Tíminn - 09.06.1974, Blaðsíða 7

Tíminn - 09.06.1974, Blaðsíða 7
Sunnudagur 9. júni 1974. TtMINN 7 hins itrasta gegn þvi, svo og Raf- magnsveita Reykjavikur, sem i ákveðnu máli lét sig hafa það að þverbrjóta aliar reglur, unz borgarráð tók af skarið. Framhjá þeirri staðreynd verð- ur naumast gengið, að tilboð Samvirkis hafa verið hagstæð fyrir báða aðila og kom fram i er- indi Ásgeirs, að Samvirki hefur á sl. ári veitt 10% afslátt til við- skiptavina sinna. Hitt er þó aðalatriðið, að félagið er fyrst og fremst stofnað til þess að bæta kjör sinna manna. Frá upphafi hafa allir fengið sömu laun, þannig að timakaupið er það sama, og arðinum af verkun- um siðan skipt á milii starfs- mannanna. Er óhætt aðJullyrða, að ekkert fyrirtæki greiði starfs- mönnum sinum svo rausnarlega. — Heildarveltan á siðasta ári nam rúmum 7 milljónum króna, og fyrirtækið á að geta bætt hag sinn i framtiðinni, sagði Asgeir i lok ræðu sinnar. Lokaorð hans voru á þá leið, að rafvirkjarnir i Samvirki fögnuðu þvi, ef á legg kæmust fleiri fram- leiðslusamvinnufélög, og þeir væru boðnir og búnir til þess að aðstoða við stofnun slikra félaga. t fyrirspurnum og umræðum, sem á eftir komu, varð þess greinilega vart, að áhugi er rikur á þessum málum. Helztu atriðin, sem þar komu fram, ýmist sém fullyrðingar eða tii ihugunar, voru þessi: Það er æskilegt að koma upp framleiðslusamvinnufélögum á sem allra fiestum sviðum og hafa náið samband á milli þeirra. Það reynir á félagsþroskann að starfa saman að þessu, sérstak- lega þegar vel gengur. Pipulagningamenn eru að velta félagsstofnun fyrir sér. Rafvirkjar. sem stöðugt standa frammi fyrir nýjungum i tækni á sinu sviði, þurfa sifellt að fylgjast með. Þvi fer ágóðahluti Samvirk- is i fræðslusjóð rafvirkjafélagsins til endurmenntunar stéttarbræðr- anna. Og að lokum: Lögin um samvinnufélög þyrftu endurskoðunar við, með tilliti til þess, að framleiðslusamvinnu- félög voru ekki til, þegar lögin voru samin. Margt fleira var rætt, og komu mörg skemmtileg sjónarmið fram, en það var ljóst, að menn voru á einu máli um það, að hér hefði vel tekizt til og reynslan af árs starfsemi Samvirkis lofaði mjög góðu. Fundarstjóri á fræðslufundin- um var Þórarinn Ólafsson raf- virki. — BH. Framleiðslusamvinnufélög æski leg á sem allra flestum sviðum Fræðslufundur um starfsemi Samvirkis eftir árs reynslu SAMVIRKI — framleiðslusam- vinnufélag rafvirkja — efndi til fræðslufundar um framleiðslu- samvinnu að Hótel Esju siðastlið- ið föstudagskvöld. Fundurinn var opinn öllum meðlimum iðn- sveinafélaganna, og var hann nijög vel sóttur. Mátti þar sjá pipulagningamenn, múrara og húsasmiði, auk fleiri iðnaðar- manna, en auðheyrt var á fyrir- spyrjendum i lok fundarins, að áhugi er hjá þessum þrem stétt- um, a.m.k. að kanna möguleika a' að koma á samvinnufélagsskap innan stéttarinnar, og hugsan- legri samvinnu milli samvinnu- fclaganna siðar meir. A dagskrá fræðslufundarins voru tvö erindi, auk fyrirspurna og frjálsra umræðna. Fyrra erindið flutti Hannes Jónsson félagsfræðingur, og fjallaði það á greinargóðan og yfirgripsmikinn hátt um fram- leiðslusamvinnu sem efnahags- legt skipulagsúrræði. Síðara erindið flutti Ásgeir Eyjólfsson formaður rafvirkja- deildar Samvirkis, og fjallaði það um hagnýta reynslu af starfi Samvirkis — framleiðslufélags rafvirkja. Þar sem tvimælalaust er rikur áhugi manna á meðal á þessari starfsemi, en færri gátu sótt fund- inn en vildu, skal hér i nokkrum orðum gerð grein fyrir erindi Ás- geirs Eyjólfssonar. Ásgeir gat þess i upphafi, að nú væri árs reynsla fengin af rekstri framleiðslusamvinnufélagsins Samvirkis, og þvi væri nú unnt að skýra nokkuð frá fengnum árangri, byggðum á reynslu. Tildrögin að stofnun Samvirkis, voru þau, að árið 1971, var stjórn Félags isl. rafvirkja falið að kanna möguleika á að stofna raf- virkjasamvinnufélag með liku sniði og tiðkast i nágrannalöndum okkar. 1972 eru rafvirkjar i verk- falli, og er i þvi verkfalli farið að huga alvarlega að þessum mál- Asgeir Eyjólfsson, rafvirki. um, skipuð nefnd, sem i samráði við Hannes Jónsson félagsfræðing myndar drög að stofnun félagsins og lög fyrir það. Er stofnfundur siðan haldinn með 25 rafvirkjum, -eg-ðltveðið að miða stofndag við 5. mai 1973, en þá voru félagsmenn orðnir 50 talsins, allt rafvirkjar. 1 mai hefst svo reksturinn, og mætir ýmsum erfiðleikum, sem allir leysast þó, mest fyrir eldleg- an áhuga félagsmanna, sem ætið voru reiðúbúnir að mæta hverju vandamáli. Starfsmenn urðu fljótlega 3, en með vaxandi verk- efnum fjölgaði þeim um 6 á miðju sumri, og siðan hafa starfað hjá Samvirki 9-11 rafvirkjar. Erfiðleikarnir lágu fyrst og fremst i stofnfjármagni, sem var i minnsta lagi, aðeins 110 þúsund krónur og dugði skammt. Þá gekk i nokkru stimabraki með húsnæði framan af. Þá hefur Samvirki fengiö að kenna á samkeppni af hendi raf- verktaka, sem hafa beitt sér til Tlmamynd: GE. Séð yfir fundarsalinn. Hannes Jónsson I ræðustól. Mesta framkvæmda- dr í sögu KEA Aðalfundur Kaupfélags Eyfirð- inga, var haldinn I Samkomuhús- inu á Akureyri, 30. og 31. mai. Rétt til fundarsetu höfðu 204 full- trúar frá 24 félagsdeildum, en fundinn sóttu 194 fulltrúar frá 20 deildum, auk stjórnar félagsins, kaupfélagsstjóra og endurskoð- enda. Auk þess sátu fundinn ýms- ir gestir og allmargir starfsmenn félagsins. Fundarstjórar voru kjörnir, Hilmar Danielsson, Dalvik, og Hjörtur Eiriksson, Akureyri, en fundarritarar þeir Óttar Einars- son, kennari, Akureyri, og Árni Hermannsson, bóndi, Þverá. Formaður félagsins, Hjörtur E. Þórarinsson, flutti skýrslu stjórnarinnar fyrir liðið ár. Bar hún með sér, að fjárfestingar félagsins á árinu, höfðu numið 124.4 milljónum króna i fasteign- um, vélum og munum. Kaupfélagsstjórinn, Valur Arn- þórsson, las reikninga félagsins og gerði itarlega grein fyrir rekstri þess. Heildarvörusala félagsins og fyrirtækja þess á inn- lendum og erlendum vörum þeg- ar með eru teknar útflutningsvör- ur, verksmiðjuframleiðsla og sala þjónustufyrirtækja, jókst um 37.3%, úr 2.645 millj. króna i 3.633 millj. króna. Fjármunamyndun félagsins, þ.e. afskriftir flýtifyrningar og ágóði, nam á árinu rúmum 76.3 millj. króna. Aðalfundurinn sam- þykkti að úthluta og leggja i stofnsjóð félagsmanna 2% af ágóðaskyldri úttekt þeirra á ár- inu og 2% af úttekt þeirra i Stjörnuapóteki, sem færist i reikninga félagsmanna. f menningarsjóð KEA var sam- þykkt að leggja kr. 1.500.000.00 i tilefni ellefu hundruð ára afmælis byggðar á íslandi auk þess, sem Menningarsjóður fær rekstraraf- gang Efnagerðarinnar Flóru, sem nam kr. 318.011.75 á s.l. ári. Úthlutun styrkja úr menningar- sjóði nam að þessu sinni kr. 660.000.00 samkvæmt greinargerð frá stjórn sjóðsins. Aðalfundurinn samþykkti að veita Minjasafninu á Akureyri kr. 300.000.00 framlag vegna nýbygg- ingar við Kirkjuhvol. Jafnframt samþyjckti fundurinn að gefa Starfsmannafélagi KEA kr. 1.000.000.00 til byggingar sumar- húsa. Gunnlaugur P. Kristinsson, fræðslufulltrúi kaupfélagsins, flutti framsöguræðu um félags- og fræðslumál samvinnufélag- anna, en miklar umræður urðu siðan um þessi mál. Fundurinn samþykkti ályktun sem fól í sér hvatningu til áframhaldandi efl- ingar félags- og fræðslustarfsemi. Úr stjórn félagsins átti að ganga Kristinn Sigmundsson, Arnarhóli, en hann var endur- kjörinn til þriggja ára. Endur- skoðandi i stað Guðmundar Eiðs- sonar, sem flutt hefur af félags- svæðinu var kosinn Hilmar Danielsson, Dalvik, en Armann Dalmansson var endurkjörinn varaendurskoðandi. Þá var og endurkjörinn i stjórn Menningarsjóðs KEA Kristján skáld frá Djúpalæk og varamenn hannes Sigvaldason, ráðunautur Að siðustu voru kjörnir 16 fulltrú ar á aðalfund Sambands isl. sam vinnufélaga. þau Hólmfriður Jónsdóttir menntaskólakennari, og Jó Frá aðalfundi KEA á dögunum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.