milljónir. 100 bílavinningar, þ.á.m. Mercedes Benz 280 S að verðmæti 1.774.000.00 & Opel Manta sportbifreið að verðmæti kr. 782.000.00 % Wagoneer ferðabifreið að verðmæti kr. 825.000.00 % íbúöarvinningur mánaðarlega. Sala á lausum miöum stendur yfir. Endumýjun ársmiða og flokksmiða er hafin. Verö óbreytl

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.