Tíminn - 16.12.1973, Blaðsíða 9

Tíminn - 16.12.1973, Blaðsíða 9
• •.ifnoí.i ;. | •mnchíii'ri/ Sunnudagur l(i. desember 15)7:5. f \* IM i l1 TÍMINN 9 Mörgum til skemmtunar og umhugsunar Þórður Halldórsson frá Dagverðará: Mannleg náttúra undir jökli Loftur Guðmundsson færði i letur Ragnar Kjartansson myndskreytti Bókaútgáfan örn og örlygur Verð: Kr. 1243.00 t þessari bók er blandað saman minningum og lifsskoð- un Þórðar frá Dagverðará og fer vel á því, enda er Þórður æfður sögumaður og Loftur Guðmundsson þrautþjálfaður rithöfundur. Rétt er að geta þess, að teikningar Ragnars Kjartanssonar eru bókarprýði. Þórður mun kannast við það, að hann sé öðrum þræði frumstætt náttúrubarn, — fóstursonur jök- uls og ósnortinnar, islenzkrar náttúru. Hann leggur áherzlu á það, að fólkið undir Jökli hafi notið þess kynngimagns, sem jökullinn og umhverfi hans gef- ur frá sér, náveran ein magnaði fólkið og stælti. Hér skal enginn dómur lagður á heimspeki Þórðar Halldórs- sonar eða fullyrt um sannleiks- gildi i sögum hans. Sumar eru ómengaðar þjóðsögur — og þjóðsagnabækur falla mörgum vel. Af mér er það að segja, að betur aðhyllist ég skýringar hans á endurteknum slysum á vegaköflum en sögurnar um draugahirðina á Fróðárheiði. Nýstárlegast af þeim sögum finnst mér sú kenning, að meira sésótt að þeim, sem haf áfengi i fórum sinum og þeim jafnvel sleppt ef þeir losa sig við þau drykkjarföng. Það skal tekið fram, að ekki trúi ég þvi að kynhvatir fólks hafi yfirleitt verið sterkari og meira eftir þeim látið undir Jökli en annarsstaðar. Fullyrð- ingar sögumanns að karl og kona hafi ekkert tækifæri látið ónotað væru þau ein i hvarfi við bæi, getur auðvitað ekki verið annað en hugarburður hans og vekuroneitanlega þann grun, aö viöar sé fullyrt, þó vissuna skorti. Og þó að eðlisávisun og hugboðdofni nú þegar fólk fjar- lægist uppruna sinn og ósnortna náttúru landsins, virðist kyn- hvötin haldast við. Það mun og mála sannast, að i flestum byggðum hafi i. '.komið upp ýmsar frægar sögur um kvennafar. Þórður hefði trúlega getað notazt við söguna af bóndanum, sem flutti kven- mann yfir ósinn og gerði henni barn i leiðinni, eða farmannin- um, sem náði stúlkunni niður i skutinn til sin aftur fyrir þorsk- hausabúlkann, svo að ekki sá til þeirra framan úr bátnum, þeg- ar hann var að sigla heim úr verinu. Hann lét tærnar hafa stjórn á stýrissveifinni meðan hendurnar tiöfðu öðru að sinnu. Og trúlega hefði ekki þótt spilla þessari bók að taka upp i hana ávarp það, sem frú nokkur átti að hafa haft við fylgdarmann sinn : „Falieg er lautin. Engin á ég börnin. Þú ræður hvað þú gerir. Hér leggst ég niður". Eg held að fólkið undir Jökli hafi verið mannlegt, — nánast eins og annað fólk. Þórður segir nokkuð frá ref- um og refaveiðum og er það fróðlegt, jafnvel þó á það væri litiö að einhverju leyti sem al- mennar veiðisögur. En ætli þeir séu ekki nokkuð margir, sem hafa orðið vitni að lygilegum at- burðum? Lifsreynsla manna ætti að kenna þeim að fara gæti- lega i það að þræta og fortaka. Merkasta frásögnin i sögu Þórðar þykir mér vera sú, er hann beið björgunar bundinn við siglutopp á sokknum báti úti fyrir höfninni i Olafsvik. Þar var hann aðfram kominn og barst i kaf og missti meðvitund, þegar verið var að tosa honum frá mastrinu. Þvi lýsir hann svo: „Veit ég þvi ekki hvað gerðist eða hvernig, en einhvern veginn hefur stjórafærið, sem ég batt mig með smeygzt upp af siglu- toppnum við átakið. Sjálfur hef ég ekki getað leyst mig. Og allt I einu er ég kominn, aö mér þykir, um borð i „Fróða”. Eg stend á þilfarinu, er að hugsa um að fara fram i lúkar. Það er blæjalogn og blitt veður og svo bjart að ég sé vel i kring- um mig. Verður mér þá litið til mannanna, sem stóðu úti við borðstokkinn, og sé að þeir voru að innbyrða einhverja gula flygsu. t sömu svifum er eins og togað i mig, ég hætti við að fara fram i lúkarinn og eftir það man ég ekki til min — ekki fyrr en ég raknaði við um borð i bátnum". Þessari lifsreynslu segist Þórður ekki vilja hafa misst af: „Mér finnst að fyrir hana hafi ég ekki einungis fengið dýrmæta vitneskju um dauð- ann, heldur og um lifið sjálft. Eftir þetta er það trú min, að dauðinn sjálfur, viðskilnaður- inn, sé i rauninni, þjáninga- laust, það sé einungis óttinn við hann, sem veldur þjáningunum. Og eftir þetta hef ég litið lifið sjálft, lifsbaráttuna og tilveruna öðrum augum". F'yrr um nóttina, þar sem hann beið bundinn og dofinn segist hann hafa virt fyrir sér „lif mannsins i öllu sinu um- komuleysi og nekt, — tilgangs- lausan metnaðinn, miskunnar- lausa baráttuna um einskis- verðustu hluti, valdastreituna og ágirndina, tildrið og hégóm- ann, þar sem allir sækjast eftir þvi að bera af öðrum i þvi, sem ekkert er og ckkert gildi hefur og láta fyrir það af óskiljanleg- um feginleik og örlæti allan þann þroska, sem manninum er ætlað að ná, og þau verðmæti, sem hann er l'æddur til að höndla og ávaxta”. Hér verður ekki frekar vitnað til þessarar bókar. En af þvi, sem þegar er sagt, ætti það að sjást, að hún gæti mörgum verið bæði til skemmtunar og umhugsunar. II. Kr. Happdrætti Framsóknarflokksins. t happdrætti Framsóknarflokksins eru 50 vinningar að þessu sinni og heildarverðmæti þeirra 1.1 milljón krónur. Þetta eru allt hinir eigulegustu munir, t.d. húsvagn á 258 þúsund, stórt mál- verk eftir Sverri Haraldsson á 135 þúsund, húsgögn frá 3K fyrir 130 þúsund og bátur frá Sportval á 130 þúsund krónur. Þá eru einnig margir smærri vinningar mjög eigulegir i happdrættinu þ.á.m. 10 málverk eftir Mattheu Jónsdóttur, stereo-útvarps og plötuspilari, sjónvarpstæki o.fl. frá Dráttarvélum h.f., fleiri hús- gagnavinningar auk annara góðra muna. Útgefnir miðar eru hinsvegar aðeins 35 þúsund, eða helmingi færri en áður og hefur þeim að mestu verið skipt niður til trúnaðarmanna flokksins og annarra viðskiptamanna um land allt. Happdrættisskrifstofan i Reykjavik hefur þvi færri miöa en áður fyrir lausasöluna. Framsóknarmenn og aðrir, sem ekki hafa fengið miða heimsenda aö þessu sinni, ættu þvi að panta þá næstu daga. Tekið er á móti miðapöntunum á skrifstofu happdrættisins, Hringbraut 30, simi: 24483 og á Afgreiðslu Timans, Aðalstræti 7, simi: 26500. Einnig hjá umboðs- og trúnaðarmönnum happ- drættisins úti á landi. KULDAMPER Jlhsalon ENN EIN JÓLABÓK FRÁ HILMI ENN EIN JÓLABóK FRÁ HILMI HILMISBÓK ER VÖNDUD BÓK Fyrirjólin 1 frá Gráfeldi M. Loóskinnsfatnaður Loðskinnsfatnaður LoðskinnsfatnaÓur Laugavegi 3 4.hæð sími 26540 A GRAFELDUR HF.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.