Tíminn - 30.10.1973, Side 6

Tíminn - 30.10.1973, Side 6
6 TÍMINN Þriðjudagur :iO. október 1973 Auglýsing um skoðun bifreiða í lögsagnar- umdæmi Reykjavíkur Fimmtudagur Föstudagur Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur Mánudagur Þriöjudagur Miövikudagur Fimmtudagur Föstudagur Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur 1. nóv. R-28601 — R-28800 2. nóv. R-28801 — R-29000 5. nóv. It-29001 — R-29200 6. nóv. R-29201 — R-29400 7. nóv. R-29401 — R-29600 8. nóv. R-29601 — R-29800 9. nóv. R-29801 — R-30000 12. nóv. R-30001 — R-30200 13. nóv. R-30201 — R-30400 14. nóv. R-30401 — R-30600 15. nóv. R-30601 — R-30800 16. nóv. R-30801 — R-31000 19. nóv. R-31001 — R-31200 20. nóv. R-31201 — R-31400 21. nóv. R-31401 — R-31600 22. nóv. R-31601 — R-31800 23. nóv. R-31801 — R-32000 26. nóv. R-32001 — R-32200 27. nóv. R-32201 — R-32400 28. nóv. R-32401 — R-32600 29. nóv. R-32601 — R-32800 Bifreiðar sem bera hærra skráningar- númer en R-32800, og ekki hafa mætt til aðalskoðunar, skulu einnig koma þennan dag. Bifreiðaeigendum ber að koma með bif- reiðar sinar til bifreiðaeftirlitsins, Borgartúni 7, og verður skoðun fram- kvæmd þar alla virka daga kl. 8.45 til 16.30. Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardögum Festivagnar, tengivagnar og farþega- byrgi skulu fylgja bifreiðunum til skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn bif- reiðanna leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber skilriki fyrir þvi, að bifreiða- skattur og vátrygging fyrir hverja bifreið sé i gildi. Þeir bifreiðaeigendur, sem hafa viðtæki i bifreiðum sinum, skulu sýna kvittun fyrir greiðslu afnotagjalda rikisútvarpsins fyrir árið 1973. Athygli skal vakin á þvi, að skráingar- númer skulu vera læsileg. Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á auglýstum tima, verður hann látinn sæta sektum samkvæmt umferðar- lögum og bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til hennar næst. Til athugunar fyrir bifreiðaeigendur: Við fullnaðarskoðun bifreiða skal sýna ljósastillingarvottorð. Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli. Lögreglustjórinn i Reykjavik, 26. október 1973 Sigurjón Sigurðsson. Innritun í leikskólann Fellaborg við Völvufell Tekið verður á móti innritunarbeiðnum i sima 1-61-55 frá og með mánudeginum 29. október 1973 milli kl. 1 og 4 alla virka daga, nema laugardaga. Barnavinafélagið Sumargjöf. Söngfólk Kór Langholtskirkju óskar eftir ungu fólki. Ath. Nýbreytni i kirkjusöng. Raddþjálfun. Upplýsingar i simum 8-45-13 og 1-97-25. RÓBERT LÍKLEGA AFTUR TIL ÞÝZKALANDS í VETUR Jón Arason tekur væntanlega við af Haraldi í Klukkustrengjum Á meðfylgjandi mynd sjáum við Róbert Arnfinnsson sem menntamanninn Harald i Klukkustrengjum eftir Jökul Jakobsson, sem Þjóðleikhúsið frumsýnir næsta föstudag. Með honum á myndinni er Sigrún Eiriksdóttir sem Rannveig. Þetta er annað hlutverk Róberts á sviði Þjóðleikhússins, siðan hann kom frá Þýzkalandi i ágúst s.l. Fyrsta hlutverkið var i Hafið bláa sem enn er i gangi. Auk þess hef- ur Róbert eftir heimkomuna tekið þátt i sjónvarpsleikritinu I múrnum eftir Gunnar M. Magnúss þar sem hann fer með aðalhlutverkið. Upptöku er lokið, og verður leikritiö væntan- lega sýnt á næstunni. Róbert fór til Nurnberg i V- Þýzkalandi i mar-z á liðnum vetri og lék þar til júniloka Tevje i Fiðlaranum á þakinu, sem Karl Vibach leikstýrði, Vibach er annars, eins og kunnugt er, leik- hússtjóri i Liibeck. í Niirnberg var leikurinn sýndur istóru húsi, Opernhaus, og var aðsókn mjög góð allan timann sem og viðtökur áhorfenda og blaðadómar. Við spurðum Róbert nýlega hvort hann hefði fengið einhver leiktilboð þarna úti. Tjáði Róbert okkur, að hann hefði fengið tilboð frá leikhúsinu i Wuppertal (borg i grennd við Köln) um að leika þar Zorba næsta haust 1974, en af- þakkað það boð. — Það stendur til, að ég fari til Lubeck i marz n.k. til að leika i Fiðlaranum hjá Karli Vibach. Allt bendir til, aö af þessu verði, og mér finnstég einhvern veginn ekki geta, samvizku minnar vegna, tekið tveim tilboðum á sama árinu. Róbert hefur nú leikið Tevje i meiraen hundrað sýningum, og fari hann til Llibeck, sem allt bendir til.eiga þær vafalaust eftir Róbert Arnfinnsson og Sigrún Eirlksdóttir I Klukkustrengjum. að nálgast 200. Þreyttur á hlut- verkinu? — Nei, nei, þetta er þannig hlutverk.að maður verður ekki leiður á þvi. Við spurðum Róbert Arnfinns- son einnig að þvi, hvernig hann hefði kunnað við sig úti i Þýzka- landi. — Alveg prýðilega. Hvort ég vildi setjast þar að? 6g veit það ekki. Það kæmi til greina, og vissulega situr það ein- hvern veginn i manni, kannski vegna þess, að maður hefur sam- lagazt fólkinu og hefur e.t.v. ein- hverjar taugar til landsins (Róbert er þýzkur i aðra ætt) Burtséð frá öðru gæti ég vel hugsað mér það. En maður er nú kominn af léttasta skeiði.... Eins og fyrr segir, leikur Róbert á næstunni i Klukku- strengjum. Þá hefur verið rætt um, að hann leiki næst Jón Ara- son hjá Þjóðleikhúsinu. En lik- lega sjáum við eftir þessum ágæta leikara til Þýzkalands er iiður á vetur. -Step. Nýbreytni í starfi kirkju kórs Langholtssafnaðar HINN I. nóvcmber næstkomandi, mun kirkjukór Langholtssafnað- ar hefja vetrarstarf sitt. Kórinn hefur að undanförnu átt við að etja vaxandi erfiðleika vegna fólksfæðar. 111a hefur gengið að fá liðsauka, og hefur skyldan að mæta hvern helgan dag valdið þar mestu um. Kórinn hefur þvi, i samráði við sóknarpresta og sóknarnefnd, ákveðið aö breyta starfsháttum sinum. 1 stað alls kórsins munu nú 5-6 kórfélagar mæta i messu hverju sinni. Munu þeir leiða almennan safnaðarsöng. Allur söngur verð- ur einraddaður, og gert er ráð fyrir þátttöku alls safnaðarins. Til að auðvelda það, verða sálma- lögin lækkuð, og tóni og textum dreift með nótum til kirkjugesta. Kór kirkjunnar mun syngja við guðsþjónustu einu sinni i mánuði og við hátiðaguðsþjónustur. Verða þá flutt einhver valin kirkjutónverk, t.d. mótettur. Kórinn mun æfa tvisvar i viku, Harður árekstur gbk—Reykjavfk — Harður árekstur varð á Reykjanes- brautinni á föstudagskvöld. Einn farþegi var i hvorum bil, auk bil- stjóra. Slasaðist allt fólkiðog var flutt i sjúkrahús, meiðsli þess reyndust ekki alvarlegs eðlis, og fékk það að fara af sjúkrahúsinu fljótlega aftur. Annar billinn má heita gjör- ónýtur. Mikil hálka var á Reykjanesbrautinni, þegar þetta gerðist . á miðvikudags- og föstudags- kvöldum, og taka þá til æfinga ýmis kirkjutónverk. Kórinn mun, auk þess að syngja við guðsþjón- ustu einu sinni i mánuði, koma fram á öðrum samkomum safnaðarins og halda sjálfstæða tónleika. Kórinn væntir þess, að ný- breytni þessi muni valda þvi, að auðveldara verðiað fá fólk til við- bótar i kórinn. Þegar hefur bætzt nokkur liðsauki, en enn er hægt að bæta við röddum, sérstaklega i tenór og bassa. Sjómannafélagið felst ó samkomulagsgrundvöllurinn A STJÓRNARFUNDI i Sjó- mannafélagi Reykjavikur þann 23. október sl. var eftir- farandi samþykkt gerð: „Stjórn Sjómannafélags Reykjavikur hefur bæði I yfirstandandi og fyrri deilu við Breta haft þá megin- skoðun, að um leið og unnið væri að frekari friðun miða fiskistofna og stærra fisk- veiðisvæði islenzkra skipa, ætti i engu að slá af kröfum um,að allt sé gert til að forða slysum og fjörtóni á þeim, sem á miðunum starfa. Er þetta beint framhald af öðru helzta stefnumarki S.R. að vinna að auknu öryggi is- lenzkra sæfara. Við teljum, að nú eigi að leita samkomulags á þeim grundvelli, sem verið hefur kynntur af forsætisráðherr- um deilurikjanna. Stjórn S.R. telur þó, að áður en slikt samkomulag verði lagt fyrir Alþingi til samþykktar, þurfi i það að koma breytingar, sem þó breyta þvi ekki efnislega og ættu þvi ekki að hindra að samningar takist”. Tímínn er peningar j | Auglýsicf : | ITÍmanum:

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.