Tíminn - 27.10.1973, Page 13
Laugardagur 27. október 1973
TÍMINN
13
299. drtíð Hallgríms Péturssonar:
MÚRHÚÐUN KIRKJU-
TURNSINS LOKIÐ
1 GÆR luku múrarar viö hiö
mikla og vandasama verk aö
múrhúöa turn Ilallgrimskirkju,
Álandseyja-
vaka í
Kópavogi
A UNDANförnum árum hefur
Norræna félagið i Kópavogi
haldið kynningarfundi þar sem
hvert Norðurlanda hefur verið
kynnt sérstaklega. Nú er röðin
komin að Alandseyjum. Sunnu-
dagskvöldið 28. þessa mánaðar
kl. 20:30 efnir Norræna félagið til
vöku i Þinghóli Alfhólsvegi 11,
þar sem Þóroddur Guðmundsson
skáld flytur ferðaþanka frá
Alandseyjum, en hann heimsótti
eyjarnar á sl. sumri. Þá verður
sýnd kvikmynd frá Alands-
eyjum. Ragna Freyja Karlsdóttir
spjallar um vinabæjarmót, sem
haldið var i Norkjöping á liðnu
vori. Þá leikur Arni Harðarson
nemandi i Tónlistarskóla Kópa-
vogs á slaghörpu. Sýnd verður
Vestmannaeyjakvikmynd og
milli atriða er fjöldasöngur við
undirleik Guðmundar Matthias-
sonar kennaraskóla kennara.
Vakan er öllum opin.
sem er sjötiu metra hár eins og
kumiugt er. Almur hans hafa þó
ekki verið múrhúöaöar enn.
Verður turninn afhjúpaöur innan
skamms, en hann hefur veriö tólf
ár i byggingu, og kemur þá fyrst i
ljós, hvernig hann nýtur sin.
Hin ljósa múrhúð turnsins er
gerð úr blöndu af muldu graniti
frá Noregi og dönsku múrsemi,
sem er ljós sementsblanda. Það
olli nokkrum töfur á múrhúðun
turnsins, að við framleiðslubreyt-
ingar hjá múrsemsverk-
smiðjunni dönsku i byrjun þessa
árs dökknaði liturinn nokkuð, og
tókst ekki fyrr en eftir talsverðan
frest að fá múrsemi i sama lit og
áður.
Lokaátakið við byggingu Hall-
grimskirkju er framundan:
Byggingkirkjuskipsins og kórsins
i fulla hæð og koma kirkjunni und
ir þak. Eins og áður kom
fram i blaðinu verður keppt að
þvi, að þetta komizt i fram-
kvæmd á næstu tólf mánuðum
fyrir 300. ártiö Hallgrims Péturs-
sonar. Með samtilltu átaki lands-
manna á þetta að vera kleift, auk
þess sem góðvinir kirkjunnar i
grannlöndum senda stöðugt stór-
gjafir til þess að flýta fyrir fram-
gangi kirkjubyggingarinnar. Frá
Noregi barst i þessum mánuði
byggingarefni, sem er þrjú
hundruð þúsund krónur að verð-
mæti, en áður höfðu margar
gjafir borizt, svo sem allt
granitið i múrhúðina, gólfhellur
og timbur, auk þess sem norskir
iðnaðarmenn hafa þrivegis komið
til þess að vinna við kirkjuna án
endurgjalds — allt fyrir tilstilli
séra Haralds Hope. Frá Dan-
mörku bráust lika nýlega 150
þúsund krónur að gjöf. Og þeir,
sem að kirkjubyggingunni
standa, gera sér vonir um, að
góðar gjafir frá Islendingum
sjálfum berist i dag á 299 ártið
Hallgrims.
Eins og kunnugt er verður i dag
hátiðamessa i kirkjunni og hefst
hún klukkan fimm siðdegis 1 lok
guðsþjónustunnar mun Martin
Hunger leika á klukknaspilið i
turni kirkjunnar nokkur lög i
eigin útsetningu við sálma Hall-
grims. Verða þetta sérstæðir tón-
leikar, sem verður bezt notið utan
kirkjunnar undan vindáttinni.
Turnspiran verður flóðlýst innan
frá, ljós i turnkrossinum og út-
sýnispallur i turninum opinn. 1
lyftunni, sem gengur upp á
sjöundu hæö, veröur unnt að
koma á framfæri gjöfum i söfn-
unarbauk. Væntanleg kapella i
Haligrimskirkja eins og hún er nú
syðri turnálmunni, sem senn er
tilbúin ti! notkunar, verður þá
einnig opin þeim, sem skoöa vilja.
í lok guðsþjónustunnar flytur
borgarstjórinn, sem búsettur er i
námunda viö Hallgrimskirkju,
Birgir tsleifur Gunnarsson,
ávarp.
Haustnámskeið
Rauðsokkur halda almennan fund um
Fyrirvinnuhugtakið
Félagsmálaskóla
Framsóknarflokksins
hefjast í dag
AAikil og fjölbreytt fræðslustarfssemi um
þjóðmál og Framsóknarflokkinn
t dag kl. 3 hefst á hótel Esju
hustnámskeið Félagsmálaskóla
Framsóknarflokksins með þvi að
Hannes Jónsson flytur inngangs-
erindi um félagslegt siðgæði og
hollustu við langtimamarkmið
Framsóknarflokksins. Að þvi
loknu hefst fyrsta málfundaræf-
ing.
Fyrirkomulag haustnám-
skeiðsins verður i meginatriðum
þannig, að á laugardögum verða
málfundaræfingar undir leiðsögn
Björns Björnssonar, Jóns
Sigurðssonar og Kristins Snæ-
land , en á fimmtudögum verða
flutt erindi um þjóðmál og
Framsóknarflokkinn, störf hann
og stefnu.
Lestrarefni fyrir málfundaræf-
ingarnar verður Lýðræðisleg
félagsstörf.eftir Hannes Jónsson,
en með erindunum verður bók
Þórarins Þórarinssonar Sókn og
sigrar aðallestrarefnið.
Málfundirnir verða reknir
þannig, að þátttakendur fái þjálf-
un i alhliða félags- og fundar-
störfum, bæði sem fundarstjórar,
fundarritarar og þátttakendur i
umræðum á fundum, en fræðslu-
erindin, sem flutt verða á
fimmtudagskvöldum verða um
ýmsa þættiþjóðmála og stefnu og
málefnabaráttu Framsóknar-
flokksins. Verða frjálsar umræð-
ur þátttakenda að þeim loknum.
Þórarinn Þórarinsson, formað-
ur þingflokks Framsóknarflokks-
ins flytur erindi um sögu og mál-
efnabaráttu Framsóknarflokks-
ins 1.. nóvember.
Ólafur Jóhannesson, forsætis-
ráðherra mun flytja erindi um
framkvæmdavaldið og stjórnar-
stefnuna 8. nóvember.
Eysteinn Jónsson, forseti Sam-
einaðs þings, mun flytja erindi
um sögu og starfshætti Alþingis
15. nóvember.
Borgarfulltrúar Framsóknar-
flokksins i Reykjavik munu flytja
þrjú stutt erindi 22. nóvember.
Mun Alfreð Þorsteinsson tala um
sögu Reykjavikur, Kristján
Hannes Jónsson
Benediktsson um starfshætti
borgarstjórnar, og Guðmundur
G. Þórarinsson um málefna-
baráttu Framsóknarflokksins i
Reykjavik.
Steingrimur Hermannsson,
ritari Framsóknarflokksins mun
svo flytja erindi um skipulag og
starfshætti Framsóknarflokksins
fimmtudaginn 29. nóvember, en
Einar Agústsson, utanrikisráð-
herra, flytur 6. desember erindi
um stefnu Framsóknarflokksins i
utanrikis- og örýggismálum.
t lok haustnámskeiðsins,
laugardaginn 8. desember, mun
Halldór E. Sigurðsson, fjármála-
ráðherra, flytja ræðu.
Svo sem sjá má af þessari
upptalningu er þarna i boði mikill
fróðleikur um þjóðmál og
Framsóknarflokkinn og tækifæri
til alhliða þjálfunar i félags- og
fundarstörfum. Er Framsóknar-
fólk, einkum þó ungir
Framsóknarmenn, eindregið
kvattir til þess að nota tækifærið
til þess að afla sér fróðleiks og
þjálfunar með þvi að sækja nám-
skeiðið. — TK.
Uauðsokkahreyfingin hefur
vctrarstarf sitt með almennum
fuiuli í Norræna húsinu i dag,
laugardag kl. 14. A fundinum
verður rætt um fyrirvinnuhug-
takið. Frummælendur vcrða
Svava Jakobsdóttir alþingismað-
ur og Auður Þorbergsdóttir
borgardómari, en fundarstjóri
verður Vilborg Sigurðardóttir
kennari.
Kannski er fyrirvinnuhugtakið
það, sem einna mest stendur i
vegi fyrir janrétti kynjanna á
ýmsum sviðum. Vegna þess, hve
rik hefð það er að telja karl fyrir-
vinnu heimilis, er kona talin
þurfa minna kaup, minni mennt-
un, minni framamöguleika i
starfúEiginlega er hún ekki talin
þurfa að vinna — þótt hún geri
það
Þetta er ekki aðeins óréttlæti
gagnvart konunni. Það er ekki
siður óréttlátt að ætlast til þess af
karlinum, að hann einn vinni fyrir
börnunum og vinni fyrir móður
þeirra, þótt heilbrigð sé. Enda
gera fáir þetta i raun. Er ekki
eðlilegast að hver fulltiða,
fullfriskur maður, karl eða kona,
vinni fyrir sjálfum sér og foreldr-
ar fyrir börnum sinum?
Félagsmálanefnd Norður-
landaráðs hefur á undanförnum
árum fjallaö um fyrirvinnuhug-
takið, og leiddi það til þess, að á
siðasta þingi Norðurlandaráðs, i
febrúar s.l. var samþykkt tillaga
um það. 1 tillögunni mælir
Norðurlandaráö með þvi, að
rikisstjórnir Norðurlandanna láli
fara fram athugun á réttarregl-
um sinum með það i huga að af-
nema öll ákvæði, sem hafa i för
með sér mismunun á konum og
körlum sem fyrirvinnum. Tillag-
an fól einnig i sér, að framfærslu-
skyldan skyldi bundin við börnin,
og einnig var ákvæði varðandi
tryggingarnar. Nefndin komst að
þeirri niðurstööu, að ekki væri
lengur raunhæft að leggja þann
skilning i fyrirvinnuhugtakið, að
það næði einungis til karlmanns-
ins og konan væri á framfæri
hans. Löggjafinn ætti fyrst og
fremst að tryggja rétt barnanna
á framfærslu og tryggja, að báðir
foreldrar bæru þar sömu ábyrgð.
Lögin eiga ekki lengur að inni-
halda ákvæði, sém gera upp á
milli karla og kvenna um fyrir-
vinnuhugtakið.
Að þessum málum hefur
nefndin verið að vinna, og hélt
m.a. ráðstefnu um málið á sl. ári.
Svava Jakobsdóttir sat þá ráð-
stefnu, og á fundinum hjá Rauð-
sokkum á laugardaginn mun hún
segja frá umræðum þar og hvað
erá döfinni i þessum efnum á hin-
um Norðurlöndunum.
Og hvernig er viðhorfið hér?
Auður Þorbergsdóttir mun tala
um fyrirvinnuhugtakið eins og
það kemur fram hér á landi nú, i
lögum og i reynd.
Fundurinn er öllum opinn, og
frjálsar umræður verða eftir
fundinn.
Það var upphaf Rauðsokka-
hreyfingarinnar á tslandi, þegar
nokkrar konur ákváðu að hittast
og kanna áhuga á þessu málefni.
Þetta gerðist i april 1970. Boðuðu
þær fund i Norræna húsinu, en
auglýstu hann ekki opinberlega.
Þessi hópur lét fyrst til sin heyra
1. mai sama ár, á baráttudegi
verkalýðsins. Söfnuðust konur
saman aftast i göngunni og báru
risastóra styttu, Venus úr Lýsis-
trötu, leikriti griska skáldsins
Aristófanesar, en það fjallar
einmitt um uppreisn kvenna i
Aþenu.
Siðast hefur mikið vatn til
sjávar runniö, og nú neitar þvi
enginn að Rauðsokkahreyfingin
hefurhaft mikil áhrif i jafnréttis-
átt.
A blaðamannafundi, sem
Rauðsokkahreyfingin hélt á
fimmtudaginn, kom fram, að
hreyfingin hefur aldrei verið
stofnuð formlega , og á hún sér
enga félagaskrá, lög né fundar-
gerðabók. Starfið byggist upp á
sjálfstæðum starfshópum, sem
eru tengdir svonefndri miöstöð.
Vilji einhver gerast félagi, getur
hann sameinazt hópi eða stofnað
nýjan hóp ásamt öðrum. Þegar
hópur hefur verið myndaöur, vel-
ur hann sér verkefni eftir eigin
geðþótta.
A'siðasta vetri fór fram fjöl-
breytt vetrarstarf. F'undir voru
haldnir hálfs mánaðarlega, fyrir
utan fundi i starfshópum. Verk-
efni hópanna eru margvisleg, og
má i þvi sambandi nefna lestur
bóka um jafnréttismál. Eru þá
lesnir vissir kaflar heima, sem
síðan eru ræddir i hópnum. Verk-
efni geta lika verið athugun eða
rannsókn á einhverjum málum,
þar sem gengið er á rétt annars
hvors kynsins. Einnig eru haldin
framsagnanámskeið og námskeið
i ræðumennsku.
Þeir sem hafa áhuga á að starfa
með rauðsokkum eða eiga við þá
einhver erindi, geta snúið sér til
miðstöðvar, en i henni eru nú. Vil-
horg Sigurðardóttir, simi 83887,
Eirikur Guðjónsson, simi 22719,
Hjördis Bergsdóttir, simi 16872 og
Erna Egilsdóttir simi 18123.
Einnig getur fólk skráð sig eftir
fundinn i dag. — Kr.
Kiwanis-
skemmtun
í Hafnarfirði
— fyrir unga
og aldna
KIWANISklúbburinn
Eldborg i Hafnarfirði
heldur skemmtun i
Bæjarbiói n.k. þriðju-
dagskvöld kl. 19.00 s.d.
Til skemmtunar verða
meðlimir hljómsveitar-
innar, „Capricorn”,
sem, syngja og leika, en
þau hafa að undanförnu
skemmt i veitinga-
húsinu i Glæsibæ við
mjög góðar undirtektir
gesta. Einnig mun hinn
ágæti eftirhermusnill-
ingur, Karl Einarsson,
skemmta.
A undanförnum árum hafa
Kiwanismenn i Hafnarfirði látið
málefni aldraðs fólks sig varða,
og m.a. styrkt starfsemi
Styrktarfélags aldraðra og boðið
öldruðum i feröalög undanfarin
sumur.
Að þessu sinni bjóða Kiwanis-
félagar öldruðu fólki i Hafnarfirði
ókeypis aðgang að þessari
skemmtun, og er það beðið um að
vitja aðgöngumiða i Bókaverzlun
Olivers Steins til hádegis á
þriðjudag n.k.
Aðgöngumiöar verða siðan
seldir i Bæjarbiói frá kl. 18.00 á
þriðjudag, og er verð þeirra kl.
200.00. Skemmtunin mun standa i
hálfa aðra klukkustund. Allur
ágóði af skemmtuninni rennur
óskertur til liknarmála.
-K