Tíminn - 23.10.1973, Blaðsíða 12

Tíminn - 23.10.1973, Blaðsíða 12
TÍMINN Þriðjudagur 23. október 1973. Þriðjudagur 23. október 1973. TÍMINN 13 Rætt við Hjalta Pdlsson framkvæmdastjóra um framtíðarhorfur Innflutningsdeildar SÍS nokkrar spurningar varðandi væntanlegar byggingafram- kvæmdir, svo og önnur atriði varðandi húsnæðisaðstöðu deildarinnar. Fyrst báðum við hann þó að greina frá veltu og af- komu deildarinnar undanfarið. — Velta Innflutningsdeildar hefur aukizt mjög ört ár frá ári, svarar Hjalti —og s.l. ár nam hún 1.627 millj. kr. og hafði þá aukizt um nær 22.5% frá árinu á undan, en það má taka fram, að i þessari tölu er ekki reiknuð með sala á sementi eða á framleiðsluvörum verksmiðjanna á Akureyri, sem deildin annast. Þá er heldur ekki annað að sjá en þessi aukning ætli að halda áfram á yfirstandandi ári, þvi að fyrra helming þess er hún komin upp i 1.046 millj. kr. og hefur aukizt um nær 330 millj. eða þvi sem næst 46% frá fyrstu sex mánuðum ársins 1972. Um af- komu deildarinnar er það að segja, að hún verður að teljast hafa verið mjög góð siðustu árin, og er þar helzt til að nefna, að okkur hefur tekizt að endurgreiða kaupfélögunum samtals tæplega 48 millj. kr. siðustu fimm árin i afslætti, sem fullyrða má, að hafi komið þeim mjög vel. — Ef við vfkjum þá að fyrir- hugaðri byggingu ykkar við Elliðavog, hvað er helzt um hana að segja? — Þetta er bygging, sem ráðizt er i af brýnni nauðsyn, og hefur reyndar lengi verið rætt um hana og menn almennt verið sammála um, að óhjákvæmilegt væri orðið að hef jast handa við hana. Þarna er um að ræða hús fyrir Innflutn- ingsdeild, og verður það raunar aðeins fyrsti áfangi i stærri fram- kvæmdum við allsherjar hafnar- í siðasta tölublaði samvinnublaðsins Illyns birtist eftirfarandi við- tal við Hjalta Pálsson, framkvæmdastjóra, um húsnæðismál innflutn- ingsdeildar SÍS og það sem helzt er á döfinni i starfsemi innflutnings- deildar. Viðtalið birtist hér með góðfúslegu leyfi Iljalta og ritstjóra Illyns. Nú undanfarið hefur ýmislegt markvert verið að gerast i hús- næðismálum Innflutningsdeildar Sambandsins. Má þar fyrst nefna, að byggingavöruverzlun deildarinnar fluttist á s.l. ári i ný- keypt húsnæði að Suðurlands- braut 32, og sömuleiðis er fóður- vöruverzlunin i Reykjavik nú um það bil að flytjast inn að Sunda- höfn. Þar fer hún fram i nýreistri fóðurblöndunarstöð við kornturn- ana, sem Kornhlaðan hf. rekur, en það fyrirtæki er i eigu Sam- bandsins og tveggja annarra fóðurinnflytjenda. Þá er og nokk- uð um liðið siðan frá þvi var skýrt, að Sambandið hefur sótzt eftir þvi hjá Reykjavikurborg að fá aðstöðu fyrir vörugeymslur við Elliðavog. Nú nýverið var svo frá þvi greint i Glugganum, frétta- blaði Innflutningsdeildar, að þeim málum hefði þokað það áfram, að deildin gæti nú á næstu mánuðum hafið framkvæmdir við nýja birgðastöð sina á fyrirhug- uðu athafnasvæði Sambandsins þar. Er sú framkvæmd reyndar Hjalti Pálsson fyrir löngu orðin mjög brýn, þvi að vörugeymsluaðstaða deildar- innar i gamla vöruhúsinu við Geirsgötu er l'yrir löngu orðin alls ófullnægjandi. Með það i huga að flytja lesendum HLYNS fréttir af þessum framkvæmdum öllum, gengum við nýlega á fund Hjalta Pálssonar frkvstj. Innflutnings- deildar og lögðum fyrir hann Kornturnarnir viöSundahöfn. Fóðurblöndunarstöð Sambandsins er I byggingunum lengst t.v. Uppskipunartæki (dælubúnaður) turnanna sést á bryggjunni. stöð og vörumóttöku Sambands- ins á þessum stað. Þessi fyrsti áfangi verður stórt hús, nokkuð á annað hundrað metra á hvorn veg og samtals um 14 þúsund fer- metrar. Húsið verður reist úr steinsteypu, jafnt veggir sem loft, með allmörgum burðarsúlum, og hæð þess verður um 9,5 metrar að utan, en stöflunarhæð inni i þvi um 7,5 metrar. I aðalatriðum verður það á einni hæð, en þarna er ráðgert að verði til húsa vöru- geymslur Innflutningsdeildar ásamt pökkunarstöð, söluskrif- stofum og umbúðageymslum Sjávarafurðadeildar o.fl. Bygg- ingarefnið, þ.e. steinsteypa i hólf oggólf er m.a. valið i samráði við tryggingafélög og endurtryggj- endur erlendis, enda verður þarna mjög mikið til vandað um eldvarnir og mun meira en áður hefur tiðkazt hér með hliðsjón af þeim miklu verðmætum, sem þarna verða saman komin. — Og framkvæmdir þarna eru um það bil að hefjast, er ekki svo? — Jú, að visu hefur afhendingu lóðarinnar seinkað litillega frá þvi sem upphaflega var áætlað, en við gerum þó ráð fyrir að geta hafið framkvæmdir nú mjög fljót- lega. Siðan er stefnt að þvi, að þessi bygging, eða fyrsti áfang- inn, verði tilbúinn til notkunar á árinu 1975, og eftir það vonumst við siðan til að hægt verði að taka til við næstu áfanga. Annar og þriðji áfangi eru hafnarskemma, þar sem verða vörugeymslur • Skipadeildar með viðbótar stein- steyptu útisvæði sunnanverðu við skemmuna, og er annar áfangi áætlaður 6.500 fermetrar, en þriðji áfangi 11.000 fermetrar. Þessum siðast töldu framkvæmd- um verður þó ekki lokið fyrr en búið er að gera nauðsynlega upp- fyllingu og ganga frá viðleguað- stöðu, sem hafnaryfirvöld lofa að hafa fullbúna eftir rúm sex ár, eða ekki siðar en 1980. Siðan ger- um við svo ráð fyrir að ráöast i fjórða áfanga þessara fram- kvæmda, sem verður sérstök bygging á tveimur hæðum á milli hinna tveggja, samtals um 15.000 fermetrar, sem fyrst og fremst verður viðbót við birgðastöðina. Það er e.t.v. ástæða til að taka fram, að hér er um framkvæmd aö ræða, sem óhjákvæmilega tek- ur nokkur ár að ljúka við, en á þessu stigi vonumst við til, að takast megi að koma sem mestu af þessum byggingum upp á næstu árum, auk þess sem vita- skuld verður einnig að hafa hlið- sjón af framkvæmdum hafnar- yfirvalda, sem ég gat um. — Hér verður væntanlega um alldýra framkvæmd að ræða. — Já, og varðandi þessar bygg- ingar vaknar óhjákvæmilega sú spurning, hvort þessi fyrsti áfangi verði of dýr fyrir rekstur Innflutningsdeildar. Miðað við þá aukningu i veltu, sem deildin hef- ur notið undanfarin ár, þá er það þó trú okkar, að þessi hússtærð, sem varðfyrir valinu, muni henta okkur vel um nokkra framtiö. — Nú hefur talsvert verið kvartað undan erfiðum rekstrar- grundvelli smásöluverzlunarinn- ar i landinu á undanförnum ár- um. Hvað er að segja um fram- tiðarmöguleika deildarinnar i ljósi þess? — Já, það er rétt, en þar er einnig á það að lfta, að það getur ekkert þjóðfélag verið án smá- söluverzlunar eða dreifingar - Hér á bakka EUiðavogs verður innan tiðar byrjað aö grafa fyrir nýrri Birgöastöö. aðila, þvi að daglegar neyzluvör- ur sinar kaupir fólk af nauðsyn. Ef það ætti að brjóta niður það dreifingarkerfi, sem við nú eig- um, þá væri það hrein eyðilegg- ing, og þess vegna tel ég að það geti ekki hjá þvi farið, að smá- söluverzluninni verði sköpuð nauðsynleg aðstaða til að veita þá þjónustu, sem henni ber. — Er vitað, hver hlutur Inn- flutningsdeildar eri innflutningitil landsins i heild eða i einstökum vöruflokkum? — Það liggja þvi miður ekki fyrir neinar skýrslur, sem sýna það hlutfal.I, en samkvæmt þeim upplýsingum, sem eru fyrir hendi, virðist hlutfall deildarinn- ar i ýmsum helztu nauðsynjavör- um vera mjög misjafnt eða á bil- inu 20-50%, og þar sýnist einnig vera um nokkra hlutfallslega magnaukningu að ræða siðustu ár. Þó er fóður hér i sérflokki, þvi að flutfall deildarinnar i fóðurinn- flutningi siðustu árin hefur verið allmiklu hærra og komst upp i 68,8% á siðasta ári. — Hvaða starfsemi deildarinn- ar verður lögð niður samfara þvi að fóðurfblöndunarstöðin við Sundahöfn tekur til starfa? — Það stendur til, að fóður- blöndunarstööin i Þorlákshöfn verði lögð niður samhliða þvi að nýja stöðin kemst i fullan rekstur. Þá hefur verið hætt starfrækslu fóðursekkjunar og fóðurgeymslu deildarinnar i örfirisey, enda verða afköst nýju fóður- blöndunarstöðvarinnar mjög mikil, eða a.m.k. 20 þúsund lestir á ári. — Hvaða landsvæði á fóður- blöndunarstöðin að þjóna, og verður fóður áfram flutt beint inn. til annarra landshluta? — Hún á að þjóna viðskiptavin- um austur að Lómagnúp, þ.e. Suðurlandsundirlendinu. Hins vegar er miðað við, að fóður verði flutt til Borgarness beint frá út- löndum og þvi dreift þaðan, sekkjuðu eða lausu, beint til bænda á viðskiptasvæði Kaup- félags Borgfirðinga, sem orðið er þriðji stærsti söluaðili landsins i fóöri með um 4-5 þúsund lestir á ári. Aftur á móti selja kaupfélög- in hér á Suðurlandsundirlendinu 10-12 þúsund lestir á ári, sem allt verður afgreitt frá Reykjavik, og til annarra landshluta er gert ráð fyrir, að fóður verði áfram flutt beint. — En myndi þetta breytast, ef vegur með varanleguslitlagi væri kominn frá Reykjavik til Borgar- ness, ásamt brú yfir Borgarfjörð og hugsanlega einnig einhvern hluta Hvalfjarðar? — Þaö væri hugsanlegt, en er alls óvist. Ef stærri og afkasta- meiri bilar en nú eru notaðir fylgdu eftir endurbættum vegi, mætti hugsa sér, að fóður yrði einnig flutt þangað frá Reykjavik i einhverjum mæli, en ég eygi það þó ekki á næstu árum. — En hvert telur þú að öðru leyti að sé helzta hagræðið að til- komu fóðurblöndunarstöðvarinn- ar við Sundahöfn? — Það er fyrst og fremst að- stöðumunurinn i Reykjavikur- höfn, sem er miklu öruggari en Þorlákshöfn. Með þeim full- komna dæluútbúnaði, sem þar er nú til staðar og dælir 100 lestum á klukkustund ásamt þvi að hann vigtar kornið um leið, þarf ekki nema tvo menn til að losa heilt skip. I Þorlákshöfn þurfti á hinn bóginn marga menn við upp- skipunina, korninu þurfti að aka á bilum frá skipshlið á geymslustað og vega það á leiðinni á hafnar- vog. Lestun og afgreiðsla þar var sömuleiðis miklu seinvirkari og starfsmannafrekari en er við kornturnana, þvi að þar gengur hún álika fljótt fyrir sig og losun- in. Þá á nýi vegurinn milli Reykjavikur og Selfoss hér mik- inn híuta að máli þvi að hann er litlu lengri en leiöin frá Selfossi til Þorlákshafnar, en skapar bæði stóraukna flutningamöguleika og dregur einnig mikið úr sliti og viöhaldi á bilunum, sem aka með fóðrið. — Hver er reynslan af rekstri Kornhlöðunnar hf. og hvernig hefur samstarfið um rekstur hennar gengið? — Samstarfið um rekstur henn- ar hefur gengið vel, en þó eðlilega ekki án árekstra, þar sem um keppinauta er að ræða. Korn- turnarnir taka nú 5.110 lestir, en það hefur komið i ljós, að þeir eru ekki nógu stórir, heldur vantar þarna töluvert meira geymslu- rými. Þess vegna þyrfti það að vera eitt af verkefnum nánustu framtiðar að stækka þá svo, að þeirtækju þetta 10-12 þúsund lest- ir. — En ef við vikjum þá að hús- næði Byggingavörusmásölunnar að Suðurlandsbraut 32 og Armúla 29, hvað er um aðstöðu hennar að segja og má ætla að hún full- nægi þörfum hennar til fram- búðar? — Reksturinn þar hefur gengið vel, og það var óneitanlega stór- kostlegt framfaraspor að flytja úr gömlu skrifstofuhúsnæði að Hafnarstræti 23 i húsnæðið við Suðurlandsbrautina. Á hinn bóg- inn verður ekki framhjá þvi geng- ið, að eigi menn að vera i takt við timann, mun ekki langur timi liða, þar til hana þarf að færa i nútimalegra horf en mögulegt er þar. — En aðstaða Birgðastöðvar, Búsáhaldadeildar og Vefnaðar- vörudeildar i vörugeymsluhúsinu við Geirsgötu, er hún ekki fyrir löngu orðin allsendis ófullnægj- andi? — Aðstaðan þar hefur verið mjög þröng og erfið um langa hrið, enda er það mjög óþægilegt að hafa vörugeymslur á mörgum hæðum eins og þar er. Með sivax- andi vörumagni er hún nú orðin mjög erfiö, og á þaö ekki sizt við um starfsemi Birgðastöðvar, sem stofnsett var og tók til starfa i tið fyrirrennara mins, Helga heitins Þorsteinssonar. Með stofnun hennar var stigið mikið gæfuspor fyrir samvinnuverzlunina i land- inu, og nú er það von min, að með tilkomu nýja hússins batni aö- staða hennar verulega og til frambúðar. — Eru jafnframt þessum nýju byggingaáætlunum áfram uppi hugmyndir um að reisa fleiri birgðastöðvar úti um landið? — Nei, ég tel, að ekki eigi að stefna að þvi að reisa fleiri birgðastöðvar, heldur þvert á móti að flytja þungavörurnar sem mest beint á hafnirnar, en afgreiða siðán smærri vörur eftir hendinn'i frá Iteykjavik. Eg tel það óvist með öllu, að i heild yrði það ódýrara eða myndi skapa aukna hagkvæmni að reisa aðra slika stöö einhvers staðar úti á landi, og er i þvi sambandi á það að lita, að vegirnir eru stöðugl að batna og flutningabilarnir aö stækka, auk þess sem stöðugt er unnið að endurbótum á öðrum samgöngum. Með þvi móti minnka fjarlægðirnar óðum, og þannig breytast viðhorfin, svo að það ser.i á við i dag, getur verið orðið úrelt innan tilltölulega fárra ára. — e. : ; Svona hugsa menn sér framtiöarathafnasvæði samvinnumanna i höfuöborginni, þegar framkvæmdum viö þaö er að fullu lokiö. Þarna er staöurinn séður úr suðri. Skip liggur viö hafnarbakkann, stórir flutn- ingavagnar eru viðs vegar um svæðiö, bilar starfsmanna við aðalinn- ganginn og fánaborg við innkeyrsluna. Ætla má, aö þegar fram liöa stundir, muni aðalstarfsemi Sambandsins svo sem flutningar aö og frá landinu. dreifing vöru með bilum um landiö, lagerhúsnæði fyrir allar undirdeildir Innflutningsdeildar, einnig fyrir verksmiðjurnar á Akur- evri verða hér svo nokkuö sé nefnt

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.