Tíminn - 18.05.1973, Blaðsíða 6
6
TÍMINN
Föstudagur 18. mai 1973
Auglýsing um lögtök
vegna fasteigna- og
brunabótagjalda
í Reykjavík
Að kröfu gjaldheimtustjórans f.h. Gjald-
heimtunnar i Reykjavik og samkvæmt
fógetaúrskurði, uppkveðnum 16. þ.m.
verða lögtök látin fram fara til tryggingar
ógreiddum fasteignasköttum og bruna-
bótaiðgjöldum, samkvæmt II kafla laga
nr. 8/1972 um tekjustofna sveitarfélaga,
en gjalddagi þeirra var 15. jan. og 15. mai
s.l.
Lögtök fyrir framangreindum gjöldum, ásamt dráttar-
vöxtum og kostnaöi, veröa látin fram fara aö 8 dögum
liönum frá birtingu þessarar auglýsingar, veröi þau eigi
aö fullu greidd innan þess tima.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik,
16. mai 1973.
£ Ef ykkur vantar loftpressu, þá hringið og 1
reynið viðskiptin. |
Gisli Steingrimsson, Simi 22-0-95.'
Norrænir svæfingalæknar
þinga í fyrsta sinn hér á landi
Læknanámskeið og tækjasýning. 20% þátttakenda annars
staðar að en frá Norðurlöndum
Ellefta þing Svæfingalæknafé-
iags Noröurlanda veröur haldiö
að Hótel Loftleiðum 2.-6. júli
næstkomandi. Upp undir 400 er-
lendir þátttakendur, bæöi frá
Noröurlöndunum og annars staö-
ar aö, munu sækja þingið auk ís-
lenzkra iækna. ölium læknum er
heimil þátttaka i þinginu.
Svæfingalæknafélag Noröur-
landa var stofnað i Osló 1950 og
voru félagar i upphafi um 20, nú
eru þeir hins vegar orðnir 700.
Þótt svæfingalæknum hafi fjölgað
mjög á undanförnum árum,er si-
vaxandi þörf fyrir þá i nútima-
þjóðfélögum og vinnuálag á þá
viða mikið m.a. hér á landi.
Læknanámskeið hefur verið
haldið i tengslum við þing
Svæfingalæknafélags Norður-
landa siðari árin. Svo verður
einnig að þessu sinni. Viðfangs-
efni á námskeiðinu, sem fer fram
á ensku, verður eðlileg efnaskipti
og áhrif slysa á starfsemi likam-
ans. Þekktir kennarar og sér
Norsk list í Norræna
húsinu
A ÞESSU ári opnaði
V e s 11 a n d s u t s t i 11 i n g e n i
Haugasundi, fór þaðan til
Stavangurs en siðan til Bergen og
AJasunds.
Þessi vorfugl hefur nú beint
sjónum sinum til eyjanna i vestri,
en Vestlandsutstillingen 1971
var send til Færeyja með sérlega
góðum árangri. Og nú fögnum við
þessum góða gesti, Vestlands-
utstillingen 1973, i sýningarsölum
Norræna hússins.
A þessu ári bárust dómnefnd
sýningarinnar 741 verk, og mun
það aldrei hafa verið meira i
FRÍMERKI — MYNTl
Kaup — sala
Skrifið eftir ókeypis
vörulista.
Frímerkjamiðstöðin
Skólavörðustíg 21 A
Reykjavík
fimmtiu ára sögu sýningarinnar.
Af þessum verkum voru 144 valin
til sýningar.
Sérstakur gestur sýningarinnar
er að þessu sinni málarinn,
teiknarinn og grafiklistamaður-
inn Kaare Espolin Johanson, en
hann er einn af virtustu mynd-
listarmönnum Norðmanna. John-
son sýnir meðal annars mynd-
skreytingar með sögu John
Bojers, Siðasti vikingurinn.
Heimsókn slikra listamanna
hlýtur alltaf að vera sérstakt
fagnaðarefni öllum myndlistar-
unnendum.
Einingahús reist
á Tálknafirði
TEKIN hefur verið fyrsta skóflu-
stungan að 8 einbýlishúsum i
Tálknafirði, sem þar á að fara að
reisa. Stærð húsanna er 130 fer.^-
metrar, en auk þess fylgir þeim
36 f.m. bilskúr. Húsin eru hönnuð
fyrir einingar hjá Sigurlinna
Péturssyni h.f. i Garðahreppi.
Það er Ingibjartur Þorsteinsson,
sem sjá mun um byggingu hús-
anna átta. Nánar verður skýrt frá
byggingu þessara húsa og fleiru i
þvi sambandi siðar.
færðingar halda fyrirlestra á
námskeiðinu.
Sjálft þingið hefst siðan 4. júli,
en aðalviðfangsefnið þar verður
vandamál i sambandi við svæf-
ingar aldraðra. Einnig verður
fjallað um vöðvalamandi lyf og
fyrirlestrar fluttir um margvisleg
efni svo sem, ný deyfi- og svæfilyfj
nálastunguaðferðina og mengun
andrúmslofts á skurðstofu og
áhrif hennar á starfsfólk. Kvik-
myndasýningar verða einnig á
þinginu. Þá verður tækjasýning
sem 26 fyrirtæki eiga aðild að.
Þingforseti er Þorbjörg
Magnúsdóttir svæfingalæknir á
Borgarsjúkrahúsinu. Aðalritari
Svæfingalæknafélags Norður-
landa er Christian Thorshauge,
sem starfar við Rikissjúkrahúsið
i Kaupmannahöfn.
Barnahljómleikar
Sinfóníunnar
á laugardag
NÆSTKOMANDI laugardag 19.
mai kl. 14 efnir Sinfóniuhljóm-
sveit tslands til barnatónleika,
þar sem boðið verður 6 börnum úr
barnaskólum borgarinnar i fylgd
með kennurum sinum.
Hljómsveitarstjóri er Páll P.
Pálsson og kynnir Atli Heimir
Sveinsson. Á efnisskránni verður
meðal annars „Pétur og úlfur-
inn” eftir Prokofieff, og er fram-
sögumaður Kristin ólafsdóttir,
sem er öllum börnum kunn úr
Sjónvarpinu. Ennfremur verða
börnin látin taka þátt i fjölda-
söng. Tónleikar þessir eru undir-
búnir i náinni samvinnu við
Fræðsluskrifstofu Reykjavikur-
borgar, og samið hefur verið við
Strætisvagna Reykjavikur, sem
leggja til vagna til að flyta börnin
að Háskólabiói. A tónleikunum
verða afhent verðlaun i ritgerðar-
keppni Sinfóniuhljómsveitar-
innar, sem efnt var til á þessu ári.
LOFTPRESSfl
Þa5 ergott
rt>^..aö muna
22-0-95
i
Art Buchwald:
BRÉZJNÉF OG WATERGATE
BANDARÍSKI blaðamaðurinn
Art Buchwald, er heims-
þekktur fyrir beitta hæðni
sina. Hann hefur að sjálfsögðu
ritað nokkrar greinar um
Watergatemálið og beint
örvum sinum i ýmsar áttir,
eins og vænta má. Hér fer á
eftir siðasta grein hans um
málið:
Aðalritari Kommúnista-
flokksins Leonid Brezjnef átti
fund með Henry Kissinger i
húsi Sovétleiðtoga utan viö
Moskvu i siðustu viku.
Samtaliö snérist náttúriega
um Watergate og allt það. Það
sem þeir sögðu var þetta:
„Gospodin Kissinger. Ég
skii ekki öll þessi iæti út af
Watergate, sem eiga sér stað i
landi þinu”.
„Well, hr. Brézjnef, það er
dálitið erfitt að útskýra það.
Svo virðist sem meðlimir i
stjórnmálaflokki forsetans,
hafi komiö hljóðnemum fyrir
i höfuðstöðvum andstöðu-
flokksins”.
„Er það ekki allt i lagi,
gospodin Kissinger? Þetta
gerum við alltaf”.
„En þið háfið engan
stjórnarandstöðuflokk”.
„Rétt er þaö, þess vegna
hlerum við okkar eigin flokk.
Það er aldrei að vita, hvenær
flokksbræður okkar hafa illt i
hyggju”.
„Hvað sem þvi liður, hr.
Brézjnef, sjö mcnn voru
gripnir og ásakaðir um
glæpinn. Einn þeirra bar, að
háttsettir menn i stjórnmála-
fiokki forsetans væru viðriðnir
málið”.
„Hvað er að þvi þótt hátt-
settir meðlimir I flokki for-
setans reyni að komast að,
hvað endurskoðunarsinnaðir
gagnbyltingarseggir hafa i
hyggju”.
„Þetta fannst okkar
mönnum lika. En þvl miður
komust biaðamenn I málið og
fóru að skrifa um það”.
„Hversvegna setti forsetinn
blaðamennina ekki á
geðveikrahæli”.
„Það getum við ekki gert i
Bandarikjunum hr.
Brézjnef”.
„Það er afleitt. Þið getið
ekki haldið uppi lögum og
reglu i landi, ef þið eruð ekki
færir um aö stinga rithöfund-
um inn á geðveikrahæli”.
„Það er satt. En aðalvand-
ræðin urðu samt eftir Water-
gateréttarhöldin. Þá komst á
kreik, að starfsmenn I Hvita-
húsinu hefðu reynt að hafa
áhrif á dóminn og koma í veg
fyrir að nokkrir háttsettir
yröu flæktir i málið”.
„Auðvitað, gospodin Kiss-
inger. Hvaö áttu þeir annað að
gera?”
,,l okkar landi vill fólk skoða
hlutina niður i kjölinn. Það vill
vita hver ber ábyrgð á
glæpum”.
„Jafnvel þótt forsetinn sé
bendlaður við þá?”
„Já, já, jafnvel þótt
forsetinn sé bendlaður við
þá”.
„Hvers vegna lét Nixon ekki
skjóta alla sem voru viðriönir
Watergate, svo að enginn gæti
kjaftað frá?”
„Nokkrir hinna grunuöu eru
beztu vinir hans”.
„I Sovétrikjunum á leiðtogi
enga vini.
Hann verður aö framkvæma
vilja fólksins, jafnvel þótt það
kosti hann að missa nokkrar
skrifstofublækur”.
„Við erum þess meðvitandi
að þið hafið annað kerfi, hr.
Bréznjef, en við verðum að
lilíta s t j ó r n a r s k r á n n i.
Forsetinn verður að taka á sig
ábyrgð gerða undirmanna
sinna, og skiptir ekki máli hve
alvarlegir glæpir þeirra eru”.
„Hvaða tegund af réttlæti er
það eiginlega? Forsetinn ætti
að pynta undisáta sina þar til
þeir viðurkenna að hann eig:
engan þátt i málinu”.
„Okkur datt það i hug, en
slikt skeður ekki i Banda-
rikjunum, vegna þess aö
þingiö mundi fá nasasjón af
þvi og gera allt vitlaust”.
„Hvers vegna lætur
forsetinn ekki herinn
handtaka þingið?”
„Það getum við ekki gert hr.
Brézjnef. Fólkið mundi ekki
liða það”.
„í okkar landi erum við
fólkið. Og við hanatökum
hvern sem okkur sýnisi”.
„Ég veit, hr. Brézjnef, ég
veit. Nú skulum við snúa
okkur að fundi yðar og Nixons
i júni....”
„Ég er ekki viss um að ég
vilji hitta leiðtoga stórveldis
sem ekki veit hvernig hann á
að hlera samtöl óvina sinna án
þess að verða gripinn”.