Tíminn - 30.10.1973, Síða 3
Þriðjudagur 30. október 1973
TÍMINN
3
Landsmót skóta haldið að Úlf-
Ijótsvatni næsta
NÆSTA sumar munu skátar
halda landsmót að Úlfljóts-
vatni dagana 14.-21. júli. Mót-
stjóri verður Bergur Jónsson.
Sfðasta landsmót skáta var
haldiö að Hreðavatni. Mótið
sóttu um 1500 skátar viðs-
vegar að.
Að þessu sinni varð Úlfljóts-
vatn fyrir valinu en þar hefur
um áratuga skeið verið
sumardvalarheimili fyrir
börn. Sumarkvalarh. er rekið
i anda skátahreyfingarinnar
og stjórnað af skátaforingja. Á
Úlfljótsvatni fer einnig fram
foringjaþjálfun, sem er einn
mikilvægasti þátturinn i upp-
byggingu skátastarfs og vel
þarf að vanda til.Til aðbæta að
stöðuna á Úlfljótsvatni vegna
þessa móts er nauðsynlegt
aðráðasti miklar og dýrar
framkvæmdir. t.d. vatnsveitu,
rotþrær, hreinlætisaðstöðu,
bilastæði og fleirat Leitazt
verður við að miða þær fram-
kvæmdir við framtiðarþörf á
staðnum til útilifsiðkana og
sumarbúðastarfsemi. Vegna
þessara framkvæmda verður
nauðsynlegt að leita til utan-
aðkomandi aðila um fjár-
mögnun. Reykjavikurborg
hefur þegar sýnt málinu vel-
vild.
Rammi mótsins hefur verið
ákveðinn „landnámið". Vilja
skátar með þvi minna á 1100
ára afmæli landnáms Islands
svoaðnúætlaþeirað hefja nýtt
landnám að Úlfljótsvatni eins
og að framan greinir. ETnt
hefur verið til hugmyndasam-
keppni um merki mótsins,
sem á að tengjast ramma
þess. Verðlaun verða veitt 10
þús. kr. Skilafrestur hefur
sumar
verið framlengdur til
mánaðamóta okt.-nóv. og skal
senda hugmyndir merktar
„Landsmót skáta- Móts-
merki” i pósthólf 1247 Rvk.
Einnig mákomaþeim til skrif-
stofu B.t.S. Blönduhlið 35,
Reykjavik.
16.500 FELAGSMENN I
VERKAMANNASAMBANDINU
6. Þing Verkamannasambands
tslands var haldið í Reykjavik
dagana 27. og 28. október 1973.
Þinghaldið fór fram i Lindarbæ,
Lindargötu 9 og hófst það kl. 14 á
laugardag og lauk kl. 18.30 á
sunnudag.
Þingforseti var Hermann Guð-
mundsson, formaður Vmf. Hlifar,
og varaforseti Óskar Garibalda-
son, formaður Vöku, og Jóna
Guöjónsdóttir, formaður Fram-
sóknar. Ritarar voru Karl Steinar
Guðnason, Keflavik og Kolbeinn
Friðbjarnarson, á Siglufirði.
Félagsmálaráðherra, Björn
Jónsson, var við þingsetninguna
og flutti ávarp, en Björn hefur
veriö i stjórn Verkamannasam-
bandsins frá stofnun þess lengst
af sem varaformaður. Voru
Prófkjör í H.í.
— hver verður rektor?
i GÆR FÓRU fram í Háskólanum
prófkjör fyrir kosningu háskóla-
rektors, en endanleg kosnirig i
embættið fer fram 10. nóvember
n.k. Prófkjörið fór fram í þrennu
lagi þannig, að eitt var á vegum
Iláskólaráðs og höfðu kosninga-
rétt i þvi allir fastir kennarar við
skólann, þ.e. þeir sem hafa
skipun, og 11 stúdentar, annað á
vcgum annarra kennara við
háskólann og þaö þriðja á vegum
stúdenta.
— Þetta er ekkert annað en
skoðanakönnun og hefur engin
bein áhrif á sjálfar kosningarnar
önnur en þau, að menn fá tækifæri
til að gera upp hug sinn til
embættisins, eftir að kannað
hefur verið hvar áhuginn liggur.
Eitthvað á þessa leið fórust
Stefáni Sörensen, háskólaritara,
orð er haft var samband við hann
i gær.
Allir prófessorar við Háskólann
voru i kjöri, en þeir eru 64 talsins.
Við endanlegt kjör, sem eins og
áður sagði fer fram 10. nóvember,
hafa 11 stúdentar kosningarétt,
en tillaga um að fjölga þeim i 20
er nú í athugun hjá menntamála-
ráðuneytinu eftir að Háskólaráð
hafði fjallað um hana. Mögu-
leikar eru á þvi, að hún verði
komin i gildi er endanlegt kjör fer
fram. Er þessi fjölgun stúdenta
liður i auknum áhrifum þeirra á
stjórn skólans.
Niðurstöður úr prófkjöri
Háskólaráðs urðu sem hér segir:
Guðlaugur Þorvaldsson hlaut
flestatkvæði eða 22 i 1. sæti, 17 i 2.
sæti og 7 i 3. sæti. Þór Vilhjálms-
son hlaut 19 i 1. sæti, 6 i 2. sæti og 5
i 3. sæti. Jónatan Þórmundsson
hlaut 8 i 1. sæti, 6 i 2. sæti og 6 i 3-
sæti. Atkvæðarétt höfðu 114 en 86
neyttu kosningaréttar sins eða
75%.
Guðlaugur er prófessor i
viðskiptafræðideild en hinir tveir
i lagadeild.
Niðurstöður úr prófkjöri
stúdenta urðu þannig eftir að búið
er að reikna stigin: Guðlaugur
Þorvaldsson, 830 stig, Ólafur R.
Grimsson, 345 stig og Þór Vil-
hjálmsson með 231. stig.
Eftir er að fá tölur frá
Félagi háskólakennara.
Prestskosning og
vígsla 2ja presta
SÍÐASTLIÐINN sunnudag fór
fram prestkosning i Bolungavik.
Gunnar Björnsson hefur verið
settur prestur þar i u.þ.b. eitt ár.
Var hann einn i framboði.
Gunnar útskrifaðist frá guð-
fræðideild Háskólans skömmu
áður en hann fluttist til Bolunga-
víkur. Þetta ár sem hann hefur
verið starfandi fyrir vestan, hefur
hann tekið mikinn þátt i félags-
lifinu þar. Hann hefur kennt I tón-
listarskólanum, barna- og mið-
skólanum og er formaður skóla-
nefndar.
Til þess að prestkosning sé lög-
mæt, þarf helmingur þeirra sem
eru á kjörskrá aö kjósa og fram-
bjóöandi þarf aö fá helming at-
kvæða. Talning atkvæöa fer fram
á næsta fimmtudag.
7. október vigði biskupinn,
Sigurbjörn Einarsson tvo
kandidata til prests. Fór prest-
vigslan fram I Dómkirkjunni.
Voru það kandidatarnir Birgir
Asgeirsson og Jakob Agúst
Hjálmarsson, sem vigðir voru. Er
Birgir settur prestur á Siglufirði
og Jakob settur á Seyðisfirði.
—kr
honum þökkuð störf hans i þágu
sambandsins.
Flutt var skýrsla stjórnar og
kom m .a. fram i henni að i Verka-
mannasambandinu eru nú 40
verkalýösfélög nær um 16500
félagsmenn. Samþykktir voru
reikningar sambandsins fyrir
árið 1972.
Aöalmál þingsins, voru kjara-
málin og fylgja hér með ályktun
þingsins i þeim málum, og sam-
þykkt um landhelgismálið.
t stjórn sambandsins til næstu
2ja ára voru kosin:
Formaður: Eðvarð Sigurösson,
Reykjavik, Varaformaður: Her-
mann Guðmundsson, Hafnarfirði.
Ritari: Karl Steinar Guðnason,
Keflavik. Gjaldkeri: Vilborg
Sigurðardóttir, Vestmanna-
eyjum. Aðrir i stjórn: Björgvin
Sieurðsson, Stokkseyri , Guðriður
Ehasdóttir, Hafnarfirði, Herdis
ólafsdóttir, Akranesi, Jóna Guö-
jónsdóttir, Reykjavik, Pétur
Sigurðsson, tsafirði., Ruth
Björnsdóttir, Akureyri og Sig-
finnur Karlsson, Neskaupstað.
Ályktun um kjaramál
Þegar 6. þing Verkamanna-
sambands tslands er nú haldið að
loknu 2ja ára samningstimabili er
þaö skoðun þingsins að verulega
hafi áunnizt i siðustu kjarasamn-
ingum og aö i lok samningstima-
bilsins standi meira eftir en oft
áður.
Þingið lýsir fylgi við sameigin-
legar kröfur aðildarsamtaka
ASI., sem nú hafa verið lagðar
fram, og lýsir ánægju sinni með
þá samstöðu, sem náöst hefur og
leggur áherslu á gildi þess að sú
samstaða megi haldast.
Þingið telur það rétt vinnu-
brögð að heildarsamtökin semji
um meginkröfurnar, en siðan sé á
vegum landssambanda, svæöa-
sambanda, og / eða einstakra
félaga samiö um sérmál þeirra.
6. þing Verkamannasambands-
ins telur það höfuðmarkmið
næstu kjarasamninga aö jafna
launakjörin og þess vegna veröi
krafan um bætt kjör láglauna-
fólks að hafa algjöran forgang i
þessum kjarasamningum.
Þingið varar viö þeirri þróun að
Fimm manns
í sjúkrahús
JEPPI valt á mótum Hring-
brautar og Hofsvallagötu I gær-
morgun, eftir árekstur við annan
bíl. Báðir bflarnir skemmdust
mikið og fimm manns, sem i þeim
voru hlutu meiri og minni
meiðsli, og voru fluttir á slysa-
deild Borgarspitalans.Enginn
hinna slösuðu er hættulega
meiddur.
Eðvarð Sigurðsson
um árabil hefur launamismunur
farið vaxandi og telur þingið það
fráleita stefnu að sama prósentu-
hækkun gangi yfir öll laun,
Þingið telur það fyrirkomulag
óeðlilegt, sem rikt hefur i sam-
bandi við visitölugreiðslur á laun,
að þeir sem hæst hafi laun fái
hæstar verðlagsbætur.
Þingið heitir á aöildarfélög
Verkamannasambandsins að
knýja fram i þessum samningum
kröfurnar um kauptryggingu
timavinnufólks og sérstaka
hækkun til þess fólks er vinnur við
fiskiðnað.Það er algjör óhæfa, að
þeir sem lægst hafa launin séu
snauöastir að réttindum varðandi
atvinnuöryggi.
Þingið leggur áherslu á kröfuna
um full yfirráð verkalýðs-
félaganna yfir lifeyrissjóðunum.
Jafnframt itrekar þingið kröfur
ráðstefnu ASt, um verulegt átak i
húsnæðismálum og um breyt-
ingar á núverandi skattakerfi og
telur það brýnt hagsmunamál
launafólks að vel takist til i þess-
um efnum.
Stuðningur
verzlunar-
ráðs
STJÓRN Verslunarráðs tslands
gerði á fundi sinum i dag eftir-
farandi ályktun:
Verslunarráð Islands lýsir yfir
fullum stuðningi við samkomu-
lagsgrundvöll þann, sem náðst
hefur á fundum forsætisráðherra
tslands og Bretlands og væntir
þess, að hann leiði til bráða-
birgðalausnar landhelgis-
deilunnar.
Laxveiðileyfi
Seðlabankans
ltalldór E. Sigurðsson, fjár-
málaráðherra, svaraði i Sam-
einuðu Alþingi sl. fimmtudag
fyrirspurn, sem Jónas Arna-
son hafði til hans beint, hvort
einhver jar rikisstofnanir
hefðu leyfi til þess skv. lögum
cða reglugerðum að kaupa
laxveiðileyfi handa starfs-
inönnum sinum eða þeirra
gestu m?
Fjánnálaráðherra svaraði
þvi afdráttarlaust, að engin
lög eða reglur heimiluðu rikis-
stofiiiiiiuin slika rausn.
Birni Pálssyni fannst fyrir-
spurniiiiii, sem fyrirspyrjandi
rökstuddi ineð fregnum af
kaupuin Seðlabankans á veiði-
leyfum i Norðurá fyrir liuudr-
uð þúsunda króna hefði átt að
beina til bankamálaráðherr-
ans en ekki lil fjármálaráð-
lierra.
1 ræðu sinni sagði Björn
Pálsson in.a.:
„Eg er nú ekki vanur að
hlauda mér i umræður um
fyrirspurnir en satt að segja
fannst mér. að liæstv. fyrir-
spyrjandi liefði gelaðsnúið sér
til flokkshróður sins og yfir-
manns og fengið upplýsingar
lijá honuni. úg liélt, að það
væri hankain álaráðlierra,
sem liefði með Seðlahankann
að gera. Og þelta ætti allt að
vera i fina lagi, þegar þeir
liafa sinn fulllrúa fyrir æðsta
mann i bankaniáluni, og þar
sé alls liófs gætt. llins vcgar
virðist mér aðalatriðið vera
gleymt. Auðvitað fiska þcssir
menn. Ilvað gera þeir við lax-
inn? Ætli hankinn fái hann
ekki? Eg geri ráð fyrir þvi, að
þegar menn leigi ár, þá geri
þcir það ekki hara sér til gam-
ans, heldur vcgna þess að þeir
veiða lax og þeir selja laxinn.
Það er hez.t að athugaþclta i
rcikningunu m.
AAikill fengur
er gróði
Seðlabank ans
Eg hcf spurt ýmsa lax-
veiðimenn aðhvers vegna þeir
væru að þessu. Nú.þeir segjast
veiða nokkurn veginn fyrir
þvi, sem þeir borga i leigu.
Mér þykir óliklegt, að
Jóhannes Nordal sé ekki það
mikill fjármálamaður og mik-
ill maður, eða þá að hann liafi
einhverja góða laxveiðimcnn i
hankanum til að fara með
gestum sinum að þetta geti
ckki verið gróði lyrir hank-
ann. Þelta ælti Jónas Árnason
að geta fengið allt upplýst lijá
yfirmanni og herra, Lúðvik
Jósefssyni.” — TK
Allgóðar
sölur
erlendis
NOKKÚI) góðar sölur voru er-
lendis i gær, cn þá seldu fjögur
skip i Cuxhaven og Bremerhaven.
Meginuppistaðan i afla þeirra var
ufsi cn samkvæmt upplýsingum
frá L.i.Ú. telst það allgóö sala, ef
verðið fcr yfir kr. 45 pr. kilóiö.
Tvö skip seldu i Cuxhaven,
Asver 47,9 lestir, en tæp 5 tonn
voru ónýt, fyrir 59,5 þús.mörk eða
rúmar 2 millj., meöalverö 42.80,
og Jón Gunnlaugsson 38.9 lestir
(3.2 ónýtar) fyrir 53.8 þús. mörk
eða 1.8 millj., meöalverð 47.60.
I Bremerhaven seldu Narfi, 112
lestir fyrir 147 þús. mörk eða
rúmar 5 milljónir, meðalverð kr.
45.22 og Viðir AK 53 lestir fyrir 75
þúS‘ mörk eða 2.5 milljónir,
meðalverðið 48.76 pr kg.
—Hs—