Tíminn - 09.06.1974, Blaðsíða 5
Sunnudagur 9. júni 1974.
TÍMINN
5
Ewa Aulin
orðin húsmóðir
Ewa Aulin er hætt öllum af-
skiptum af kvikmyndum i bili
og helgar lif sitt manni sinum og
heimili. Eiginmaöurinn er
Casare Paladino og er óðals-
bóndi. Kannski á Ewa þó eftir
aö skipta um skoðun og snúa sér
að kvikmyndaleiknum á nýjan
leik, ef henni bjóðast góð hlut-
verk, en þvi miður tókst henni
ekki allt of vel upp, að minnsta
kosti ekki i myndinni Candy,
þar sem hún lék á móti Richard
Burton. Vel getur þvi verið, að
hún eigi ekki annars úrkosta en
sitja heima þessa dagana.
r
Ovenjulegt slys
Nýlega átti sér stað óvenjulegur
árekstur á þjóðveginum milli
Challes-Les-Eaux i Savoy i
Frakklandi og bæjarins Cham-
bery. Þarna rákust á flutninga-
bill og sviffluga. Svifflugmaður-
inn hafði lagt upp i flugferð sina
frá flugvelli nálægt fyrrnefndri
borg, en komst ekki aftur til
flugvallarins til þess að lenda
þar. Hann ákvað þvi að lenda á
þjóðveginum. í lendingunni
slapp hann naumlega framhjá
nokkrum háspennuraflinum,
straukst við girðingu umhverfis
hús nokkurt, og endaði með þvi
að rekast á flutningabilinn, eins
og fyrrsegir. Flugmaðurinn var
þegar fluttur i sjúkrahús, illa
meiddur.
★
★
Audrey Hepurn að skilja?
Audrey Hepurn er sögð i þann
veginn að skilja við hinn italska
eiginmann sinn, Andrea Dotti
sálfræðing. Vinir hennar full-
yrða, að hún sé orðin þreytt á að
vera innilokuð með sonum sin-
um tveimur, Sean 13 ára og
Luca þriggja ára. Hún er einnig
orðin þreytt á að látast ekkert
vita um ástarævintýri eigin-
mannsins. Hún er óánægð yfir
að hafa orðið að leggja leiklist-
ina á hilluna vegna þess að hún
giftist, og nú er hún búin að hitta
mann, sem vill gefa henni kost á
frjálsara lifi. Hún er þó ekki viss
um, hvort hún á að skilja við
Dotti, aðallega vegna barnanna.
Önnur myndin er af Dotti með
Luca son sinn, en hin eraf
Audrey og nýja vininum henn-
ar.
Snowdon lóvarður er snjall að dulbúasf
Snowdon lávarður, mágur
Elisabetar Englandsdrottning-
ar, hefur mikla ánægju af þvi að
búa sig á hinn furðulegasta hátt
og villa á sér heimildir. Hann er
svo hugmyndarikur, að honum
hefur hvað eftir annað tekizt að
klæða sig svo, að hans nánustu
hafa ekki borið kennsl á hann.
Vinum Snowdons finnst þetta
mjög skemmtilegt, en þvi miður
kann hirðin ekki jafnvel að meta
gerðir hans. Nýlega brá Snow-
don sér i gervi yfirþjóns, og
gekk um beina i veizlu hjá vin-
konu sinni Jane Pickers Lang-
ley. Hann bar gestum vin allt
kvöldið, og enginn þekkti hann.
Snowdon hefur ekki aðeins dul-
búizt til þess að skemmta fólki,
heldur gerir hann það stundum i
þeim tilgangi að hafa gott af þvi
sjálfur. Einu sinni hvarf hann
frá London, og enginn vissi hvað
af honum hafði orðið i þrjár vik-
ur samfleytt. Þá var hann i
Japan, og þangað hafði hann
komizt i dularklæðum án þess
að nokkur þekkti hann. Þá hefur
Snowdon gert það að gamni sinu
að læðast inn og út af heimili
sinu i dulargervi. Þetta gekk
svo langt, að lögreglan tilkynnti
komur óþekktra manna til
Margrétar prinsessu, þar sem
talið var, að henni gæti stafað
einhver hætta af þessum undar-
legu gestum, sem alltaf virtust
vera að sniglast I kringum
heimili hennar. Margrét fór á
fund systur sinnar og ræddi
þessar mannaferðir við hana.
Þær ákváðu svo að tala um
þetta við lávarðinn, sem varð
heldur skömmustulegur og
neyddist til að viðurkenna, að
þarna væri hann sjálfur á ferð-
inni, og hefði ekki viljað láta
fólk vita af ferðum sinum. Það
er ekkert leyndarmál, að Tony
vill helzt vera sjálfs sin herra,
og hefur ekki mikla ánægju af
að þurfa að fylgja hinum föstu
reglum við hirðina. Tony Arm-
strong-Jones, Snowdon lávarð-
ur, vill sem minnst láta um sig
tala. Þess vegna leitar hann
friðar með þvi móti að klæða sig
i óvenjulega búninga, og jafnvel
setja á sig skegg og hárkollur.
Svo fær hann lánaða bila, og
þannig getur hann oft ferðazt
um meðal fólks i friði. Hérna
sjáið þið svo lávarðinn klæddan
sem gamla blómasölukonu.
Hann og vinir hans hlæja, en
kóngafólkið skammast sin fyrir
framkomu hans.