Tíminn - 02.11.1973, Side 15

Tíminn - 02.11.1973, Side 15
Föstudagur 2. nóvember 1973 TÍMINN 15 O Framhald af grein Hannesar Jónssonar félagsfræðings um hollustu við langtímamarkmið hreyfingar, hefur samneyzla þjóðfélagsins aukizt og megin- hluti kostnaðar við hin þróuðu gæði (menntun og félagslegt öryggi) er nú greiddur úr sam- eiginlegum sjóði, og hið opinbera tryggir öllum jafnan rétt til þeirra. Eignir dreifast nú lika jafnar á ibúafjöldann en áður var. Þannig sýndi t.d. manntalið 1960, að 70,3% tslendinga bjuggu þá i eigin húsnæði fjölskyldunnar, en talið er, að nú búi um og yfir 80% lslendinga i eigin húsnæði fjöl- skyldunnar. Framfarir á gæðum hibýlanna eru lika mjög aug- ljósar. Samfara þessari þróun hefur stéttaskiptingin i landinu tekið miklum breytingum, svo sem ég sýndi fram á i grein i Timanum, sunnudaginn 11. júni 1972. Með grein þeirri var birt tafla um þróun atvinnu- og stéttaskipting- ar á islenzkum vinnuaflsmarkaði árið 1920 til 1969, og mátti þar sjá, að 53,3% tslendinga á vinnuafls- markaði töldust til verkalýðs- stéttar, ef iðnaðarmenn væru taldir þar með, sem er rangt við núverandi aðstæður, en 42,6% ef iðnaðarmenn væru þar ekki með- taldir. Til millistéttar töldust 40,5%, ef iðnaðarmenn voru þar ekki með- taldir, en 51,2% ef iðnaðarmenn teldust til millistéttar, sem eðli- legt má telja miðað við islenzkar aðstæður nú. Til gróðastéttarinnar, atvinnu- rekenda, smákaupmanna og heildsala, töldust 6,2%. Umrædd tafla sýndi lika mjög glögglega, hvernig millistéttin hefur stöðugt verið að vaxa i landinu með aukinni tækni, iðnvæðingu og menntun. Sé jafnframt tekið tillit til eignaskiptingarinnar i landinu, skattaframtala, þinglesturs fast- eigna og samgöngutækja, svo og starfsemi Tryggingastofnunar rikisins, sést greinilega að tala má um millistéttina sem megin- þorra þjóðarinnar, og að algjör- lega úrelt er að tala um umkomu- lausa öreigastétt á tslandi nú. Þjóðfélagsaðstæður eru þvi allt aðrar nú en þær voru, þegar Framsóknarflokkurinn var stofn- aður. Flokkur, sem byggður er upp á millistéttarviðhorfum, ætti þvi að eiga langtum meiri hljóm- grunn með þjóðinni nú, heldur en hann átti fyrir 40-60 árum, þar sem meginþorri þjóðarinnar hefur þau stéttarlegu viðhorf, sem Framsóknarflokkurinn er byggður upp af, enda hafa Fram- sóknarmenn jafnan lagt á það áherzlu að vinna að framförum og bættum hag þjóðarinnar allrar. Mótherjar á flótta frá upprunalegri stöðu Vert er að gefa þvi gaum, að á sama tima og Framsóknar- flokkurinn hefur allt frá upphafi haldið sinni upprunalegu þjóð- félagslegu stöðu og staðið á sinni grundvallarstefnu eins og hún kemur fram i langtimamarkmið- um hans, hafa mótherjarnir til hægri og vinstri farið á flótta frá sinni upprunalegu stefnu og þjóð- félagslegu stöðu. Þannig boðuðu socialdemó- kratar t.d. lengi framan af rót- tæka þjóðnýtingarpólitik, þjóð- nýtingu framleiðslutækjanna og alhliða rikis- og opinberan rekstur, sem hina þjóðfélagslegu allrameina-bót. Annað var eftir þessu hjá þeim og i samræmi við þjóðfélagslegar kokkabækur Karls Marx. En reynslan af þjóö- nýtingunni og augljósar villi- kenningar Marxismans, þegar hann var lagður undir dóm reynslunnar i framkvæmd, fældi fólk frá flokkum, sem boðuöu slikar kreddur. Þar að auki gekk sjálf þjóðfélagsþróunin þvert á kenningar Marxismans, saman- ber staðreyndirnar um stétta- þróunina á Islandi. Afleiðingin varð sú, að jafnaðarmanna- flokkar fóru yfirleitt á flótta frá kreddunum, færðu sig nær miðj- unni i stjórnmálum, tóku upp að meira eða minna leyti hina félagslegu frjálslyndispólitik, eða ,,social liberalisma”, þar sem að öðrum kosti hefðu þeir einangrað sig frá fólkinu. Þessi þróun var mjög áberandi á Norðurlöndum eftir 1935 eða svo. — Og hana má mjög glögglega sjá við saman- burð á skýjaglópskreddunum, sem Kommúnistaflokkur tslands boðaði um og laust eftir 1930 og þeirri mildu jafnaðarstefnu og allt að þvi „social liberalisma”, sem Alþýðubandalagið boðar i dag. A hliðstæðan hátt hafa hægri flokkarnir og viðhorf þeirra þróazt. Hin skefjalausa einstaklingshyggja er ekki i samræmi við aldarandann. Einstaklingshyggju- og ihalds- menn breyttu þvi stefnutúlkun sinni, þar sem þeir sáu, að annað hvort urðu þeir a.m.k., i orði kveðnu, að færa sig nær miðjunni i stjórnmálum eða að daga uppi sem steinrunnin nátttröll i stjórn- málabaráttunni. Afleiðingin hefur orðið sú, að við höfum séð það m.a. hér á tslandi, að bæði Sjálfstæðisflokkur, Alþýðu- flokkur og arftakar Kommúnista hafa farið á flótta frá sinni upphaflegu stöðu i islenzkum stjórnmálum, en fært sig nær hinni félagslegu frjálslyndis- og umbótapólitik, sem Framsóknar- flokkurinn hefur rekið allt frá upphafi. Það sem gerzt hefur er, að Fram sóknarflokkurinn og stefna hans hefur staðizt timans tönn, hann stendur enn styrkur á grundvelli þeirrar stefnu, sem mörkuð var fyrir nærri 60 árum, en flokkarnir hægra og vinstra megin við hann hafa af þjóð- félagslegri nauðsyn farið á flótta frá sinni upphaflegu stefnu og fært sig nær honum i islenzkri pólitik, en bezt er að átta sig á hinni traustu þjóðfélagslegu stöðu hans með þvi að skoða langtima- markmið hans eins og þau koma æ ofan i æ fram i grundvallar- stefnuyfirlýsingum hans og störfum. Langtímamarkmiö Framsóknarflokksins Þegar lesnar eru yfir stefnu- yfirlýsingar Framsóknarflokks- ins á hinum ýmsu timum, sést greinilega, að meginatriði lang- timamarkmiða hans má setja fram i 7 liðum, þannig: 1 fyrsta lagi sjálfstæði, frelsi og fullveldi islenzka rikisins. 1 öðru lagi stjórnskipulag lýðveldis, lýðræðis og þing- ræðis. t þriðja lagi frjálslynd umbóta- stefna. 1 fjórða lagi dreifing valds og byggðajafnvægi. 1 fimmta lagi samvinnuhag - skipulag. 1 sjötta lagi hagkvæmur og arð- bær rekstur framleiðsluat- vinnuveganna. I sjöunda lagi stuðlað að jafnvægi i efnahags- og stjórnmálum , Skoðum þessi atriði nú svolitið nánar, hvert útaf fyrir sig. 1) SJALFSTÆÐI, FRELSI OG FULLVELDI Allt frá upphafi veru sinnar 1916 hefur Framsóknarflokkurinn átt sér það höfuðmarkmið að standa vörð um sjálfstæöi, frelsi og fullveldi islenzka rikisins. Hann hefur jafnframt varað við hverskonar ráðstöfunum, sem að einu eða öðru leyti gætu rýrt sjálfstæði, frelsi og fullveldi islenzka rikisins. Hann barðist ótrauður fyrir endurheimt sjálf- stæðisins og stofnun lýðveldisins, og stendur traustan vörð um fengið frelsi og sjálfstæði. Framsóknarflokkurinn hefur þó aldrei rekið þjóðernislega einan- grunarpólitik. Hann vill að Islendingar eigi vinsamleg sam- skipti og viðskipti við önnur riki, en nánust samskipti og viðskipti við þau riki, sem af landfræði- legum, hugsjónafræðilegum og hagrænum ástæðum er eðlilegast að við höfum mest samskipti, viðskipti og samvinnu við, svo sem Norðurlönd og Atlantshafs- rikin. Stefnt er að þvi, að við eigum vaxandi samvinnu og góð samskipti við aðrar þjóðir og rikjasamtök, án þess að láta af hendi nokkurn hlut af sjálfsfor- ræði okkar. Þess vegna vill Framsóknarflokkurinn t.d. að Islendingar standi utan allra al- þjóða- eöa margþjóðasamtaka, sem krefjast þess, að aðildar- rikin láti hluta af fullveldi sinu, sjálfstæði og ákvörðun um stefnu- mótun af hendi. Sjálfstæði, frelsi og fullveldi islenzka rikisins verður sem sé ekki látiö af hendi, hvorki i smáum né stórum skömmtum. samkvæmt þessu langtimamarkmiði Framsóknar- flokksins, svo sem lesa má æ ofan i æ i stefnuyfirlýsingum flokksins frá upphafi til dagsins i dag. 2) LÝÐVKLDI. LVÐRÆDI OG ÞINGRÆDI Framsóknarflokkurinn hefur frá upphafi átt sér það langtima- markmið að vinna að og viðhalda lýftveldisstjórnarformi, lýftræftis- stjórnskipun og þingræfti á Islandi. Eg þarf ekki að lýsa þvi, hvað þetta felur i sér, þvi það er öllum augljóst. Auk þess hef ég gert þvi máli itarleg skil i bókinni Kjós- andinn, stjórnmálin og valdift, og leyfi ég mér.að visa til þess. Hitt vildi ég þó aöeins minna á, að eitt meginmarkmið lýðræðis- stjórnskipulagsins er að stuðla að l'rclsi, jafnréttiog öryggi borgar- anna innan ramma lögbundins skipulags. Og að sjálfsögðu er þetta markmið innbyggt i þetta langtimamarkmið Framsóknar- flokksins. 3) FRJALSLYNI) UMRÓTAVIÐLEITNI Allt frá upphafi hefur Framsóknarflokkurinn verið frjálslyndur umbótaflokkur. Þetta felur i sér, að flokkurinn er fordómalaus um úrlausnir að- steðjandi vandamála á hverjum tiriia og vill beita vinnuaðferðum þekkingar og visinda við lausn verkefna þjóðfélagsins til þess að ryðja framþróuninni braut á grundvelli þeirrar þjóðfélagslegu afstöðu, sem stefna hans býður. Vegna frjálslyndissins er hann u m burftarlyndur gagnvart skoðunum annarra og vill að allir þeir, sem hafa eitthvað fram að færa i sambandi við lausn þjóð- félagsmála, fái tækifæri til þess að tjá sig, túlka skoðun sina og reyna að vinna henni fylgi áöur en ákvarðanir eru teknar. Sem umhótaflokkur leggur hann höfuðáherzlu á það, að hver kynslóð leitist við að skila næstu kynslóð betra þjóðfélagi, betra lifi, rikari menningu fyrir megin- þorra þjóöarinnar en hún tók við. Þessi umbótaviðleitni flokksins á sér engan enda, fremur en viðleitni visindanna til þess að sanna eðli hlutanna og tilver- unnar og safna raunverulegri þekkingu, sannleika, á öllum sviðum mannlifs og tilveru. Þetta stafar af þvi, að svo lengi sem maðurinn helduráfram aö lifa og búa i samfélagi við aðra menn, svo lengi verður þörf fyrir viðleitnina til þess að búa sem bezt i haginn fyrir fólkið á grund- velli alhliöa framfara i félags- legu, efnahagslegu, menningar- legu og siðferðilegu tilliti. Þess vegna er sá megingrundvöllur umbótaviðleitninnar, að hver kynslóð leitist stöðugt, fordóma- laust og á grundvelli frjálslyndis og visinda, við að skila næstu og komandi kynslóðum stöftugt batnandi þjóftfélagi fyrir fólkið i landinu, eitt af varanlegum lang- timamarkmiðum P'ramsóknar- flokksins. 4) DREIFING VALDSINS OG BYGGÐAJAFNVÆGI Dreifing valdsins á meðal fólksins og uppbygging á grund- velli byggðastefnunnar hefur frá upphafi veriö eitt af meginmark- miðum Framsóknarflokksins og er enn. Er þar ekki aðeins átt við dreifingu rikisvaldsins eða greiningu þess i löggjafarvald, framkvæmdavald, dómsvald og vald héraðs-, bæjar- og sveitar- stjórna, heldur einnig dreifingu hins efnahagslega valds i þjóð- félaginu i hendur almennings með eflingu almannasamtaka, svo sem launþegasamtaka, búnaöarsamtaka og samtaka annarra framleiðenda, svo og með þátttöku almennings i stjórnun og rekstri á grundvelli eignar- og stjórnarhlutdeildar i stórum fyrirtækjum, en þó alveg sérstaklega með þvi að stuðla að eign almennings á atvinnu- og viðskiptarekstrinum eftir leiðum samvinnustefnunnar og dreifingu framkvæmda og eflingu byggðar um allt land. 5) SAMVINNU- HAGSKIPULAG I fimmta lagi telst það til lang- timamarkmiða Framsóknar- flokksins, eins og þau má lesa út úr nærri 60 ára starfi flokksins og stefnuyfirlýsingum hans, aö hann vill stefna að þvi að á Islandi verði komið á efnabagsskipulagi samviiinunnar. Þetta langtima- markmift hefur fram aft þessu ekki verið skilgreint svo rækilega er æskilegt væri. Ljóst er þó af stefnuyfirlýsingum flokksins og á grundvelli rökrænnar greiningar, að það, sem Framsóknarmenn hafa jafnan átt við með samvinnuhagkerfinu, er blandaft hagkerfi allra rckstursformanna, þar sem samvinnureksturinn er mest áberandi; framkvaimdur er skipulagftur áætlunarbúskapur án liafta. til þess aft tryggja bagvöxt og efnahagslegar fram- farir; ölluin tryggft atvinna; stefnt aft liagsæld, félagslegu iiryggi og réttlæti; og eftirtaldar 7 aftal tegundir samvinnufélaga velta um 40-60% af heildarveltu viftkomandi rekstrargreinar: Fyrsta: neytendasainvinnufél- ög, sem annast vörudreifingu á sannvirði i smásölu, heildsölu og að nokkru leyti framleiðslu l'yrir þá dreifingu, og stuðla aft afnámi arðráns i viftskiptum. Annað: siilufélag framleiftenda, sem annast sameiginlega dreif- ingu á afurftum framleiftenda svo sem bænda, garðyrkjumanna og útvegsmanna, til þess aft tryggja þeim hagkvæmari vörudreil'ingu, hagkvæm innkaup á rekstrarvöru og annast tæknileiðbeiningar i þágu hagkvæmni við Iram- leiðsluna. Þriðja: framleiftslusam viniiu- féliig, sem eru m.a. samvinnu- félög iftnsveina, sem reka þjónustu sina og starfsemi sem sjálfstæðir verktakar, iftnfram- leiftslusam vinnufélög, starfsfólks i iðju og iðnaði, og ýmiss konar þjónustusamvinnufclög i eigu starfsfólksins, s.s; bifreifta- stöðvar, hótel, veitingastaðir og fleira þess háttar. Markmift þessara Iramleiöslusam vinnu- félaga er að stuðla aft sannvirði vinnu og að uppræta arðrán af henni. Fjórða: samvinnubankar og sparisjóftir.sem ávaxta fé félags- manna og stuðla að samvinnu- uppbyggingu i landinu. Fimmta: margs konar sam- vinnutryggingafélög, sem annast ýmiss konar tryggingar og fjár- mögnun fyrir samvinnurekstur- inn. Sjötta: byggingarsam vinnu- féliig, sem annast húsbyggingar, lánsútveganir og tækniaðstoð fyrir félagsmenn sina og stuðla að lækkun byggingakostnaðar. Sjöunda: samvinnuhlutafélög, sem eru hugsuð sem sameign samvinnusambanda, verkalýðs- sambanda, rikisins og bæjar- og sveitarfélaga þeirra, sem þau starfa i. Þessi samvinnuhluta- félög eru talin geta annazt meiri háttar atvinnurekstur og fram- leiðslustarfsemi innan samvinnu- hagskipulagsins. Gera verður ráð fyrir því, að innan efnahagsskipulags sam- vinnunnar hafi hinar ýmsu teg- undir samvinnufélaga ráftandi hluta af veltu viðkomandi greinar til þess að hafa bein áhrif á ágóðahluta hennar til þess að uppræta arörán af vinnu og við- skiptum og draga úr milliliða- kostnaði i dreifingarkerfinu. Samvinnuhreyfingin verður þó ekki eini atvinnurekandinn og þjónustuaðilinn innan samvinnu- hagkerfisins. Innan þess munum við finna sambland af a) einkarekstri (landbúnaður, persónuleg þjónusta, sérfræði- þjónusta o.fl.) b) opinberum rekstri i eigu rikis eða- og sveitarfélaga (rafveit- ur, hitaveitur, póstur og simi, bankastofnanir, o.fl.), og c) samvinnurekstri af þeim sjö tegundum, sem nefndar voru. Oll samvinnufélög samvinnu- hagkerfisins yrðu eðlilega rekin á grundvelli rekstrarreglna sam- vinnustefnunnar, þar sem lýð- ræðisstjórnskipunin, þátttaka fólksins i stjórnun og ágóðahlut- deild i hlutfalli við viðskipti eða notkun, eru meðal grundvallarat- riðanna, arðrán afnumið af vinnu og viðskiptum og maðurinn og velferð hans sett i öndvegi, en fjármagni gefin þjónustustaða en ekki herradómur. Aft þessu langtimamarkmiði Framsóknarflokksins — sam- vinnuhagkerfinu — þarf ekki að vinna einvörðungu á löggjafa- samkundunni, heldur geta ein- stakir Framsóknarmenn stuðlað að þvi að útfæra þetta hagkerfi með þvi að taka þátt i jákvæðu uppbyggingarstarfi og rekstri hinnna ýmsu tegunda samvinnu- félaga á grundvelli frjáls félags- Iramtaks. 6) IIAGKVÆMUR OG ARDBÆR REKSTUR FRAMLEIDSLUAT- VINNUVEGANNA Sjötta langtimamarkmið Framsóknarflokksins er aft stuftla aft bagkvæmum og arftbærum rekstri atvinnuvega og fjármála- lifs, tryggja sem bezt undirstöðu framleiftsluatviniiuvegaiiiia og skapa þar meft hagrænan grund- völl l'yrir félagslegt öryggi, rétt- læti og vaxandi menntun og menningu landsmanna allra. Þessi áherzla á blómlegl atvinnu- lif og heilbrigðan grundvöll fram- leiðsluatvinnuveganna hel'ur allt- af verift á meðal meginatriðanna i slefnuyfirlýsingum Framsóknar- flokksins, og aft þessu hel'ur jafn- an verið unnið, þegar flokkurinn hel'ur átt fulltrúa i rikisstjórn. 7) AD STUDLA Al) JAFNVÆGI í EFNAIIAGS- OG STJélRNMAL- U M Sjöunda langtimamarkmift Framsóknarflokksins er aug- Ijóslega hin stöðuga viðleitni hans lil þess aft isætta andstæft þjóðfél- agsöfl og leita jalnvægis i stjórn- málum, efnahagsmálum og stéttaátökum. Sem frjálslyndur umbóta- og miðflokkur helur Framsóknar- flokkurinn átt meiri þátt i þvi en aftrir flokkar aft finna málamiðl- anir á milli öfga, sætta andstæður og leita jalnvægis i þjóöar- búskapnum heldur en nokkur annar flokkur. Þetta hlýtur lika jafnan aft vera eitt af mikilvægari viftfangsefnum og stöftugt mark- mift frjálslynds umbótaflokks eins og Framsóknarflokksins. Reynslan sannar lika að i fram- kvæmd hefur hin frjálslynda um- bótastefna hans i meginatriðum veriö áhrifarikust á tslandi allt Irá stofnun hans, ef ekki vegna meirihlutavalds hans, þá sem málamiðlun á milli þeirra aöila, sem með völd hafa farift á hverj- um lima. Af þessu langtimamarkmiði llokksins leiddi lika eðlilega til stofnunar vinstri stjórnar undir lorystu Ólafs Jóhannessonar sumarið 1971, þar sem að flokkur- inn hlaut að leita jafnvægis til vinstri eftir 12 ára valdabrask ihalds og krata. Kjarni Framsóknarstefnunnar Ef við ættum nú að lokum I ljósi þessa yfirlits um langtimamark- mið Framsóknarflokksins aö draga saman kjarnann i gilda- kerfi Framsóknarstefnunnar, þá virðist mér að rétt væri aö setja hann þannig fram: Framsóknarflokkurinn er frjálslyndur umbótaflokkur fél- agshyggju- og samvinnumanna, byggftur upp á grundvelli megin- sjónarmifta hinna vaxandi is- lenzku miðstétta. Hann vill standa vörft um sjálfstæfti, frelsi og fullveldi islenzka rikisins, tryggja islcndingum lýftveldis- stjórnarform á grundvelli lýft- F'ramhald á bls. 23

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.