Tíminn - 31.08.1973, Qupperneq 4
4
TÍMINN
Föstudagur 31. ágúst 1973.
Hákon Magnús heitir hann og er
erfðaprins i Noregi. Hann hefur
séð fyrir þvi, að konungsriki
geti haldizt i Noregi framvegis
sem hingað til. Foreldrar hans
Haraldur krónprins og Sonja
prinsessa þurfa heldur ekki að
hafa áhyggjur lengur af þvi að
hafa ekki alið rfkinu son. Allir
þeir norsku konungar, sem
borið hafa nafnið Hákon, hafa
verið sterkir og duglegir menn,
en Hákon VIII er enn of litill til
þess að gera sér nokkra grein
Nú hefur Hákon
bjargað Noregi
fyrir þvi, sem af honum verður
krafizt i framtiðinni, og þess
vegna lét hann sig hafa það að
háorga, þegar hann kom fram i
sjónvarpi i fyrsta sinn, svo að
þjóð hans mætti lita hann
augum. Hann var sem sagt ekki
sérlega dugandi á að sjá, en
vonandi batnar það með tim-
anum.oghanná eftir að verða
forfeðrum sinum til sóma. Hér
er litla systir hans Martha
Luisa að virða hann fyrir sér,
þar sem hann liggur i fangi
móður þeirra.
Það nýjasta
Ef ykkur finnst, að það sé eins
og pilturinn hér á myndinni sé
málaðurum augun, er það lauk-
rétt. Það er það nýjasta sem ein
af fremstu pop-stjörnum Breta,
David Bowie hefur fundið upp á.
Hann notar næstum krithvitan
andlitsfarða, plokkar augna-
brúnirnar burt og málar sig
siðan um augun. Hár hans er á
lit eins og gulrót, sitt á hliðun-
um og i hnakkanum, en efri
hlutinn er nánast bursta-
klipping. Hárgreiðslan er fest
með miklu lakki. Hver sem vill
má skilja það, að hvar sem
þessi furðufugl sézt, eru
aðdáendurnir næstum búnir að
rifa hann i sig af hrifningu.
Annars má geta þess, að hann
er kvæntur ljóshærðri stúlku að
nafni Angie og hún er álika
skrýtin i útliti. Þá má lika nefna
það, að Linda, kona Paul
McCartney hefur tileinkað sér
bursta-bitlahárgreiðslu Davids
Bowie og klæðir hún hana bara
vel.
Hún sættir sig við
ástmeyjarnar
Ég giftist þér ekki fyrr en þú
hefur samþykkt eftirfarandi
skilyrði: — Þú verður að geta
sætt þig við kappakstursbila
mina og svo verður þú lika að
geta umborið ástmeyjar minar.
Þar er leikarinn Steve
McQueen, sem lét þessi orð falla
við AIi Mac Graw, sem greini-
lega hefur samþykkt að umbera
þetta hvort tveggja i framtið-
inni, þvi nú eru þau gengin i
heilagt hjónaband. Þau Ali og
Steve hittust fyrst, er þau léku
saman i kvikmyndinni Flótta-
fólkið, og þá fóru þau fljótlega
að draga sig saman. Bæði skildu
þau við þáverandi maka sina,
og nú eru þau sem sagt búin aö
rugla saman reitunum. Hversu
lengi hjónaband þeirra endist
veit enginn, en hjónabönd
leikara eru oft skammvinn, eins
og flestir vita.
— Aður en viö byrjum vildi ég
sýua þér úrklippubókina mína.