Tíminn - 23.10.1973, Síða 18
18
TÍMINN
Þriöjudagur 23. október 1973.
LEEDS HEFUR
FJÖGURRA STIGA
FORSKOT í
1. DEILDINNI
Liðið lagði ensku meistarana fró Liverpool að velli. *
— Stepney markvörður skoraði úrslitamark United.
— West Ham vann sinn fyrsta leik.
Leeds hélt sigurgöngu
sinni áfram á laugar-
daginn, þegar liðið vann
ensku meistarana frá
Liverpool 1:() á heima-
velli. bað virðist ekkert
geta unnið á Leeds-lið-
inu um þessar mundir.
og liðið hefur nú
fjögurra stiga forskot í
baráttunni um Eng-
landsmeistaratitilinn.
Lað var miðherjinn
snjalli, Mick Jones, sem
skoraði sigurmarkið.
Feter Lorimer lék upp
kantinn á 34. min. og
sendi eina af sinum ná-
kvæmu sendingum fyrir
Liverpool-markið, þar
sem Jones var og
skallaði knöttinn i netið
framhjá Ray Clemence,
markverði Liverpool.
Leeds varbetra 4iðið og
er nú eina liðið i ensku 1.
deildinni, sem ekki hef-
ur tapað leik. Norman
Ilunter lék sinn 600. leik
með Leeds, og var hann
hylltur fyrir leikinn.
1. dcildí
Arsenal Ipswich l-l
Coventry West Ham 0-1
Derby Leicester 2-1
Evertoh— Burnley 1-0
Leeds Liverpool 1-0
Man.Utd. Birmingham 1-0
Newcastle Chelsea 2-0
Norwich Tottenham - 1-1
Sheff.Utd. Man.City 1-2
Southampton—Stoke 3-0
Wolves Q.P.R 2-4
2. deildí
Aston Villa— Bristol C. 2-2
Blackpool Nottm.For. 2-2
Bolton — Millvall 0-1
Cardiff—Sheff.Wed 0-1
C.Palace—Carlisle 0-1
Fulham -Sunderland 0-2
Hull—Portsmouth 4-1
Middlesbro—WBA 0-0
Notts. Co.—Preston 2-1
Orient—Luton Town 2-0
Swindon—Oxford 1-0
Alex Stepney var maður
dagsins ó Old Trafi'ord á laugar-
daginn. Þessi snjalli markvörður
skoraði sigurmark Manchester
United úr vitaspvrnu, annað
mark sitt i deildinni á keppnis-
timabilinu. Tommy Docherty,
framkvæmdastjóri United, hefur
mikla trú á Stepney sem vita-
skyttu. Sl. sumar var United á
keppnisferðalagi, og þá gerðist
það, að vitaspyrnukeppni þurfti
til að úrslit fengjust i einum leikn-
um. Stepney tók þá vitaspyrnu og
skoraði örugglega úr henni. Siðan
hefur hann tekið vitaspyrnur
United og skorað úr þeim öllum
— samtals sex sinnum á keppnis-
timabilinu. George Best lék nú
aftur með United, og komu um 50
þús. áhorlendur til að sjá
snillinginn leika aftur. Hann átti
þokkalegan leik, en þurfti að yfir-
gefa völlinn i siðari hálfleik vegna
meiðsla — tognaði.
Burnley tapaði á Goddison
Park fyrir Everton, og var úr-
slitamarkið skorað úr vita-
spyrnu. Það var nýliðinn hjá
Everton, Dave Clemence, sem
skoraði úr vitaspyrnunni.
Clemencesem Everton keypti frá
Sheffield Wednesday, er nú
orðinn einn bezti leikmaður Ever-
ton, duglegur leikmaður, sem
ekki gefst upp fyrr en i fulla hnef-
ana. Það var settur maður til
höfuðs hinum snjalla Leighton
James, en hann er maðurinn á
bak við spil Burnley. Burnley-
liðiðnáði sér aldrei á strik, og
sigur Everton var sanngjarn.
Terry Paine, fyrirliði Dýrling-
anna, kom þeim á sporið i leikn-
um gegn Stoke. Hann skoraði
fyrsta mark Southampton, og
siðan bætti Stoke tveimur mörk
um við fyrir leikhlé. En i siðari
hálfleiknum tókst Dýrlingunum
ekki að skora fleiri mörk, og loka-
tölurnar urðu þvi 3:0.
Queens Park Hangers sýndi
stórgóðan leik gegn Úlfunum.
Lundúnaliðið nældi sér i bæði
stigin undir lókin, þegar það
skoraði þrjú mörk og breytti
stöðunni úr 2:1 i 2:4. Bowles,
Francis og Leech skoruðu hin
þýðingarmiklu mörk. Leikurinn
byrjaði með þvi, að Derek
,,gamli” Dougan skoraði fyrir
heimamenn. t siðari hálfleik
jafnaði Bowles, en Daly náði
aftur forustunni fyrir Úlfana —
hans fyrsta mark á keppnistima-
bilinu. En siðan jöfnuöu leikmenn
Lundúnaliðsins og bættu tveimur
mörkum við undir lokin.
Lambart skoraði mark Ipswich
gegn Arsenal, og var þá allt útlit
fyrir að Ipseich myndi fara með
sigur af hólmi. En rétt fyrir leiks-
lok jafnaði Peter Simpson fyrir
Arsenal.
McAlister markvörður
Sheffield United varð fyrir þvi
öhappi á laugardaginn, aö hann
fótbrotnaði, þegar hann rakst á
Kodney Marsh. Sheffield hafði þá
mark yfir gegn Manchester City.
Woodward lór þá i markið, með
þvi að United var búið að nota
skiptimanninn, og léku þvi aðeins
tiu leikmenn i liði United. Ekki
réðu þeir við hina snjöllu leik-
menn City — Law jafnaði og
Kodney Marsh skoraði siðan
sigurmarkið.
Tottenham náði jafntefli gegn
Norwich eða e.t.v. væri réttara
að segja, að Norwich hafi náð
jafntefli gegn Tottenham. Alan
Gilzean skoraði mark Tottenham
i fyrri hálfleik en Livermore
jafnaði fyrir heimamenn.
,,Super Mac” eða MacDonald
skoraði bæði mörk Newcastle
gegn Chelsea. Hann skorar nú
mark eða mörk i hverjum leik, og
hann á bróðurpartinn af þeim 20
mörkum, sem Newcastle hefur
skorað i deildinni.
West Ham United vann sinn
fyrsta sigur i deildinni á laugar-
daginn, þegar liðið heimsótti
Coventry. Markið skoraði bak-
vörðurinn McDowell.
Skemmtilegastk leikurinn á
laugardaginn var leikinn á
Baseball Ground heimavelli
Derby. Mikil spenna var i leikn-
um, og skoraði landsliðsmaður-
inn Kevin Hector fyrsta mark
leiksins fyrir heimamenn.
Worhtington jafnaði fyrir
Leicester, en sigurmarkið
skoraði svo McGover við geysi-
legan fögnuð áhorfenda, semvoru
rúmlega 34 þúsund.
Staðan i 1. deildinni eru nú
þannig:
Leeds 12 9 3 0 24-7 21
Burnley 12 7 3 2 21-12 17
Derby 13 7 3 3 18-11 17
Everton 12 6 4 2 14-9 16
Newcastle 12 6 3 3 20-13 15
Coventry 13 6 3 4 14-10 15
Liverpool 12 5 3 4 12-11 13
Leicester 12 3 7 2 14-13 13
Man.City 12 5 3 4 16-15 13
Southampton 12 5 3 4 17-17 13
Ipswich 12 4 5 3 19-20 13
Q.P.R. 12 3 6 3 19-18 12
Sheff.Utd. 12 5 2 5 15-15 12
Arsenal 12 5 2 5 14-15 12
Tottenham 12 4 3 5 14-16 11
Man.Utd. 12 4 2 6 10-13 10
Chelsea 12 3 2 7 16-19 8
Stoke 12 1 6 5 11-16 8
Wolves 12 3 2 7 15-23 8
Norwich 12 1 6 5 10-17 8
West Ham 12 1 4 7 11-19 6
Birmingham 12 1 3 8 10-24 5
■ _
PAUL MEDELEY... hinn snjalli leikmaður Leeds er talinn einn bezti
leikmaður Bretlandseyja.
Þessi mynd var tekin í úrslitaleik Vikings og ÍS i blaki. (Timamynd Róbert).
Víkingar fyrstu Rvíkur-
meistararnir í blaki
Fyrsta Reykjavik-
urmótið i blaki var
haldið s.l. laugardag i
iþróttahúsi Réttar-
holtsskóla. Var mótið
sett af formani Vik-
iugs, Jóni Aðalsteini
Jónassyni.
Aðeins tvö lið tóku þátt i
þessu fyrsta Reykjavikur-
móti, Vikingur og lþróttafélag
stúdenta. Var leikur þessara
liða þvi hreinn úrslitaleikur.
Framan af virtust stúdentar
vera sterkari aðilinn. Þeir
unnu fyrstu lotuna 15:18f en
Vikingar þá næstu 16:14. 1
þriðju lotunni höfðu stúdentar
yfirburði og unnu 15:7. Og i
fjórðu lotunni virtust þeir vera
með sigur i höfn, þegar staðan
var 10:2 þeim I vil. En Viking-
ar voru ekki á þvi að gefast
upp. Þeir unnu forskotið upp
og tókst að sigra 15:13. Og i
fimmtu og siðustu lotunni,
sem jafnframt var úrslitalota
sigruðu þeir með 15:12 og urðu
þvi Reykavikurmeistarar i
blaki 1973.