Tíminn - 02.11.1973, Síða 16

Tíminn - 02.11.1973, Síða 16
16 TÍMINN Föstudagur 2. nóvember 1973 ELLEN DUURLOO: Geymt en ekki gleymt 14 Lesendur athugi! Vegna brengla á framhaldssög- unni núna fyrr í vikunni, veröur hún endurbirt frá þeim tima. 2 Lækjarniöurinn heyröist alls staöar — þaö voru leysingjar uppi I fjöllum, — hér niöri i dalnum var fariö aö vora. Sólin hækkaöi á lofti, og eftir nokkrar vikur myndi hún kasta ljósi sinu yfir þröngan dalinn mest allan daginn. Enn var mikill snjór i fjöllunum, sums staðar inyndi hann ekki hverfa fyrr en i júli, en engu að siður rann leysingarvatnið niður bratt- ar hliðarnar. Svanhildur setti á sig snjóhvita og stifaöa svuntuna. Hún séri sér á alla vegu fyrir framan spegilinn, sem var i „empire” stil og hékk yfir ofan kommóöuna hennar. Hún virti fyrir sér spegilmynd sina meö nokkurri velþóknun. I.jóst og mikið hárið, fagurblá augun og rauðar kinnarnar. Hún var lika vel vaxin, þrýstin brjóst, mjótt mittiog breiðar mjaömir... Ilún haföi verið ákaflega indæl og vingjarnleg, hún frú Skogli, prcstfrúin, sem nú hafði legiö i gröf sinni i nær fimm mánuði. En veikbyggð og eins og hún kæmi ekki héðan úr norsku fjallahéruð- unum. t rauninni hefði hún ekki verið nein kona fyrir mann eins og Martin Skogli. Ilann þurfti á sterkbyggðri og heilbrigðri konu að halda, af þvi að hann var sjálfur stór og sterk- byggður. Hann gat ekki verið konulaus mikið lengur það var Svanhildur viss um. Nú var hækkandi sól og vorilm- ur um allt 'land. Náttúran brosti sinu bliðasta og allt lif var i ástarhug. betta var lögmál náttúrunnar, og það átti einnig við um mann- fólkið. Martin Skogli hafði syrgt konu sina mikið. Svanhildur hafði borið virðingu fyrir sorg hans og Lenu. En lifiö gekk sinn vanagang og Martin Skogly var enn maöur á bezta aldri. — Og — Nú, jæja, hún var nærtæk og hafði ekkert á móti þvi að verða prestfrú i Höydalssókn. Presturinn var farinn að taka eftir henni. Hann horfði oft á hana, og leit siöan snöggt undan. Þetta siðasta þótti Svanhildi góös viti. Ef hann hefði aðeins horft á hana, þá hefði það ekki þurft aö merkja neitt sérstakt, En það að hann leit undan, gat þýtt bæði eitt og annaö. Henni leizt vel á hann. Hann var myndarlegur maöur há- vaxinn og herðabreiður, henni leizt ekki einungis vel á hann, hún var sem bergnumin af honum. Hún haföi verið ein svo lengi, að hún hélt að allar sinar hvatir væru útkulnaöar, en það voru þær ekfcfc og ekki hans heldur. 3NV var það Lena. ■m , Ndnhildur stóð kyrr á miðju gólii^u i herberginu sinu og horfði út um gluggann. Henni’þótti mjög vænt um Lenu. Hún vildi svo gjarnan gera það fyrir Lenu, sem i hennar valdi stæði. Hún var þess fullviss, að hafa unnið trúnað Lenu. Já, allt gat fariðá bezta veg hér á prestsetrinu, bara ef þróun mála yrði á þann hátt, sem hún óskaöi. Ung er ég ekki leng- ur.hugsaði Svanhildur, og ég hef átt min vandamál og áhyggjur. bað tók mig langan tima að kom- ast yfir þaö. fcg varð að flytjast á brott til að geta rifið mig lausa. Ég varð að flytjast á brott frá æskustöðvum minum, úti við ströndina, þar sem fólk lifði óbreyttu og fátæklegu Iifi, og þaðan sem unga fólkið fluttist af landi brott hópum saman. Björn hafði farið af landi brott. Það voru sjö ár siðan. Hugur Svanhildar reikaði aftur i timann, og hún varð angurvær á svip. Var hann dáinn eða hafði hann svikið hana? Þau höfðu þekkzt frá barnæsku, og aö lokum urðu þau ásátt um að eyða ævinni i návist hvors ann- ars. Þau voru trúlofuð þarna heima einn vetur. En hvers konar lif beið þeirra i litla fiskiþorpinu' A þessum timum gekk yfir áróðursbylgja i landinu um fram- tiöarmöguleika i Ameriku. Þessi áróður barst til litla fiskiþorps- ins. Þau Björn höfðu rætt þennan möguleika fram og aftur. Þau höfðu meira að segja fært þetta i tal við foreldra sina. Faðir henn- ar hafði sagt: Væri ég á þritugsaldri, myndi ég ekki hugsa mig um eitt andar- tak. Foreldrar Björns voru ekki al- veg á sömu skoðun. Faðir hans mundi sakna hans úr skipshöfninni, og móðir hans var ekki hrifin al' að sjá á bak einkasyni sinum, vitandi fyrir vist að hún myndi sennilega aldrei sjá hann aftur. En Björn var ungur og fullur lifsorku. Hann langaði út i heim og freista gæfunnar eins og svo marga hafði langað á undan hon- um. Hann hafði einnig viljað að Svanhildur færi með honum og þau giftu sig og freistuðu gæfunn- ar i landi möguleikanna. Hún hefði fegin viljaö þetta, en foreldrar hennar voru eindregið á móti þessu. „Láttu Björn fara á undan og koma sér fyrir þarna, siðan getur þú farið á eftir honum.” Henni veittist erfitt að breyta gegn vilja þeirra, ekki hvað sizt vegna þess að hún var nægilega skynsöm að sjá að þau höfðu rétt fyrir sér. Þaö var heldur ekki auðvelt að útvega peninga handa þeim báðum til fararinnar. Auð- vitað var skynsamlegast,að Björn færi á undan og sendi siðan boð eftir henni eftir ár eða svo ásamt peningum til fararinnar. Hún bar ótakmarkað traust til Björns. bó svo að hana tæki sárt að skilja viö hann, gaf vonin henni styrk til aö bfða. Hún fór meö honum til Bergen, og horfði á eftir skipi hans er það stefndi út á óendan- legan Norðursjóinn. Henni var ljóst að það hlutu að liða margir mánuöir, áður en hún gat vonazt til þess að heyra frá honum. — En hún beið róleg. Hálfu ári seinna barst henni bréf. Þaö var stutt og eilitið klunnalegt. Ritlistin haföi alltaf verið veika hlið Björns. Svo mikið skildist henni þó af þessu stutta bréfi,aö ferðin til Bandarikjanna hafði gengiö vel og hann hafði unnið eitthvaö I Baltimore, en haföi siðan haldiö vesturá bóginn, þar sem atvinnu- möguleikarnir voru meiri. Hann ætlaði að skrifa henni og senda peninga þegar hann haföi komið undir sig fótunum þar vestur frá. . Hálfu ári seinna kom annaö bréf. Gull hafði fundizt i Kaliforniu, og hann hafði farið þangaö með gull- grafarhópi. Það mundi taka vikur ef til vill mánuði að komast þang- að, en kæmist hann þangaö, yrði hann rikur maður. Hann myndi senda henni peninga til fararinn- ar seinna. Hún beið og beíð. t fyrstu var hún glöö og eftirvæntingarfull, siðan missti hún vonina smátt og ” smátt. Þegar þrjú ár voru liðin, frá þvi að hanni barst siðasta bréf hans og heil fjögur ár voru liöin frá brottför hans, gat hún ekki annaö en horfzt i augu við sann- leikann. Annað hvort var Björn ekki . lengur i lifandi manna tölu, eða hafði hitt aðra konu og gleymt henni. Siðan fór hún i vist ' á prestsetri i Bergen, þaðan kom hún svo til prestsetursins hérna. Hún var komin yfir ástarsorg sina. Hún hafði beðið eftir Birni i svo mörg ár, án þess að heyra nokkuð frá honum, að það hafði sjálfsagt átt sinn þátt i aö milda áfallrð þegar sannleikurinn rann ‘ upp fyrir henni. Hægt og hægt haföi hún vanizt þeirri hugsun að [ Björn sæi hún aldrei framar. En þetta var auðmýkjandi stað- reynd. Hún hafði skammazt sin fyrir fólkinu i fiskiþorpinu. Það hafði sjálfsagt kennt lengi i brjósti um hana, án þess að hún ” yrði þess vör. Var hún nokkuð annað en auðtrúa og svikin stúlka sem beið og beið eftir elskhugan- um, sem aldrei kom til baka. Vitlausa-Þóra, sem enginn vissi hvað nú var orðinn gömul, hafði beöið eftir manni nokkrum sem; ' aldrei kom til baka, jaflengi og meira segja elzta fólkið i sveitinni mundi eftir. Sem smástelpa hafði Svanhildur tekið bátt i að gera 1542 Lárétt 1) Hrópa.- 6) Piltur,- 10) Rot.- 11) Kemst,- 12) Rætt.- 15) Flækingur,- Lóðrétt 2) Heill,- 3) Aria,- 4) Tindur,- 5) Reiði.- 7) Hás.- 8) Spil.- 9) Kona.- 13) Svik,- 14) Draup,- Lóðrétt 2) Aði,- 3) USA,- 4) Abóti,- 5) Valur.- 7) Lóa,- 8) Kál.- 9) Nón,- 13) Fri,- 14) 111.- Ráðning á gátu nr 1541 Lárétt I) Bátur.- 6) Blikana,-10) óó.- II) Ól,-12) Taflinu,-15) Siðla,- iO ■-P- li ii ii n tt Ég skal taka sæti hans i iN gröfinni' Tukmeka. Við hlið þér. Nei, Anaha Það mun ekki bjarga ijóð okkar. ii ii iy ■i FÖSTUDAGUR 2. nóvember 7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.20 Fréttir kl. 7.30, 8.25<og forystugr. dagbl.!, 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Anna Snorrasóttir les framhald sögunnar „Paddington kemur til hjálpar” eftir Michael Bond (2). Þingfréttir kl. 9.45. Spjallað við bændur kl. 10.05. Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög á milli liða. Morgunpopp kl. 10.25: David Bowie syngur. Frétt- ir kl. 11.00. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. Tónleikar. 12.25 Fréttir og veður fregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 Með sinu lagL Svavar Gests kynnir lög af hljóm- plötum. 14.30 Síðdegissagan: „Saga Eldeyjar-Hjalta” sftir Guð- mund G. Hagalin. Höfundur les. 15.00 Miðdegistónleikar: Tón- list eftir César Franck. Charley Olsen leikur á orgel Kóral i a-moll. Victor Aller pianóleikari og Hollywood- kvartettinn leika Kvintett i I-moll. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Popphornið 17.10 trtvarpssaga barnanna: „Mamma skilur allt” eftir Stefán Jónsson. Gisli Hall- dórsson les (3). 17.30 Framburðarkennsla i sambandi við bréfaskóla SiS og ASi. Danska. Kennari: Ágúst Sigurðsson. 17.40 Tónleikar Tilkynningar. 18.30 Frettir 18.45 Veðurfregnir. 18.55 Tilkynningar. 19.00 Veðurspá. Fréttaspegill. 19.20 Þingsjá. Oddur Oddsson sér um þáttinn. 19.45 Heilbrigðismál: Barna- lækningar, fyrsti þáttur. Gunnar Biering læknir talar um mataræði unglinga. 20.00 Tónleikar Sinfóniu- hljómsveitar tslands i há- skólabiói kvöldið áður. Stjórnandi: Okko Kamu frá Finnlandi. Einleikari á Iág- fiðlu: Walter Trampler frá Bandarikjunum. a. „Don juan”, forleikur eftir Wolf- gang Amadeus Mozart. b. Lágfiðlukonsert eftir Bela Bartók. c. Sinfónia nr. 1 i c- moll op. 68 eftir Johannes Brahms. — Jón Múli Árna- son kynnir tónleikana. 21.30 Útvarpssagan „Dverg- urinn” eftir Par Lagerkvist I þýðingu Málfriðar Einars- dóttur. Hjörtur Pálsson les (3). 22.00 Fréttir. Eyjapistill. 22.35 Draumvisur. Sveinn Magnússon og Sveinn Arna- son kynna lög úr ýmsum áttum. 23.35 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. IBIII II Föstudagur 2. nóvember 20.00 Fréttir 20.25 Veður og auglýsingar. 20.30 Maður er nefndur Sverr- ir Kristjánsson sagnfræð- ingur. Pétur Pétursson ræð- ir við hann. Kvikmyndun: Þrándur Thoroddsen. 21.25 Landshorn. Frétta- skýringaþáttur um innlend málefni. Umsjónarmaður Svala Thorlacius. 22.00 Tvisöngur í sjónvarps- sal. Hjónin Sieglinde Kahmann og Sigurður Björnsson syngja lög úr óperettum. Stjorn upptöku Tage Ammendrup. Áður á dagskrá 18. ágúst 1968. 22.20 Dagskrárlok.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.