Tíminn - 10.01.1974, Blaðsíða 20
g3ðí
fyrirgóðan mat
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
MeOal þess, sem skemmdist er sjór kom inn i kjaliara húsa I miö-
bænum voru gamlir árgangar af Timanum, sem geymdir voru I
kjallara hússins Aöalstræti 7, en sumt af þessu átti eftir aö binda inn.
Myndin til hliöar er tekin I kjallara viö Tcmplarasund, og á veggnum
fyrir aftan manninn má sjá hvaö sjórinn hefur náö hátt upp á veggina.
(Timamyndir: Gunnar).
Sjór flæddi inn
í kjallara
í Reykjavík
Klp—Reykjavik —
Margir kjallarar í
gamla miðbænum i
Reykjavik fylltust af sjó
i flóðinu i gær og fyrri-
nótt.
Sumstaðar urðu allverulegar
skemmdir á vörum og ýmislegu
dóti, sem geymt var i þessum
kjöllurum, aöallega, þar sem nýir
eigendur höfðu flutzt inn og ekki
vitað um þessa hættu.
Það er alvanalegt þegar
háflæði er, aö sjór komi inn i
kjallara i miðbænum, ogerþaö á
svæðinu allt frá Tryggvagötu og
út I Aðalstræti og jafnvel vlöa I
elztu húsunum á þessu svæði.
t gærdag mátti sjá dælur í gangi
við sum þessara húsa og i öörum
var unnið að þvi að koma út vör-
um og öðru, sem skemmzt hafði.
Ekki er okkur kunnugt um inn i
hve marga kjallara flæddi, né
hvað tjónið hefur orðið mikið að
þessu sinni.
LAUSNARGJALDS
KRAFIZT FYRIR
NIEDERMAYER
NTB—Belfast— Maður, sem gat
ekki nafns sins, hringdi i gær til
Grundig-umboðsins og krafðist
lausnargjalds fyrir hinn v-þýzka
framkvæmdastjóra Grundig,
Thomas Niedermayer, sem rænt
var i Belfast fyrir tveimur vikum.
All góðar heimildir segjá,
aö maðurinn hafi krafizt 250 þús-
und punda, u.þ.b. 42 milljóna isl.
fyrir Niedermayer, en þaö hefur
ekki veriö staðfest.
Niedermayer var rænt frá
heimili sinu og hefur lögregla
haldið uppi itarlegri leit, en án
árangurs.
1 fyrrinótt var kveikt i þremur
Ibúðarhúsum i Belfast og tvö litil
hótel sprengd i loft upp.
BREZKA STJÓRNIN SJÁLF
VÖLD AÐ ÁSTANDINU
— en ekki verkamenn, segir Wilson
NTB—London — Edward lleath,
forsætisráðherra Breta, sagöi i
þinginu I gær, aö þeir 20 þúsund
kolanámamenn, sem nú vilja
hærri laun, muni eyöileggja land-
iö, ef þeir haldi áfrani að þvinga
fram kröfur sinar. Hann sagöi
jafnframt, aö stjórnin ætlaöi alls
ekki aö koma til móts við þá.
Leiðtogi stjórnarandstöðunnar,
Harold Wilson, mótmælti Heath
harðlega og sagði að stefna
stjórnarinnar i málinu væri sú, að
kenna námaverkamönnum um
allt, sem aflaga færi þessa dag-
ana og reyna að beina almenn-
ingsálitinu gegn þeim.
— Stefna stjórnarinnar hefur
ekki beinzt i þá átt, að reyna að
komast að samningum og nú situr
hún föst i þvi feni, sem hún hefur
sjálf álpast út i, sagði Wilson.
Neðri deild brezka þingsins var
kölluð á aukafund i gær til að
ræða ástandið i landinu, sem
Heath kvað hið alvarlegasta
siðan á striðsárunum.
Heath sagði i ræðu sinni, að
stjórnin mundi ekki vikja frá ætl-
an sinni að halda i verðbólguna og
ef komið yrði til móts við kröfur
kolanámamannanna. væri það að
bregðast trausti milljóna annarra
verkamanna, sem stæðu með
stjórninni og heimtuðu ekki hærri
laun.
Friðardúfan
Kissinger
enn á ferð
með tillögur um aðskilnað Súez-herjanna
NTB—San Clemente og Kairó —
Kissinger, utanrikisráðherra
Bandarikjanna, mun heimsækja
Israel og Egyptaland nú i viku-
lokin til að ræða tillögu Israels-
manna um aðskilnað herja land-
anna við Súez-skurðinn. Það var
talsmaður Nixons forseta, sem
tilkvnnti þetta i gær.
Kissinger og nokkrir háttsettir
embættismenn munu fljúga frá
Washington i nótt. Nixon hefur
tilkynnt Sovétrikjunum, Wald-
heim og bandalagsrikjum i
Evrópu um ferðalag þetta.
Kissinger og Sadat Egypta-
landsforseti munu hittast i bæn-
um Aswan og ræddi Sadat við
Fahmy, utanrikisráðherra sinn i
gær um undirbúning fundarins.
Þetta er i þriðja sinn á þremur
mánuðum, sem Kissinger kemur
til Egyptalands og er tilgangur-
inn nú að reyna að flýta viðræð-
unum i Genf, þannig að hægt
verði að fara að snúa sér að
mikilvægum stjórnmálalegum
málum.
Hershöfðingjar Egypta og
Israelsmanna áttu með sér
klukkustundar fund i Genf i gær
og verður sá næsti á þriðjudag-
inn, þar sem þeir vilja biða og sjá
til á meðan, hvað Kissinger hefur
að segja.
Israelskar heimildir i Genf
segja, að tsraelsmenn séu fúsir til
að kalla heri sina til baka að stað
30 km austan Súezskurðar, ef
Egyptar fjarlægi skriðdreka-
sveitir sinar af austurbakkanum
og opni skurðinn fyrir umferð
skipa. Egyptar krefjast þess hins
vegar, að Israelsmenn fari til
fjallaskarðanna og að þeirra eig-
in skriödrekar fái að vera áfram
á austurbakkanum.
Bandariski ambassadorinn i
Kairó ræddi i fyi;radag við
Fahmy, skömmu eftir að hann
kom frá Washington. Segja
áreiöanlegar heimildir, að
bandariska stjórnin sé að hluta
sammála tillögum Israelsmanna,
en vilji þó gera einhverjar
breytingar, ef þær mættu verða
til að Egyptar samþykktu tillög-
urnar.
Aukinn vörður
um alla flugvelli
NTB—London— Hermenn og lög-
regla halda enn vörð um flesta
stæistu flugvelli V-Evrópu, vegna
hættunnar á þvi, að palestinskir
skæruliðar reyni að skjóta niður
farþegaflugvélar með sovézk-
smiðuðum SAM-7 flugskeytum.
Heimildir brezku leyniþjónust-
unnar segja, að alls hafi niu slik-
um eldflaugum verið smyglað til
V-Evrópu undanfarið og sé ætlun-
in að skjóta þar niður farþega-
flugvélar.
Talið er liklegast, að hryðju-
verkamennirnir muni láta til
skarar skriða i löndum, þar sem
félagar þeirra sitja i fangelsum
eftir misheppnuð flugrán, eða i
löndum, sem standa meö tsrael.
Samkvæmt athugunum, sem
UPI hefur gert, er það aðeins við
Helsingfors-flugvöll, sem engar
varúðarráðstafanir hafa verið
Fjórar
sprengjur
í flugvél
NTB-Paris — Fjórar bréfa-
sprengjur fundust um borð i
flugvél frá TWA i gær, eftir
að vélin lenti i Paris. Voru
sprengjurnar strax geröar
óvirkar.
Flugvélin var aö koma frá
Heathrow i London og fengu
starfsmenn þar tilkynningu
um sprengjurnar, þegar
vélin var lögð af stað þaðan.
Þegar var tilkynnt til
Orly-flugvallar og þar voru
gerðar varúðarráðstafanir.
Til London kom vélin frá Los
Angeles og San Fransisco.
gerðar. Aukinn vörður er við alla
stóra velli i V-Evrópu og á nokkr-
um stöðum eru skriðdrekasveitir
tiltækar. Mestar eru ráðstafan-
irnar við Heathrow.
Timann vantar fólk til
blaðburðar i eftirtalin
hverfi:
Hdteigsvegur
AAelar
Löndin
Laugarnesvegur
Efstasund
Skipasund
Skerjaf jörður
Bragagata
SÍAAI 1-23-23