Tíminn - 09.06.1974, Blaðsíða 8

Tíminn - 09.06.1974, Blaðsíða 8
8 TÍMINN Sunnudagur 9. júní 1974. Þessi litla stúlka er gáta í augum læknanna — Þegar Janne litla var fjögurra ára, var hún dauðadæmd. Hún var stöðugt á sjúkrahús- um, og þar var hún troðin út af lyfjum. Að lokum gátum við ekki afborið lengur að horfa á hana, segja foreldramir. Við hættum að gefa henni lyfin, og fórum að gefa henni vitamin i staðinn. Þetta var áhætta, sem við urðum að taka, en við höfðum engu að tapa hvort eð var. Og i dag furða læknarnir sig á þvi, að Janne er orðin sex ára gömul, og ber engin merki um sjúkdóminn. Grau-fjölskyldan býr i Stenlöse, nokkrum kilometrum fyrir norðvestan Kaupmannahöfn. Þar hittum við Janne, litla glað- lega stúlku, með sitt dökkt hár og björt augu, sem giampa af lifslöngun. Iiún hjólar hring eftir hring i trjágarðinum heima hjá sér, á hjólinu, sem hún fékk frá ömmu sinni á af- mælisdaginn, þegar hún varð sex ára. Janne hlær hátt, þegar litli bróðir hennar Svend hleyp- ur á eftir henni á litlu völtu fót- unum sinum. Það er sannkallað kraftaverk, að Janne Grau skuli vera lif- andi. Fyrir tveimur árum var hún dauðadæmd af læknum rikisspitalans i Kaupmanna- höfn, vegna þess að hún þjáðist af hinum skelfilega blóðsjúk- dómi leukemi, eða hvitblæði. í dag ber hún engin merki þessa sjúkdóms, og ástæðan er sú.'að foreldrar hennar þorðu að setja sig upp á móti læknum sjúkra- hússins og fara sinar eigin leið- ir. Foreldrarnir fylgdu ráðum náttúrulækna, hættu að gefa dóttur sinni eiturlyfin, og i stað- inn gáfu þau henni steinefna- töflur og stóra skammta af C- vfdamini. Missti hárið Kona i sorgarklæðum er i heimsókn hjá Dorthe og Mogens Grau. Hún hefur misst son sinn úr leukemi. — Ég sá Janne, þegar hún var sem veikust, segir hún. Það var skelfilegt. Hún var þá búin að missa allt hárið, og var eins og beinagrind, en maginn var uppblásinn. Hún hafði hvorki mátt til þess að standa né ganga, og var hálfvönkuð og starði bara fram fyrir sig. Það er eins og að verða vitni að kraftaverki, að sjá litlu telpuna núna. — Við gátum ekki afborið að sjá Janne kveljast eins og hún gerði, verða verri og verri með hverjum deginum, af eitrinu, sem i hana var troðið, segir fað- irhennar. Miltað var uppblásið. Hún fékk hvað eftir annað lungnabólgu, og sjón og heyrn var farin að truflast. Læknarnir sögðu okkur, að við mættum bú- ast við að hún dæi fljótlega. Þeir sögðu, að hún myndi ekki lifa mikið lengur en i eitt ár. Mogen Grau bifvélavirki er sterklega byggður maður á fer- tugsaldri, og hann er gæddur miklum baráttuvilja. Hann hugsar ekki um annað en reyna að færa dóttur sinni aftur heils- una, og leggur allt sitt i að það megi takast. Yfir fjölskyldunni hvilir stöðugur ótti um að litla stúlkan veikist á nýjan leik, þrátt fyrir það, að ekki finnist nú hjá henni nokkur merki sjúk- dómsins. Foreldrarnir eru óskaplega þakklátir fyrir að dóttir þeirra hefur náð aftur heilsunni, og þess vegna vilja þeir að aðrir fái að heyra, hvernig það gerðist. Faðirinn er félagi i samtökum foreldra, sem berjast fyrir þvi, að i Danmörku verði leyft að nota náttúrulækningalyf. Móð- irin gefur ráð og upplýsingar öllum þeim, sem hringja og spyrja. Þeim berast bréf hvaðanæva að úr heiminum, vegna þess að meira að segja utan Danmerkur hefur fólk heyrt um lækningu Janne litlu. Læknarnir ráðalausir Foreldrarnir segja hina undraverðu sjúkrasögu Janne og hvernig hún náði heilsunni aftur. FYRIR TVEIMUR ARUM VAR HÚN DAUÐADÆMDUR HVÍT BLÆÐISJÚKLINGUR

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.