Tíminn - 18.05.1973, Page 5
Föstudagur 18. mal 1973
TÍMINN
5
r:V >: :
' V” •rKÍ/;
Aðolfundur Kaupfélags Héraðsbúa:
MS-Reyðarfirði
Aðalfundur Kaupfélags Héraðs-
búa á Egilsstöðum var haldinn
12. mai s.l. að Iðavöllum á
Fljótsdalshéraði. Fundinn sóttu
auk framkv.stjóra, stjórnar,
endurskoðenda og gesta 56 full-
trúar frá 13 félagsdeildum. For-
maður stjórnar kaupfélagsins,
Steinþór Magnússon, setti
fundinn og stjórnaði honum.
Ritarar voru kjörnir Marinó
Sigurbjörn og sr. Einar Þór Þor-
steinsson. I upphafi fundar flutti
formaður snjallt erindi um sam-
vinnumál, efnahags- og félags-
mál. Hvatti mjög til samstöðu
þjóðarinnar i landhelgismálinu
og öðrum stórmálum, er heill
þjóðarinnar varðar. — Þorsteinn
Sveinsson framkvæmdastjóri
félagsins flutti ársskýrslu þess.
Var hún að vanda itarleg starfs-
saga félagsins á árinu 1972. Var
fundarmönnum afhent ársrit
félagsins „Samherji” sem inni-
heldur skýrsluna efnahags- og
rekstursreikning félagsins og
fleira.
Framkv.stjóri kvaðst ánægður
með árangur ársins og sagði
m.a.: „Yfirstandandi ár verður
engu að siður erfitt á viðskipta-
sviðinu. Þær hörmungar, sem
gengið hafa yfir Vestmannaeyjar
hljóta að koma við okkur öll. Við
stöndum i óvenjumikilli fjár-
festingu, sem áðurer getið Við
munum þvi enn þurfa að takast á
við stór verkefni og leysa þau
með samheldni og festu. Ég vona,
að okkur hér i Kaupfélagi
Héraðsbúa takist það nú sem
hingað til.
Kjötið flutt út
Heildarslátrun á 4 sláturhusum
félagsins var 50844 kindur að
fallþunga 768 tonn og meðal-
fallþingi 14,69 kg. Aukning
kjötþunga er 78 tonn. Mest allt
kjötið var verkað til útflutnings
og i sláturtið voru seld um 400
tonn til Færeyja og Danmerkur og
siðar 200 tonn til Færeyja og
Noregs. Er þetta mesti kjötút-
flutningur héðan til þessa.
Slátrun nautgripa varð 586 gripir
og fallþungi 85 tonn. Aukning 42
tonn. Ullarinnlegg jókst um 15
UM 80 NEMENDUR stunduðu
nám i Tónlistarskóla Húsavikur i
vetur, þar af sex úr Mývatnssveit
og einn frá Kelduhverfi, N.-Þing.
Auk þess hafa kennarar skólans
kennt einu sinni i viku um 20
nemendum i Hafra-
lækjarskóla i Aðaldal. Fastir
kennarar við skólann eru, skóla-
stjórinn, Steingrimur M. Sigfús-
son og Robert Bezdek, hljóm-
sveitarstjóri frá Prag. Stunda-
kennarar voru i vetur Katrin
Sigurðardóttir, sem kenndi á
pianó og Sigurður .Arnason, er
kenndi á þverflautu. í vetur var
keypt til skólans rafeindaorgel,
mjög hentugt skólahljóðfæri og
hefur innbyggt segulbandstæki.
Ennfremur voru keypt ýmis
smáhljóðfæri. Kirkjukór Húsa-
vikur gaf 50.000 kr. til orgelkaup-
anna og 27 þús króna styrkur var
veittur til þeirra frá rikissjóði.
Orgelið kostaði 96 þús. krónur
komið til Húsavikur.
Menningarsjóður Kf. Þingeyinga
veitti skólanum i vor 50 þús. krón-
ur til kaupa á hljóðfærum.
Skólinn er rekinn með þátttöku-
gjöldum nemenda og styrkjum
frá Húsavikurbæ og rikissjóði.
Nemendatónleikar voru haldnir
i anddyri Barnaskóla Húsavikur
1. mai s.l og voru þeir vel sóttir af
foreldrum nemenda og öðru
áhugafólki. Skólaslit fóru fram
laugardaginn 12. mai og voru þá
veitt verðlaun þeim nemendum,
er fram úr sköruðu, ennfremur
fylgdi hverju prófblaði aðgöngu-
miði að tónleikum Sinfóniuhljóm-
sveitar islands, sem koma mun
til Húsavikur i lok maimánaðar
eða snemma i júni.
Steingrimi M. Sigfússyni,
skólastjóra, hefur verið boðið á
„Vorhátið tónlistarinnar” i Prag
næsta vor, 1974, og er honum og
skólanum sýndur mikill heiður
með þvi.
Unnið er að þvi að fá Ladislav
Vojta frá Prag aftur til skólans,
en hann kenndi við skólann i
fyrra vetur. Ef það tekst,verða
tveir tekkneskir tónlistarmenn
á Húsavik næsta vetur.
Þorm. J.
innaeyjasölrnunln:
■
• $ - S ~ A
r af skemmti
15. MAI s.l. afhentu forystumenn
norrænna vinafélaga, félaga
Norðurlandabúa á íslandi,
Norræna félagsins og forstöðu-
maður Norræna hússins, Rauða
krossi Islands kr. 738,206,00 sem
eru tekjur af norrænu skemmti-
kvöldi i Háskólabiói 1. april. Fé
þetta skal renna i Vestmanna-
eyjasöfnun Rauða krossins, og
veitti Björn Tryggvas. formaður
félagsins þvi viðtöku i Norræna
húsinu.
Þréttan aðilar stóðu fyrir
skemmtuninni en fyrir fram-
kvæmdum stóðu einkum þau Else
Aass, Maj Britt Imnander, Jónas
Eysteinsson og Torben Friðriks-
Stærstu gefendurnir
í sambandi við tilkynningu um
hina miklu gjöf American
Scandinavian Foundation i Vest-
mannaeyjasöfnun Rauða kross
Islands að upphæð kr. 27.000.000,
skal þess getið að meðal stærstu
gefenda i þessa söfnun voru:
Coldwater Seafood Corporation,
kr. 23,400.000,-
Johns-Manville-Corporation, kr.
900.000.
The Boeing Company. kr.
450.000,-
Harry C. Odolf, konsull
Philadelphia, kr. 450.000.-
Dr. D.C. Hallson, konsúll Houston
Texas, kr. 180.000.-
Margir aðrir gáfu i þessa
söfnun, en báðu um að nafns sins
yrði ekki getið.
tonn, varð nú 56 tonn. Mjólkurinn-
legg varð 2,338 millj. kiló.
Aukning 5,3%. Grundvallarverð
hennar er nú 18.94. Hraðfrystihús
Kaupfélagsins framleiddi 9400
kassa af freðfiski á móti 6 þús.
ks. i fyrra. Fryst voru 50 tonn af
Norðursjávar sild. Hraðfr. húsið
á Borgarfirði framleiddi 5500
kassa af freðfiski, 60 tonn af salt-
fiski og fiskimjölsverksmiðjan
framleiddi 42 tonn af mjöli.
Rekstur flestra fyrirtækja
félagsins gekk vel. Er nú ákveðið
að hef jast handa strax og hægt er
að byggja sameginlega sláturhús
fyrir allt svæðið og mjólkurstöð.
Frumathugunhefurfarið fram og
reiknað með aukinni hagkvæmni
með sameiginlegri notkun vajns,
gufuafls, frárennsla vélakosts,
vegalagna og rafmagns. Á
Seyðisfirði var opnuð verzlun
með ýmsar vörur, sem ekki hefur
verið unnt að hafa þar á boð-
stólum fyrr. Verið er að byggja
verzlunarhús á Egilsstöðum,
stækka og vélvæða bæði
hraðfrystihúsin á Reyðarfirði og
Borgarfirði. Lyftarar, ýmsar
vélar og tæki hafa verið keypt til
að auka hagkvæmni i vöruaf-
greiðslu og dreifingu hennar.
Kaupfélagið rekur kjörbúðir á
Egilsstöðum, Borgarfirði, Seyðis-
firði og Reyðarfirði, auk fleiri
búða og söluskála og marg-
háttaðrar starfsemi á
verzlunarstöðum sinum. Heildar-
vörusalan varð 235 milljónir, og
jókst um 22%. Sökuskattsgreiðsla
varð 13,716 millj. Launagreiðslur
námu 58.932 millj. Voru alls 801
maður á launaskrá. Innstæður
jukust um 37% i innlaúsdeild
félagsins og eru nú 46,4 millj.
Viðskiptamenn bættu hag sinn við
fyrirtækið um 26,1 millj.
Afskriftir voru 5 millj. og fjár-
magnsmyndun 8 millj.
Heildarveltan 527 millj.
Heildarveltan varð 527
milljonir og tekjuafgangur 2,749
millj. Var einróma samþykkt til-
laga stjórnar félagsins um eftir-
farandi framlög úr menningar-
sjóði þess:
þús. kr.
Til sundlaugar- og iþróttahúss
á Reyðarfirði 50.-
Tilstofnunar tækjukaupasjóðs
við
heilsugæzlustöðáEgilsst. 100.-
TilTónlistarsk. á Egilsst. 25.
Til Búnaðarsamb. Austurl.
v/ búnaðarsögu Austurl. 50,-
Svofelld tillaga var einróma
samþykkt á fundinum:
Verðjöfnunargjald
„Aðalfundur KHB haldinn á
Iðavöllum 12.mai 1973, skorar á
þingmenn kjördæmisins og
stjórnvöld, að lögfesta sem fyrst
verðjöfnunargjald á sem flestar
vörur, til þess að jafna aðstöðu
fólks i dreifbýlinu. Fundurinn vill
vekja sérstaka athygli á þeirri
skammsýni löggjafans að leggja
söluskatt á flutnings- og af-
greiðslugjöld á vörudreifingu
innanlands og auka þannig
skatta þeirra, sem búá fjarri inn-
flutningshöfnunum.”
A fundinum bárust munnlegar
og bréflegar þakkir frá aðilum, er
fengið höfðu framlög úr
menningarsjóði félagsins nú og i
fyrra.
Framkvæmdastjóra og stjórn
var þakkaður góður rekstur fyrir-
tækisins og kom fram almenn
bjartsýni á framtiðarhorfur.
Stjórnarmennirnir Sveinn Guð-
mundsson og Bragi Hallgrims-
son, sem áttu að ganga úr stjórn
voru báðir endurkjörnir. Sömu-
leiðis Hrafn Sveinbjarnarson
endurskoðandi. Fulltrúar á aðal-
fund SIS voru kjörnir Þorsteinn
Sveinn Sveinsson og Steinþór
Magnússon.
BÝÐUR UNGU FÓLKI
upp á flest
sem þarf til
stofnunar heimilis
svo sem:
Húsgögn
Teppi
Raftæki
Ljósatæki
Hreiniætistæki
Byggingavörur
o.ffl. o.ffl.
Verið
velkomin í
OPIÐ TIL KLUKKAN
10 í kvöld og
12 á hádegiá
morgun
HF.
Hringbraut 121 . Sími 10-600