Tíminn - 10.01.1974, Blaðsíða 16
16
TÍMINN
Fimmtudagur 10. janúar 1974
,Það verður enginn
ieikur að leika í
2. deildinni'....
R E Y N I R K A R L S -
SON....þjálfari Breiöabliks.
— segir Guðni Stefánsson, formaður knattspyrnudeildar
Breiðabliks. Reynir Karlsson með Breiðabliksliðið í sumar
„Vanefnd lof-
orð ástæðan"
Theódór
þjálfar
Fylki
Theódór Guömundsson hefur
veriö rúöinn þjáifari 3. deildar
liös Fylkis. Theódór hefur get-
iö sér gott orö sein knatt-
spyrnuþjálfari. Hann náöi
góöum árangri meö Þrótt á
Neskaupstað á slnum tlma, og
á slöasta keppnistlmabili kom
hann Vlkingi upp I 1. deild.
Mikill hugur er nú I Fylkis-
mönnum, og þeir eru ákveðnir
I aö tryggja sér 2. deiidar sæti
I sumar. Arbæjarliöiö náöi
injög góöum árangri I 3. deild
sl. keppnistimabil, og tapaöi
aöeins leiknum viö tsfiröinga,
iúrslituin um 2. deildar sætiö.
REYNIR KARLSSON
hefur verið ráðinn þjálf-
ari hjá 2. deildar liði
Breiðabliks i knatt-
spyrnu. Reynir er ekki
óþekktur sem knatt-
spyrnuþjálfari, hann
hefurþjálfað hjá Fram,
og hann var með Breiða-
bliksliðið, þegar það
tryggði sér 1. deildar
sæti 1969. Reynir þjálf-
aði Isafjarðarliðið um
tíma sl. keppnistímabil,
en eins og menn muna,
þá unnu Isfirðingar sig
upp úr 3. deild sl. sumar
og leika þvi i 2. deild i
sumar.
— Við þekkjum Reyni og er-
um ánægöir meö að hann hef-
ur tekið við Breiðabliksliðinu,
sagði Guðni Stefánsson, for-
maður knattspyrnudeildar
Breiðabliks, þegar við höfðum
samband við hann i gær. Leik-
mennirnir hjá okkur eru
komnir vel i gang, og andinn
er góður hjá þeim. Þeir eru
ákveönir i að gera sitt bezta til
að vinna aftur 1. deildar sætið,
sem tapaöist á siðasta keppn-
istimabili. Það verður enginn
leikur aö leika i 2. deildinni,
sagði Guðni að lokum — SOS.
— segir Helgi Helgason, bakvörðurinn
snjalli frá Kópavogi, sem hefur nú
gengið í raðir Víkinga
Astæöan fyrir þvi, aö ég yfir-
gef Breiöablik er aö ég er
mjög óánægður meö stjórn
knattspyrnudeildarinnar,
hún hefur ekki staöiö viö þaö,
sem hún hefur lofaö I vallar-
málum I Kópavogi. Helgi
segist ekki hafa séö eftir þvi,
aö hafa gengiö yfir I Viking.
Hann valdi Vlking, vegna
þess aö hann þekkir vel
marga af leikmönnum liös-
ins.
Helgi byrjaði að leika meö
meistaraflokki Breiðabliks
1968 og hann hefur siðan ver-
ið fastur leikmaður i liðinu.
Helgi hefur skipað sér á bekk
með beztu bakvöröum lands-
ins, en hann vakti fyrst sér-
staka athygli 1972 i Islands-
mótinu i knattspyrnu. En þá
þótti hann afar marksækinn
bakvöröur og baráttuglaður.
Það er ekki að efa, að Helgi
HELGI HELGASON
,...á feröinni meö knöttinn.
,,fcG hef mætt á eina æfingu
hjá Viking og mér Hkaði þar
mjög vel”.. .sagöi Helgi
Helgason, bakvöröurinn
snjalli úr Kópavogi, en hann
hefur nú gengiö I raöir Vik-
inga og mun leika meö félag-
inu næsta keppnistfmabil.
mun falla vel inn i hið unga
og efnilega lið Vikings. —
SOS.
Reykjavíkur-
meistarar...
,Ákveðnir
í að fá
erlendan
þjálfara'
— segir Gunnlaugur Magnússon,
formaður knattspyrnudeildar FH
— Viö erum ákveðnir i aö fá erlendan knattspyrnu-
þjálfara, svo framarlega að við getum, sagði Gunn-
laugur Magnússon, formaður knattspyrnudeildar
FH, þegar við höfðum samband við hann. Það er verið
að leita eftir skozkum þjálfara, og sjá menn frá
Glasgow Rangers um það fyrir okkur. Upphaflega
höfðum við hug á að fá enskan þjálfara, en þegar við
fórum að kanna málið, þá réðum viðekki við það.
Leikmenn 2. deildar liðs FH eru byrjaðir að æfa úti undir stjórn
Alberts Eymundssonar, en hann var einn af þjálfurum unglinga-
landsliðsins i fyrra. Albert mun sjá um FH-liðið á meðan það er ekki
búið að ráða þjálfara.
SOS
REYKJAVÍKURMEISTARAR VALS... I innanhússknattspyrnu 4.
flokks: Standandi frá vinstri: Brynjar Haröarson, Siguröur
Erlingsson, Snorri Ægisson, Helgi Sigurösson og Helgi Loftsson,
þjálfari. Fremri röö: Ililmar Þ. Tryggvason, Hilmar Haröarson,
Brynjar Nielsson fyrirliöi og Jens Gunnar Ormslev. (Timamynd
Róbert)
ÞÖRSTEINN
ÁFRAM MEÐ
HAUKALIÐIÐ
— Við höfum leitað til Þorsteins Friðþjófssonar og
beðið hann að vera með Haukaliðið aftur þetta
keppnistímabil, sagði örn Sigurðsson, formaður
knattspyrnudeildar Hauka. Strákarnir voru mjög
ánægðir með Þorstein sl. keppnistimabil og vilja fá
hann aftur.
Þorsteinn hefur ekki enn gefið Haukum ákveðið svar, en allt
bendir til að hann verði með liðið áfram. Leikmenn Hauka eru nú
farnir að taka fram skóna, og þeir byrja að æfa nú i janúar. Haukar
lentu i sjötta sæti i 2. deild sl. keppnistimabil.
)