Tíminn - 23.10.1973, Síða 6
6
TÍMINN
Þriöjudagur 23. október 1973
Veizlugestir gæfta sér á krásunum og láta sig litlu skipta forvitin auguvegfarenda. Gunnar Magnússon leikur létta dinnermúsik til aö bæta
meltinguna meöan Guðmundur Bogason svifur um og býður Katli Larsen, Guörúnu Brandsdóttur, Hörpu Jósefsdóttur og Gunnari Magnús-
syni meira.
steikina, sem Kjötverzlun
Tómasar hafði veitt þeim og mat-
reitt á svo gómsætan hátt. Það
var þvi ekki um annað að ræða,
en að flytja veizluborðið i skjól og
halda átinu þar áfram, og endur-
taka siðan borðhaldið seinna,
þegar betur viðrar.
Það er Ketill Larsen, ásamt
klúbbum innan Æskulýðsráð, sem
sér um töku þessarar myndar.
Hefur Ketill gert handritið og er
jafnframt stjórnandi, en Svein-
björn Pétursson og Sigurjón
Valdimarsson taka myndina.
Sagði Ketill okkur, að það rikti
mikill áhugi hjá þeim, sem stæðu
að töku myndarinnar. Væri öll
vinna sjálfboðavinna, og ennþá
hefði ekki þurft að kosta neitt til
hennar. Ekki vissi hann hvenær
töku myndarinnar yrði lokið,
enda væri ekkert sem ræki á eftir
henni. Fer það allt eftir þvi,
hversu vel tekst við gerð myndar-
innar, hvað við hana verður gert,
en i bigerð er að fá hana sýnda á
Norðurlöndum.
MATARVEIZLA
FÍNA FÓLKSINS
A SUNNUDAGSGÖNGU
sinni brá Reykjavíkurbú-
um heldur en ekki í brún
við að sjá prúðbúið fólk
sitja að veizluborði á miðri
Lækjargötu.
En skýring fékkst þó á
þessu. Ketill Larsen var
enn einu sinni á ferð að
taka atriði úr myndinni
,/Reykjavíkurlífið í spaugi-
legri mynd".
Myndin fjallar um erlendan
ferðamann, sem kemur hingað til
landsins og sér landsmenn frá
heldur spaugilegu sjónarhorni.
Skömmu eftir komuna til
landsins fær karl sér ný gleraugu
hjá Týli. En það er ekki sama
gegnum hvaða gler er horft, þvi
upp frá þessu sér hann hina
furðulegustu hluti, svo ekki sé
meira sagt. A vegi hans verður
meðal annarra bóndi, sem tjaldar
á miðju Lækjartorgi, og fin frú,
sem gengur um bæinn með kálf i
bandi. Hann sér fólk vera að baða
sig á miðri Lækjargötu, þar sem
fina fólkið heildur einnig mikla
matarveizlu, og fleira i svipuðum
dúr.
1 þetta sinn var verið að kvik-
mynda matarveizluna, en veður-
guðirnir brugðust veizlugestum,
þegar þcir voru hálfnaðir með
5
:
Presturinn, Bragi ólafsson, kemur akandi meö steikina i fuilum Harpa Jósefsdóttir Amin nýtur þess sýnilega að neyta matar sfns undir berum himni. Mynd Þorsteinn
skrúða. Mynd Böövar Indriðason. Helgason.