Tíminn - 31.08.1973, Qupperneq 7
Föstudagur 31. ágúst 1973.
TÍMINN
Jónas Guðmundsson:
RÉn AÐ SKIPTA UM SKOT-
FÆRI í VARÐSKIPUNUM
Greinarhöfundur. Jónas Guð-
mundsson, rithöfundur. Hefur
lokið skipstjóraprófi á varðskip-
um rikisins og prófi frá liðsfor-
ingjaskóla US Coast Guard I
Bandaríkjunum. Hann var um
árabil yfirmaður i Landhelgis-
gæzlunni.
vopnuð. Þeirri staðreynd verður
ekki á móti mælt, en annað mál er
það, hvort þau eruréttvopnuð, eða
hæfilega til að geta þó varizt
dráttarbátum, ef þvi er að skipta,
dreg ég mjög í efa. Vil ég nú fara
nokkrum orðum um vopnabúnað
varðskipanna.
Fallbyssurnar siður en
svo gagnslausar
Flest varðskipanna, eða að
einu einasta undanskildu, hafa
fallbyssu. Þetta eru tiltölulega
stórar byssur, 57 mm og
þriggjapunda, sem eru heldur
minni. Eða svo var það, siðast
þegar ég vissi til. Þetta eru
gamlar byssur, sumar úr Búa-
stríðinu að minnsta kosti, en þær
eru siður en svo gagnslausar, ef á
annaðborð er nokkuð til að skjóta
úr þeim með. Til skamms tima
hefur landhelgisgæzlan aðeins
haft tvær tegundir skota, þ.e.
púðurskot og skot með stálkúlu
sem ekki springur, en fer hins
vegar gegnum byrðing skipa og
getur gert þar usla. Ef varðskipin
heföu hins vegar i fórum sinum
sprengikúlur, þ.e.a.s. skytu, ef
þvi væri að skipta, sprengjum
að skipum, eru byssur þeirra
farnar aö gefa litið eftir fall-
byssum á venjulegum freigátum.
Það væri hægt að sprengia i loft
upp og sökkva dráttarbáti með
einu, eða tveim skotum, og eitt
skot þyldi hann ekki til að verða
óhaffær, ef það kæmi til dæmis i
stjórnpall eða vélarrúm.
VATNS-
HITA-
lagnir
og síminn er
2-67-48
Við getum komið í veg fyrir drekstrartiiraunir með því að
hafa raunveruleg skotfæri um borð í varðskipunum
Hin fólskulega árás brezka her-
skipsins og dráttarbátarins
Llodysman á varðskipið Albert
nú á dögunum, og nú árásin á
varðskipið Óðin gefur tilefni til
þess að kannað sé, hvort ekki beri
að breyta vopnabúnaði íslenzku
varðskipanna frá því, sem nú er.
Það er naumast lengur hægt að
halda úti skipum, til þess eins að
láta hlæja að þeim á Atlants-
hafinu. tslenzku varðskipin eru
Um eiginleika fallbyssu-
kúlna
Sprengikúlur geta haft ýmsa
„góða” eiginleika. Það má láta
kúluna springa við snertingu
skotmarks, eða við annað högg,
þ.e. kúlan fer innfyrir byrðing og
springur svo við næsta árekstur
inni i skipinu, en þetta er aðeins
einn möguleiki af mörgum, en
frá þessu er sagt til að sýna hver
stigsmunur er á sprengihleðslu og
þeirri, sem Landhelgisgæzlan
getur nú boðið upp á, og hvað
hægt er að bjóða upp á, ef það
væri talið æskilegt. Bretar vita
upp á hár, hvaða kúlur varðskipin
hafa i byssum sinum, og vita, að i
raun og veru eru þær hættu-
lausar. Þess vegna gera þeir
árekstrartilraunir og láta skit
kassa, eins og dráttarbáta, gera
ásiglingartilraunir á varðskipin
okkar. Mér er hins vegar til efs,
að áhafnir dráttarbátanna gæfu
sig að reyna við varðskipin, ef sá
„tekniski” möguleiki væri fyrir
hendi, að varðskipið skyti
sprengikúlu og ferðin endaði á
himnum fyrir skipshöfnina, og á
hafsbotni fyrir dráttarbátinn.
Sama er raunar að segja um her-
skipin. Það er allt annað að sigla
ögrandi framhjá litlu varðskipi,
sem hefur bara járnbolta til aö
skjóta, en varðskipi, sem getur
sent sprengikúlur, sem brynvörn
freigátunnar ekki þolir. Skipanir
freigátustjórans gætu verið hans
siöustu i þessu lifi. Enginn staður,
ekki einu sinni skotfærageymsla
herskipsins er óhult og þá hygg ég
að samtöl öll og orðafar verði
hógværara og aðgerðirnar lika.
Mannasiðir með
sprengikúlum.
Nú má ekki skilja þetta svo, að
ég telji, að við getum sigrað
brezka flotann. En við getum hins
vegar með þvi að skipta um skot i
byssum Landhelgisgæzlunnar,
Gamli ÆGIR. Sama fallbyssan er nú á nýjasta skipi Landhelgisgæzl-
uiinar. Þcssar byssur munu vera siðan úr Búastriðinu og eru öflug og
háksaleg vopn, ef uotuö eru „alvöru” skotfæri, en ekki „járnboltar”.
kennt þeim ákveðin skammt af
mannasiðum, en til þess virðist
rik ástæða. Innst inni hlyti sá
grunur aö vakna, að skyndilega
þryti þolinmæðin og freigátan
fengi i sig sprengju, þegar minnst
varði og verst á stæði.
Þá komum við að öðru atriði, en
það er njdsnaflugið, sem Bretar
stunda við Islands. Þessar flug-
vélar njósna um varðskipin.
Þetta er eiginlega skemmtiflug
fyrir Bretana. Ef hinsvegar varð-
skipin væri vopnuð loftvarnar-
byssum, eða vélbyssum, sem ekki
ætti að verða nein goðgá, þá
breytist málið. Það væri kominn
upp sá möguleiki, að þessi vopn
yrðu notuð og njósnaferðirnar
myndu hætta að vera skemmti-
ferðir. Dónalegt lágflug yfir varð-
skipin væri úr sögunni, og þyrlur,
sem nú virðast notaðar til að aö-
stoða við árekstrartilraunir, yrðu
naumast sendar á loft.
Þetta tel ég vera lágmarks-
kröfu til handa varðskips-^
mönnum. , ,
20. águst.
Jónas Guðmundsson.
verzlið á 5 hæðum í 111-húsinu
Skoðið hina nýju
ws
ATON-DEILD
ATON-húsgögnin eru
sérstæð
glæsileg
°9
alíslenzk
Skoðið renndu
vegghúsgögnin
skápana og
skattholin
Engir víxlar heldur
mánaðargreiðslur með
póstgíróseðlum sem
greiða má í næsta banka,
pósthúsi eða sparisjóði
Næg bílastæði
annari hæð
i
JON LOFTSSON HF.
Hringbraut 121 . Sími 10-600