Tíminn - 11.05.1974, Page 6

Tíminn - 11.05.1974, Page 6
6 TÍMINN Laugardagur XI. mai 1974. .óGunna, elsku Gunna min, alveg eins og tunna, svo æðislega fin syngja krakkarnir af stakri innlifun Peysufatadagur hjá Verzlunarskólanum Ki I Einn herra umvafinn friðum hópi peysufatakvenna og lesa má lir svip hans: Hver verður stúikan min I kvöld? FIMMTUDAGINN 28. marz sið- astliðinn héldu fjórðu bekkingar Verzlunarskóla tslands, árlegan peysufatadag. Þessi dagur mark- ar alltaf djúp spor i minningar- sögu Verzlunarskóiafólks og ó- sjaldan heyrir maður gamla nemendur rifja upp fyrir sér og öðrum, hátiðleik þessa dags. Peysufatadagurinn er gamall siður i Verslunarskólanum, sennilega kominn nálægt fimm- tugu. Einatt er risið árla úr rekkju þennan dag og núverandi fjórðu- bekkingar gerðu slikt hið sama. Hittust bekkirnir hjá einum nem- enda i hverjum bekk og snæddu þar morgunverð um klukkan 6. Peysufatadagurinn er efalitið kærkomin upplyfting fyrir nem- endur, sem von bráðar áttu eftir að setjast við prófborðin og glima við vandasöm verkefni. Eftir súr- mjólk, kornflex og annan tilfall- andi morgunmat var haldið niður i Hljómskálagarðinn, þar sem allir fjórðu bekkingar hittust. Sið- an var haidið i nærliggjandi blómabúð og forláta rósir settar i hnappagötin. Kvennaskólinn var heimsóttur og söng karlpeningur Verzlunarskólans lagið, Fóstur- landsins freyja, fyrir námsmeyj- ar Kvennaskólans. Þær svöruðu fullum hálsi með laginu, Táp og fjör og friskir menn. Næst lá leiðin upp i Verzlunar- skóla og sungu nemendur þar yfir kennurum sinum. Hádegismatur var fram borinn á Hótel Sögu, en eftir hann var aftur haldið i Verzlunarskólann og sungið yfir þeim kennurum, sem eftir voru. Um kvöldið var aftur etið að hótel Sögu og dans stiginn. Við Timamenn litum inn til eins nemenda fjórða bekkjar, sem hafði boð fyrir sina bekkjarfé- laga, nokkrum stundum áður en sest var að seinni snæðingi að Hótel Sögu. Eflaust þarf ekki að fara mörg- um orðum um þann gleðskap, sem fram fór þennan siðdegis- hluta i lok marzmánaðar. Allir virtust skemmta sér konunglega við söng, dans og annað,sem til- heyrir slikum tyllidögum. Kvenmenn voru i miklum meirihluta og þurftu margir drengir að hafa tvær til þrjár stelpur sér til halds og stuðnings fyrr um daginn. Ekki var að heyra á tali drengjanna, að þeir kynnu illa þessum gangi mála, heldur undu þeir hag sinum vel, i nærveru kvennanna, eins og vænta mátti. Eins og alþjóð er kunnugt, er Verzlunarskólafólk með eindæm- um söngelskar manneskjur og þvi sungið af krafti á hverju manna- móti, sem haldið er. Þessi sam- koma fór ekki varhluta af ást þessa fólks til söngiðkunar. Hver og einn reyndi á raddböndin, eins og þau frekast þoldu. Sungið var um allt, sem i hugann kom, og spilað undir á pianó og gitar, eftir þvi sem verkast vildi! Þjóðlög, gamlir slagarar, popp og fleira var á efnisskránni. Einn söngur- inn var þó af öðrum toga spunn- inn, það var baráttusöngur knatt- spyrnufélagsins Leeds i Eng- landi. — We love you — Leeds — Leeds — Leeds, barambaram — bambam, sungu peysufatakon- urnar og kjólfatastrákarnir með tilheyrandi handatilburðum, eins og innfæddir Englendingar. Ef- laust væri þessi friði hópur vel- kominn á heimavöll Leeds. Það kom okkur sérstaklega á ó- vart, að allir i bekknum virtust kunna þennan söng, sem var þrjú Myndir: Róbert r Agústsson Texti: Gunnar Salvarsson

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.