Tíminn - 02.11.1973, Page 9

Tíminn - 02.11.1973, Page 9
Föstudagur 2. nóvember 1973 TÍMINN 9 Yfirlýsing stjórnar BHM um skerðingu verðlagsuppbóta 1 KRÖFUM Alþýöusambands ls- landsvið væntanlega kjarasamn- inga, sem stjórn Bandalags há- skólamanna getur i ýmsum at- riöum tekið undir, er þó eitt at- riði, sem vara verður sérstak lega við. Er það krafan um, að verðlagsuppbót veröi skert á öll- um mánaðarlaunum yfir 50.000 krónur. Stjórn BHM telur þessa kröfu afar rangláta, þar eð hún mun fyrst og fremst bitna á fámennum hópi launþega, þar sem eru háskólamenn, ekki sízt þeir, sem eru i rikisþjónustu. Beinir hún þeim eindrengu til- mælum til rikisstjórnarinnar, að hún beiti sér gegn slikri skerö- ingu. Vill stjórn BHM I þessu sambandi vekja athygli á eftir- farandi atriðum: I. Mótmæla verður harðlega af- skiptum ASÍ af launakjörum ann- arra launþega en þeirra, sem þeir hafa umboð fyrir. Samkvæmt núgildandi samningum myndu engir launatakstar ASl verða fyrir barðinu á visitöluskerðingu, og einungis örfáir hæstu takst- arnir, ef gengið yrði að öllum launakröfum þeirra i væntanleg- um samningum. Auk þess er mál- um svo haganlega fyrir komið, að ákvæðisvinnutakstar og uppmæl- ingatakstar myndu sleppa við skerðingarákvæðið. Kröfunni er þvi augljóslega stefnt gegn öðrum launþegum. Þvi verður ekki trúað að óreyndu, að ASt, i krafti stærð- ar og pólitisks valds, haldist uppi að hafa á þennan hátt frekleg af- skipti af kjaramálum annarra stétta. II. Verðlagsuppbót á laun er til þess ætluð að viðhalda kaupmætti launa, þótt verðlag breytist. Ljóst er, að skerðing á slikri uppbót minnkar verðgildi launa þeirra launþega, sem fyrir henni verða. Það er einnig einkenni skerðingar af þessu tagi á verðbólgutimum, að hún fer sivaxandi, og kaup- máttur minnkar meir og meir eftir þvi, sem timar liða, og launastigar þjappast saman. öhætt er að fullyrða að kjara- samningar yrðu af þessum sökum markleysa á stuttum tima. III. Glöggt dæmium áhrif visi- töluskerðingar má finna á árun- um 1968 og 1969. Hinn 1. april 1968 gekk i gildi dómur kjaradóms rik- isstarfsmanna um visitölubætur. Helztu atriði hans voru, að greiða skyldi að fullu verðlagsuppbót á grunnlaun um að 10.000 krónum á mánuði. Siöan skyldi uppbótin haldast óbreytt að krónutölu að 16.000 krónum, en lækka úr þvi. Afleiðingarnar létu ekki á sér standa. A 20 mánuðum frá gildis- töku dómsins hækkaði kaup- gjaldsvisitalan úr 103 stigum i 128.87 stig. Þá var visitöluskerð- ing i 23. launaflokki, en i honum eru ýmsir háskólamenn, svo sem dómarafulltrúar, náttúru- fræðingarog verkfræðingar, 3.981 króna á mánuði, eða 16.7% af launum 1. des. 1969 (miðað er við hámarkslaun). Þetta samsvaraði þá launalækkun um nær 4 launaflokka. Eins og meðfylgj- andi tafla sýnir, jókst skerðingin enn i 24: — 28. launaflokki. Skerðing mánaðarlauna 1. apr. 1968—1. des. 1969 kr. 3.981 16.7% kr. 4.434 23. launafl 24. launafl. 25. launafl. 26. launafl. 27. launafl. 28. launafl. 4.917 5.423 5.948 6.373 17.9% 18.9% 20.0% 20.9% 21.3% Verulegur hluti þeirrar launa- hækkunar, sem samið var um i siöustu samningum rikisstarfs- manna i desember 1970, var óum- flýjanleg leiðrétting kjara, vegna þeirrar langvarandi og sivaxandi visitöluskerðingar, sem á undan fór og hér hefur verið lýst. IV. Stjórn BHM mun með öllum tiltækum ráðum berjast gegn visitöluskerðingu. Hún er rang- lát, þar eð hún leggst með siaukn- um þunga á launþegana eftir þvi sem verðbólga eykst, og endar að lokum óhjákvæmilega með launastökki til leiðréttingar, en slikar stökkbreytingar eru engum i hag. Heitir stjórn BHM á rikis- stjórnin að skoða mál þetta ofan i kjölinn og koma i veg fyrir, að óheillaskref verði stigið. Reykjavik 30.okt. 1973. Stjórn Bandalags háskólamanna> Hús til sölu á Reyðarfirði Kauptilboð óskast i húseign Pósts og sima á Reyðarfirði. Húsið er 1206 rúmmetrar að stærð og fylg- ir þvi 1887 fermetra leigulóð. Eignin verður til sýnis væntanlegum kaupendum fimmtu- daginn 8. og föstudaginn 9. nóvember n.k., kl. 3-5 e.h. báða dagana og eru tilboðseyðublöð afhent á staðnum. Tilboð eiga að berast skrifstofu vorri fyrir kl. 11.00 f.h. mánudaginn 19. nóv. 1973. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 8ÍMI 26844 Hús til sölu á Þingeyri Kauptilboð óskast i húseignina Aðalstræti 14 (hús Pósts og sima), sem er 720 rúm- metrar að stærð ásamt 350 fermetra leigu- lóð. Eignin er til sýnis væntanlegum kaupendum miðvikudag- inn 7. og fimmtudaginn 8. nóvember n.k., kl. 4-6 e h og eru kauptilboðseyðublöð afhent á staðnum. Tilboð eiga að berast skrifstofu vorri fyrir kl 11 00 f h hinn 20. nóv. 1973. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNl 7 SÍMl 26844 þér getíð veríð orugg... séþað Westinghouse Westinghouse uppþvottavélin er fáanleg til innbyggingar, fríttstandandi og með toppborði. ÚTSÖLUSTAÐIR í REYKJAVÍK LIVERPOOL DOMUS DRÁTTARVÉLAR HF Tekur inn kalt vatn, er meö 2000 w elementi og hitar í í 85° (dauðhreinsar). Innbyggó sorpkvörn og öryggisrofi í hurö. Þvær frá 8 manna borðhaldi meö Ijósstýrðu vinnslukerfi. Er ódýrasta uppþvottavélin á markaðinum. KAUPFÉLÖGIN VIÐA UM LAND Samband íslenzkra samvinnufélaga VÉLADEILD Ármúla 3 Reykjavik simi 38900

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.