Tíminn - 10.01.1974, Blaðsíða 1
fóðurvörur
ÞEKKTAR
UM
LAND
ALLT
7. tölublað — Fimmtudagur 10. janúar — 58. árgangur
WOTEL mLÐOfff
SUNDLAUGIN
er eitt af mörgu, sem ,,Hótel Loftleiöir"
hefur til slns ágætis og umfram önnur
hótel hérlendis. En þaö býöur líka afnot
af gufubaðstofu auk snyrti-, hárgreiöslu
og rakarastofu.
VISIÐ VINUM A HOTEL
LOFTLEIDIR. I
Stærstur straumur í dag:
Veðurspóin óhagstæð Þorlóks-
höfn, Eyrarbakka og Stokkseyri
— hætt við að sjór gangi hótt ef hvessir með kvöldinu
— ÞAÐ er ekki annað að gera en
bíða og sjá, hverju fram vindur
um veðurlagið, var svarið, sem
Timanum var veitt i gær I sjó-
þorpunum, þar sem hættast er
við, að sjór gangi á land um há-
flæði þessi dægur, ef storhir verð-
ur af hafi og loftþrýstingur lágur.
t sumum þeirra geta bryggjur
hæglega farið á bólakaf, ef þeir
þættir, sem mestu orka um flóð-
hæð, leggjast á eitt, og bátum og
mannvirkjum orðið hætt.
Jónas Jakobsson veðurfræðing-
ur sagði okkur i gær, að loftþrýst-
ingur væri um 970 millibör, og
þýddi það, að sjór gengi þrjátiu
sentimetrum hærra en gert
myndi ráð fyrir á flóðtöflum. Á
hinn bóginn væri liklegt, að loft-
þrýstingur hækkaði eitthvað, og
yrði þá flóðhæð minni, er þvi
svarar. Hann kvað gert ráð fyrir
sunnan- og suðvestankalda eða
stinningskalda fyrst i stað, en
þegar liði á fimmtudaginn, væri
þvi spáð, að hvessti af austri með
roki á miðum.
Hvassviðri af þeirri átt yrði
viðsjárverðast i Þorlákshöfn á
kvöldflóðinu i dag.
— I Þorlákshöfn er nú hæg
sunnan — eða suðaustanátt, sagði
Benedikt Thorarensen, fréttarit-
ari Timans þar i gær, en það er
mjög viðsjárverð átt hér, þegar
svona stendur á, einkum ef vind-
ur eykst til muna. A kvöldflóðinu
á þriðjudaginn munaði aðeins
rúmu feti, að sjór næði upp á
sjálfar bryggjurnar. Stærstur
straumur er þó ekki fyrr en á
morgun, fimmtudag. Sjór getur
hæglega gengið á land, þvi að hér
er sums staðar svo lágt bak við
kambana, að sjávarflöturinn er
hærri, þegar hátt er i.
Mest hætta steðjar þó að bátun-
um i höfninni, ef ólátaveður gerir
i stórstrauminn, þvi að þeir gætu
hreinlega kastazt upp á bryggjur,
ef illa tækist til. Bót er þó i máli,
að hér verða ekki nema sex til
átta bátar, i stað þess að stundum
eru þeir þrjátiu til fjörutiu, og
auðvitað verða menn i þeim til
taks, ef skjótt þarf til að taka að
koma þeim út.
Flóðtaflan
i undirbúningi
— Við höfum ekki flóðtöflu fyrir
Þorlákshöfn, sagði Gestur A-
mundason vigtarmaður, er við
snerum okkur til hans, en mæl-
Frh. á bls. 15
Þegar þessi mynd var tekin, lágu margir bátar við bryggju í Þorlákshöfn. Nú eru þar aðeins 6-8 bátar.
Þaö kemur sér vel, ef sjó fer aö stæra á stórstraumnum i dag og skjótt þarf að bregöa viö, bátunum til
bjargar.
Vöruþurrð
á ísafirði
GS-tsafirði — Ekkert flutn-
ingaskip hefur komið til ísa-
fjarðar siðan 20. desember og
er ekki von á skipi fyrr en á
föstudag, en þá veröa liðnir 22
dagar frá siðustu skipakomu
hingað. Af þessu hefur leitt
þurrð á ýmsum vörum hér
vestra. Þannig er ísafjöröur
nú kartöflulaus og allir gos-
drykkir eru uppseldir. Hitt er
þó sýnu alvarlegra, aö ýmsar
mikilvægar útgeröarvörur
biða i Reykjavik flutnings
vestur, og horfir til vandræða
vegna þess.
Vestfirðingar eru aö vonum
mjög óánægðir meö það
ófremdarástand, sem rikir i
þessum efnum. Sjaldan liða
færri en sautján dagar á milli
skipsferða hingað, en nú
keyrir um þverbak.
Svo er að sjá sem ekki stoði
að kvarta yfir þessu. A.m.k.
hefur ferðum ekki verið
fjölgað, og sjá þó allir að hin
aukna togaraútgerð á
Vestfjörðum kallar á fleiri
strandferðir, ef vel á aö vera.
Talsvert magn af loðnu
en nokkuð dreift
SI.ÆMT vinnuveöur var i fyrri-
nótt á þvi svæöi, sem leiðangurs-
menn á hafrannsóknaskipinu
Arna Friðrikssyni eru viö loönu-
rannsóknir, þ.e. um 50 sjómilur
noröur af I.anganesi. Ekki
reyndist unnt aö kasta vörpunni
nema cinu sinni til að taka sýni,
en að sögn Hjálmars Vilhjálms-
sonar, leiöangursstjóra á Arna,
virðist vera töíuvert mikið magn
af loönu á svæöinu, sem leitað
hefur veriö á. Ilún er þó heldur
dreifð, en nokkrar minni torfur
hafa fundi/.t.
— Það er nú erfitt fyrir mig að
slá þvi föstu, hvort þetta kvikindi
sé veiðanlegt i troll, sagði Hjálm-
ar i viðtali við blaðiö i gær, —
reynslan verður að skera úr um
það. Litil von er til þess, að hægt
sé að veiða loðnuna i nót að svo
komnu máli, þó ekki sé hægt að
segja að það sé útilokað. Það má
búast við þvi, að þeir sem eru
með troll, fari að ieggja af stað
hvað úr hverju, sagði Hjálmar.
Svæði það, sem leitað hefur
verið á, er um 50 m ilna langt og 5-
10 milna breitt 00 milur norður af
Langanesi og vestur á móts við
Rauðunúpa. Hlutfall ókynþroska
loðnu var heldur minna i seinna
sýninu, sem tekið var i fyrra-
kvöld, áður en breldi, eða um 1/4
en var 1/3 i fyrsta sýnishorninu.
lljáimar sagði það ekkert
óeðlilegt, þótt eilthvert magn af
ókynþroska loðnu væri i göng-
unni, þar sem búizt væri við mjög
mikilli loðnu á næstu vertið, þ.e.
árið 1975.
Hann sagði ennfremur, að þeir
hefðu litið gert að þvi ennþá, aö
liggja yfir torfu, til að athuga
hraða göngunnar og stefnu, en
Frh. á bls. 15
ENDANLEG AKVORÐUN UM HAFNAR-
FRAMKVÆAADIRNAR í ÞORLÁKSHÖFN
Nýja höfnin verður lokuð báðum megin
DANSKT verkfræðifyrirtæki
hefur að undanförnu unniö að
hönnun væntanlegra hafnarfram-
kvæmda i Þorlákshöfn til undir-
búnings verkútboði, og var i gær
endanlega valið á milli þeirra
þriggja tillagna, sem hag-
stæðastar voru taldar.
Eins og kunnugt er fékkst einn
milljarður króna frá Alþjóða-
bankanum eftir gosið i Vest-
mannaeyjum til hafnarbóta á
suðurströnd landsins. Var
ákveðið, að þrjú hundruð millj-
ónir króna af þessu fé rynnu til
hafnarframkvæmda i Þorláks-
höfn, gegn jafnmiklu framlagi
innlendu.
Tillaga, sem merkt var tölunni
sextán, er heimamönnum i
Þorlákshöfn þótti álitlegust, gerði
ráð fyrir höfn, lokaðri á báða
vegu. Kostnaður við hana er mjög
nálægt þvi, er ákveðið hafði verið
að verja til hafnarframkvæmd-
anna i Þorlákshöfn — sem næst
610 milljónir króna. Sá galli var
þó á þessari tillögu, að nauð-
synlegt var að hækka fyrir-
hugaðan varnargarð um þrjá
metra frá þvi, sem upphaflega
var gert ráð, og hefur það eðlilega
nokkurn viðbótarkostnað i för
méð sér, þótt ekki muni þar miklu
i hlutfalli við heildarkostnað.
Það varð þessi tillaga, sem
varð fyrir valinu i gær, með þeim
endurbótum á hæð og styrkleika
varnargarðsins, er getið var.
Timanum tökst ekki i gær að ná
tali af Brynjólfi Ingólfssyni, ráöu-
neytisstjóra, sem er formaður
byggingarnefndar sunnlenzkra
hafna, en formaður hafnar-
nefndar i Þorlákshöfn, Benedikt
Thorarensen, sagði við blaðið i
gærkvöldi, að þessi ákvörðun
myndi vekja ánægju eystra,
enda væri hún i samræmi við ein-
dregnar óskir manna þar.
—JHÚ
Kohoutek
sást í gær
UM SEX-LEYTIÐ i gærkvöldi
mátti greina þá margumtöluöu
halastjörnu Kohoutek berum
augum héöan úr Reykjavik, og
allsæmilega með venjulegum
handsjónauka. Var hún um það
leyti i 7 gráðu hæð á suðvestur-
himninum, rétt fyrir ofan skýja-
bakka og hvarf skömmu siðar
bak við hann.
Að sögn Þorsteins Sæmunds-
sonar stjarnfræðings er Kohoutek
nú að fjarlægjast sólina. Með
hverjum deginum færist hún
jafnframt lengra til austurs og
verður þvi smám saman auð-
veldara að sjá hana næstu daga.
Sagði Þorsteinn, að hún ætti að
sjást allvel berum augum, ef
bjart yrði. Miðað viðstöðu hennar
i gærkvöldi, verður hún i kvöld
svolitið ofar og til vinstri á suð-
vesturhimninum.
Háskólinn ræður yfir sæmi-
legum sjónauka, ,,en það er
kannski varla hægt að kalla hann
rannsóknakiki”, sagði Þorsteinn.
,,Hún er ekki sérlega glæsileg ,
að mér finnst, en sést vel. Hún
mun sjást betur á morgun, af þvi
hún verður þá á dimmari himni.
Hún verður eftirtektarverð, en
ekki eins glæsileg og sumar
spárnar hljóðuðu upp á i fyrra.
Hún er miklu daufari en spáð var.
Eins og halinn sást nú i ljósa
Frh. á bls. 15