Tíminn - 30.06.1973, Blaðsíða 9

Tíminn - 30.06.1973, Blaðsíða 9
Laugardagur 30. júni 1973. TÍMINIV,. 9 HOFÐINGLEG GJOF KLEPPSPÍTALANUM barst i gær höfðingleg gjöf frá Guðriði Jónsdóttur, fyrrum forstöðukonu spital- ans. Afhenti hún húseign sina að Reynimel 55 i Reykjavik með öllu innbúi, og veröur það nýtt sem 9 rúma göngudeild Kleppspitalans. i d'ag eru i þvi 5 karlar og fjórar konur af göngudeild. Guöriður hætti störfum við Kleppspitalann 1964 en starfaði i tvö ár eftir það við rannsóknir á aðstööu göngudeildar- sjúklinga. Myndina tók GunnarV. Andrésson. ljósmyndari Timans, i gær þegar gjöfin var afhent og sýnir hún þau Guðriði Jónsdóttur og Magnús Kjartansson, heilbrigðismálaráöherra. hlusta á lestur gjafabréfsins. ÓV Hækkar verð á hvalmjöli? —80 hvalir veiddir í ár ÓV—Reykjavik: Hvalvertiöin I ár hefur gengið all sæmilega, að sögn l.ofts Bjarnasonar, forstjóra llvals h/f. — Við erum búnir að fá eitthvaö i kringum S0 hvali, sem er að visu eitthvað minna en i fvrra en þetta hefur nú alltaf rokkað eitthvaö til og frá. sagði l.oftur I viðtali við fréttamann blaðsins á föstudag. Loftur kvaöst ekki treysta sér til aö segja neitt um hvalveiöiráð- stefnuna, sem nú stendur yfir I London, fyrr en islenzku nefndar- mennirnir,koma heim. Aöspuröur um hugsanleg áhrif bandariska sojabaunaútflutningsbannsins á verö islenzkra hvalvara, sagöi Loftur aö hækkun á hvalmjöli væri möguleg, en þó væri þaö ekki vist. — Veröiö á þessu er stööugt á fleygiferö, sagöi hann, — svo maöur veit aldrei deginum lengur hvernig það stendur. Mest er þaö langreyöur, sem veidd er við tsland og segist Loftur ekki sjá þess nein merki, aö stofninn fari minnkandi. — Allavega hefur afli okkar ekki minnkaö undanfarin ár, sagði hann, — þvert á móti. Lang- reyðurin hefur haldið sinni stærð allt frá upphafi. Kvenfélagasambandið efnir til námskeiðs fyrir konur og karla Kvenfélagasamband tslands efnir til sumarnámskeiös dagana 20.-24. ágúst n.k. i húsma'ðraskól- anum að Hallormsstað og er námskeiðið jafnt opiö konum og körlum. Helgi Hallgrimsson, grasa- fræöingur, mun leiðbeina nám- skeiðsgestum við tinslu æti- sveppa i Hallormsstaðaskógi og siöan verður sýnikennsla i mat- reiðslu sveppanna. Einnig verður sýnikennsla i matreiðslu á hreindýrakjöti. Guöbjörg Kolka skólastjóri ann- ast sýnikennsluna. Sigurður Blöndal skógarvörður sýnir skógræktastöðina. Farið veröur i kynnisferðir um nágrennið eftir þvi sem veður ley fir. Uátttökugjald verður um kr. 7 þús. og er þá allur dvalarkostnað- ur innifalinn i þvi frá hádegi á mánudag til föstudagskvölds. Tilkynning um þátttöku þarf að berast skrifstofu K.t. fyrir 10. ágúst, ásamt innritunrgjaldi, kr. 1 þús. á mann, sem er óendur- kræft, en skrifstofa sambandsins og Leiðbeiningastöð húsmæðra verða lokaðar frá 9. júli til 6. ágúst vegna sumarleyfa. Sjólfvirkur endabúnaður IIHJ—Rvik,— Iðntækni h.f. hefur nýlega hafiö innflutning á mjög fullkomnum sjálfvirkum enda- búnaði eða fjarritvél með út- búnaði til upptöku og geymslu efnis á segulbandskassettum, sem svo eru nefndar, og algjör- lega hljóðlausri ritvél i einu sambyggðu tæki. Þessi búnaður, sem nefnist Silent 700 ASR prentar, sendir og tekur á móti upplýsingum með 30 stafa hraða á sekúndu, sem er allt að þvi þrisvar sinnum hraðara en venjulegur endabúnaður getur áorkað. Einnig má auka sjálf- virka sendi- og móttökuhraðann i 120 stafi á sekúndu. Þetta tæki sparar þess vegna bæði fyrirhöfn og fé. Tækið sameinar hljóðlausa raf- eindaprentun og hljóðlátar segul- bandskassettur og senda má og taka á móti frá leturborði eða sjálfvirkt. Það er þvi mjög hent- ugt, þegar koma þarf á föstu sambandi milli tveggja staða eða, þar sem senda þarf mikiö magn upplýsinga, svo að dæmi séu nefnd. Bilanatiðni er talin mjög lág. Tækin eru sérstaklega ætluð til notkunar á skrifstofum, sjúkra- húsum og i bönkum. Silent 700 fæst i 4 geröum. Auk þess má bæta við hlutum, svo sem tækjum til að auka sendihraða og sjálfvirkum upptökuleitara. Leiðrétting Innistæður í sparisjóðum milljónir króna 3.788 AÐALFUNDUR Sambands is- lenzkra sparisjóða var haldinn á Siglufirði 23. júni s.l. Fundarstað- ur var valinn með hliðsjón af þvi að Sparisjóður Siglufjarðar, sem er elzta peningastofnun landsins, varð 100 ára 1. janúar s.l. Nutu fundarmenn höfðinglegrar gestrisni og fyrirgreiðslu spari- sjóðsins. Sparisjóðsstjóri á Siglu- firði er Kjartan Bjarnason. Sparisjóðir á landinu eru nú 51 að tölu, og um s.l. áramót höfðu þeir yfir að ráða 17.58% af spari- fjáreign landsmanna. Heildar- innstæður i lok s.l. árs námu 3.788 milljónum og höfðu aukist um 17.6% á árinu 1972. Aðalumræðuefni fundarins voru framtið sparisjóðanna, m.a. með tilliti til framkominnar álits- gerðar Bankamálanefndar um framtiðarstöðu sparisjóðanna i bankakerfinu, og öryggismál þeirra. Mikill einhugur rikti á fundin- um um eflingu sparisjóðanna og voru m.a. samþykktar tillögur um öryggismál sparisjóðanna, áhrif nýorðinna vaxtabreytinga á afkomu þeirra, breytingar á sparisjóðslögunum og breytingar á lögum sambandsins Stjórn Sambands islenzkra spari- sjóða skipa: Friðjón Svein- björnsson, Borgarnesi, formaður, Hörður Þórðarson, Reykjavik, Sólberg Jónsson, Bolungarvik, Ingi Tryggvason, Kárhóli og Jón Pétur Guðmundsson, Keflavik. Útflutningsmiðstöð iðnaðarins: útflutningseflingu Áætlun um ÁRSFUNDUR Otflutnings- miðstöðvar iðnaðarins var haldinn nýlega. Þar voru samþykktir reikningar Otflutningsmiðstöðvarinnar og gengið frá ársskýrslu. Niðurstöður reikstrarreikn- ings Otflutningsmiðstöðvar- innar 1972 voru kr. 7.060 þús- und. Starfsemi Otflutningsmið- stöðvarinnar jókst mjög árið 1972. Stærsta verkefni hennar var gerð áætlunar um eflingu út f lutningsiðnaðar. t sambandi við S.þ. aðstoðina var það hlutverk Otflutnings- miðstöðvarinnar að annast gerð þess hluta áætlunarinn- ar, sem lýtur að útflutnings- eflingu, en Iðnþróunarstofnun tslands var falin mótun áætl- unar um eflingu iðnaðarins sem siks. Við þessa áætlunar- gerð störfuðu hér þrir sér- fræðingar frá Sameinuðu þjóðunum i lengri tima, en 7 sérfræðingar i styttri tlma. Tillögur sérfræðinganna munu liggja fyrir innan skamms en starfi þeirra er nú að mestu að ljúka. t stjórn Útflutningsmið- stöðvar iðnaðarins eru Bjarni Björnsson, form. Davið Sch. Thorsteinsson, varaformaður, Árni Þ. Árnason, Harry Fred- riksen, Ingvar Jóhannsson, Pétur Pétursson. Framkvæmdastjóri er Olfur Sigurmundsson hagfræðingur. I grein á forsiðu Timans i gær, sem fjallaði um notkun á próf- gjaldasjóði Háskólans varð sú prentvilla, að sagt var að tekjur sjóðsins á siðasta ári hefðu numið 4 milljónurn króna. Eins og auðsætt er á framhaldinu átti þarna að standa 1,4 milljónir króna og eru lesendur beðnir vel- virðingar á mistökunum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.