Tíminn - 15.11.1973, Síða 3
Fimmtudagur 15. nóvember 1973.
TÍMINN
3
Vöruflutningar með strandferða
skipum aukast d ný
SAMKVÆMT upplvsingum frá
Skipaútgerð rikisins hafa vöru-
flutningatekjur strandferða-
skipanna fram til 20. okt. á þessu
ári aukizt i heild um 38,5% miðað
við sama árstima 1972, en sé
dregin frá þessu nálega 18%
hækkun flutningsgjalda snemma
á árinu 1973, sýnist koma út 17%
raunveruleg viðskiptaaukning.
Velta vöruafgreiðslunnar i
Reykjavik og flutningatekjur
Heklu og Esju benda hins vera til
27% raunverulegrar viðskipta-
aukningar, en samdráttur i flutn-
ingum Herjólfs i Vestmannaeyja-
ferðum lækkar meðaltals-aukn-
inguna.
Heildarmagn farmsendinga
með strandferðaskipum rikisins
nam á árinu 1972 40. 640 tonnum,
en tala fluttra farþega var 12, 366.
Viðkomur á höfnum voru 1954.
Allt frá 1940 voru vöruflutn-
ingar Skipaútgerðarinnar i lág-
marki , 1969 aðeins 25,708 tonn,
enda þá um mjög skertan skipa-
stól að ræða, en siðan hefir flutn-
ingsmagn farið vaxandi. Mestu
stykkjavöruflutningar strand-
ferðaskipanna áður voru 48.009
lestir 1943 og 47,679 árið 1962
Farþegaflutningur með strand-
ferðaskipum rikisins hefur auð-
vitað dregizt mjög saman við sölu
hinna tveggja farþegaskipa, Esju
og Heklu, sem voru 14-15 milna
skip og höfðu svefnrúm fyrir
samtals rúmlega 300 farþega
auk salarkynna.
HEFUR TEKIÐ Á MÓTI UM
35 ÞÚS. LÍTRUM AF BLÓÐI
Það sluppu fáir, sem komu I afmælisveizluna hjá Blóðbankanum i
gær við að gefa blóð. Hér hefur Sigurliði , kvikmyndatökumaður
sjónvarpsins verið scttur á bekkinn og er sýnilega hinn hressasti vfir
þvi. (Timamyndir Róbert)
JÚNÍ KOMINN ÚR SÖLU-
FERÐ OG VIÐGERÐ
SKUTTOGARI Bæjarútgerðar
Hafnarfjarðar, Júni, var skammt
frá Vestmannaeyjum á heimleið,
er samband var haft við Einar
Sveinsson, framkvæmdastjóra
útgerðarinnar seinni partinn i
gær. Júnf var, eins og kunnugt er,
settur i slipp i Bremerhaven að
lokinni góðri sölu þar, en það
reyndist þurfa að stilla skrúfu
skipsins og olíudælur.
Einar sagði, að þurft hefði að
stilla skrúfuna vegna þess að hún
hafi verið vitlaust tengd. Einnig
hefðu oliudælur verið stilltar og
vélar skipsins. Þýzkur verk-
fræðingur var um borð á heim-
leiðinni og vann hann að þvi að
finstilla vélarnar. Gangráður
skipsins bilaði litillega, eða sló út,
á heimleiðinni, en hann var stillt-
ur af enskum sérfræðingi, meðan
skipið var i slipp. Sagði Einar að
þessu hafi fljótlega verið kippt i
lag, en skipið stanzaði stutta
stund við Vestmannaeyjar af
þessum sökum. Væri þetta nú
komið i lag og sagðist Einar vona
að þessu bilanatimabili væri nú
lokið. —hs—
Röðull fær vínveit
ingaleyfi
Borgarráð samþykkti á fundi á
þriðjudag, að mæla ekki á móti
þvi að lögreglustjóri veitti Röðli
vinveitingaleyfi.
Undanfarin ár hafa ibúar i ná-
grenni Röðuls og Þórscafé
kvartað undan ónæði af völdum
gesta þessa samkomuhúsa. Þess
vegna var Röðli i fyrra veitt vin-
veitingaleyfi til bráðabirgða með
þvi skilyrði, að forráðamenn
veitingastaðarins gerðu ein-
hverjar þær úrbætur á fyrir-
komulagi hússins, sem leiddu til
minni ónæðis fyrir ibúa i
grenndinni. Nú hefur inngangi
verið breytt þannig, að gestir
Röðuls koma og fara um Nóatún,
en ekki Skipholtsmegin eins og
áður var, svo að ónæði á að vera
mun minna en áður var.
Kristján Benediktsson borgar-
ráðsmaður sagði i viðtali við
Timann að stefnt væri að þvi að
firra ibúðarhverfin þeirri umferð
og þvi ónæði, sem óhjákvæmi-
lega fylgdi ‘samkomuhúsum, og
veita ekki leyfi til þess að reisa
slikt hús i íbúðarhverfum fram-
vegis.
HHJ.
Blóðbankinn vid Barónsstíg 20 óra um
þessar mundir
i GÆK voru 20 ár liðin frá þvi að
Blóðbankinn við Barnónstig var
formlega opnaður. i tilefni
dagsins var blaðamönnum og
öðrum gestum boðið að koma og
fá kaffi og kökur, en i þeim hópi
voru margir úr fyrstu blóögjafa-
sveitum bankans, svo og menn
sem að jafnaði koma i bankann og
gefa blóð.
Við blóðbankann starfa nú 16
manns i heldur þröngu og
óhentugu húsnæði, en þrátt fyrir
það hefur þar verið tekið á móti
um 70 þúsund blóðskömmtum eða
um 35 þúsund litrum.
Það sem af er þessu ári hefur
verið tekið á móti um sjö þúsund
blómskömmtum þar af heíur
blóðbillinn, sem fer um Suður og
Suð-Vesturland þegar færð er
góð, tekið um 1300 blóðskammta.
Þetta samsvarar þvi, að i blóð-
bankanum og i blóðbilnum séu
teknir að meðaltali um 20 blóð-
skammtar á dag. Er það of litið
miðað við þörfina, enda vantar
ætið blóð i bankann og oft þarf að
hringja i stóra vinnustaði eða
skóla og biðja fólk um að koma og
gefa blóð.
1 gær var margt um manninn i
Blóðbankanum og notuðu margir
tækifærið til að gefa blóð, og
margir þeirra höfðu með sér
blóm til að færa starfsfólkinu i til-
efni dagsins. Var glatt á hjalla i
bankanum að þessu tilefni.
Ólafur Jensson yfirlæknir Blóð-
bankans sagði, að starfsemi
Blóðbankans væri skipt i fjórar
deildir. Skrifslofudeild, þar sem
annazt er skrásetning blóðgjafa
og blóðþega og auk ýmissa
rekstrarlegra skrifstofustarfa.
Blóðtökudeild, sem annast eins og
nafnið benti til, um blóðtökuna og
vjnnslu og rannsóknadeild, þar
sem blóðið er rannsakað og
hlutað i sundur áður en það er
notað aftur.
ólafur sagði, að það, sem stæði
Blóðbankanum fyrir
þrifum—væri húsnæðisskortur —
Við viljum eins og aðrir bankar
geta boðið starfsfólki okkar og
viðskiptamönnum upp á við-
unandi aðstöðu og þjónustu og
vonum að þess verði ekki langt aö
biða.
—klp—
Fyrsti maðurinn,sem opinherlega gaf blóð i Blóöhankann var Kári
Sigurjónsson. Hjúkrunarkonan, sem tók hlóðið var llalla Snæbjörns
dóttir, sem enn starfar við Blóðbankann. Þessi athurður gerðist þann
14. nóvember 1953, en myndin hér fyrir ofan cr tekin nákvæmlega 2(1
árum siðar.
Aðalfundur Fram-
sóknarfélags Árnessýslu
26. OKTÖBER var aöalfundur
Framsóknarfélags Árnessýslu
haldinn að Borg i Grimsnesi.
Urðu á fundinum fjörugar um-
ræður um stjórnmálin, og Agúst
Þorvaldsson alþingismaður flutti
crindi um stjórnmálaviðhorfið.
Á fundinum var samþykkt svo-
látandi tillaga:
„Aðalfundur Framsóknar-
félags Árnessýslu, haldinn að
Borg i Grimsnesi, sendir Ólafi Jó-
hannessyni forsætisráðherra
kveðju sina með þakklæti fyrir
forystu hans i landhelgismálinu
og óskar honum góðs gengis i
leiðtogastörfum fyrir þjóðina”.
Áhrff Framsóknar
d þjóðfélags-
þróunina
Ef litið er yfir þróunarsögu
islenzks þjóðfélags siðustu 60
árin er greinilegt að ekkert
pólitiskt afl hefur haft þar
meiri og jákvæðari áhrif en
Framsóknarflokkurinn. Um
þetta segir llannes Jónsson
svo i grein sinni i blaðinu 2.
þ.m.:
„Viðhorf stofnenda Fram-
sóknarf lokksins mótuðust
eðlilega af þjóðfélagsaðstæð-
um þeirra tima, en m.a. fyrir
þá forystu, sem Framsóknar-
flokkurinn licfur haft i fram-
farasóku þjóöarinnar, hefur
orðið mikil breyting á öllum
þjóðfélagsaöstæðum á íslandi
siöustu 50-60 árin.
Fyrir 50 árum var tekju,
eigna- og gæðaskipting i
landinu mjög misjöfn og órétt-
lát og verkalýðsstéttin fátæk
og vanhaldin vegna þess
þjóðfélagslega óréttlætis, sem
þá var rikjandi.
En fyrir atbeina Fram-
sóknarflokksins og ýmissa
bandainanna hans og umhóta-
hreyfinga, þ.á.m. verkalýðs
hreyfingar og samvinnu-
hreyfingar, hefur mikil fram-
sókn áttsérstaðá þessu sviði.
Gildir þetta ckki aðeins um
hin einföldustu efnahagslegu
gæði, svo scm launatekjur
l'æði, húsnæði og klæöi, heldur
líka um þjóðféiagslcga þróuð
cfnahagslcg gæði, svo sem að-
gang að mcnntun, tryggðum
hvildarlimu, orlofi, sjúkra-
lijálp i veikindum, félagslegu
öryggi o.s.frv.
Áður fyrr hyggðust hin þjóð-
lelagslegu þróuðu gæði cin-
giingu á peningayfirráðum, en
fyrir umbólaharátlu Fram-
sóknarflokksins og pólitiskra
bandamanna hans svo og
vegna áhrifa vcrkalýðs-
hreyfingar og samvinnu-
hrcyfingar, hefur samncyzla
þjóðfélagsins aukizt og
meginhluti kostnaðar við hin
þróuðu gæði (mennlun og
félagslcgt öryggi) er nú
greiddur úr sameiginlegum
sjóði og hið opinbera tryggir
öllum jafnan rétt til þeirra.”
Eignadreifingin
og breyting
stéttaskiptingar
„ Eignir dreifast lfka jafnará
ihúaljöldann en áður var.
Þannig sýndi t.d. manntalið
1960, að 70,3% íslendinga
hjuggu þá i eigin húsnæði
fjölskyldunnar, en talið er, að
nú húi um og ylir 80% is-
lendinga i eigin húsnæði fjöl-
skyldunnar. Framfarir á gæð-
um híbýlanna <-ru lika mjög
augljósar.
Samfara þessari þróun hef-
ur stéttaskiptingin í landinu
tekið miklum breytingum."
Sýnir llannes m.a. fram á
að lil verkalýðsstéttar teljist
árið 1969 42,6% einstaklinga á
islenskum vinnuaflsmarkaði,
til miðstétta 51,2% og til
gróðastéttar 6,2 % en
miðstétlin hafi vcrið i stöðug-
um vexti með aukinni tækni,
iðnvæðingu, verkmenningu og
menntun. Sfðan segir:
„Sé jafnframt tekið tillit til
cignaskiptingarinnar i
landinu, skattaframtala, þing-
lesturs fasteigna og sam-
göngutækja, svo sem starf-
semi Tryggingastofnunar
rikisins, sést greinilega að
tala má um millistéttina sem
meginþorra þjóðarinnar, og
að algjörlega úrelt er að tala
um umkomulausa öreigastétt
á islandi nú. Þjóðfélagsað-
stæður eru þvi allt aðrar nú en
þær voru, þegar framsóknar-
flokkurinn var stofnaður.
Flokkur, sem byggður er upp
á millistéttarviðhorfum, ætti
þvi að eiga langtum meiri
hljómgrunn með þjóðinni nú
Framhald á bls. 14