Tíminn - 09.06.1974, Qupperneq 21

Tíminn - 09.06.1974, Qupperneq 21
TÍMINN Sunnudagur 9. júni 1974. Sunnudagur 9. júni 1974. TÍMINN r 'n Eins og fram kemur I greininni, hefur Geröur Heigadóttir hlot- iöumtalsverðan frama, sem listamaöur. Hér birtum viö lista yf- ir nokkrar viöurkenningar, sem hún hefur hlotiö: 1949 1. verölaun fyrir myndmótun á listaakademiunni I Flórens 1953 Tate Gallery. — Verðlaun i alþjóölegri samkeppni um minnisvaröa um Óþekkta póiitiska fangann. 1959 1. verölaun I samkeppni um steinda glugga I Skálholts- kirkju. 11961 2. verðl. i hugmyndasamkeppni um minnismerki I Hafnar- firöi. 1963 1. verðl. fyrir kirkjuglugga i St. Antonius abbas I Þýzka- iandi. 1964 1. veröl. fyrir kirkjuglugga i Evangelisku kirkjuna I Biile- brinkhohe I Essen i Þýzkaiandi. 1964 1. verölaun fyrir kirkjuglugga I Evangelisku kirkjuna I Ess- en Buttenscheid, Þýzkalandi. 1965 1. verölaun fyrir giugga i kapellu Melanchtonkirkjunnar I Dusseldorf. Kirkjumunir eftir Gerði Helgadóttur eru meðal annars á þessum stöðum 1961 Skrautskrin fyrir helgimuni I St. Anna kirkjunni I Duisburg I Þýzkalandi. 1962 Kristlíkneski i St. Pierre le Peil, I Frakklandi 1966 Tveir krossar I kirkju I Melenchton i DÚsseldorf 1969 Kross í kirkju I Dússeldorf — Rath. 1969 Kross úr guili og járni I Karla-Magnúsarkirkjuna I Aachen. 1971 Kristlíkneski I kirkju kaþóiskra I Durboslar I Þýzkalandi. Kirkjugluggar eftir Gerði eru m.a. þessir: 1957 Saurbæjarkirkja 1957 Elliheimiliö i Reykjavik 1961 Kaþóisk kirkja I Munchen i Þýzkalandi 1963 Kópavogskirkja 1963 St. Antonius Abbas i Þýzkaiandi 1963 Saurbæjarkirkja 1964 Evangelisk kirkja i Billenbrinkche, Þýzkalandi 1964 Evang. kirkja i Essen i Þýzkalandi 1966 Kapella i Melanchton og kirkja I Dússeldorf 1966 Gluggar fyrir safnhús I Aachen I Þýzkalandi 1966 Neskirkja I Reykjavik 1971 Evangeliska kirkjan i Kempen Á þessum stööum er ýmist um aö ræða einn eöa fleiri glugga. Listaverk á opinberum stöðum 1956 Lágmynd „hjá Benjamin” 53 Rivoii, Paris. 1957 Harpa úr járni i þróunarstofnun á Paris 1958 Veggmynd (skúlptúr), upplýst fyrir ,,La Pergola” 144 Champs Elysés, Paris 1970 Gosbrunnur fyrir iæknaskóla I Bamaco, Afrikulýöveldinu Mali 1970 Höggmynd úr bronsi (h. 2.5 m) 14. Rue Amelo, Paris. 1971 Relif i húsi í Reykjavik, (húsi Gunnars Guömundssonar) 1972 3 Relif I skóla I Herchen 1973 Mosaikmynd á Tollstööina I Reykjavik. Stærö 140 ferm. Sýningar Gerðar Helgadóttur Eins og fram kemur I viðtalinu við myndhöggvarann, þá hefur hún nú I hyggju aö sýna myndir sinar I Reykjavík. Gerður hefur þrátt fyrir ærin verkefni, ávallt gefiö sér tima til þess aö sýna myndir sinar almenningi, ýmist á sjáifstæðum sýningum, eöa samsýningum. Fyrst sýnir hún myndir sinar eriendis árið 1949 og þaö er ekki fyrr en áriö 1952, sem hún sýnir á íslandi. Myndir hennar hafa verið sýndar i frægustu listasölum Evrópu. Hún hefur sýnt í höfuöborgum fjölmargra landa og mun alls hafa tekið þátt I um 50 listsýningum. Samsýningar hefur Geröur haldið bæöi meö Islenzkum lista- mönnum eöa skandinaviskum og ennfremur hefur hún tekiö þátt I ýmsum alþjóðlegum listsýningum. T.d. hefur hún 17 sinnum sýnt verk sin I Paris, og má hikiaust telja hana einn viöfrægasta listamanna Islenzku þjóöarinnar. Hér hefur verið stiklað á stóru um verk Geröar Heigadóttur. Þvi miöur voru ekki til myndir á tslandi af sumum stærstu verkefnum, sem hún hefur unniö, né heldur af stórverkum á sviöi skreytilistar og veröur þaö þvi aö biöa sins tlma. — JG. V__________________________________________________________________J Rætt við Gerði Helgadóttur myndhöggvara, sem getið hefur sér frægð erlendis fyrir höggmyndalist, steinda glugga og mosaik, sem prýða stórbyggingar víða um lönd Hingað til lands kom fyrir skömmu ein viöfrægasta iista- kona okkar, Geröur Heigadóttir, myndhöggvari. Ef til vill er ekkert starfsheiti i listum eins vont og einmitt þetta: myndhöggvari, þvi að þaö gefur ranga mynd og lýsir naumast þvi, sem þvi er ætlað, þvi svo margt hefur breytzt frá þvi að þaö varö til. Að visu höggva menn ennþá myndir sinar i steina, sái sina og drauma i kait grjótiö, en þeir gera Hka margt annað, móta leir og forma, og þeir eru járnsmiðir, eirsmiðir, glerskuröarmenn og gullsmiöir — og þeir kaupa efni sitt á sama staö og þungaiönaður- inn. Geröur Heigadóttir er að visu kunn hér á landi, þó ekki væri nema fyrir mosaikmyndina á Tolistöðinni i Reykjavik, eða gluggana I Skálholtskirkju, en þó má fullyrða, að það er i engu samræmi við afreksverk hennar á sviöi höggmy ndalistar og myndlistar yfirleitt. Gerður Helgadóttir er fædd á Norðfirði 11. april áriö 1928. For- eldrar hennar voru þau Helgi Pálsson, tónskáld og Sigriöur Er- lendsdóttir. Blaðið átti samtal við Geröi nú fyrir skömmu, er hún var stödd I húsi systur sinnar, en annars býr hún I Paris og sagöist henni frá á þessa leið: Fædd á Norðfirði — Ég er fædd á Norðfirði og ólst þar upp til 9 ára aldurs, er fjöl- skyldan flutti til Reykjavikur. — Ég man nú ekki hvenær ég komst fyrst i kynni við myndlist- ina, nema hvað ég byrjaði snemma að hafa gaman af þvi að teikna myndir. Ef til vill hefur þetta verið i ættinni, þvi að móðir min málaði svolitið. Tónlistin var i öndvegi á æskuheimilinu og þangað komu margir listamenn af öllum greinum, lika mynd- listarmenn, eins og Þorvaldur Skúlason og Kjarval. — Hvernig leist þér á Kjarval? — Mér fannst hann alltaf skrýt- inn og hafði mjög gaman af hon- um, en ég held að hann hafi i rauninni verið feiminn. Vissi ekki að til voru listaskólar — Hvenær ákvaðstu svo að ger- ast myndlistarmaður? — Mér er það nú ekki alveg ljóst, en svo var mál með vexti, að ég vissi hreinlega ekki, að hægt væri að ganga i skóla og læra myndlist. Svo sá ég sýningu á verkum nemenda Handiðaskól- ans og þá var teningunum kastað og ég hóf þar nám árið 1945. Handiðaskólinn var þá á Grundarstignum og var Ludvig Guðmundsson skólastjóri þar, en aðalkennarinn var Kurt Zier. Ennfremur kenndi Kjartan Guðjónsson listmálari þarna, en hann var þá nýkominn heim frá myndlistarnámi i Bandarikjun- um. Þarna var kennd teikning og listmálun, en það var ekki kennt að modelera, eða skúlptúr. Samt var þetta ágætur skóli. Sem áður sagði, þá vaknaði á- hugi minn á myndlist er ég sá sýningu og það urðu siðan högg- myndirnar, sem einkum vöktu aðdáun mina, en ég vissi ekki þá, að hægt væri að læra þessa list- grein. Svo þegar náminu lauk i Handiðaskólanum, þá fór ég að vinna i „Svinastiunni”, sem köll- uð var, en það var bakhús á lóð Handiðaskólans. Mótaði föður sinn fyrst Þar byrjaði ég að móta i leir og bjó til nokkra hausa. Sá fyrsti var af föður minum. Ennfremur mót- aði ég Björn Ólafsson fiðluleikara og einhverja fleiri. Reyndar byrj- aði ég að móta þarna siðari vet- urinn i Handiðaskólanum. Einnig prófaði ég að höggva grjót i fjörunni hjá Sigurjóni Ólafssyni inni i Laugarnesi. — Fljótlega eftir að ég fór að fást við þetta fór ég að hugleiða framhaldsnám og þá i högg- myndalist. Arið 1948 um haustið hélt ég til ítaliu, til Florens. — Ég var vita mállaus og ferða- lagið þangað suðureftir sýndi kannski betur en nokkuð annað hvers konar glópur ég var. Ég vissi ekki að maður átti að skipta um lestir, heldur bara sat áfram og ég týndi farangrinum hvað þá annað. Ég skildi við töskurnar i Basel i Sviss. Hélt að töskurnar færu sjálfkrafa i gegn, þegar ég skipti um lest, en Halfdán Bjarnason, konsúll i Genova hafði sem betur fer upp á þeim fyrir mig og kom þeim til min. Hann aðstoðaði mig mikið, eins og fleiri Islendinga, sem komu til ttaliu. Hann tók á móti mér i Genova og aðstoðaði mig svo við að komast til Florens. Inntökupróf i Florens — Akademiunni i Florens er skipt niður i myndlistir, högg- Haus, sem Geröur hjó I stein I fjörunni I Laugarnesi hjá Sigurjóni Ólafssyni. Sigurjón lánaöi Gerði meitla og verkfæri til þessarar frum- raunar I höggmyndaiist. Siöan bjó hún margar myndir, þar á mcöal af Jóhanni Sigurjónssyni skáldi. Sú mynd er gerö I Flórens og hcfur henni veriö komiö fyrir I Þjóðleikhúsinu I Reykjavik. myndalist og málaralist. Þetta er mjög stór og frægur skóli og þarna þreytti ég inntökupróf i höggmyndadeildina. Prófið var fjölþætt. Ég varð aö gera kópiu af gamalli griskri mynd, módelneringu eftir modeli. Ég stóðst inntökuprófið, svo að vera mín i Svinastiunni og i fjör- unni við að höggva grjót, hafði ekki orðið til einskis. Þarna var mikið af fólki við nám. Prófessor þarna var Romanelli, mjög þekktur, og við unnum frá klukkan 9 á morgnana og fram eftir degi. Við vorum nokkuð frjáls að þvi hvað við vild- um vinna lengi frameftir, en ég held að það hafi yfirleitt verið til kl. 4—5 á daginn. Til Parisar — Nú hefurðu gert fjölda mynda I Florens. Hvað varð um þær? — Já við gerðum fjölda mynda. Sumt varð eftir i Florens, annað eyðilagði ég, en sumt tók ég með mér, og kom hingað heim. T.d. portrait, sem ég hafði gert af myndhöggvara, sem er mjög þekktur núna, Pierluka, en hann lézt fyrir þrem árum. Ég var viö nám á listaakademi- unni i Flórens i tvö ár, en svo lá leiðin til Parisar. Það virtist Geröur aö vinna aöstórri koparmynd, sem komiö var fyrir framan viö stórbyggingu I Parls, nánar til tekið viö Rue Hanlo no. 10 og 11. Myndir sýna ljóslega hversu miklar kröfur til málmsmlöa veröur aö gera til nútlma höggmyndalistar. liggja beinast við. Myndhöggvari getur naumast komizt af án ítaliu og hinnar grisku listar, og enn siður getur hann komizt af án Parisar. Ég var búin að heyra svo mikið um Parls og þar voru hlutirnir að gerast. Ég stundaði nám I tvö ár i Par- Is, fyrra árið á Listaakademl- unni, Academie de la Grande Chaumidre, hjá prófessor Zadkin, sem þú kannast kannski við, en hann er heimsfrægur. Siðari vet- urinn var ég hins vegar i einka- skóla hjá honum. Helgi Pálsson, tónskáld, faöir Geröar Helgadóttur. Þetta er fyrsta myndin, sem Geröur mótaöi I „svinastlunni” bak viö Handíðaskólann. Ýmsir fleiri sátu fyrir hjá listakonunni á þessum árum, þar á meöal Björn ólafsson, fiöluleikari. Listamenn i Paris á eftirstriðsárum — Var mikið af myndlistar- mönnum við nám I Paris um það leyti? — Já fjöldi. Þarna voru Hörður Ágústsson, Valtýr Pétursson, Kjartan Guðjónsson, Jóhannes Jóhannesson, örlygur Sigurðsson og fleiri. Lika alls konar rithöf- undar, eins og Thor Viihjálmsson og Geir Kristjánsson. Sumir þeirra höfðu verið i Flórens, sið- ara árið sem ég var þar. Paris færði mig nær tslandi, sem nærri má geta, innan um allt þetta skemmtilega fólk. Þetta var nýlenda, þar sem örlögin léku dýpstu og hæstu tóna. Borgin með sinum 30.000 listamönnum gefur með einhverjum hætti sérstaka Framhald á 28 siðu. Minnismerki um pólitlska fangann. Myndin var gerö fyrir alþjóölega samkeppni og hlaut Geröur 3. verölaun. Myndirnar voru sýndar I Tate Gallery I London. GERÐUR HELGADOTTIR, AAYNDHÖGGVARI „ÉG ER STERK

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.