Tíminn - 31.08.1973, Side 16
16
TÍMINN
Föstudagur 31. ágúst 1973.
Undirbúningur fyrir
átök vetrarins er
hafinn, en því miður
virðist iítiil áhugi
vera hjá landsiiðs-
mönnum okkar.
Aðeins sex
útispilarar mættu á
æfingu á þriðjudag-
inn og var það þó
með mesta móti
Mörg stórverkefni eru fram-
undan hjá islenzka landsliðinu i
handknattleik. Allt bcndir til að
liðiðkomi til með að leika um 30
landsleiki i vetur og taka þátt i
nokkrum stórmótum erlendis.
Efst á baugi verður að sjálfsögðu
heimsmeistarakeppnin i hand-
knattleik, en islenzka liðið leikur i
riðli mcð ttölum og Frökkum i
undankeppninni. Undirbúningur
fyrir átök vetrarins er hafinn, en
þvi miður virðist litill áhugi vera
hjá þcim landsliðsmönnum
KARL BENEDIKTSSON... landsliðsþjálfari ræðir hér við leikmennina sex, sem mættu á landsliðsæf-
ingu á þriðjudagskvöldið, þá Jón Karlsson, Val, Axel Axelsson, Fram, Björgvin Björgvinsson, Fram,
Auðun Óskarsson, FH, Berg Guðnason, Vál og Gunnstein Skúlason, Val. t baksýn sést Þorsteinn vera að
þjálfa markverðina. (Timamynd Róbert).
Vilmundur
og Oskar
stóðu sig
bezt
Danir sigruðu
íslendinga 127 — 73
DANIR sigruðit íslend-
inga i unglingalands-
keppninni i frjálsum
iþróttum, sem lauk í
Kaupmannahöfn i fyrra-
kvöld með 127 stigum
gegn 73.
Siöari daginn sigruðu íslend-
ingar aðeins i einni grein, en það
var Óskar Jakobsson, sem kast-
aði kringlunni lengst, eða 42,74
metra. Hann stóð sig vel i þessari
keppni, sigraði i einni grein, varð
annar i tveimur og þriðji í þeirri
fjórðu.
Vilmundur Vilhjálmsson
hreppti annað sæti bæði i 400 m
grindahlaupi og 200 m hlaupi,
hann keppti alls i 7 greinum aö
boðhlaupum meötöldum i þessari
landskeppni og stóð sig með
stakri prýði.
Sá, sem mest bætti árangur
sinn siðari dag keppninnar var
Erlingur Þorsteinsson, sem hljóp
3000 me á 9:06,4 min., sem er 14
sek, betri timi, en hann hefur
bezt náð áður. Agúst Asgeirsson
keppti sem gestur I hlaupinu og
náöi sinum langbezta árangri,
8:33,4 min.
Hér eru afrek Islendinganna
siðari daginn:
400 m grindahlaup:
2. Vilmundur Vilhjálmsson, 56,4
sek
4. Magnús G. Einarsson, 61,9sek
Stangarstökk:
3.SigurðurKristjánss., 3,40 m
4. Arni Þorsteinsson, 3,20 m
Sleggjukast:
3. Óskar Jakobsson, 37,66 m
4. Guðni Halldórsson, 37,48 m
800 m hlaup:
3. Július Hjörleifsson l:56,4min
4. Jón Diðriksson 2:00,1 min
Kringlukast:
l.Oskar Jakobsson 42,74 m
3. Guðni Halldórsson 41,26 m
200 m hlaup:
2. Vilmundur Vilhjálmss., 22,6 sek
4. Sigurður Sigurðsson 24,2 sek
Þristökk:
2. Jason ívarsson 13,03 m
4. Jón S. Þórðarson 12,55 m
3000 m hlaup:
3. Erlingur Þorsteinss 9:06,4 min
4. Markús Einarsson 9:28,8min
4x400 m boðhlaup:
2. tsland 3:28,9 min
samþykki Framara",
eins og hann oröar það.
Hann mun hins vegar
halda áfram að þjálfa
markverði Fram.
Astæöan fyrir félagaskipt-
um Þorsteins mun vera sú, að
hann ætlar sér ekki að keppa
um sæti markvarðar hjá 1.
deildarliöi Fram, en vill þó
ekki detta alveg út úr allri
keppni. Þrótt hefur vantaö
markvörö, og er enginn vafi á
þvi, aö Þorsteinn mun styrkja
liöiö.
Tveir beztu markveröir ls-
iands fyrr og síðar. Þor-
steinn Björnsson og Hjalti
Einarsson úr FH.
Stórverkefni framundan
hjó íslenzka landsliðinu í
handknattleik
okkar, sem hafa verið valdir til
æfinga. Þegar við litum inn á
æfingu hjá landsliöinu á þriðju-
dagskvöldið, voru aðeins sex úti-
spilarar og fjórir markverðir
mættir á æfingu. öðru visi mér
áður brá! Hér áður fyrr þótti það
mikill hciöur að vera valinn i
landsliö — nú virðist eftir þessu,
að það sé ekki eftirsóknarvert, að
vera valinn i islenzka landsliðið I
handknattleik. Erum við að verða
svo góðir, aö við þurfum ekki að
æfa ineö iandsliði.
Landsliðsnefndin valdi fyrir
nokkru hóp leikmanna til að æfa
með landsliöinu. Þeir leikmenn,
sem valdir hafa veriö láta ekki
sjá sig á æfingum. Er þvi ekki til-
valið að stokka upp i landsliðs-
hópnum og láta eingöngu leik-
menn æfa með liðinu, sem gefa
kost á sér i hin stóru verkefni
sem eru framundan. Við höfum
alltaf verið að hrósa okkur af
hinni miklu breidd, sem við
höfum i handknattleiknum, — þvi
ekki að nota hana?
Fyrstu landsleikirnir á
keppnistlmabilinu verða gegn
Norðmönnum i Noregi. Leiknir
verða tveir leikir og fara þeir
fram i október. Sviar munu koma
hingað i nóvember á leiö sinni til
og frá Bandarlkjunum og munu
þeir leika hér tvo leiki. Sá fyrri
verður i byrjun nóvember og sá
siðari um miðjan mánuðinn.
Fyrsti leikur Islands i undan-
keppni HM verður gegn Itölum
hér heima á timabilinu októ-
ber-desember. Siðan veröur farið
utan og leikið gegn ttölum og
Frökkum i sömu ferðinni. Siðasti
leikurinn i undankeppninni
'veröur svo gegn Frökkum hér
heima.
Islenzka landsliöið mun taka
þátt I alþjóðakeppni i
Austur-Þýzkalandi 11.-16. desem-
ber. 1 keppninni, sem nefnist
International Turnier Rostock,
munu auk tslendinga keppa:
Tékkar, Ungverjar, Rúmenar og
tvö lið frá Austur-Þýazkalandi.
Þá mun Islenzka liðiö taka þátt i
Norðurlandamótinu, sem hefst i
Danmörku 27. desember.
Um miöjan janúar 1974 koma
svo Ungverjar hingað og leika tvo
landsleiki i Laugardalshöllinni.
verður þettai fyrsta skipti, sem
Ungverjar koma hingað til lands,
en við höfum alltaf átt i erfið-
leikum með Ungverja i heims-
meistarakeppni og leikjum er-
lendis.
Ef islenzka liðið kemst áfram
úr undankeppni HM, sem má
telja nær öruggt, að minnsta
kosti, ef landsliðsmenn okkar slá
ekki slöku við landsliðsæfingar,
þá komumst við i lokakeppnina,
sem fer fram i A-Þýzkalandi i
febrúar 1974. Þar leikur islenzka
liðið væntanlega i riðli með Tékk-
um, V-Þjóðverjum og Dönum. Ef
islenzka liðið verður i einu af
þremur efstu sætunum I riðlinum,
leikur liðiö a.m.k. þrjá leiki i
keppninni til viðbótar.
Að þessari upptalningu lokinni
má sjá, að islenzka landsliðið fær
nóg að gera i vetur. Þvi er ástæða
til aö hefja undirbúninginn af full-
um krafti og þá með leikmönnum,
sem hafa áhuga á aö taka þátt i
þessu erfiða verkefni, ekki leik-
mönnum, sem láta ekki sjá sig á
æfingum. SOS.
ÞORSTEINN
YFIR í ÞRÓTT
Kemur hann Þrótti upp í 1. deild?
Hinn kunni marhvörfl-
FRAM-DAGUR A
SUNNUDAGINN
N.k. sunnudag verður haldinn
Fram-dagur á svæöi félagsins við
Safamýri. Var I fyrsta sinn I fyrra
efnt til sliks dags. Tilgangurinn er
Hinn kunni markvörö-
ur Fram í handknattleik,
Þorsteinn Björnsson,
sem um árabil var
markvörður landsliðsins,
hefur nú skipt um félag
og gengið yfir í raðir
Þróttara, „með fullu
sá að kynna starfsemi félagsins
og gefa foreldrum tækifæri til að
ræða við forustumenn félagsins
og fylgjast með kappleikjum
yngri flokkanna.
Hjá Fram er iðkuð knatt-
spyrna, handknattleikur og
körfuknattleikur, auk skiða-
iþróttarinnar. Verða þrjár fyrst-
nefndu greinarnar kynntar á
sunnudaginn, en keppni hefst kl.
13,30 og stendur fram til kvölds.
Þorsteinn hefur í
mörgu að snúast
Hann þjálfar alla beztu markverði
landsins
Þorsteinn Björnsson mark-
vörður hefur i mörgu að
snúast þessa dagana. Hann
þjálfar markverði landsliðsins
i handknattleik og ermeö þá á
séræfingum flest kvöld
vikunnar. Þorsteinn er þvi
fyrsti þjálfarinn, sem þjálfar
eingöngu markverði, og láta
landsliðsmarkveröirnir vel af
æfingunum hjá honum. Enda
cr Þorsteinn manna fróðastur
uin staðsetningar markvarða
og hvernig þeir eiga að staö-
setja sig.
Þá þjálfar Þorsteinn einnig
markveröi Vikings og Fram.
Það er ekki vafi á þvi, að
markverðirnir, sem Þorsteinn
þjálfar, koma mjög vel
undirbúnir fyrir keppnistima-
biliö, sem er að hefjast.