Tíminn - 30.06.1973, Side 22

Tíminn - 30.06.1973, Side 22
22 TÍMINN Laugardagur 30. júni 1973. Borgarisinn er ægifagur. Skriöjöklarnir keifa meö dunum og dynkjum og siöan lóna jakarnir út úr fjörðunum og berast siöan um sjóinn þar til jafnvægi með manni þeir molna i sundur eða bráðna. © Þar var þeim dýrum, sem veiðimaðurinn lagði að velli. Þess vegna þótti það ekki nema sjálfsagður greiði að lána þeim manni konu sem þurfti í ferðalag, ef eiginkona hans var lasleg eða með barni og ekki ferðafær. Þá þótti og eðlileg kurteisi og tillitssemi að ljá konu sina langferðamönnum, sem að garði manns bar og ekki höfði kennt konu um hrið. Ógilda mátti hjónaband vafningalaust ef hjónum samdi ekki. Með veiðiþjófum eru synirnir höfuðfyrirvinnur fjölskyldunnar. Þess vegna þótti skiljanlega meiri akkur að sonum en dætrum. Þau skilyrði sem náttúran skóp Grænlendingum leyfðu þeim enga tilfinningasemi i þessu efni og þess vegna urðu þeir stundum nauðugir viljugir að bera út dætur sinar. Barnadauði var mikill eins og gefur að skilja. Vansköpuð börn voru umsvifa- laust borin út. örvasa gamalmenni gengu ósjaldan fyrir ætternisstapa. Þetta kann að virðast grimmúðlegt, en er það i rauninni ekki, ef grannt er skoðað, þvi að þeirra sem ekki gátu bjargað sér beið ekkert annað vesöld og lang- vinnur sultardauði og það var þess vegna nauðsynlegt miskunnarverk að binda skjótan endi á lif þess, sem svo var ástatt um, þótt auðvitað þætti engum slikt hugnanlegt, sem áttu að máli. Mæður höfðu börn sin á brjósti, þar til þau voru fjögurra til sex ára gömul. Uppeldi var ákaflega frjálslegt og ósvinna þótti að flengja börnin sin eða hirta þau á annan hátt. Allir sem til þekkja ljúka um einum munni um það, að ástriki hafi verið ákaflega mikið með foreldrum og börnum á Grænlandi og svo er raunar enn. Kynbundin verkaskipting Verkaskipting markaðist fyrst og fremst af kyni og aldri eins og titt er með þjóðum, sem búa við svipuð skilyrði og Græn- lendingar. Veiðarnar voru mest- megins karlmannsverk, þótt kon- ur og börn leggðu þeim lið, ef svo bar undir, að þörf var mikils mannafla. Þannig hagaði til um hreindýraveiðarnar eins og fyrr er frá sagt. Fiskveiðar sumar voru þess eðlis, að nauðsyn bar til að allir ynnu saman að þeim. Annars voru þær verk kvenna, stálpaðra stráka og gamal- menna, nema þeim fylgdi sú hætta, að samboðið þætti full- friskum að stunda þær. Eggja- og sölvatekja var kven- mannsverk. Karlmenn smiðuðu verkfæri og veiðitól, en konur hirtu aflann að öllu leyti, eltu skinn, saumuðu fatnað, stöguðu og bættu. Matseld öll og önnur heimilisstörf svo og barnagæzla voru lika innan verkahrings þeirra. Sú gerð báta sem áður er sagt frá, að væri notuð til hvalveiða, varstundum nýtt til flutninga. Þá reru konur bátnum, sem þess vegna er oft nefndur kvenna- bátur. Notaréttur en ekki eignar Veiðilendur og veiðiréttur var einskis manns eign, og mönnum var átölulaust heimilt að veiða þar sem þá lysti. Veiðimaðurinn sat ekki einn að feng sinum heldur var honum skipt eftir ákveðnum reglum og það hnekkti mjög áliti manna, ef þeir reyndu að sölsa undir sig eina þann hlut aflans sem öðrum bar samkvæmt skiptareglum. Af þessu leiddi, að þeir, sem heppnari höfðu verið vikju að þeim bita. Fatnaður,veiðitól, húðkeipur og sleði og annað þvilikt taldist til persónulegrar eignar. Þeir hlutir, sem nýttir voru i sameiningu — sambýlishús, laxa- kistur og veiðivörður til dæmis að taka — voru sameign allra. Þyrfti eigandi ekki á eign sinni að halda i svip var það sjálf- sagður réttur annarra að fá hana að láni og nýta að vild. Akvæði voru um það, að menn mættu ekki eiga nema eitt tjald eða einn kvennabát, þvi að talið var að einn slikur gripur nægði hverri fjölskyldu. Eins og þessi fáu dæmi sýna ætti þvi fremur að tala um nota- rétt en eignar með Grænlending- um. Það kemur heldur ekki á óvart að i grænlenzku er sama orð notað um að fá að láni og að nota. Barizt um konur Það leiddi af notaréttinum, að gripdeiidir voru fátiðar. Helztu giæpir voru galdur og manndráp, sem spunnust út af kvennamál- um. Sá, sem uppvis varð að galdri var oft tekinn af lifi með sam- þykki allra á staðnum, en morð var bætt með blóðhefnd. Ágreiningi um konur lyktaði og ndttúru stundum með manndrápum eins og fyrr segir, ekki sizt vegna þess, að konur voru stundum færri en karlmenn vegna út- burðar á dætrum. Þannig gat svo farið að menn neyddust til þess að myrða stjúpfeður sina, sem komið höfðu þeim i föður stað og reynzt þeim hið bezta. íveruhús og fatnaður Margur imyndar sér, að snjó- kofar séu eða hafi verið helztu Iveruhús Grænlendinga. Þetta er alrangt. Snjóhús notuðu menn aðeins til bráðabirgða á ferðalög- um. Á veturna var annars búið i fer- hyrndum húsum með veggjum hlöðnum úr grjóti og þakbjálkum og stoðum úr rekavið eða hval- beinum. Þetta voru sambýlishús allra þeirra, sem höfðust við á hverjum stað og stærð húsanna markaðist að sjálfsögðu af mann- fjöldanum. Á húsunum voru skjáir úr görnum. Gólf voru hellulögð ogandspænisdyrum var lágur grjótbálkur með skil- rúmum, sem skildu á milli fjöl- skyldna, ef margir höfðust við i sama húsi. Veggir voru klæddir skinnum til hlýinda. Að húsinu lágulág og þröng göngsvoekki stæði kaldur blásturinn beint inn i Iveruhúsið, þegar farið var út og inn. Að sumarlagi bjuggu menn i skinntjöldum með tjaldsúlum úr við eða hvalbeini. Fatagerð öll byggði á þvi lög- máli, að loft leiðir illa hita og þess vegna bjuggust menn ætið innri og yrti flikum. Fataefnið var skinn af ýmsum skepnum eftir þvi til hvers átti að nota flikina. Selskinni er svo farið, að það er sterkt og hrindir að nokkru frá sér vatni, en hins vegar er það ekki nógu hlýtt i vetrarhörkum. Bjarnarskinn er hins vegar ákaflega hlýtt, en á þvi er sá galli, að flikurúr þvi eru mjög þungar. Héra- og refaskinn sem og fuglshamir eru bæði hlýir og léttir. Hreindýraskinn er allt i senn: hlýtt, létt og tiltölulega sterkt. Allt þetta vissu konurnar og hagnýttu sér, þegar þær sátu með beinnálar sinar og þráð úr sinum og saumuðu á fjölskylduna. Arangurinn varð eftir þvi: fatnaður, einfaldur i sniðum, en svo hagkvæmur og hentugur, að ekki hefur öðrum tekizt að gera jafnvel —hvað þá betur — fyrr en á allra siðustu timum. Trúarhugmyndir Likt og aðrar þjóðir ólu Græn- lendingar með sér ýmsar hug- myndir þess eðlis, sem við köllum trúarlegs. Barnsfæðingum fylgdu bannhelgisiðir af ýmsu tagi, sem skiljanlegt er, þvi að börnin — og þó einkum synirnir — voru lif- trygging samfélagsins alls, ef svo má að orði komast Það voru þau, sem áttu að draga björg i bú, þegar þau stálpuðust. Þá skipti það miklu hvert nafn börnunum var gefið, þvi að ákveðnir eiginleikar fylgdu ákveðnum nöfnum og þessir eiginleikar féllu þeim i skaut, sem nafnið hlaut. Seiðmenn voru oft til kvaddir sem ráðgjafar um nafngiftir. Ýmislegur voði gaf af hlotizt, væri óvarlega að farið, þegar dauðsfall bar að höndum. Létust menn i húsum inni, var likinu skotið út um skjáinn eða smeygt út undan tjaldskörinni, ef svo hagaði til, svo að þeir yrðu þeim, sem eftir lifðu ekki að meini. Likin voru siðan dysjuð og gripir ýmsir lagðir i dysina með þeim. Grænlendingar trúðu þvi að lif væri eftir þetta lif. Tilveran eftir dauðann var tvenns konar. Annars vegar var heimur neðan- jarðar, þar sem sólin skein og gnótt var matar og hins vegar var til veröld ofanjarðar, sem var eyðileg og köld. Það réði þvi i hvorum staðnum menn höfnuðu, hvernig dauða þeirra bar að höndum. Allir hlutir, dýr og menn og meira að segja hugtök á borð við hlátur eða svefn, svo að dæmi séu tekin, áttu sér innri mátt, sem Grænlendingar kölluðu inua, en fræðimenn nefna venjulega polynesisku orði og kalla mana. Auk þessa áttu lifandi verur sér eins konar sál. Veikindi voru talin stafa af sálartjóni eða tapi. Þá var leitað til seiðmannsins, ef hann gæti bót á ráðið eða endur- heimtsálina, svo að sjúklingurinn hresstist. Sila var máttur, sem var alls staðar nærri og gat verið mönn- um skeinuhættur, ryfu þeir ein- hverja bannhelgina. Þetta var sérstaklega varasamt i sambandi við merkisatburði á borð við barnsfæðingar. Börnunum var auðvitað hættast, af þvi að þau eru minni máttar en fullorðnir og þess vegna varð að fylgja sérstökum bannhelgisiðum hvað þau varðaði. Ýmis ráð voru mönnum tiltæk sér til verndar: margvislegir verndargripir, galdraþulur og söngvar. 1 sjónum bjó merkilegur máttur, sem Vesturgræn- lendingar sögðu vera i konuliki. Hún bjó á hafsbotni og réði fyrir öllum sjávardýrum. Vildi svo illa til, að hvorki sæist selur né rostungur dögum saman, tók hungur að þrengja að mönnum. Sem betur fór kunni seið- maðurinn ráð við þessu. Hann brá sér niður á hafsbotn til sæ- konunnar miklu og bliðkaði hana og greiddi hár hennar, en i þvi leyndust dýrin. Með tunglinu bjó lika mikill kraftur, sem réði sjávarföllum og hafði veigamikil áhrif á barns- fæðingar og tiðir kvenna. Auk þess sem vikið er að hér að ofan trúðu menn á tilvist ýmissa vætta. Seiðmaðurinn eða konan var máttug mjög og gat með tilstyrk hjálparanda sinna læknað sjúka. komið i veg fyrir slys og heimt veiðidýrin úr hári sækvendisins, svo að nokkur dæmi séu tekin um áhrifamátt þeirra. Gamlir seiðmenn tóku efnilega unglinga i læri, sem oft skipti mörgum árum. Eftirmáli Hér að ofan hefur verið stutt- lega lýst nokkrum þáttum hins grænlenzka samfélags eins og það leit út um þær mundir sem hvitir hófu komur sinar þangað. Auðvitað skortir marga drætti i þá mynd,sem hér er brugðið upp, en þó má ef svo hefur til tekizt, sem ætlað var, sjá, að hin forna menning Grænlendinga hefur um flest tekið mið af þeirri lifvist, sem henni var búin af náttúrunnar hendi. Þar helzt allt i hendur, dreifbýli veiðitækni, fjöl- þætt nýting náttúruauðlinda og raunar framleiðsluhættir allir, félagsskipun og fleira. Þó væri ofmælt að segja að samfélag Grænlendinga hafi verið umbrota- og átakalaust og ber að sjálfsögðu að varast svo vélrænan skilning á þvi og reyndar öllum mannlegum sam- féiögum, þótt tæpast eða ekki sé að sliku vikið i þessu greinar- korni. HHJ Húðkcipar á trönum. Hundarnir fá yfirleitt að bjarga sér sjálfir að sumarlagi. Þess vegna verður aðhafa húökeypana á trönum, þvi að hundarnir éta alit sem tönn á festir. (Tímamynd — Gunnar)

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.