Tíminn - 18.05.1973, Page 8

Tíminn - 18.05.1973, Page 8
8 TÍMINN Föstudagur 18. mai 1973 s«*nm llllllllllllllfllíÍlllllllllllllllSllfellllllllllllllllllllllllMlllllllllllllllllllllllllll llll Arnór Karlsson, bóndi: fyrir sér strið, sem fer fram i svona mikilli fjarlægð að það snertir okkurekki beint. Þess vegna mun stjórnmálamönnum það ljóst, að almenningsálitið hér i þessum heimshluta mun alltaf snúast gegn vopnavaidi. Það er þvi einmitt nú, sem viö höfum tækifæri til að losa okkur við varnarliðið, bæði vegna þess að það er hættulaust fyrir okkur, og það er i samræmi við ákvæðið i aðildarsamningi okkar að Atlantshafsbandalaginu, að hér skuli ekki vera erlendur her á friðartímum. Mér er ljóst að margir og þá ekki sizt þeir, sem búa fjarri her- þau munu hvorki mæld né vegin. Ég verð þó að segja, að mér finnist ég sjá nokkuð örugg merki þess að hún hafi haft áhrif. Ef til vill hafið þið veitt þvi athygli að á siðustu árum ber töluvert á þvi, að flytjendur ákveðinnar listar tjá sig á enska tungu. Á ég þar viö létta tónlist, sem nú er almennt nefnd popptónlist. Ég á hér ekki við, þegar erlend verk eru flutt óbreytt á þvi máli, sem þau eru samin á. Nei, ég á hér við þegar islenzkir höfundar ljóða og laga semja ljóð á ensku til að syngja við eigin lög. Ég lit þetta ekki sizt alvar- legum augum vegna þess að mér við eigin lög á hljómplötum, sem þeir gefa út. Það kemur i ljós, að þessi árátta hefur mest sótt á i litlum bæ suður á Reykjanes- skaga, og þar eru samskiptin nánust við bandariska herinn. Nú munu sumir ef til vill vilja af- greiða þetta með þvi, að segja að þetta sé ekki list og skipti þvi litlu máli. En við skulum athuga það, að þetta er sú listgrein, sem kyn- slóðin, sem er að búa sig undir að erfa landið, nýtur bezt og dáir mest. Við megum ekki heldur afgreiða þetta með þvi, að skella skuldinni á þá menn, sem ljóðin hafa samið. Við verðum að gera okkur grein fyrir þvi, að þeir hafa AÐ RÁÐA LANDINU ÖLLU Á 1100 ÁRA AFMÆLI ÍSLANDSBYGGÐAR Ávarp flutt á fundi herstöðvaandstæðinga að Borg í Grímsnesi 6. maí s.l. ÞESSI fundur hér i kvöld á sér i stuttu máli þann aðdraganda, að i vetur hefur komið fram vaxandi áhugi á þvi, að áhugafólk hér i Árnessýslu um brottför banda- riska hersins á Keflavikurflug- velli tæki höndum saman við aö glæða skilning fólks hér i héraöinu og annars staðar á nauðsyn þess, að herinn hverfi úr landi. Að nokkru leyti hófst þessi hreyfing vegna hvatningar frá skoðanabræðrum okkar sunnan Heiðar. Þetta varð til þess, að 10 manna hópur kom saman á Sel- fossi i byrjun april. Þar var ákveðiö að vinna að þvi, að stofna hér samtök herstööva-andstæð- inga og koma á fundi sem þessum einhverntima vorsins, og var kosin 5 manna undirbúningsnefnd til aö hafa forgöngu um þetta. Nokkru siðar vorum við svo minnt á það, að á morgun, 7. mai, eru liðin 22 ár siðan varnarliðiö steig hér á land. Okkur þótti þvi tilvalið að minnast þessa afmælis meö samkomu, þar sem við reynum að treysta samstöðu okkar og vekja fólk til umhugsunar um þetta. Við, sem að undirbúningi þessa fundar höfum unnið, vorum strax sam- mála um það, að halda þessu máli, þ.e. brottför hersins, alger- lega aðgreindu frá öörum stjórn- málum, svo allir, sem að þessu vilja vinna, geti tekið þar þátt, hvar sem þeir hafa skipað sér i stjórnmálaflokk, eða hvaða skoðun, sem þeir hafa á öðrum málum, skyldum eða óskyldum. Þeir, sem skipa sér i Samtök herstöðva-andstæðinga i Arnes- sýslu og ef til vill taka þar að sér - trúnaðarstörf, geta þvi treyst þvi, að þegar Island er laust við er- lendan her, er lokið skyldum þeirra við samtökin. Við leggjum einnig áherzlu á, að barátta okkar verði að öllu leyti til góðs. Þess vegna viljum við foröast að vekja ótta við einhvern utan aö komandi aðila, heldur reyna fyrst og fremst að efla heilbrigðan þjóöernislegan metnað, sem er og verður traustasti hornsteinn hvers sjálfstæðs rikis. Góðir tilheyrendur, eftir nokkrar klukkustundir eru 22 ár liöin siðan hér steig erlendur her á land, vegna beiðni islenzkra ráðamanna, til að vernda okkur fyrir ásælni annars herveldis. Þá stöðinni, telja að þetta sé ekki aðkallandi verkefni. Finnst það svo sem ekki skipta neinu veru- legu máli, þótt þessir menn séu þarna. Ég held, að þetta fólk skorti örlitið af eðlilegum þjóðar- metnaði. — Metnaði, sem krefst þess að við ráðum yfir landinu öllu. Ekki aðeins öllu nema litlu svæði á Miðnesheiði, heldur hverjum bletti og þar sé enginn skilst, að textinn hafi yfirleitt þýðingarmeira hlutverki að gegna nú en var t.d. fyrir einum eða tveimur áratugum, þegar danslagatextarnir fjölluðu um kaupakonuna hans Gisla i Gröf eða ástleitin brún augu, svo eitthvað sé nefnt. Nú fjalla þeir aftur á móti oft t.d. um strið, frelsi eða kærleikann. Það er lika lærdómsrikt, að var „kalda striði’ svonefnda i al- gleymingi og menn óttuöust jafn- vel hernaðarleg átök milli Banda- rikjanna og Sovétrikjanna. Siðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og margt breytzt. Mjög hefur dregiö úr spennu milli austurs og vesturs og samskipti risaveld- anna tveggja aukast stöðugt, og auknum samskiptum fylgir jafnan aukinn skilningur og aukinn skilningur dregur úr hættu á misklið. Það er þvi ekki lengur nein barnaleg óskhyggja, að milli þessara stórvelda, sem við höfum hér sitt hvorum megin við okkur, komi ekki upp svo alvarleg ágreiningsefni i náinni framtið, að úr þeim teljist þurfa að skera með vigvélum, né heldur aö þau noti ofbeldi til að stækka áhrifa- eða yfirráðasvæði sin. Ég hygg lika, að það hafi aldrei áður verið almenningi jafn vel Ijóst og nú, hve styrjaldir eru ægi- legar og i rauninni fráleitar, eftir að hafa haft aðstöðu til aö viröa Hátt á annað hundrað manns sátu fund her- stöðva-andstæðinga i Borg i Grimsnesi 6. mai s.l. Þar var einróma samþykkt ályktun, þar sem m.a. er skorað „á rikisstjórn landsins að hvika hvergi frá þeirri ætlun sinni að hefja endurskoðun varnarsamningsins nú i sumar með það i huga að varnarliðið hverfi frá islandi þjóðhátiðarárið 1974”. Fundurinn hófst kl. 21 um kvöldið. Páll Lýðs- son, Litlu-Sandvik setti fundinn, en Böðvar Stefánsson, skólastjóri, stjórnaði honum. Ávörp fluttu Arnór Karlsson, Margrét Björns- dóttir, Björn Teitsson og Sigurvin Einarsson, fyrrum alþingismaður. Birgir Sigurðsson, skólastjóri, las úr verkum sinum, og Kristin Anna Þórarinsdóttir, leik- kona, flutti ljóð. Þá fluttu nokkrir ungir menn samlestur úr Alþingistiðindum — „Þeirra eigin orð” — undir stjórn Eyvinds Erlendssonar. í lok fundarins var samþykkt með lófaklappi ályktun,sem er hér fyrir neðan á siðunni. undanskilinn. Ef til vill hefur aldrei veriö meiri nauösyn á að gæta þessa þjóðarmetnaðar en einmitt nú, þegarsamskipti þjóðanna eru svo náin og ýmis efnahagsleg rök hniga að þvi, að þjóðir sameinist i stærri heildir. Við erum að visu sammála.um það nú, að ganga ekki i slik bandalög, en hve lengi verður það ef þjóðerniskennd okkar er á undanhaldi? Um áhrif hersetunnar á þetta og annað er að visu erfitt að fullyrða nokkuð. athuga hvaðan þeir menn eru, sem helzt hafa valið að yrkja söngtexta á ensku til að syngja gert þetta vegna þess umhverfis, sem þeir eru aldir upp i. Siðan þeir muna fyrst eftir sér hafa þeir búiö i all-nánu sambýli við er- lenda menn og á heimili þeirra hefur ef til vill þótt sjálfsagt, að hlusta á útvarp og horfa á sjónvarp, a.m.k. öðrum þræði, sem stjórnað er af erlendum aðilum og þar sem ensk tunga er töluð. Það er þvi ekki að undra, þótt þeir freistuðust til að nota þessa tungu til að tjá sig i list sinni, ef til vill i von um meiri útbreiðslu. Þetta er lítill, en að þvi er mér virðist næsta augljós, vottur þess að hverju stefnir með þá kynslóð, sem er að alast upp við þessar aðstæður. Það er þvi skylda okkar, sem viljum að þjóðin haldi tungu sinni og sjálfstæði, að breyta þessu. Eyðum ekki orku okkar i að deila um hver eigi sök á ástandinu eins og það er i dag, heldur tökum höndum saman og vekjum almennan áhuga á þvi, að lslendingar ráði landi sinu öllu á 1100 ára afmæli Islandsbyggðar. Þá getum við litið með bjartsýni fram til búsetu þjóðarinnar i landinu næstu 11 aldirnar, þar sem hún muni áfram unna þeirri tungu, sem hefur tengt okkur saman og með þá von i brjósti, að á komandi öldum verði ekkert gert, sem stefnt geti sjálfstæði þjóðarinnar i hættu. Hér getum við öll lagt lóð á vogarskál með þvi, að nota hvert tækifæri til að vekja fólk til umhugsunar og efla metnað þess sem arftakar Islands, islenzkrar tungu og menningar, og glæða skilning þess á þvi, að það sé skylda okkar að gæta þessa arfs og skila honum betri og meiri i hendur næstu kynslóðar. Einar Agústsson utanríkisráðherra haustið 1971: Um stefnu ríkis- stjórnarinnar og Framsóknarflokksins „Stefnumark okkar er það, að við viljum, að hið erlenda varnarlið hverfi úr landi i áföngum og ósk okkar er sú, að það geti átt sér stað á kjörtimabilinu. Ákvæði málefnasamnings rikisstjórnarinnar eru samhljóða stefnu Framsóknarflokksins, sem áréttuðhafa verið á mörgum flokksþingum. Þvi verður að ætla, að mikill meirihluti okkar fólks geri sér vonir um, að varnarliðið geti farið nema eitthvað sérstakt komi til”. ALYKTUN Fundur herstöðva-andstæðinga, haldinn að Borg i Grimsnesifi. mai 1972, vekur athygli á eftirfarandi: í dag eru 22 ár liðin siðan bandariskur her kom til íslands. Meira en helming áratugsins á undan dvaldi hér einnig erlendur her- allt frá 10. mai 1940, er Bretar hernámu ísland. Mikill meirihluti íslendinga man þvi ekki herlaust land, og þvi lengur sem erlendur her dvelur hér, þeim mun hættara er við, að menn telji veru hans hér óhjákvæmilega. Fundurinn telur, að hersetan hafi þegar slævt þjóðernismetnað hluta íslendinga. Þvi steðji meiri hætta að sjálfstæði islenzku þjóðarinnar en margur hyggur. Þvi er löngu mál til komið að standa betur vörð um sjálfstæði islenzku þjóðarinnar og knýja á um.að varnarliðið hverfi úr landi. svo sem fyrirheit er gefið um i málefnasamningi rikisstjórnarinnar. Fundurinn telur ekki annað sæmandi islenzkri þjóð á 1100 ára afmæli hennar en sjálfstæðismál hennar verði þá með meiri reisn en i dag. Þvi skorar fundurinn á rikisstjórn landsins að hvika hvergi frá þeirri ætlun sinni að hefja endurskoðun varnar- samningsins nú i sumar með það i huga, að varnar- liðið hverfi frá íslandi þjóðhátiðarárið 1974.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.