Tíminn - 11.05.1974, Side 4
TÍMINN
Laugardagur 11. mai 1974.
Íslendíngar mestar fiskætur?
1 bandarisku blaði birtist nýlega
skýrsla um kjöt- og fiskát
ýmissa þjóða, og sagði þar. að
Bandarikjamenn borði að
meðaltali 167 pund af kjöti á ári,
og eru þeir efstir á blaði yfir
kjötæturnar. En þegar talað er
um þjóðir, sem nærist mikið á
fiski, þá erum við Islendingar
taldir fyrstir með 86 punda fisk-
neyzlu á mann á ári, Japanir
eru næstir með 70 pund, og siðan
koma ýmsar Evrópuþjóðir, t.d.
Noregur, Danmörk og Bret-
land, en þá er tekið fram, að
þar sé sildin sums staðar aðal-
fiskmetið. f Bandarikjunum
hefur færst i vöxt, að fólk borði
fisk, en þó neyta þeir ekki enn
nema 11 pund af fiskmeti á
mann á ári, og um 35% af fiski,
sem neytt er i Bandazrikjunum,
er innfluttur frá öðrum löndum.
Aðalsökudólgurinn gengur frjóls
— en sendimaðurinn fer í fangelsi
Donald Segretti heitir ungur
bandariskur lögfræðingur, sem
nýlega fékk sex mánaða
fangelsisdóm fyrir þátttöku i
ýmsum glæpsamlegum
hrekkjabrögðum, sem
stuðningsmenn Nixons i for-
setakosningunum siðustu höfðu
i frammi við andstæðinga hans.
Var þetta hið svivirðilegasta
athæfi á allan hátt, og hafði ekki
tiðkazt annað eins i kosningum
fyrr. Segretti þessi tók á
einhvern hátt þátt i þessum
óknyttum. — en honum finnst
réttlætið ekki ganga jafnt yfir
alla þegna þjóðfélagsins, eins og
þó segir i mannréttindaskránni,
að eigi að vera, og gaf hann þá
skoöun sina til kynna i viðtali
við blaðamenn áður en hann fór
i fangelsið, að það hefðu verið
aðrir og valdameiri menn, sem
báru ábyrgð á ósómanum, en
hann fékk dóminn. Maðurinn,
sem leigði hann til óhæfuverk-
anna heitir Dwight Chapin,
fyrrverandi ritari i Hvita
húsinu, og hefur hann verið
nefndur i sambandi við Water-
gate-málið, en ekki fengið dóm.
Sá, sem greiddi Donald Segretti
fyrir verknaðinn, var sjálfur
persónulegur lögfræðingur
Nixons forseta, Herbert
Kalmbach og hafði hann mikið
með fjármálin að gera i undir-
búningi kosninganna fyrir
Nixon. Hann gengur laus og
hefur ekki verið ákærður fyrir
þessi glæpsamlegu hrekkja-
brögð, sem voru höfð þarna i
frammi. Donald Segretti sagði
heldur dapur i bragði við
inngöngu sina i fangelsið: — Ég
hefði aldrei átt að fara að skipta
mér af stjórnmálum, ég hef vist
ekki þá sérstöku hæfileika, sem
til þess þarf.
Denni er efni i ágætis smið.
DENNI
DÆAAALAUSI
Hvað
ertu eiginlega að reykja i pipunni
þinni, HenryV