Tíminn - 28.09.1973, Blaðsíða 4

Tíminn - 28.09.1973, Blaðsíða 4
4 TÍMINN Föstudágur 28. september 1972 DENNI DÆMALAUSI ,,Um hvað eruð þið að spila þegar þið hafið enga peninga?” Aður kom okkur alltaf vel saman við nágrannanna. ...i minu eigin eldhúsi ... étandi úr minum eigin isskáp. Allir verða að borga Til skamms tima höfðu franskir kettir þau forréttindi að fá að ferðast fritt með járnbrautar- lestum þar i landi. En 1. júli siðast liðinn ákvað stjórn rfkis- járnbrautanna að farþegar með ketti yrðu að greiða fargjald fyrir þá framvegis, alveg eins og hundaeigendur hafa orðið að gera árum saman, og verður það að teljast sanngjörn ráö- stöfun. Það fylgdi ekki sögunni, hvort, stjórnin reiknar með verulegri tekjuaukningu af breytingunni. AAorgunverður fyrir mann og hund Það var snemma morguns i Ameriku á ágætis matsölustað. Inn kom nriaður nokkur með hund i bandi. Hann bað um Kentucky-morgunverð. Þjónn- inn var ekki viss um hvað maðurinn meinti, og spurði kurteislega hvernig sá morgun- verður væri. Jú, hann fékk skýringu. Kentucky-morgun- verður,- það var hálf flaska af Kentucky-wisky og stórt og mikið nautabuff. Buffið var fyrir hundinn! Hvað þýðir „14 Karat gull"? Þegar gullsmiðir tala um hreint og óblandað gull, þá tala þeir um 24 karat gull. En óblandað gul! er of mjúkur málmur til þess að heppilegt sé að smiða skartgripi úr honum, þess vegna er oftast harðari málmi, venjulega kopar, blandað saman við. T.d. þegar talað er um 18 karat gull, þá er átt við að það séu 18 hlutar af gulli á móti 6 af öðrum harðari málmi, og ef talaðer um 14 karat gull, þá eru 14 mælieiningar gull á móti 10 af öðrum málmi, og þannig áfram. Algengast er að nota 14 karat gull i skartgripi, og i flestum giftingarhringum er 14 karat gull. „Var þetta staðurinn, sem þú varst með i liuga, þegar þú bauðst mér út að drekka?” Leit að gulli Gullverðið hækkar stöðugt og hefur það margs konar afleið- ingar. Ein er sú, að nú hefur vaknað áhugi á ný á þvi að leita að gulli i sumarfrium og ferða- lögum um gömul gullgrafara héruð. Þarna er ein fjölskylda aðrannsaka gömlu gullnámuna hans afa, og nota sömu vinnu- brögð og gamli maðurinn á sín- um tíma. Þaö er óvist, að þau finni svo mikið gull, en útiveran og spenningurinn i sambandi við verkið er kannski gulls igildi. Fornleifafræðingur Þessi vel vaxna og glæsilega stúlka heitir Josephine Michale, og er tuttugu og fimm ára gömul. Hún vinnur hálfan dag- inn á „bæjarskrifstofunni” i Manchester i Englandi, sem er kannski ekki svo voðalega merkilegt eða spennandi starf. Josephine tekur sér þvi hvild frá leiðinlegri pappirsvinnu eftir hádegiðog skundar i háskólann, þar sem hún nemur fornleifa- fræði af miklum áhuga, og öllum sinum fristundum ver hún svo i uppgröft I gömlum rústum. — Það getur vel verið, að sumum finnist fornleifafræði ekki sérlega spennandi viðfangsefni fyrir unga stúlku, segir Josephine, en það vill þannig til, að ég get ekki hugsað mér neitt skemmtilegra. Ég vil það miklu heldur en að stunda innihaldslaust skemmtanalif. mynd. Gott farartæki Þessi litla stúlka heitir Browyn Jones og á heima i Kaliforniu. Hún er fimm ára og er lömuð upp I mitti vegna vöðva- rýrnunar. Stúdentar við verk- fræðideild rikisháskólans fengu spurnir af Browyn og tókust það verkefni á hendur aö smiða handa henni þennan fina raf- magnshjólastól. Og nú getur sú litla ferðazt um nágrennið á eigin spýtur, en eins og nærri má geta, var það algjörlega óhugsandi áður.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.