Tíminn - 31.08.1973, Page 6
6
TÍMINN
Föstudagur 31. ágúst 1973.
Gunnar Hjaltason. Myndin cr tekin á málverkasýningu hans i Ilainarfirði viö eina stærstu myndina.
Mikil aðsókn að mólverka-
sýningu Gunnars Hjaltasonar
í Iðnskóla Hafnarfjarðar
Málverkasýning Gunnars
Hjaltasonar stendur nú yfir I Iðn-
skólanum i Hafnarfirði, en
sýninguna opnaði Gunnar siðast-
liðinn laugardag.
Á sýningunni eru 88 oliumál-
verk, en auk þess fjöldi teikninga,
pastelmynda og vatnslitamynda.
Alls munu vera um 140 verk á
sýningunni.
Gunnar Hjaitason hefur haldið
margar málverkasýningar áður
og hafa þær alltaf verið vel
sóttar, enda ávallt nokkur fengur
að myndum hans. Myndefni er
aðallega sótt i landslag og is-
lenzka náttúru ennfremur eru
margar myndir frá sjávarþorp-
um og ein séria af myndum frá
Vestmannaeyjum.
Málverkasýning hans var opnuð
slðastliðinn laugardag, og hefur
aðsókn verið mjög mikil og
margar myndir hafa selzt. Iðn-
skólinn i Hafnarfirði er nú til húsa
I nýju húsi viö Reykjavikurveg,
þaðan sem ekið er einn til
Hafnarfjaröar, þegar komið er
úr Reykjavik, og virðist húsið
JOHNS-MANVILLE
glerullar-
9 emangrun
er nú sem fyrr vinsælasta og öruggasta glerull-
areinangrun á markaðnum í dag. Auk þess fáið
þár frfan álpappír með. Hagkvæmasta
einangrunarefnið í flutningi. Jafnvel flugfragt
borgar sig.
Muniö Johns-Manville í alla einangrun.
Hagkvæmir greiðsluskilmálar.
Sendum hvert á land sem er.
JlilMIÍPUI!
Hringbraut 121 . Simi 10-400
Frá Vélskóla
íslands
Námskeið
fyrir vélstjóra
sem lokið hafa rafmagnsdeildarprófi,
hefst mánudaginn 3. september kl. 8, f.h.
Innritun i skólann fer fram 4. og 5.
september i sima 23766.
Endurtekningarpróf til inngöngu, 2. og 3.
stig verða haldin mánudaginn 10. og
þriðjudaginn 11. september og hefjast kl. 2
e.h.
Skólasetning. Skólinn verður settur
laugardaginn 15. september.
SKÓLASTJÓRI.
UROG SKARTGRIPIR
korneUus
JONSSON
SKÚLAVÖRÐUSTIG8
BANKASTRÆTI6
18588-18600
vera mjög hentugt til mál-
verkasýninga. Sýningunni lýkur
2. september næstkomandi.
-JG.
/Sprungu-
\ viðgerdir
1
Nú fæst varanleg þétting á Zt
steinsprungum með Silicon 5
Rubber þéttiefnum. Við not- f
um eingöngu þéttiefni, sem f
veita útöndum, sem tryggir, 4
að steinninn nær að þorna án ^
þess að mynda nýja sprungu.
Kynniö yður kosti Silicon
(Impregnation) þéttingar
fyrir steinsteypu.
Við tökum ábyrgð á efni og
vinnu.
Það borgar sig að fá viðgert i
eitt skipti fyrir öll hjá þaul-
reyndu.m fagmönnum.
Sendum efni gegn póstkröfu.
ÞÉTTITÆKNI H.F. g
llúsaþéttingar
Verktakar
Efnissala
^Ksimi 2-53-66 Pósthólf 503 Tryggvagötu \É
^ÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆæS
^ &enuuui
l-akí
é r ve
VA ' vt
^ fyrirligg jandi: ^
Þakpappa
Asfaltpappa
Veggpappa
Ventillagspappa
Loftventla
Niðurföll fyrir
pappaþök
Þakþéttiefni
Byggingavöru-
verzlun
TRYGGVA
HANNESSONAR
Suðurlandsbraut 20
Simi 8-32-90
BÍtALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
Utanríkisráðherr-
ar Norðurlanda
álykta um
landhelgismál
A FUNDI utanrikisráðherra
Norðuriandanna, sem haldinn er i
Stokkhólmi, var i gær samþykkt
yfirlýsing varöandi stuðning
Norðurlandaþjóðanna við út-
færslu islenzku fiskveiöilögsög-
unnar og verkefni hafréttarráð-
stefnunnar.
Ráðherrarnir lögðu áherzlu á,
að það væri sameiginlegt áhuga-
mál þeirra, að þriöja hafréttar-
ráðstefna Sameinuðu þjóðanna
yrði haldin samkvæmt áætlun.
Þeir töldu það skipta mjög miklu
máli, að á ráðstefnunni væri sam-
komulag um viöáttu landhelginn-
ar, og að fullnægjandi lausn yrði
fundin varðandi rétt strandrikja
til auðlinda á svæðinu utan land-
helginnar og varðandi rétt
strandrikja til auðlinda á svæðinu
utan landhelginnar og jafnframt
varðandi siglingafrelsi á úthafinu
og innan landhelgi.
Ráðherrarnir itrekuðu i þessu
sambandi nauðsyn þess, að ráð-
stefnan lýsi þvi yfir, að hið
alþjóðlega hafsbotnssvæði veröi
nýtt i þágu alls mannkyns og að
mörk lögsögu rikja á hafinu verði
ákvörðuð. I framhaldi af þvi
lýstu ráöherrarnir enn á ný yfir
skilningi á þeim ástæðum, sem
liggja að baki ákvöröun íslend-
inga að færa út fiskveiðilögsög-
una og vænta þess, að hinir
þýðingarmiklu hagsmunir Is-
lendinga i þessu efni, og annarra
Norðurlandaþjóða, verði teknir
til greina á ráðstefnunni.
o Fornleifar
Að sögn Else þyrfti nauðsyn-
lega að grafa á lóð Aðalstrætis 16
til þess að sjá, hvort veggjaleifar
erað finna þar. Þá hafa fornleifa-
fræðingarnir hug á að fá að grafa
handan Aðalstrætis, en af þvi
verður þó tæpast næsta sumar,
þvi að borgin hefur með ærnum
tilkostnaöi látið helluleggja götu-
hornið og hlaöa þrær i kringum
hrislurnar.
Svo er að sjá, sem ekki hafi ver-
ið nein hús á lóð Aðalstrætis 18 frá
þvi á landnámsöld og fram á daga
Innréttinganna, þvi að þar á milli
er bara mold.
Else sagði, að gröfturinn að
Suðurgötu 5 hefði komið mjög á
óvart, þvi að talið hefði verið, að
þar væri varla nokkur hús að
finna. I ljós hefði hins vegar kom-
ið, að þar hefði verið byggð allt
frá landnámsöld fram til loka 15.
Trúlofunar- k
HRINGIR
Fljót afgreiösla SSÍ
Sent i póstkröfu
GUDMUNDUR <§§
ÞORSTEINSSON <&
gullsmióur
Bankastræti 12
aldar. Húsin eru timasett með
stuðningi af gosöskulögum, ann-
ars vegar er landnámslagið að
neðan og hins vegar aska úr
Kötlugosi frá þvi laust fyrir alda-
mótin 1500. Rannsóknirnar i Suð-
urgötu hafa verið mjög tafsamar,
þvi að fyrst þurfti að grafa i gegn-
um uppfyllingu úr grjóti. Þær
húsleifar, sem fundizt hafa, eru
auk þess mjög flóknar, þvi að á
þessum stað hefur verið byggt
hvað eftir annað. Þannig er svo
að sjá sem þarna sé að finna
nokkur hús frá landnámsöld og
hafa hin siðari verið reist i grunni
hinna fyrri. Þá hafa komið i ljós
tvö smiðjugólf hvort ofan á öðru
og mikið af gjalli. Vegna þess
hversu litið graftrarsvæðið er
sem og þess hversu oft hefur ver-
ið byggt á sama stað, er mjög erf-
itt að fá yfirsýn yfir það, sem
þarna er að finna, en úr þvi rætist
væntanlega, ef fé fæst til þess að
grafa á lóð Suðurgötu 3.
Hluti af steinrennu frá land-
námsöld hefur verið grafinn upp
á þessum stað og fast við hana
hellulögn, en ekki er enn vitað
nánar, hvað þetta er.
Ýmsir munir hafa komið upp á
lóð Suðurgötu 5. Merkilegust er
vikingaaldaröxin, sem Timinn
sagði frá fyrir skömmu. Þá má
nefna band úr bát, sem lá ofan á
hellulögninni við steinrennuna.
Töluvert hefur fundizt af dýra-
beinum, gjalli, nagladóti og fleira
af þvi tagi. Þá hefur fundizt þar
perla, fremur ómerkileg.
Eftir helgina verður byrjað að
moka rauðamöl ofan i gryfjurnar
til þess að verja fornleifarnar
skemmdum i vetur. hhj
0 Forsetinn
Reykjanes, en um kvöldið dvöldu
forsetahjónin ásamt fleiri gestum
að Stað i Reykjanesi i boði hjón-
anna þar, Unnar Guðmunds-
dóttur og Snæbjörns Jónssonar.
Forsetahjónin gistu um nóttina
aö Hótel Bjarkalundi, en næsta
morgun var ferðinni haldið áfram
um Tröllatunguheiði til Stranda-
sýslu.
ÓEÓ.
O Dauðsfall
ferð inn fyrir 12 milurnar i átt að
varðskipinu, var ákveðið. að
fresta viðgerð á Ægi og halda
undan dráttarbátnum.
Alda kom þá inn á borðstokk
Ægis, þarsem Halldór heitinn var
enn með rafsuðutækin i höndun-
um.
Ekki er ljóst af hvaða orsökum
aldan reið inn á borðstokkinn, en
við sjóprófin á Akureyri, verður
væntanlega i ljós leitt,hvort hún
kom frá dráttarbátnum. Ekki er
enn vitað, hversu langan tima
sjóprófin munu taka, en það
verður Bogi Nílsson, fulltrúi
bæjarfógetans á Akureyri, sem
heldur þau.
Halldór Hallfreðsson var 33
ára og bjó að Hraunbæ 84, i
Reykjavik. Hann lætur eftir sig
eiginkonu, Júliönu Helgadóttur,
og son á öðru ári.
-gj-