Tíminn - 30.10.1973, Side 21
Þriðjudagur 30. október 1973
TÍMINN
21
KR-INGAR ATTU EKKI
í ERFIÐLEIKUM MEÐ
VÆNGBROTIÐ ÍR-LIÐ
Reykjavíkurmeistaratitillinn
í körfuknattleik áfram í Vesturbænum
KR-ingar tryggðu sér Reykja-
vikurmeistaratitilinn I körfu-
knattleik á sunnudaginn, þegar
þeir sigruðu ÍR-inga léttilega i
Laugardalshöllinni 73:61. Leikur-
inn var nokkuð jafn i fyrri hálfleik
og byrjun siðari hálfleiks. Staðan
var 35:28 fyrir KR i hálfleik, en i
byrjun siðari hálfleiks ná ÍR-ing-
ar sinum bezta kafia i Ieiknum og
þeim tókst að saxa á forskot
KR-inga og komast yfir 40:39, en
þá var eins og ÍR-liðið félli sam-
an, leikmenn liðsins fengu engan
frið hjá sterkri vörn KR og hittnin
var ekki upp á það bezta. Það var
eins og knötturinn vildi ekki ofan I
körfuna hjá KR-liðinu.
Kolbeinn Pálsson, hinn snöggi
fyrirliði KR-liðsins tók góðan
sprett í siðari hálfleiknum og
samvinna hans og Kristins
Stefánssonar var oft frábær, en
Kristinn húkkaði mörg fráköstin
og sendi knöttinn i körfu IR-liðs-
ins. KR-liðið er tvimælalaust
bezta körfuknattleikslið okkar i
dag, liöið er skipað leikreyndum
leikmönnum og það er góö breidd
hjá Vesturbæjarliðinu. KR-liðið
tapaði ekki leik i Reykjavikur-
mótinu og hefur þvi ekki tapað
leik á keppnistimabilinu.
IR-liðið leikur ekki eins körfu-
knattleik og það hefur leikið
undanfarin ár, varnarleikur liðs-
ins er i molum og sóknarleikurinn
ekki nógu góður. Það er
breytingatimabil hjá IR, liðið
hefur misst fjóra sterka leik-
menn, leikmenn sem voru fastir i
liðinu i fyrra, þá Anton Bjarna-
son, Agnar Friðriksson, Einar
Sigfússon og Birgi Jakobsson.
JÓN
BEZTI
VARNAR-
AAAÐ-
URINN
JÓN Sigurðsson úr Armanni var
kosinn bezti varnarmaður
Reykjavikurmótsins i körfu-
knattleik. Það var stjórn Körfu-
knattleiksráðs Reykjavikur, sem
valdi Jón og vann hann kosning-
una meðmiklum yfirburðum. Jón
hefur sýnt mjög góða varnarleiki
i mótinu og innsigiaði hann
sæmdarheitið „Bezti varnar-
maður Reykjavikurmótsins”,
þegar hann lék stórgóðan leik
gegn Val í Siðasta ieik mótsins.
Kolbeinn skorar
....Kolbeinn Pálsson átti
stórgóðan leik i síðari hálf-
leik gegn ÍR. Hér á myndinni
sést hann senda knöttinn i
körfuna hjá ÍR.
(Timamynd Róbert)
Þessir leikmenn hafa ekki leikið i
Reykjavikurmótinu, en miklar
likur eru á, að þeir Anton og Agn-
ar leiki með 1R i 1. deildinni i vet-
ur.
Það sást greinilega á KR-liðinu,
að það er i mjög góðri þrekæf-
ingu, liðið lék fastan varnarleik
og leikmenn liðsins brutu hina
ungu ÍR-inga niður. Þeir fengu
aldrei frið fyrir framan KR-körf-
una. Þá leyfðu dómarar leiksins
KR-ingum að brjóta of mikið á
IR-ingunum, en dómgæzlan var
ekki mjög góð i leiknum. T.d. fékk
Guttormur ólafsson að yfirgefa
völlinn með fimm villur strax i
byrjun siðari hálfleiks, en hann
fékk sumar villurnar á meinlaus
brot.
JÓN
SÝNDI
STÓR-
GÓÐAN
LEIK
GEGN
VAL
Hann vor
potturinn og
pannan í góðum
sigri Ármanns
79:75
Leikur ^ Armanns og Vals i
Reykjavikurmótinu i körfu-
knattleik á sunnudaginn, var
einvígi á milli tveggja beztu
körfuknattieiksmanna lands-
ins, þeirra Þóris Magnussonar
úr Val og Jóns Sigurðssonar úr
Armanni. Jón var svo sannar-
lega i essinu sinu gegn Val,
liann skoraði hverja körfuna á
fætur annarri með mjög
skemmtilegum skotum og
uppstökkum og það fer ekki á
milli mála að hann er hreinn
snillingur með knöttinn. Þá
var hann potturinn og pannan
isterkrivörn Ármanns maður
á mann, fljótur að átta sig
þegar Ármenningar náðu
knettinum og skoraði hverja
körfuna á fætur annarri úr
hraðupphlaupum. Armanns-
liðið vann sigur yfir Val 79:75
og tryggði sér þar með þriðja
sætið í Reykjavikurmótinu.
Liðið verður örugglega sterkt I
vetur, i liðinu leika margir
góðir einstakiingar, sem eiga.
að geta skapað sterka heild.
„ÍR-INGARNIR
VERÐA ERFIÐ-
ASTIR í VETUR"
— segir Einar Bollason, þjólfari
Reykjavíkurmeistara KR í körfuknattleik
„ÞAÐ ERU tvimæla-
laust ÍR-ingarnir sem
við verðum hræddast-
ir við i vetur”...sagði
Einar Bollason, þjálf-
ari Reykja vikur-
meistara KR i körfu-
knattleik. Ungu
strákarnir hjá ÍR eru
að koma til og það
verður mikill styrkur
fyrir ÍR-liðið að Agn-
ar Friðriksson og An-
ton Bjarnason, munu
leika með liðinu i vet-
ur. Við KR-ingarnir
erum svo ihaldssam-
ir, að okkur finnst
enginn úrslitaleikur ef
það eru ekki íR-ingar
sem við leikum við i
úrslitum.
Það er hægt að taka undir
orð Einars, að IR-liðið styrkist
mikið við komu Agnars og An-
tons, sem hafa ekki leikið meö
lR-liðinu i Reykjavlkurmót-
inu. Þá hafa þeir Birgir
Jakobsson, sem er hættur og
Einar Sigfússon, sem leikur
með Skallagrimi i vetur, ekki
leikið með IR-liðinu. Þess
vegna hefur verið mikil blóð-
taka hjá IR, þvi að þessir fjór-
ir leikmenn voru allir fastir
leikmenn með lR-liðinu
siðastliðið keppnistimabil,
þegar IR-ingar tryggðu sér Is-
landsmeistaratitilinn. SOS
Bjarni
bezta
víta-
skyttan
BJARNI Gunnar, leikmaður
með stúdentum vann bikar-
inn fyrir beztu vitaluttnina á
Reykjavikurmótinu i körfu-
knattieik. Bjarni Gunnar
hitti 21 sinnum i 28 tilraun-
um, sem er 75% hittni.