Tíminn - 18.05.1973, Blaðsíða 16
16
TÍMINN
Föstudagur 18. maf 1973
Einar Guðleifsson, markvörður Akraness sést hér verja snilldarlega skot, ileik gegn Fram, f 1. deildarkeppninni ifyrra. (Timamynd: Róbert)
MARGIR KALLAÐIR.
EN FÁIR ÚTVALDIR
íslandsmótið í knattspyrnu hefst í kvöld með leik Ármanns og Hauka á Melavellinum
kl. 20.00. íslandsmeistarar Fram, hefja vörn sína á íslandsmeistaratitlinum á morgun
— leika gegn Akureyri á Laugardalsvellinum
íslands- meistarar
1912 K . R.
1913 FRAM
1914 FRAM
1915 FRAM
1916 FRAM
1917 FRAM
1918 FRAM
1919 K. R.
1920 VÍKINGUR
1921 FRAM
1922 FRAM
1923 FRAM
1924 VÍKINGUR
1925 FRAM
1926 K. R.
1927 K. R.
1928 K. R.
1929 K. R.
1930 VALUR
1931 K. R.
1932 K. R.
1933 VALUR
1934 K. R.
1935 VALUR
1936, VALUR
1937 VALUR
1938 VALUR
193 9 FRAM
1940 VALUR
1941 K. R.
1942 VALUR
1943 VALUR
1S44 VALUR
1945 VALUR
1946 FRAM
1947 FRAM
1948 K. R.
1949 K. R.
1950 K. R.
1951 AKRANES
1952 K. R.
1953 AKRANES
1954 AKRANES
1955 K. R.
1956 VALUR
1957 AKRANES
1958 AKRANES
1959 K. R.
1960 AKRANES
1961 K. R.
1962 FRAM
1963 K. R.
1964 KEFLAVÍK
1965 K. R.
1966 VALUR
1967 VALUR
1968 K. R.
1969 í. B.K.
1970 í. A.
1971 r. B.K.
1972 FRAM
Loka- staðan 1972
Fram 14 8 6 0 33:17 22
ÍBV 14 7 4 3 37:22 18
IBK 14 5 5 4 26:24 15
1A 14 7 1 6 24:22 15
Valur 14 3 6 5 20:22 13
Breiðab. 14 5 3 6 16:24 13
KR 14 4 2 8 17:26 10
Víkingur 14 2 2 10 8:23 6
ÍSLANDSMÓTIÐ í
knattspyrnu hefst i dag.
Og eins og svo oft áður,
beinast augu flestra að
1. deildar keppninni,
þótt keppnin i 2. og 3.
deild sé ekki siður
merkileg. Keppnin um
islandsmeistaratitilinn
hefur verið harðsótt i
þau sextiu skipti, sem
hún hefur verið háð.
Margir keppa um þennan
eftirsótta titil en fáir
eru útvaldir.
Það er ætið erfitt að spá fyrir
um úrslit- i upphafi móts, þó að
það sé stundum gert til gamans,
þvi að svo margt getur breytzt á
skemmri tima en þeim, sem
Islandsmótið stendur yfir.
Ýmsar spurningar eru áleitnar,
t.d. hversu 'vel eru liðin undir-
búin fyrir þessa miklu keppni —
verða einhverjar breytingar á
liðunum o.s.frv. Litum aðeins
betur á þetta.
islandsmeistarar Fram:
LIÐIÐ sýndi það i Reykjavikur-
mótinu, að það verður örugglega
með i baráttunni um Islands-
meistaratitilinn i ár, eins og
undanfarin ár. Útlitið var ekki
gott hjá Fram i byrjun keppnis-
timabilsins — liðið tapaði fjórum
fyrstu leikjum sinum og gerði 0:0
jafntefli i þeim fimmta. Þá hafði
liðið skorað aðeins eitt mark. En
þa' gerði Guðmundur Jónsson,
þjálfari liðsins, stöðubreytingar i
liðinu. Arangurinn varð góður og
leikmenn Fram fóru að skora
mörk. í næstu fimm leikjum,
skoruðu þeir 17 mörk og tryggðu
sér Reykjavikurmeistaratitilinn.
Framliðið er skipað jöfnum ein-
staklingum, sem vinna vel
saman. Þorbergur Atlason i
markinu, með Sigurberg Sig-
steinsson, Jón Pétursson og
Martein Geirsson fyrir framan
sig, sem sterka varnarmenn. A
miðjunni eru landsliðsmennirnir
Asgeir Eliasson og Guðgeir Leifs
son, en hann leikur nú sitt fyrsta
keppnistimabil með Fram — lék
áður með Viking. í framlinunni,
eru tveir markhæstu leikmenn
Reykjavikurmótsins, þeir Simon
Kristjánsson og Eggert Stein-
grimsson, ungir leikmenn. Einn
leikmaður, sem lék með liðinu i
fyrra, leikur ekki með liðinu i
sumar. Það er markaskorari liðs-
ins, undanfarin ár, Kristinn
Jörundsson — hann leikur með 2.
deildarliði Völsunga frá Húsavik
i sumar.
Vestmannaeyjar:
Liðið er nær óþekkjanlegt frá þvi i
fyrra. Krafturinn og hraðinn, sem
einkenndi liðið þá, virðist vera að
hverfa. Það virðist vera eitthvað
mikið að liðinu og má örugglega
kenna breyttum aðstæðum þar
um. Liðið hefur ekki haft góða
æfingaaðstöðu og litið sem ekkert
æft á grasvelli fyrir 1. deildar-
keppnina. Heimavöllur liðsins,
verður i Njarðvikum og fá Vest-
mannaeyingar ekki að æfa þar
nema einu sinni i viku. Skozkur
þjálfari hefur tekið við liðinu og
virðist hann ekki ná eins góðum
árangri með það og Viktor Helga-
son, sem hefur þjálfað liðið
undanfarin ár. Fróðir menn
segja, að það stafi eingöngu af
þvi, að hann láti þá litið æfa með
knött —er eingöngu með úthalds-
og þrekæfingar. Framlina Vest-
mannaeyjarliðsins er ekki eins
beitt i ár, eins og hún hefur verið
undanfarin ár. Sóknarmennirnir
virðast ekki vera á skotskónum
og þeim tókst aðeins að skora
fjögur mörk i sex leikjum
Reykjavikurmótsins. Með liðinu i
sumar leika nær allir leikmenn
liðsins, sem léku með þvi i fyrra.
Bræðurnir Olafur og Ásgeir
Sigurvinssynir, Tómas Pálsson,
Orn Óskarsson, Haraldur Július-
son, Oskar Valtýsson og Kristján
Sigurgeirsson, svo einhverjir séu
nefndir. Þá hafa einnig ungir og
efnilegir leikmenn bætzt i
hópinn. Það er ekki að efa, að ef
leikmenn liðsins ná saman i
sumar, þá verða þeir með i 1.
deildarbaráttunni.
Akranes:
Það hefur átt sér stað, mikil
blóðtaka hjá Skagamönnum i ár.
Eyleifur Hafsteinsson hefur lagt
knattspyrnuskóna á hilluna og
annar miðvallarspilari, Haraldur
Sturlaugsson, hefur ekki getað
æft og leikið með liðinu, vegna
meiðsla. Skagamenn hafa ekki
staðið sig vel i Litlu-bikar-
keppninni i ár og sakna þeir
greinilega Eyleifs. Framlina liðs-
ins er skipuð ungum og efnilegum
leikmönnum, sem eru ekki enn
búnir að ná þeirri hörku, sem þarf
að hafa i hinni hörðu 1. deildar-
keppni. Það má búast við, að
Skagamenn treysti mikið á
Matthias Hallgrimsson, i sumar.
Allir vita að Matthias er einn af
okkar allra beztu knattspyrnu-
mönnum — hvort að hann getur
bundiö Akranesliöið saman,
látum við ósvarað. Að visu er
Matthias ekki einn i liðinu, með
honum leika margir reyndir
knattspyrnumenn, eins og Jón
Gunnlaugsson, Þröstur Stefáns-
son, Teitur Þórðarson og Bene-
dikt Valtýsson. Það má búast
við, að Skagamenn eigi við breyt-
ingarerfiðleika að striða i sumar.
Keflavík:
Liðið virðist vera i toppæfingu
um þessar mundir og það hefur
tekið miklum stakkaskiptum,
undir stjórn enska þjálfarans Joe
Hooley. Hann virðist ná öllu þvi
bezta út úr leikmönnum liðsins,
sem hafa sýnt ódrepandi keppnis-
skap og leikgleði á keppnistima-
bilinu. Keflavikurliðið hefur leik-
ið 11 leiki á keppnistimabilinu,
unnið niu, gert eitt jafntefli og
tapað einum leik — skorað 25
mörk en fengið á sig aðeins fimm.
Það er greinilegt, að það verður
erfitt að hamra gegn Keflviking-
um i sumar. I liðinu leika reyndir
leikmenn, leikmenn, sem kalla
ekki allt ömmu sfna. Þorsteinn
Ölafsson i markinu, með leik-
menn eins og Einar Gunnarsson,
Ingvar Eliassson, framlinumaður hjá Val, sést hér skjóta að
marki, i leik gegn Breiðabliki. ólafur Hákonarson, markvörður
bjargaði á siðustu stundu.