Tíminn - 19.04.1973, Qupperneq 10

Tíminn - 19.04.1973, Qupperneq 10
10 TÍMINN Fimmtudagur 19. april 1973. ALÞINGI Umsjón: Elias Snæland Jónsson Ólafur Jóhannesson: Landhelgin verður varin og það með fullum þunga ef ekki næst bróðabirgðasamkomulag í landhelgisdeilunni EJ—Reykjavik. — Nokkrar umræður urðu i neðri deild i gær um landhelgisgæzluna. í þeim umræðum sagði ólafur Jóhannesson, forsætisráðherra, að hann vonaðist til þess, að ekki þyrfti að koma til hálfstyrjaldar á miðunum heldur tækist að leysa landhelgisdeiluna með bráðabirgðasamkomulagi. Tækist það hins vegar ekki væri það vafalaust ein- róma vilji alþingis, að landhelgin yrði varin, og það af fullum þunga. Það myndi gert, en til þess þyrfti mun fleiri skip en Landhelgisgæzlan hefði nú til um- ráða.Það gæti þvi þurft á margföldum fjárveiting- um til þessara mála að halda, og það i skyndingu. Umræðurnar urðu um tillögu frá Sjálfstæðismönnum um, að 75 milljónir króna færu árlega i landhelgissjóð, en þetta frum- varp var til 2. umræðu. Stefán Valgeirsson (F) mælti fyrir áliti allsherjarnefndar, sem lagði til að tillögunni yrði visað til rikisstjórnarinnar. Sagði hann, að fjárveitingar til landhelgis- gæzlu hefðu hækkað mjög undan- farin ár, eða úr 111.5 milljónum 1971 i 147.1 milljón 1972 og 276.6 milljónir á fjárlögum yfirstand- andi árs. Til viðbótar hefði rikis- sjóður nú yfirtekið lán vegna landhelgisgæzlunnar að upphæð 136.1 milljón króna, og væri greiðslubyrði þeirra vegna á þessu ári 38.8 milljónir. Heildar- greiðslur vegna landhelgisgæzl- unnar i ár væri þvi 315.4 milljónir, eða um 203.9 milljónum meiri en árið 1971. Þingmaðurinn sagði, að þessar auknu fjárveitingar, og svo heimild sú, sem rikisstjórnin fékk til að taka 100 milljón króna lán vegna smiði gæzluskips, sýndi hug rikisvaldsins nú til land- helgisgæzlunnar, og væri þvi rétt- ast að visa frumvarpinu til hennar. ólafur Einarsson (S) mælti fyrir áliti minnihlutans, sem lagði til, að frumvarpið yrði samþykkt. Jóhann Ilafstein (S) taldi það á engan hátt þakkarvert, þótt núverandi rikisstjórn hefði hækk- að fjárveitingar til landhelgis- gæzlu. Taldi hann, að með þeirri afgreiðslu, sem nú væri á þessu máli, væri verið að skilja við málið með lúsablesahætti. Ólafur Jóhannesson, forsætis- ráðherra, sagðist skilja af- greiðslu þingsins á þessu máli þannig, að þingmenn vildu, að ekkert yrði til sparað til að gera Landhelgisgæzluna þannig úr garði, að hún geti gegnt hlutverki sinu. Þar gæti þurft miklu meiri upphæðir en nefndar væru i þessu frumvarpi, en i þessu máli þýddi ekki að vera með smámunasemi. Hann sagði, að núverandi ástand væri að ýmsu leyti sam- bærilegt við að vera i striði. Ef ekki tækist að leysa deiluna með bráðabirgðasa m kom ulagi og áfram yrði um árekstra á miðun- um, þá þyrfti á miklu fjármagni að haida til þessara mála. Menn hefðu orðið að þola ásakanir og ögranir um, að ekki hefði verið farið fram með nægilegri hörku. Menn yrðu hins vegar að gera sér Ijóst, að ekki væri hægt að verja þetta stóra svæði með núverandi skipakosti. Hann myndi þvi gera kröfu til þess, ef á þyrfti að halda, að ekkert væri til sparað til að kaupa eða leigja skip. Það gæti þurft að leigja mörg skip á næst- unni, og þýddi ekkert að telja fjármagnið eftir I þvl sambandi. Spurningin væri aðeins.hvort við ætlum að standa við það.sem við höfum sagt og verja fiskimiðin eða ekki. Hann kvaðst ekki mundi sætta sig við að vera sakaður um að gera ekki sitt itrasta til að verja landhelgina, en fá svo ekki nauðsynlegt fjármagn. 1 þvi sambandi væri auðvitað að ýmsu leyti skynsamlegt að land- helgissjóður hefði fasta tekju- stofna. En ef hins vegar færi áfram sem nú horfir þá væri ekki hægt að binda sig við sjóðinn. Þá gæti þurft margfalda fjárveitingu og það i skyndingu. Forsætisráðherra minnti á, að hann hefði reynt að hrinda af stað landssöfnun til landhelgissjóðs. Kosnlngar á fundi einaðs Alþingis í sam- EJ—Reykjavik. — 1 gær var kjör- ið i tvær milliþinganefndir I sam- einuðu þingi. 1 nefnd til að kanna þátt flutn- ingskostnaðar i mismunandi vöruverði I landinu o.fl. voru kjörnir Vilhjálmur Hjálmarsson, Haukur Hafstað, Magnús Reynir GuðmundSson, Sverrir Her- mannsson, Gunnar Gíslason. í nefnd til að gera tillögur um markmið, leiðir og mörkun al- mennrar stefnu I byggðamálum voru kjörnir Steingrímur Her- mannsson, Helgi Seljan, Ingvar Gislason, Karvel Pálmason, Lár- us Jónsson, Matthias Bjarnason og Pétur Pétursson. Þá var Gunnar Sigurðsson, Seljatungu, kjörinn i stjórn Áburðarverksmiðjunnar í stað Péturs Gunnarssonar, og Sigur- jón Hilariusson var kjörinn I varastjórn Húsnæðismálastofn- unar rikisins I stað Sigurrósar Sæmundsdóttur. Loks var Gunnar Sigurmunds- son, Vestmannaeyjum, kjörinn varamaður i stjórn Viðlagasjóðs I stað Guðmundu Gunnarsdóttur, sem hafði sagt af sér þvi starfi. Útvegsmenn á Suður- nesjum álykta FRUMVARP til laga um breyt- ingar á banni þvi,sem gilt hefur um veiöar með botnvörpu og flot- vörpu i Faxaflóa var til umræðu á stjórnarfundi i útvegsmanna- félagi Suðurnesja, þann 9. april s.l. A fundinum var gerð eftir- farandi samþykkt: „Otvegsmannafélag Suöur- nesja mótmælir harðlega laga- frumvarpi þvi, er lagt hefur verið fram á Alþingi, um að heimilaðar verði veiðar með dragnót og botn- vörpu i Faxaflóa”. 1 greinargerð með samþykkt- inni er m.a. bent á nauðsyn þess að farið sé að með fullri gát, við hagnýtingu fiskistofna okkar. Þór halastýfði landhelgisbrjót Þó—Reykjavik. — Varöskipið Þór skar á vira brezka togarans Aldershot GY-612 um klukkan ell- efu i gærmorgun. Þór kom að togaranum, þar sem hann var að veiðum 14 sjó- milur noröaustur af Hvalbak. Viraklippurnar voru settar út og tókst að skera á báða vira togar- ans. Aldershot hefur komið við sögu landhelgismála bæði fyrir og eftir útfærslu. Togarinn var til dæmis einn hinn siðasti,sem tekinn var innan 12 milna markanna og færður til hafnar fyrir útfærsluna 1. september siðast liðinn. Enginn vafi sé á þvi, að i Faxa- flóa séu einhverjar alþýðingar- mestu fiskuppeldisstöðvar okkar. Bent er á reynslu okkar af friðun Faxaflóans fyrir tog- og drag- nótaveiðum árið 1952, en á þeim tima hafði gengið svo á stofninn i flóanum að heita mátti, að allur fiskur væri uppurinn, Fljótlega eftir friðunina kom i Ijós, að fiskur fór að aukast og afli varð allgóður i önnur veiðarfæri. Þegar þessi friðun var svo af- numin, seig allt strax á ógæfu- hlið, og á endanum varð að gripa til friðunar að nýju. Við höfum nú fært landhelgina út I 50 milur, til hagsbóta fyrir framtiö okkar, en meö þvi ætlum við aö vernda fiskstofnana i N-Atlantshafi. Það er þvi mjög ótimabær hugmynd, og ekki stór- mannleg, að ætla að veita heimild til veiða með umræddum veiðarfærum i Faxaflóá. Fundurinn beinir þeim til- mælum til þingmanna Reykja- neskjördæmis, að þeir beiti sér fyrir þvi, að frumvarp þetta mái ekki fram að ganga. Ilann hefði talið , að allir islendingar myndu telja sér skylt að taka þátt i henni. Samstaða allra flokka hefði náðst, og skipuð nefnd, sem nú hefði skiiað af sér. Söfnunarféð væri um 27 milljónir króna, og væri það engan veginn litil fjársöfnun. Þvi miður hefði þátttakan ekki verið eins almenn eins og hann hefði vonazt til. Mest vonbrigði hefðu það verið sér, hversu sorglega hefði áskort framlög af hálfu þeirrar stéttar, sem hefði mátt ætla að teldi máliö hvað brýnast, þ.e. sjómannastétt- arinnar, — þótt þar væru vissulega margar heiðarlegar undantekningar. Sér hefði fundizt meiri þungi liggja á bak við bréf- in frá skipstjórunum 18, ef vitað væri hversu mikið þeir hefðu lagt af mörkum til þess að efla land- helgissjóð. Forsætisráðherra minnti siðan á, að sérstök nefnd væri að kanna möguíeikana á smiði, kaupum eða leigu á gæzluskipum. Að lokum sagði hann, að hann vonaði, eins og allir aðrir, að hægt væri að finna bráðabirgðalausn á deilunni við Breta og V-Þjóð- verja. Sér væri það mikið áhuga- mál, að slík lausn fyndist. Þá yrðu auðvitað báðir aðilar að vera við þvi búnir, að slaka eitt- hvað á. Hann vonaði að giftusam- lega tækist að leysa málið með bráðabirgðasamkomulagi i stað þess, að lenda a.m.k. i hálfstyrj- öld. En ef samkomulag tækist ekki, þá teldi hann það vilja Alþingis, að landhelgin yrði varin og af fullum þunga. Hann myndi gefa landhelgisgæzlunni fyrirmæli um slikt á meðan hann færi með mál hennar. Sjo ný lög EJ-Reykjavik. — 1 gærkvöldi og i dag voru eftirtalin frum- vörp samþykkt sem lög frá Alþingi: Frumvarp um jöfnunarverð á sementi. Frumvarp um launaskatt, sem felur i sér niðurfellingu þess skatts af tekjum sjómana. Frumvarpið um breytingar á lögum um tekjuskatt og eignaskatt. Frumvarpið um breytingu á lögunum um tollheimtu og tolleftirlit. Frumvarpið um heimild fyrir rikisstjórnina að selja nokkrar eignir rikissjóðs. Frumvarpið um breytingu á lögum um Stofnlánadeild landbúnaðarins. Frumvarpið um atvinnuréttindi skipstjórnar- mannar. Þá var visað til rikis- stjórnarinnar, frumvarpi um breytingu 'á lögum um almannatryggingar. Fjárauka- lög fyrir 1970 EJ-Reykjavik. — A fundi sameinaðs þings i gær voru samþykkt fjáraukalög fyrir árið 1970. Þá var einni þings- ályktunartillögu visað til rikisstjórnarinnar, og fjallaði hún um fjárlagaáætlanir. Annasömu þingi lokið þess að mæta þvi þunga áfalli, sem fbúar Vestmannaeyja og öll þjóðin hafa orðið fyrir vegna jarðeldanna á Heimaey. Hafa þar þó einungis fyrstu skrefin verið stigin til varnar og sóknar. Við vonum öll, að til hins versta komi ekki, og við eigum eftir að sjá Vestmannaeyjar taka á ný sæti sitt I þjóðarbúskapnum. Höfðing- leg hjálp frændfólksins á Norður- löndum er okkur ómetanf. styrkur, eykur bjartsýni og öryggi i þeim mikla vanda, sem við er að etja. Ég þakka hv. þm. og hæstv. rikisstjórn fyrir góða samvinnu. Deildaforsetum og varaforsetum þakka ég gott og náið samstarf. Skrifurum þingsins þakka ég mikilsverða aðstoð og gott starf. Starfsfólki Alþingis færi ég alúðarþakkir fyrir ágætt framlag til þingstarfanna. Þingmönnum óska ég góðrar heimferðar, góðrar heimkomu og gleðilegs sumars, og læt i ljós þá von, að við hittumst öll heil að hausti. öllum landsmönnum óska ég árs og friðar”. Þvi næst kvaddi Gunnar Thor- oddsen, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, sér hljóðs, og þakkaði fyrir hönd þingmanna fyrir hlýjar óskir forseta. Færði hann forsetanum beztu óskir og þakkir fyrir ánægjulegt samstarf, og tóku þmgmenn undir oro nans með þvi að risa úr sætum. Þá var komið að sjálfum þing- lausnunum, og gekk forseti Islands, dr. Kristján Eldjárn, i salinn og las upp forsetabréf um þinglausnir, svofellt: „Alþingi, 93. löggjafarþing, hefur lokið störfum. Mun ég þvi slita Alþingi i dag”. Sleit hann þvi næst þingi og óskaði þingmönnum velfarnaðar og gleðilegs sumars, og þjóðinni allra heilla. Bað hann þingmenn taka undir þá ósk til þjóðarinnar með þvi að risa á fætur, hvað þeir gerðu. Þá sagði forsætisráð- herra: heill forseta vorum og fósturjörð — Island lifi! Hrópuðu þingmenn þá ferfallt húrra fyrir landi og þjóð. gjöfin sem gleður allir kaupa hringana hjá jíMri A T Skólavörðustíg 2

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.