Tíminn - 30.10.1973, Síða 10
10
TÍMINN
Þriöjudagur 30. október 1973
Nýmæli hjá
Gagnfræðaskóla Austurbæjar:
NEMENDUM BER
AÐ HAFA SKÓLA-
FERILSBÆKUR
UM NÆSTU HELGI opna sex ungir menn Ijósmyndasýningu aö Kjarvaisstööum, þar sem sýndar veröa
130 svart/hvitar myndir af ýmsu tagi, irvi. sex myndir frá Færeyjum, sem Pjetur Maack hefur tekiö.
Meö þeim sexmenningum sýnir einnig Gunnar Hannesson, sá kunni Ijósmyndari, þúsund
,,slights”-myndir. Myndin er af sýningaraöiiunum, taliö frá vinstri: Jón ólafsson, Pjetur Maack, Kari
Jeppesen, Kjartan Kristjánsson, Skúli Magnússon, Gunnar Guömundsson og Gunnar Hannesson
(stendur aftan viö)
(Tfmamynd: Gunnar)
Verkið er skáldsaga
en ekki ævisaga
— segir Gunnar Gunnarsson um
nýútkomna þýðingu sina á Fjallkirkjunni jáéQP ’WBk
ALMENNA bókafélagiö hefur
hafiö nýja og veglega útgáfu á
verkum Gunnars Gunnarsonar.
Þessa daga kemur Fjallkirkjan
út, en áöur hafa komið út i þess-
ari nýju útgáfu Svartfugl, Viki-
vaki, Heiöarharmur og Saga
Borgarættarinnar.
Siðustu ár hafa flest verk Gunn-
ars Gunnarssonar verið ófáanleg
i islenzkri útgáfu, en fyrir nokkru
hóf Almenna Bókafélagið útgáfu
á skáldverkum höfundarins með
hans eigin handbragði og i endan
legri gerö. Enn fleiri Islendingum
gefst þvi kostur á að kynnast
verkum þessa afburða höfundar.
Af þessari nýju útgáfu eru
þegar komin út fimm verk:
Svartfugl, Vikivaki, Heiða-
harmur, Saga Borgarættarinnar
og núna siðast Fjallkirkjan, i
þremur bindum, en hún var
upphaflega i fimm bindum. Koma
svo næstu verk út eftir þvi sem
ástæður leyfa.
Það var áriö 1906, sem Gunnar
gaf út sin fyrstu verk, Vorljóð og
Móðurminningu. Ungur aö árum
fluttist Gunnar til Danmerkur, og
eru flestar bækur hans ritaöar á
dönsku. íslendingar hafa þvi
kynnzt skáldverkum hans við
íestur þeirra á dönsku eða i
islenzkum þýðingum. Arið 1939
fluttist Gunnar svo aftur heim tii
Islands.
Undanfarin ár hefur hann ein-
göngu unnið viö að þýða verk sin
úr dönsku og vinnur nú að þýð-
ingu verksins Sælir eru einfaldir.
Nokkur verka hans hafa aldrei
komið út á islenzku áður.
Fjallkirkjan hefur löngum
veriö Islendingum einna hjart-
fólgnust af verkum Gunnars
Gunnarssonar, og oft nefnd „eitt
fegursta listaverk eftir islenzkan
höfund”.
Almenna bókafélagiö hélt
blaöamannafund til að kynna
þessa nýju útgáfu og var höfund-
urinn, Gunnar Gunnarsson
staddur á fundinum til að svara
spurningum fréttamanna. Hann
var m.a. spurður að þvi,
hvort þessi þýðing Fjallkirkjunn
ar úr dönsku væri i einhverju
frábrugðin frumútgáfunni. Sagði
Gunnar, að þessi útgáfa væri aö
nokkru, stytt, og þá einkum tvö
siðustu bindin.
„Með þessari styttingu vil ég
gera bókina betri. Margt var
óþarft og fer betur i styttingu.
Eins er verkiö erfitt i þýðingu, þvi
danskan og islenzkan eru um
margt ólik mál. Þarf þvi oft að
segja annað á islenzku til aö fá
sömu áhrif”.
Það hefur oft verið sagt um
Fjallkirkjuna að hún sé að nokkru
leyti ævisaga höfundarins. Lýst
er ferli ungs skálds allt frá
frumbernsku þar til það fer út i
heim og vinnur sigra meðal fram-
andi þjóðar.
Um þetta sagði Gunnar:
„Markmið bókarinnar er ekki
sjálfsævisaga, heldur það aö sýna
lifið á Islandi eins og það var,
þegar sagan gerðist. — Verkið er
þvi skáldsaga en ekki ævisaga”.
ÞAÐ NVMÆLI var tekið upp i
gær hjá Gagnfræðaskóla Aust-
bæjar, að tekin var i notkun svo-
nefnd skólaferlisbók, og er þetta
fyrsta tilraun af þessu tagi, sem
gerð er hérlendis, svo blaðinu sé
kunnugt. Ætlazt er til að nem-
endur hafi bók þessa ávallt meö
sér i skóla, en I henni eru skóla-
regur, sem fara ber eftir, og ef út
af er brugðið, skrifa kennarar at-
hugasemdir i skólaferilsbókina.
Nemandi á að geyma bókina
allan sinn skólatima i Gagn-
fræðaskóla Austurbæjar, og er
þannig hægt að fylgjast með
hegðunarferli hans frá þvi að
hann fyrst kemur i skólann, þar
til hann lýkur endanlegu prófi
þaðan.
Gunnar Finnbogason skóla-
stjóri skýrði frá útkomu og til-
gangi þessarar bókar i gær, og
voru nemendum siðan afhentar
bækurnar. Sagði Gunnar, að ekki
væri nóg að setja reglur. Einnig
þyrfti að kynna þeim, sem fara
eiga eftir þeim.reglurnar, og yrðu
þær að vera skýrar og óyggjandi.
Reglurnar i bókinni eru i 16 lið-
um, stuttar og gagnorðar.
Til þessa hafa nemendur einatt
borið þvi við, þegar, þegar þeim
hefur verið bent á að þeir hafi
brotið af sér, að þeir hafi ekki
vitað að þetta eða hitt væri
bannað. Nú ætti þess misskilnings
ekki að geta gætt lengur i þessum
skóla, þar sem hver nemandi á að
hafa skólareglurnar meðferðis
hverju sinni er hann kemur i
skóla.
Svo virðist, sem reglur þessar
séu ekki svo strangar, að hver og
einn eigi ekki að geta umgengizt
skóla sinn, kennara og aðra nem-
endur með eðlilegum og frjáls-
legum hætti, þótt eftir þeim sé
farið. Fjalla þær einkum um
stundvisi, hirðusemi og yfirleitt
almennar umgengni-og kurteisis-
venjur, sem sjálfsagðar eru i
samskiptum manna.
Skólastjóri sagði, að ekki væri
réttlætanlegt að ávita nemendur
fyrir brot á reglum, sem þeim eru
ekki kunnar. Það er þess vegna
skylda skólans aö láta nemendum
i té reglur til að fara eftir, og það
er skylda nemandans að kynna
sér þær og tileinka.
Hvað viðkemur þeim síðum
bókarinnar, sem ætlaðareru fyrir
athugasemdir, er ekki ætlunin að
sýna eingöngu husanlegar mis-
fellur viðkomandi nemenda,
heldur vill skólinn miklu fremur
AKVÖRÐUN veröur tekin um þaö
á félagsfundi læknanema i kvöld,
hvort fariö veröur i verkfall til aö
ýta undir kröfur um bætt og aukin
húsakynni deildarinnar. Ef til
umá manntalsþingum hreppanna
og víöar. Þá þegar gerði Sigurður
sér ljóst, aö Rangæingar og Vest-
ur-Skaftfellingar mundu vart
eiga samleið með Arnesingum
um stofnun héraðsskóla sem og
kom á daginn. Eldurinn, sem
Sigurður átti þátt i að tendra 1920,
slokknaöi aldrei og til hans má
rekja héraðsskólann i Skógum,
sem tók til starfa 1949. Hug sinn
til skólans sýnir Sigurður Guð-
jónsson á ótviræðan hátt með
hinni dýrmætu bókagjöf jafn-
framt þvi sem hann minnist
Eyjafjallasveitar.
geta sýnt ræktarsemi nemenda
við skólann i námi og allri fram-
göngu, og er þvi tekinn upp sá
háttur, að kennarar gefi umsögn
um hegðun, iðni og reglusemi
hvers nemanda. Verður bókin
væntanlega sönn mynd af skóla-
ferli nemendans, og getur um leið
orðið honum meðmælabréf hvar
sem er á lifsbrautinni
Skiðaferðir i Bláfjöll.
t Gagnfræðaskóla Austurbæjar
er fimm daga kennsluvika, og er
þvi ekki kennt á laugardögum . I
vetur verður sá háttur hafður á,
að þegar skiðafæri er i Bláfjöllum
og veður leyfir, verður farið i
skiðaferðir frá skólanum kl. 10 á
hverjum laugardagsmorgni.
Eiga nemendur að geta gengið að
þessum ferðum visum, ávallt
þegar aðstæður leyfa. Verða
stórir bilar tiltækir til að flytja
nemendurna, og með i för verður
alltaf kennari, sem vanur er
skiðamennsku og ferðalögum.
Rein og Eirsíða i stað X-
5 eða Y-3
Tæðlega 500 nemendur á
aldrinum 15 til 17 ára stunda
nú nám i Gagnfræðaskóla Austur
bæjar, i 19 bekkjardeildum. I
þriðja bekk eru bekkjardeildirnar
12, i fjórða bekk 4, og þrir bekkir
eru i menntadeild, en nemendur
þar fylgja Menntaskólanum við
Tjörnina i námsefni og prófum.
Aður voru þessa deildir sundur-
greindar með bókstaf og tölu,
sem þótti ópersónulegt og jafnvel
erfitt að muna. 1 haust var þessu
kerfi breytt, og heita nú
deildirnar góðum og gildum is-
lenskum nöfnum, og eru þau valin
þannig, að um kerfi er að ræða.
Kemur málfræðin þar til skjal-
anna, og eru heiti bekkja i sömu
deildum ávallt i sama kyni og
tölu. Þannig nefnast nú bóknáms-
deildirnar t.d. Hagi, Oddi, As og
Ós i þriðja bekk, en þegar komið
er i fjórða bekk, nefnast þær
Hamar, Melar, o.s.fr. Verzlunar-
deildir i þriðja bekk nefnast t.d.
Borg og Rein, en i fjórða bekk
Fitjar og Tjarnir. Landsprofs-
deildir nefnast hvorukyns orðum I
eintölu og heita Fjall, Skarð, Nes,
Sel, Bjarg og Holt, en mennta-
deildir eru kenndar við bókband á
handritum og nýyrðum bætt við ,
og nefnast þær Eirsiða, Járnsiða
og Stálsiða. OÓ
verkfalls kemur mun þaö liklega
standa f einn dag.
Eins og kunnugt er, hefur kom-
iö til tals, að takmarka fjölda
læknanema i deildinni, vegna
húsnæðisskorts, og er það ástæö-
an fyrir verkfallinu, ef af verður.
Læknannemum finnst það hins
vegar ekki réttlátt, að það bitni á
stúdentum, og vilja þvi styðja
deildina i kröfum hennar um auk-
iö húsnæöi.
Ef farið verður út i þaö, a6 tak-
marka fjölda fyrsta ársstúdenta i
vor, veröa þaö ekki lágmarksein-
kunnir sem ráða, heldur veröur
aðeins nokkrum þeim hæstu
hleypt upp, en hinir verða aö
reyna aftur, og skiptir þá ekki
máli, hvort þeir hafa náð tilskil-
inni lágmarkseinkunn eða ekki.
Þessu vilja læknanemar ekki una
og mótmæla þvi, ef til vill meö.
verkfalli, en eins og áður var sagt
verður tekin ákvöröun um það I
kvöld. — hs —
Skógaskóla gefið bókasafn
SIGURÐUR Guöjónsson, fyrr-
verandi kennari viö Verzlunar-
skóla tslands og viöar, hefur fyrir
nokkru gert þá ráöstöfun á bóka-
safni sinu, aö gefa þaö héraös-
skólanum i Skógum eftir sinn
dag, ásamt nokkrum einkamun-
um, þar á meöal forkunnargóöri
mynd af Siguröi, er Itikaröur
Jónsson geröi. Er nú nýiega lokiö
skráningu á bókasafninu. Er hér
um aö ræöa mjög vandaö safn
bóka á islenzku og öörum málum,
einkum Noröuriandamálum.
Verður þaö skólanum mikill feng-
ur aö fá þetta safn til eignar.
Með gjöf þessari vill Sigurður
minnast uppvaxtarára sinna i
Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum og
ættartengsla við héraðið. Þess
má og geta, að Sigurður er einn af
brautryðjendum i skólamálum
Sunnlendinga á þessari öld. Má
að nokkru rekja áhuga hans og
framlag á þessu sviði til margra
ára dvalar hans i hinum viðfræga
lýöháskóla i Askov og kennslu-
starfa erlendis. Eftir að Sigurður
fluttist heim 1920, ferðaðist hann
mikið um Suðurland og flutti
fyrirlestiaumskólamál og stofnun
lýðháskóla. Talaöi hann þá eink-
FARA LÆKNANEM-
AR f VERKFALL
vegna fjöldatakmarkana?