Tíminn - 02.11.1973, Page 24
MERKID, SEM GLEDUR
Hittumst i haupfélaginu
g:-ði
fyrir góúan mat
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Bretar takmarka út-
flutning á olíuvörum
— enn kemur olía til Hollands
NTB-Haag — t Hollandi er ekki
taliö aft olia hætti algjörlega aft
berast frá Arabalöndunum.
Hótunin um oliubann cr I fyrsta
iagi túlkuft sem aftferft til aft ná
hærra vcrfti fyrir oliuna. Full-
trúar oliufélaganna i Kotterdam
tilkynntu i gær, aft fram til þessa
hefftu allir olfuflutningar til Ilol-
lands gengiö samkvæmt áætlun.
Útvarpið i Saudi-Arabiu til-
kynnti enn i dag, aö landið hefði
hætt öllum oliuútflutningi til Hol-
lands, en Saudi-Arabia flytur
mesta oliu þangað.
Stóru oliufélögin i V-Þýzkalandi
munu á næstunni hækka verð á
bensini og einnig á brennsluoliu.
A ráðherraráðsfundi EBE i
næstu viku mun V-Þýzkaland
hvetja til samstöðu EBE-landa
um að binda endi á oliubann
Arabalandanna. Italia er nú
næsta land sem búizt er við að
verði fyrir barðinu á banninu, þar
sem stjórnir Arabarikjanna eru
nú að athuga, hvort ttalia hafi
stutt Israel i striðinu.
Brezka stjórnin hefur ákveðið,
að frá 12. nóv. veröi minnkaður
útflutningur hráoliu og oliuvara
ýmiss konar til landa utan EBE.
Tvö mikilvægustu
segulböndin týnd
NTB—Washington — Ilvfta húsift
tilkynnti I fyrrakvöld, aft ekki
væru lil ncinar segulbandsupp-
tökur af hinum mikilvægu sam-
tölum Nixons vift John I)ean og
John Mitchell. Samtalift vift Dean
fór fram 15. aprfl 1!I7:I og kveöst
Dcan þar hafa sagt forsetanum,
hversu langt lilraunir til aft
hrcifta yfir hneykslift væru
komnar, cn vift Mitchell ræddi
forsetinn þremur dögum eftir
innbrotift f Watcrgate.
Formaður Watergate-nefndar-
innar, Sam Ervin, segist siðan i
október hafa verið fullvissaður
um, að allar niu hljóðritanirnar
væru til. Hann sagöi, aö Cox heföi
verið fullvissaöur um hið sama.
Velta nú margir fyrir sér, hvort
upptökur þessar hafi veriö eyði-
lagöar i millitiðinni.
Ýmsir hafa taliö, að þessar
upptökur geti sannað, hvort
Nixon vissi um málið eða ekki.
Það, að upptökurnar finnast ekki
nú, getur leitt til nýrra erfiöleika
fyrir Nixon og spyrja margir,
hvers vegna ekki hafi verið sagt
frá þvi fyrri, að þessi samtöl hafi
ekki verið tekin upp , en það er
nú afsökun Nixons.
Þrír IRA-leiðtogar
struku úr fangelsi
NTB—Dublin — Lögregla og
hermenn í Irska lýðveldinu leit-
uðu i gær aö þremur háttsettum
mönnum úr Irska lýðveldishern-
um (IRA), en þeir sluppu úr fang-
elsi á miðvikudaginn. Flóttinn
varö með þeim hætti, að félagar
þeirra rændu þyrlu og neyddu
flugmanninn til að lenda i fang-
elsisgarðinum og taka þremenn-
ingana um borð.
Stjórnarandstöðuflokkurinn Fi-
anna Fail hefur ásakað stjórnina
fyrir dáðleysi og var gagnrýninni
einkum beint að dómsmála- og
varnarmálaráðherranum.
Lögreglan i Dublin sagði i dag,
aö ekkert hefði komið i ljós, sem
benti til þess, hvar flóttamennirn-
ir héldu sig og þeir gætu þess
vegna verið komnir úr landi.
Að minnsta koti 10 manns
slösuðust i gær i Falls Road i
Belfast og mörg hús skemmdust,
er tvær sprengjur sprungu.
Svalbakur og Sléttbakur, hinir nýju skuttogarar Akureyringa. Myndina tók Freysteinn Bjarnason I
Klakksvfk I suraar, en þá hétu skipin reyndar Stella Karina og Stella Kristina.
LOKS KOMU TOGARARNIR
LOKS rann upp sú langþráfta
stund Akureyringa, aft þeir sæju
nýju skuttogarana slna sigla inn á
Pollinn. Svalbakur og Sléttbakur
hinir nýju komu til Akureyrar um
fjögurleytift i gær og sigldu fánum
prýddir einn hring á Pollinum,
áftur en þeir lögftust aft togara-
bryggjunni. Þar var fyrir múgur
og margmenni aö fagna skipun-
um.
Lúörasveit Akureyrar lék á
bryggjunni og menn tóku til máls.
Fyrst talaði Vilhelm Þorsteinsson
annar af forstjórum Útgeröar-
félagsins og lýsti hann skipunum,
sem eru 834 lestir og kostuöu um
170 milljónir hvort. Þá flutti Jón
G. Sólnes, forseti bæjarstjórnar
ávarp og loks Bjarni Einarsson,
bæjarstjóri ræöu. A laugardaginn
verður starfsfólki Útgerðar-
félagsins boðið i skemmtisiglingu
með nýju skipunum.
Þar sem togarar þessir eru
smíðaðir sem verksmiðjuskip
þarf að gera á þeim nokkrar
breytingar og koma fyrir aögerð-
arplássi. Óvist er, hvað þaö tekur
langan tima. — sb.
Nýr dómsmálaráðherra
og rannsóknardómari
NTB-Washington —Leon
Jaworski frá Texas/ var í
gær útnefndur rannsóknar-
dómari í Watergate-málinu
i stað Cox og William
Saxbe nýr dómsmálaráð-
herra. Báðar þessar stöður
losnuðu sem kunnugt er
nýlega vegna deilunnar um
hin frægu segulbönd
Nixons.
Bæði Jaworski og Saxbe hafa
lýst þvi yfir, að þeir ætli að
rannsaka gaumgæfilega allar
hliöar Watergate-málsins.
Jawoski segir, aðsérhafi boöizt
að verða rannsóknardómai.i i
málinu, þegar Cox var útnefndur,
en hann hafi hafnað þvi, vegna
þess að sér hafi ekki fundizt þetta
nógu frjáls staða. Nú segir hann,
að þetta hafi breytzt. Hann hefur
fengið loforð um fullt athafna-
frelsi, svo og að verða ekki
rekinn.
William Saxbe er repu-
blikanskur öldungadeildarþing-
maður og það var hann, sem á
sinum tima sagði, að ,,nú væri
forsetinn genginn af vitinu”
þegar Nixon fyrirskipaði loft-
árásirnar á Hanoi um jólin i fyrra
og hann hefur oftsinnis gagnrýnt
stjórnina harðlega.
Hlöðubruni á Blikastöðum
Klukkan 18:10 i gærkvöldi kviknaði í heyhlöðunni á Blikastöðum. Þetta var
mikill eldur, sem upp kom, og fór Slökkvilið Reykjavikur með 3 bila á vett-
vang og auk þess dælu. Hlaðan er stór, en ekki mun hafa verið mjög mikið
hey i henni. Um hálf tólf-leytið i gærkvöldi hafði slökkviliðinu langt frá þvi
tekizt aðráða niðurlögum eldsins.en gat haldið honum i skefjum með plast-
froðu, þannig að hann komst ekki i þakið. Bjóst slökkviliði við að þurfa að
vera að verki i alla nótt. —step
EGYPZKI HERINN REIDU-
BÚINN Á VESTURBAKKANUM
NTB-Kairó og Tel Aviv — Yfir-
maður friftargæzlusveita Sþi Mift-
Austurlönduin, Ensio Siilasvou,
kom til borgarinar Ismailia vift
Súcz-skurft i gær til aft atliuga
hvaft hæft væri I þeirri ásökun
tsraela, aft Egyptar hcföu rofift
vopnahléft tvisvar á miöviku-
daginn. Aft sögn tsraela hófu
Egyptar skothrift vift þjóftveginn
til Súez og svöruftu tsraelar og
felldu sex menn.
I hitt skiptið hófu Egyptarnir
skothriö á israelskar stöðvar við
Ismaliá. Talsmaður Sþ. sagði i
dag, að nú hefðu alls 45 birgða-
flutningabilar farið til þriðja hers
Egypta, sem er i herkvi i Sinai--
eyðimörkinni.
Sadat forseti hefur neitað þvi,
að allur þriðji herinn sé
umkringdur. Hann sagði á blaða-
mannafundi á miðvikudag, að
meiri hluti hans væri i rauninni á
vesturbakka Súez-skurðarins.
Stjórnmálamenn i Kairó eru
ekki sagðir bjartsýnir á skjóta
lausn deilunnar. Þeir telja, að
bardagar geti blossað upp á ný, ef
Israelar þráist við. Friðar-
viðræður, ef af verður, munu að
likindum verða haldnar i
einhvj stöðvum Sþ.
Stjórnarheimildir i Kairó,
segja, að stokkað hafi verið upp i
herliði Egypta á vesturbakka
skurðarins og muni það nú geta
rekið Israela þangað. sem þeir
voru 22. október. Sögðu heimild-
irnar. að ekkert yrði þó gert fyrr
en ijóst væri. að Israelar myndu
ekki færa sig af sjálfsdáðum.