Tíminn - 02.11.1973, Síða 19
Föstudagur 2. nóvember 1973
TÍMINN
19
Hllmsjón: Alfreð Þorsteinsson
Dauða-
dómur
DAUÐADÓMUR hefur verið
kveðinn upp yfir islenzka
landsliðinu i handknattleik.
Nú er búið að úrskurða kæru-
mál islands gegn italska
handknattleikssambandinu.
island verður að gjöra svo vel
að leika gegn itölum i HM I
handknattleik i Róm. italir
verða að borga allan
ferðakostnað islenzka liðsins
(jg einnig uppihald. Þetta er
mikið áfall fyrir islenzka liðið
þvi að nú bendir allt til þess að
Frakkar komist áfram i HM-
keppninni. Þeir leika siðasta
leik sinn i riðlinum gegn
italiu, en þá hafa islendingar
lokið keppni. Frakkar reyna
þvi allt sem þeir gcta, til að
vinna itali með sem mestum
mun og komast áfram úr riðl-
inum á markatölu.
Vals-
menn
voru
kældir
í 13
mín...
ÞEIR Björgvin Björgvinsson
og Sigurbergur Sigsteinsson
fengu að yfirgefa leikvöllinn I
2 minútur i fyrri hálfleiknum.
i siðari hálfleik var engum
Framara visað af leikvelli,
enda léku þeir þá eins og lömb
i samanburði við Valsmenn,
sem voru eins og hungraðir
úlfar.
Fram-
arar
fengu
fjög-
urra
mín.
kæl-
ingu
VALSMENN fengu að kæla sig
1 13 minútur i leiknum gegn
Fram. Fyrst var Agústi ög-
mundssyni, visað af leikvelli i
2 min. i fyrri hálfleik. Sömu-
leiðis fékk Ólafur Benedikts-
son, að kæla sig i 2 min. Ágúst
byrjaði siðan siðari hálfleik-
inn á þvi, að fá kælingu i 5
mínútur. Þá fengu þeir GIsli
Blöndal og Stefán Gunnarsson
einnig að kæla sig — þeim var
báðum visað af velli I tvær
minútur, og þótti engum það
of mikið.
STRÍÐSEXINNI KAST-
AÐ I ÖFUGA ÁTT...
— landsliðsnefnd í handknattleik valdi nær óbreytt lið gegn Frökkum
d sunnudaginn. Sigurbergur, Ágúst og Ólafur eru enn „úti í kuldanum"
i GÆR kastaði landsliðs-
nefndin í handknattleik,
stríðsexinni, en því miður í
ÖFUGA ÁTT. Landsliðs-
nefndin situr við sama hey-
garðshornið, hún valdi nær
óbreytt landslið gegn
Frökkum í Laugardalshöll-
inni. Leikmenn eins og
Sigurbergur Sigsteinsson,
Ágúst Svavarsson og Ólaf-
ur Benediktsson, eru enn
,,úti í kuldanum" þeir eru
ekki til umtals hjá lands-
liðsnefndinni. Það er sorg-
legt, en nefndin virðist vera
ánægð með siðustu lands-
leiki okkar, — landsleiki
sem hafa orðið áfall fyrir
íslenzkan handknattleik —
nú býður landsliðsnefndin
Frökkum, hina kinnina —
gjörið svo vel, þið megið slá
ef þið þorið.
Eini ljósi punkturinn er, að
Geir Hallsteinr;son og Björgvin
Björgvinsson koma aftur inn i
landsliðið, þetta eru leikmennirn-
ir, sem landsliðsnefndin treystir
bezt gegn Frökkum. Þótt þessir
snjöllu leikmenn breyti liðinu
mikið er það ekki nóg, þvi að það
eru leikmenn i liðinu, sem hafa
ekki breytzt i mörg ár. Það vekur
mikla athygli, að Hjalti Einars-
son, markvörður úr FH, hefur
verið valinn aftur i sina gömlu
stöðu. Ungu markverðirnir, sem
hafa snerpuna, eru ekki lengur
gjaldgengir. Hjalti verður þvi
stóra spurningamerkið á sunnu-
daginn, þvi að það hefur litið til
hans sést á keppnistimabilinu.
Við vitum að Hjalti var góður,
okkar bezti markvörður um ára-
raðir, hann hefur staðsetningar,
sem aðrir hafa ekki, en snerpuna
vantar hann.
Liðiö sem leikur á sunnudag-
inn, er skipað þessum leikmönn-
um (landsleikir innan i sviga):
Hjalti Einarsson FH, (69)
Gunnar Einarsson, Haukum (5)
Gunnsteinn Skúlason, Val (40)
Geir Hallsteinsson, Göpping-
en (74)
Viðar Simonarson, FH (50
Einar Magnússon, Viking (34)
Björgvin Björgvinsson, Fram (49)
Ólafur Jónsson, Val (60)
Hörður Sigmarsson, Haukum (4)
Auðunn Óskarsson, FH (29)
Axel Axelsson, Fram (22)
Agúst Ogmundsson. Val (31)
Niu af þessum leikmönnum
léku hinn sorglega leik gegn
Frökkum i Paris. Eftir leikinn
voru þeir niðurbrotnir menn og
þá skildu þeir ekki hver ástæðan
var fyrir þvi að þeir töpuðu. A
sunnudaginn rennur stund hefnd-
arinnar upp og þeir mega vita
það, að islenzkir handknattleiks-
áhugamenn gera sig ekki ánægða
með 3-4 marka sigur. ÞEIR
IIEIMTA YFlll TÍU MARKA
SIGUR. — SOS.
iýóýXv.vvX';
iilpiPÍÍ
Siie
GEIR ÁTTI
STJÖRNULEIK
MEÐ GOPP-
INGEN GEGN
BUTZBACH
Hann skoraði sjö mörk,
ótti 5 línusendingar,
sem gdfu mörk, og fiskaði
auk þess 4 vítaköst
GEIR Hallsteinsson átti
stjörnuleik með Göpp-
ingen s.l. laugardag, er
liðið lék gegn Butzbach á
heimavelli og sigraði
25:18. Skoraði Geir 7 af
mörkum Göppingen og
hafði aðeins 9 skot til
þess. Er það álit þýzku
blaðanna, sem skrifuðu
um leikinn, að þessi leik-
ur hafi verið sá bezti,
sem Geir hefur átt með
Göppingen.
Sennilega hefur Geir Hall-
steinsson aldrei verið i betri
þjálfun en einmitt nú. Hann
hefur i 6 leikjum skorað 33
mörk. Einnig er athyglisvert,
að hann er virkari varnarleik-
maður nú en áður. Hann leikur
i stöðu hægri hakvarðar og
virðist það hlutverk henta
honum vel, a.m.k. virðist hann
komast i meiri bardagaham
við það að vera virkur aðili i
vörninni.
Sem fyrr segir skoraði Geir
7 mörk i leiknum á laugardag-
inn. Ekkert þessara marka
var skorað úr vitakasti. Þá
átti Geir 5 linusendingar, sem
gáfu mörk, og fiskaði auk þess
4 vitaköst.
Geir Hallsteinsson er vænt-
anlegur til landsins i dag, en
sem kunnugt er, leikur hann
með Islenzka landsliðinu gegn
Frökkum á sunnudaginn.
Vafalaust verður hann mikill
styrkur fyrir liðið, og eflaust
biða margir spenntir eftir að
sjá Geir leika en þetta verður
fyrsti leikur hans hér heima,
eftir að hann hóf að leika með
Göppingen i Vestur-Þýzka-
landi.
!
GEIR
HALLSTEINSSON....sést hér
vera búinn að brjótast I gegnum
vörn Butzbach og skora eitt af
sjö mörkum sinum um sl. helgi.
i