Tíminn - 31.08.1973, Síða 8
8
TÍMINN
Föstudagur 31. ágúst 1973.
Umsjón og ábyrgð: Samband ungra framsóknarmanna
Fyrrverandi þingfréttaritari Tímans
upplýsir, hverjir voru raunverulegir
foringjar Laugardagsbyltingarinnar
og hvaða vélabrögðum þeir beittu
LAUGARDAGSBYLT -
INGIN í NÝJU LJÓSI
Kristinn Finnbogason og Ólafur Jóhannesson voru bak við tjöldin hinir raunverulegu
foringjar órósarinnar á vinstri menn í FUF í Reykjavík
Kristinn Finnbogason
Hann útvegaði nokkra tugi þúsunda, semvorunotaðir til að greiða félagsgjöld
fyriráhugalitla félagsmenn, sem siðan varsmalaðáaðalfundinnoglátnir greiða
atkvæði sér að kostnaðarlausu. Peningavaldið lætur sér ekkert fyrir brjósti
brenna og svivirðir grundvallarreglur lýðræðislegs flokksstarfs. Hverjir skyldu
hafa lagt peninga i púkkið með Kristni?
Ólafur Jóhannesson
Hann var hugmyndafræðingur árásarinnar á vinstri menn i FUF. Ályktanir
hægri manna, sem m.a. lofsungu forsætisráðherrann voru samdar á heimili Ól-
afs Jóhannessonar. Formaður flokksins hafði forystu ásamt Kristni Finnboga-
syni um einhver ólýðræðislegustu vinnubrögð, semum getur i flokksstarfi Fram-
sóknarflokksins.
Undanfarna daga hafa birzt i einu dagblaðanna kaflar úr
nýrri bók eftir Einar Björgvin og fjallar bókin um starf hans i
Framsóknarflokknum, einkum fréttamennsku i þinginu og
kynni hans af ýmsum mönnum og atburðum innan Framsókn-
arflokksins. Einar Björgvin var ráðinn þingfréttaritari Timans
af Tómasi Karlssýni haustið 1970 og gegndi þvi starfi i tvö ár og
var þann tima mikill stuðningsmaður hægra liðsins i flokknum.
Það er þvi engin ástæða til að rengja frásögn Einars Björgvins
af aðgerðum þeirra hægri manna, enda staðfestir hann i skrif-
um sinum ýmislegt, sem margir höfðu fregnað eftir öðrum leið-
um. Kaflarnir úr bók Einars Björgvins hafa vakið mikla athygli
Ályktun samin á heimili
flokksformannsins
Baráttan var tvísýn eins og
fyrri daginn og voru hægri menn
alls ekki of vongóðir um að sigra i
þessari baráttu. Þeir voru samt
sem áður búnir að semja ályktun,
er samþykkt skyldi sem álytkun
stjórnar Félags ungra Fram-
sóknarmanna i Reykjavik bæru
þeir sigur úr býtum. 1 upphaíi
ályktunarinnar var myndun
rikisstjórnar Ólafs Jóhannesson-
ar að sjálfsögðu fagnað og lýst yf-
ir stuðningi við og ánægju yfir
málefnasamningi hennar. Þá var
i ályktuninni lýst ánægju yfir við-
ræðum um samstarf vinstri
manna i landinu, en talið að
ótimabærar aðgerðir einstakra
aðila gætu orðið til þess að spilla
fyrir stjórnarsamstarfinu, og þvi
yrði að fara að með fyllstu gát. Þá
átti að kanna möguleika á
og telja kunnugir að hún verði níetsölubólk.
í einum kaflanum segir Einar Björgvin frá árás hægri manna
á vinstri arminn i FUF i Reykjavik. Staðfestir Einar þar að
Kristinn Finnbogason lagði fram mikið fé til að láta greiða ár-
gjöld fjölda félagsmanna og nam sú upphæð jafnmiklu og flest
kjördæmasambönd Framsóknarflokksins fá til starfsemi sinn-
ar á hverju ári. Einnig kemur fram, að ólafur Jóhannesson
hafði einnig forystu um Laugardagsbyltinguna. Þar eð efni
greina Einars hlýtur að vekja athygli og undrun alls heiðarlegs
framsóknarfólks þykir rétt að birta úr þeim stutta kafla þessu
til staðfestingar.
i stjórn félagsins, sem hafði ekki
greitt gjöld sin til þess.
Það munaði mjóu
Aðalfundurinn var svo haldinn i
Glaumbæ, skömmu eftir hádegi á
laugardegi i miðjum október-
mánuði og var afar fjölsóttur, en
300-400 manns mættu. Mikil
spenna rikti náttúrlega á fundin-
um, og eftir nokkuð þras var
gengið til kosninga, enda vildu
hægri menn hraða kosningunum,
þar sem kappleikir ýmsir áttu að
fara fram i borginni, og þvi hætta
á, að einhverjir freistuðust til að
yfirgefá fundinn, ef kosningar til
stjórnar drægjust.
Það munaði mjóu eins og
endranær en hægri menn höfðu
það af og þar með var ólafur
Ragnar Grimsson og kó orðnir
harla áhrifalitið afl i samtökum
ungra framsóknarmanna á
höfuðborgarsvæðinu.
kosningabandalagi vinstri flokk-
anna i næstu sveitar- og bæjar-
stjórnarkosningum. Lokaorð
ályktunarinnar voru á þá leið, að
stjórn Félags ungra framsóknar-
manna i Reykjavik teldi sjálf-
stæða skoðanamyndun ungra
manna sjálfsagða, en um leið
myndi stjórnin vinna að þvi að
treysta sem bezt samvinnu eldri
og yngri manna i Framsóknar-
flokknum.
Þessi álytkun var samin i sam-
ráði við flokksformanninn, Ólaf
Jóhannesson, forsætisráðherra.
Gott ef ekki á heimili hans.
Aldrei séð þetta lið á
fundum FUF
Ég studdi hægri menn — sem
fyrri daginn og kom tveimur
kunningjum minum á kjörstað,
en bölvaðir asnarnir kusu þá
vinstri menn. Við erum þó ágætir
kunningjar ennþá. Ekki tók ég
meiri þátt i þessari baráttu nema
hvað ég sótti fund siðdegis, rétt
fyrir aðalfundinn, þar sem hægri
menn báru saman bækur sinar.
Fundurinn var haldinn i Snorra-
búð á Loftleiðahótelinu, og sá ég
þá fyrst fleiri menn, er hreinsa
vildu vinstri menn úr félaginu, en
félagana á Timanum, Tómas
Karlsson og Alfreð Þorsteinsson.
Flesta þeirra haföi ég ekki séð áð-
ur, enda þjónar á hótelum i höfuð-
borginni, en á slika staði kom ég
sárasjaldan, iþróttamenn, en ég
hafði ákaflega litinn áhuga á
kappleikjum og sliku og svo voru
þarna auðvitað fleiri, lögfræðing-
ar o.s.frv., sem ég hafði aldrei séð
á þeim fpndum félags ungra
framsóknarmanna, er ég hafði
sótt i húsi flokksins við Hring-
braut, og ekki heldur i kosninga-
baráttunni þá um vorið. Ég man
þó eftir tveimur mönnum úr eldra
félagi Framsóknarmanna i Rvik,
sem ég hafði séð áður, en það
voru Alvar Óskarsson, sem nú
var kominn i starf hjá einum ráð-
herra flokks sins, og fram-
kvæmdastjórinn Kristinn Finn-
bogason, bankaráðsmaður.
Kristinn leggur nokkra
tugi þúsunda til barátt-
unnar
Eitthvaö var nú spjallað saman
þarna á fundinum, sem ég man
ekki glöggt og vil þvi ekki vera að
tiunda. Ég man þó, að Kristinn
Finnbogason, kvaðst ráða yfir
nokkrum tugum þúsunda sem
varið skyldi til lokabaráttunnar,
en ef ég man rétt átti að verja þvi
fé til að greiða inngöngugjöld
nýrra meðlima i Félagi ungra
framsóknarmanna, þegar þeir
kæmu á aðalfundinn, en sam-
kvæmt reglum félagsins hafði sá
félagsmaður ekki rétt til að kjósa