Tíminn - 09.06.1974, Blaðsíða 15

Tíminn - 09.06.1974, Blaðsíða 15
Sunnudagur 9. júni 1974. TÍMINN 15 Kuldinn varð til þess að maður æfði sig meira Sama er einnig að segja um Bandarikin. Það eru gerðar miklar kröfur til námsmanna i pianóleik. Pianósnillingar skipta tugum — Hvað heldurðu að það séu margir pianósnillingar i heiminum núna, sem náð hafa sem kalla mætti alþjóðlegri stærð? — Ég var nú einu sinni að telja þetta, eða réttara sagt, ég og kunningi minn gerðum þetta okkur til gamans að varpa fram þessari spurningu. Og þeir reyndust ótrúlega margir. Mig minnir að þeir skiptu nokkrum tugum. Þó má segja að nokkrir séu alveg i sér flokki, sem má telja á fingrum sér og á ég þá við menn eins og Horowitz, Rubin- stein, Rudolf Serkin, Alfred Brendel Michelangeli, Vilhelm Kem og fleiri. Þetta eru eiginlega yfirstærðir og svo eru margir yngri menn á leiðinni i þennan hóp. Menn, sem hlotið hafa alþjóðlega frægð og viður- kenningu fyrir pianóleik. Viðfangsefni á ísiandi — Hvernig er að vera pianóleik- ari á íslandi. Er Island ef til vill of litið land fyrir konserteinleikara til að sjá þeim fyrir hagstæðum verkefnum og til aðsjá sér far- borða? — Ég hugleiddi þessi mál áður en ég hélt utan til náms. Mér fannst það ef til vill nokkur biræfni að halda út i svona nám, og hafði einmitt nokkra vantrú á þeirri hlið málsins, en þetta hefur gengið vonum framar. — Ég vil þó undirstrika það, að ég hafði áhuga á þessu, svo mikinn, að þetta hlaut að ske. Og eftir að ég kom heim aftur hefur tekizt vonum framar að fá tæki færi til að spila, og verkefnin hafa aukizt mjög mikið. Það er raunar merkilegt, hvað það er mikill áhugi á planóleik i ekki stærra landi. — Fyrst eftir að ég kom heim, kom ég fram hjá Tónlistar- félaginu. Siðan bauðst mér að koma fram með Sinfóniuhljóm- sveitinni. Siðan hefi ég leikið með henni svona annað hvert ár, sem einleikari. Slðan hafa verið ein- leikstónleikar af og til, bæði hér I borginni og eins úti á landi og svo meira og minna i kammermúsik. — Ég hefi leikið mikið með sellóleikurum, Gunnari Kvaran, Hafliða og ýmsum fleiri. Það hefur einhvernveginn komið i minn hlut að leika mikið með sellóleikurum og flautuleikurum. — Þá er ótalið, að ég átti þess kost að fara i hljómleikaferð til Norðurlandanna og lék einleik i öllum höfuðborgunum auk 2-3 stöðum utan þeirra i hverju landi, og sú ferð var ógleymanleg. Það væri vissulega athugandi hvort Norðurlandaþjóðirnar ættu ekki að gera meira af þvi að bjóða mönnum frá frændþjóðunum að koma fram i hljóðfæraleik. Orðaður við framúrstefnur — Nú hefur þú verið orðaður við framúrstefnur i efnisvali, og ert ekki talinn fara troðnar slóðir i verkefnavali þinu. Hvað viltu segja lesendum um þá hlið máls- ins? — Svo er mál með vexti, að ég kynntist flautuleikaranum kanadiska Robert Aitken. Ég vann með honum að prógrammi sem var mjög nýstárlegt allt framur stefnuverk. Við þessi kynni komst ég i mjög nána snertingu við nýja tónlist og túlkun á framúrstefnuverkum. — Þó verður að geta þess, að ég hafði mikinn áhuga á nútima- verkum fyrir. Hafði æft þau og leikið, en þó vil ég taka það fram, að ekki er um neina sérhæfingu að ræða. Ég hefi sama áhuga á klassiskum pianóverkum og reyndar allri tónlist. í London kýnntist ég öllum gerðum pianó- tónlistar, og mörgum túlkendum nútimaverka og ég reyndi að leika þetta. — Þessi verk eru mörg mjög erfið i flutningi og maður var svo- litið á báðum áttum, en eftir að ég fór að vinna með Robert Aitkin, þá opnaðist þetta svið einhvern- veginn betur fyrir mér og þar með fór ég lengra inn á þessa braut. Nótnaskrift mismunandi — — Nú virðast nútimaverk vera til tilviljunarkennd barsmið. Að minnsta kosti þau, sem áheyr- andinn kemst ekki i sérstakt sam- band við, þegar hann hlýðir á þau. Komast þessi verk til skila til túlkandans gegnum nótna- skrift, eins og verk gömlu meist- aranna? — Hljóðfæraleikarar hafa al- veg sérstaka tilfinningu fyr- ir sannfæringu. i sumum til- fellum eru þau miklu erfiðari i leik, en það fer þó dálitið eftir höfundum. Nútimahöfundar skrifa margir með gamaldags nótnaskrift, eða hefðbundinni og þar er allt algjörlega nákvæmt út i yztu æsar, en svo eru líka til samtiðarhöfundar, sem skrifa með öðrum rithætti og nýstár- legri og þá er minna lagt upp úr nákvæmninni og þá eru það áhrifin og yfirferðin, sem meira máli skipta. — Bartok og Stravinski riða á vaðið með flóknara hljóðfall. Segja má að þessi hlið málsins hafi verið algjörlega vanrækt hjá tónskáldum fram til þeirra tima. Mjög einhliða hljóðfall var rikj- andi. Siðan hefur þetta þróazt meir og meir og nú reynir miklu meira á ritmaskyn flytjandans en áður gerði og þá ekki sizt i sam- leik, með öðrum hljóðfæraleik- urum. Kennsla er oft lærdómsrík — Vinnur þú einhver önnur störf? — Já ég kenni við Tónlistar- skólann i Reykjavik. Kennslu- skyldan er 20 klukkustundir á viku. — Hvernig fellur þér að kenna? — Mjög vel. Þetta er þroskandi, ekki aðeins fyrir nemendur heldur einnig kennarann. — Það er talið að málurum fari aftur við að kenna. Hvernig er með pianóleikara? — Ég myndi segja að það væri þveröfugt með pianóleikara. Þótt undarlegt sé, þá lærir maður ótr- ulega mikið af kennslunni. Það rennur oft upp nýtt ljós i „pianólitteratúr”, þegar maður fer að kenna hlutina, að það bætir fremur en hitt. Sumar i Beneventum Það er sól og suraar. Við sitjum Framhald á bls. 39. Það er hagur fólksins aðverzla ^ ^igin búðum kaupfélag Patreksf jarðar PATREKSFIRÐI 1

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.