Tíminn - 02.11.1973, Page 8
8
TÍMINN
Föstudagur 2. nóvember 1973
Umsjón og ábyrgö: Samband ungra framsóknarmanna.
Ritstjórar og ábyrgðarmenn fyrir hönd stjórnar SUF: Ólafur Ragnar
Grimsson, Pétur Einarsson.
Flokksmdlin og
flokksmálgagnið
Það hefur lengi verið talin ein meginskylda kjör-
innar forystu i stjórnmálaflokki, sem stefnir að
verulegu fjöldafylgi og afgerandi áhrifum i þjóð-
félaginu, að leitast við að jafna þann ágreining, sem
risið getur um ýmis mál innan flokksins. Þessari
skyldu sinni getur hin kjörna forysta þvi aðeins
gegnt, að forystumennirnir séu reiðubúnir að leggja
á sig mikið starf, jafnframt þvi sem þeir gæti þess i
hvivetna að draga ekki taum einnar fylkingar á
kostnað annarrar.
I hinni kjörnu forystusveit Framsóknarflokksins
eru vissulega margir menn, sem gera sér fulla
grein fyrir þessari meginforsendu einingar i stjórn-
málaflokki. En þar eru einnig aðrir, sem ekki sjá
þennan sannieika, og þeir hafa augsýnilega ráðið
ferðinni að undanförnu.
Þetta hefur berlegast birzt flokksmönnum, og
öðrum landsmönnum, á siðum aðalmálgagns
flokksins, Timans. A það jafnt við um meðhöndlun
blaðsins á þeim sérstöku atburðum, sem urðu i
Félagi ungra framsóknarmanna i Reykjavik fyrir
skömmu, sem i ýmsum öðrum málum innan
Framsóknarflokksins.
Tvö dæmi skulu rakin hér:
1. Á aðalfundi FUF i Reykjavik fyrir rúmri viku
gerðist það, að fundurinn klofnaði i tvær fylkingar,
og voru kjörnar tvær stjórnir i félaginu. önnur
stjórnin hefur siðan kært fráfarandi stjórn félagsins
fyrir margvisleg og mjög alvarleg brot á lögum
félagsins við undirbúning aðalfundarins, og á
fundinum sjálfum. Afstaða hefur ekki enn verið
tekin til þessarar kæru. Samt sem áður hafa rit-
stjórar Timans, undir forystu Tómasar Karls-
sonar, tekið hreina afstöðu á siðum flokksmál-
gagnsins, og beitt öllum ráðum til þess að fegra
málstað hinna ákærðu, en hindra ákæruaðilana i að
skýra sin sjónarmið. Þetta eykur mjög á vandann, i
stað þess að stuðla að lausn hans, eins og málgagn,
sem i raun væri málgagn allra flokksmanna, myndi
þó leitast við að gera.
2. Fyrir skömmu sendi framkvæmdanefnd Möðru-
vallahreyfingarinnar stefnuávarp til 250 trúnaðar-
manna innan Framsóknarflokksins. Þar var skýrt
frá sjónarmiðum hreyfingarinar i málefnum
Framsóknarflokksins og stefna mörkuð i helztu
málefnum þjóðarinnar. Ritstjórar Timans, undir
forystu Tómasar Karlssonar,urðu fyrstir til þess að
ræða þetta stefnuávarp opninberlega, og þá á þann
hátt að birta úr ávarpinu stuttan kafla, sem fjallar
um þann sérstæða valdahóp, sem vaxið hefur til
valda og áhrifa innan flokksins i Reykjavik undan-
farin ár og ráðast siðan á nafngreinda forystumenn
hreyfingarinnar viða um land. Þess hefur verið
óskað, að stefnuávarpið yrði birt i heild i blaðinu,
svo allir flokksmenn gætu kynnt sér það og gert upp
hug sinn sjálfir i málefnum flokksins. Það hefur
ekki enn verið gert. Ekki hefur heldur verið birt
stutt fréttatilkynning frá hreyfingunni.
Þessi tvö dæmi sýna ljóslega, hvernig aðalmál-
gagni flokksins hefur verið beitt gegn ákveðnum
aðilum innan hans. Það er að sjálfsögðu til þess
eins fallið, að sundra i stað þess að sameina, enda
ekki hægt að sjá annað, en það sé tilgangurinn.
Það ber að harma, og er reyndar ótrúlegt, að slikt
framferði verði látið óátalið af kjörnum forystu-
mönnum flokksins.
—EJ.
AÐALFUNDUR FUF
í ÁRNESSÝSLU
Guðni Ágústsson endurkjörinn formaður félagsins
AÐALFUNDUR
Félags ungra fram-
sóknarmanna i Árnes-
sýslu var haldinn s.l.
miðvikudagskvöld að
Selfossi. Auk aðal-
fundarstarfa fóru fram
á fundinum umræður
um málefni SUF og
Framsóknarflokksins.
Guðni Agústsson, formaður
félagsins, setti fundinn og fiutti
skýrslu stjórnar íyrir siðasta
starfstímabil, en Guðmundur
Stefánsson gjaldkeri lagöi fram
og skýrði reikninga félagsins,
sem voru siðan samþykktir einu
hijóði.
Siðan var gengið til kosninga,
og var Guðni Ágústsson endur-
kjörinn formaður félagsins, en
aðrir i stjórn voru kjörnir Guð-
mundur Stefánsson,
Guðmundur Sigurðsson,
Guðmundur Wiium og Egill örn
Jóhannsson. 1 varastjórn voru
kjörnir Tryggvi Sigurðsson
og Hrafnkell Karlsson. Krist-
mann Guðmundsson var kjörinn
endurskoöandi.
t>á kusu þeir félagsmenn, senK
búsettir eru á Selfossi, tvo menn
i uppstillingarnefnd
framsóknarfélaganna vegna
væntanlegra sveitarstjórnar-
kosninga, þá Tryggva Sigurðs-
son og Magnús Sveinbjörnsson.
Að kosningunum loknum flutti
Elias Snæland Jónsson, for-
maður SUF, ræðu um málefni
Framsóknarflokksins. Rakti
hann ágreininginn innan
Framsóknarflokksins og þróun
þeirra mála. Á eftir voru al-
mennar umræður og fyrir-
spurnir, en i lokin var samþykkt
tillaga, þar sem forysta,
flokksins var hvött til þess að
koma á viðræðum deiluaðila i
flokknum.
FUF í Reykjavík:
Kæra aðalfundinn
til stjórnar SUF
og flokksformanns
Á föstudag i siðustu
viku var formanni SUF
afhent kæra frá stjórn
FUF i Reykjavik, en
samhljóðandi kæra var
send til formanns
Framsóknarflokksins.
Kæran, ásamt þeirri
itarlegu greinargerð,
sem henni fylgdi, var
til umræðu hjá stjórn
SUF siðastliðinn
þriðjudag og verður
áfram til meðferðar
hjá stjórninni i sam-
ræmi við þá málsmeð-
ferð, sem ákveðin var á
stjórnarfundinum.
1 þessari kæru, sem beint er
gegn meirihluta fráfarandi
stjórnar félagsins, eru svohljóö-
andi ákæruatriði um misferli
fyrir og á aðalfundi FUF i
Reykjavik:
Ákæruatriðin
„1. Spjaldskrá félagsins var
fölsuö á þann hátt, aö inn í hana
var bætt nöfnum manna, án
þess að þeir heföu veriö teknir
inn í félagiö. Við höföum rök-
studdan grun um, að svo hafi
verið um a.m.k. 119 menn.
Samkv. lögum FUF i Reykjavik
skulu inntökubeiönir berast
stjórn félagsins a.m.k. viku
fyrir aðalfund og vera sam-
þykktar á félagsfundi, sem
fram fer á undan aöalfundi.
Hvorugt þessara skilyröa var
uppfyllt varðandi þá 119 menn,
sem bætt hafði veriö inn á
félagaskrána.
2. Félagaskráin var enn-
fremur fölsuð á þann hátt, að
nöfn fjölda löglegra félags-
manna höföu veriö tekin burt úr
félagsskránni. Þessir löglegu
félagsmenn voru þar meö
sviptir öllum réttindum félags-
manna, og margir þeirra þar
með i reynd reknir úr Fram-
sóknarflokknum, þar eö nöfn
þeirra eru ekki til á neinni
annarri félagaskrá flokksins.
Meöal þeirra manna, sem
þannig voru teknir af skrá
félagsins og ekki fengu inn-
göngu á aðalfundinn, eru ýmsir
þeirra, sem á undanförnum
árum hafa unnið mikiö og fórn-
fúst starf fyrir FUF i Reykja-.
vik.
3. Meirihluti fráfarandi
stjórnar meinaði nokkrum hluta
löglegra félagsmanna að greiða
atkvæöiá aðalfundinum á þeirri
forsendu, að þeir væru einnig
meðlimir i öðru félagi ungra
framsóknarmanna. Þeir mættu
þó sitja fundinn, enda ekki verið
teknir burt af félagaskrá
en þeir heföu ekki atkvæöis-
rétt. Meirihluti fyrrverandi
stjórnar færði engin rök fyrir
þessum úrskurði sinum. Ýmsir
þeirra, sem þannig var meinað
að greiða atkvæöi á aðalfund-
inum, hafa aldrei verið félagar i
neinu öðru félagi ungra
framsóknarmanna en FUF i
Reykjavik. Þar að auki skal
þess getið, að félagsmönnum
Framsóknarflokksins er heimilt
að vera i fleiri en einu flokks-
félagi, og ráða þeir þvi sjálfir, i
hvaða félagi þeir neyta at-
kvæðisréttar sins, en atkvæðis-
réttar geta þeir aðeins neytt i
einu félagi. Þótt meirihluti frá-
farandi stjórnar hafi ekki nefnt
lögheimili ákvörðun sinni til
staðfestingar, skal á það bent,
að samkvæmt lögum FUF i
Reykjavik nær félagssvæði
þess til Reykjavikur og ná-
grennis, og ennfremur geta
þeir, sem dvelja i Reykjavik
langdvölum, veriö félagsmenn i
félaginu, þótt þeir hafi lög-
heimili annars staöar.
4. Fyrir aðalfundinn hafði
meirihluti fyrrverandi stjórnar
FUF dreift út um borgina
félagsskirteinum og atkvæða-
seðlum, sem gilda áttu á félags-
fundinn. Fjöldi þeirra, sem
fengu inngöngu á aöalfundinn,
komu með félagsskirteini sin og
atkvæðaseðla utan úr bæ. Sögðu
þeir, i votta viðurvist, að þeir
heföu ekki þurft að greiöa
félagsgjald til aö fá skirteinin
og beinlinis verið boðin þau
endurgjaldslaust að fyrra
bragði. Aðrir urðu hins vegar að
ganga fyrir meirihluta fyrr-
verandi stjórnar, sem sat i and-
dyri fundarhússins, til þess að
krefjast sinna félagsskirteina
og atkvæðaseðla og greiða sin
félagsgjöld. Þannig hafði
meirihluti fyrrverandi stjórnar
getað afhent hverjum sem var
úti i bæ félagsskirteini og at-
kvæðaseðla, þar eð ekkert eftir-
lit var með þeim, sem höfðu
þessi gögn með höndum, þegar
þeir komu inn i húsið”.
Þessari kæru fylgir siðan
itarleg greinargerð.
Eins og áður segir er kæran nú
til meðferðar hjá stjórn SUF,
jafnframt þvi sem hún er til
meðferðar hjá formanni flokks-
ins.
Elías ráðinn
framkvæmda
stjóri SUF
A FUNDI stjórnar SUF siðastlið-
inn þriöjudag var ákveðið að ráða
formann sambandsins, Elias
Snæland Jónsson, framkvæmda-
stjóra SUF. Tekur Elias við þvi
starfi nú um mánaðamótin, og
mun gegna þvi um óákveðinn
tima.
Elias Snæland Jónsson hefur
starfað sem blaðamaður við dag-
blaðið Timann um 10 ára skeið, en
sagði þvi starfi sinu lausu fyrir
skömmu vegna ágreinings við
ráðamenn blaðsins.
Miðstjórnarfundur SUF
EINS OG auglýst hefur veriö i Tfmanum, veröur aðalfundur Miö-
stjórnar SUF haidinn um helgina 17.-18. nóvember næstkomandi.
Fundurinn veröur haldinn i Reykjavik.
Miðstjórnarfundurinn verður nánar auglýstur siðar, en
l miöstjórnarmenn eru hvattir til að hafa samband við formann SUF
iog tilkynna þátttöku.