Tíminn - 09.06.1974, Blaðsíða 36

Tíminn - 09.06.1974, Blaðsíða 36
36 TÍMINN Sunnudagur 9. jdní 1974. AAinningarkapella Jóns Steingrímssonar vígð á þjóðhátíð HP.-Reykjavík. Vestur-Skaft- fellingar halda þjóðhátið sina 17. júnf n.k., og minnast þá 1100 ára afmælis tslandsbyggðar. Þar sem annars staðar verður dagskrá hátiðarinnar fjölbreytileg, og á fundi með blaðamönnum ráku þeir séra Sigurjón Einarsson á Kirkjubæjarklaustri og Þorleifur Einarsson, sýslumaður i Vík i Mýrdal, helztu atriði hennar. Þjóðhátiðin sjálf verður haldin 17. júni, eins og áður segir, en sunnudaginr1 9. júni verður opnuð Kjarvalssýmng i húsnæði skólans á Kirkjubæjarklaustri. Verður að telja hana til merkisatburða, þvi að þar verða einungis sýnd þau verk meistarans, sem hann „skildi eftir” i sýslunni, þ.e. gaf þau ýmsu fólki, er hann hafði kynni af. Jóhannes Kjarval fædd- ist sem kunnugt er að Efri-Ey i Meðallandi og var af skaftfellsk- um ættum, enda þótt hann væri alinn upp i Borgarfirði eystra. Dvaldist hann oft i Skaftafells- sýslu á árunum 1940-’50 og málaði þá þær myndir, sem til sýnis verða alla daga vikunnar 9.-17. júni. Er þess vænzt, að sem flestir leggi leið sina á sýninguna og njóti þessa einstæða tækifæris. Annar stóratburður i sögu Skaftafellssýslu mun og gerast i nánum tengslum við þjóðhátið- ina. Hún hefst 17. júni á þvi, að biskupinn yfir Islandi vigir minn- ingarkapellu séra Jóns Stein- grfmssonar, sem verið hefur i byggingu undanfarin 5 ár. Það fallega hús stendur nú fullbúið og hefur verið reist eingöngu fyrir samskotafé, m.a. gaf hver bóndi i sýslunni eitt lamb árlega til ágóða smíðinni. Kirkjusmiður hefur verið Valdimar Auðunsson frá Asgarði, en arkitektarnir Helgi og Vilhjálmur Hjálmars- synir teiknuðu hana. Útisamkoma hefst kl. 14.00, og verður hú haldin á hinum forna þingstað Kleifarhrepps að Kleif- um, rétt austan við Kirkjubæjar- klaustur. Þar verður fjölbreytt dagskrá, iþróttakeppni, kórsöng- ur og þjóðdansasýning, auk veigamesta aðriðis útisamkom- unnar, sem er leikþátturinn Fall Una danska. Uni danski var óbótamaður og fulltrúi konungsvalds, er Skaft- fellingar vógu skammt frá Kleif- um endur fyrir löngu. Höfundur leikþáttarins er Gunnar M. Magnúss, og taka nokkrir leikar- ar Þjóðleikhússins, ásamt innan- sveitarmönnum, þátt i sýning- unni, sem fer fram undir berum himni. Til þess að vera þess megnugir að standa að einhverju leyti undir kostnaði við öll þessi hátiðahöld, hafa þjóðhátiðarnefndarmenr. látið gera ýmsa muni, sem hafðir verða til sölu um hátíðina. Ber þar mest á vel unnum plöttum með myndum af Dyrhólaey, brimlendingu i Vik, Systrastapa og Lómagnúp, en auk þess hefur verið unnið kvenskraut með hlið- sjón af ennislaufi á beizlum, sem tiðkaðist hér áður fyrr, og er það útfært i kopar. Upplag þessara muna er ekki mikið, en þeir verða seldir i öllum verzlunum i Vestur- Skaftafellssýslu. Aukning í innan- landssölu bú- vörudeildar SIS VERULEG aukning hefur orðið i innanlandssölu búvörudeildar SÍS, það sem af er þessu ári. Fyrstu fjóra mánuði ársins seldi Kjötiðnaðarstöðin þannig vörur fyrir 56 milljónir króna á móti 33,8 milljónum sama timabil i fyrra, sem er um 67% aukning. Þá hefur innanlandssala deildar- innar fyrstu fjóra mánuði ársins orðið 527 milljónir á móti 363 milljónum á sama tima i fyrra, sem er um 45% hækkun. Ekki vantar önnina í Rauðagerði NÚ er hafinn rekstur dagheimilis þess i Vestmannaeyjum, sem Rauði kross tslands reisti þar fyr- ir söfnunarfé og afhent var Magnúsi Magnússyni bæjarstjóra 19. mai af formanni Rauða kross- ins, Birni Tryggvasyni. í dagheimilinu eru átján til tuttugu börn i hvorri dagheimilis- deild, auk sextán barna I vöggu- stofu. Kostaði heimili þetta um tuttugu og þrjár milljónir, og lagði kaupstaðurinn þar af fram um þrjár milljónir króna i kostnað við lóð og grunn. Byggingin var afráðin á fundi R.K.t. og bæjarstjórnar Vest- mannaeyja 11. júli i fyrra, og tók þvi byggingin, að meðtöldum undirbúningstima, um tiu mánuði. Dagheimilið, sem nefnt hefur verið Rauðagerði, var keypt fyrir söfnunarfé frá Sviss og Sviþjóð, og i boði, er bæjarstjórn hélt eftir afhendinguna, fluttu ávörp As- geir Guðmundsson, formaður Sumargjafar, Svandis Skúladótt- ir, fulltrúi i menntamálaráðu- neytinu, Olafur Helgason, for- maður Vestmannaeyjadeildar R.K.Í., Ester Arnadóttir, for- stöðukona heimilisins, og Sigur- geir Kristjánsson, forseti bæjar- stjórnar. teltjéillíltl I#fi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.