Tíminn - 09.06.1974, Síða 26

Tíminn - 09.06.1974, Síða 26
26 TÍMINN Sunnudagur 9. júni 1974. Konungsskipið nálgast höfnina I Vestmannaeyjum. Lóðsinn hafði fylgt þvi dyggilega siöasta spöiinn og sést til hægri á myndinni. Síðasti viðkomustaður í konungs- heimsókninni var Eyjar BH—Reykjavik — íslandsför ólafs V Noregskonungs að þessu sinn lauk i gær. í fyrra- kvöld lagði konungs- skipið Norge úr höfn i Reykjavik og i gær- morgun kom það til Vestmannaeyja. Þar var konungi vel fagnað, en ekki kunnum við gjörla frá þeim atburðum að segja, þar eða flugvélin, sem flytja átti fréttamenn og ljós- myndara út i Eyjar, gat ekki lent þar vegna norðanstrekkings, þótt veður væri annars hið fegursta. Móttökur Vestmanna- eyinga voru i fullu sam- ræmi við þann hugs- unarhátt, er þar hefur jafnan rikt, og sómdu þjóðhöfðingja, er sótti þá heim. Miðja vegu milli lands og eyju koma skipafloti Vestmanna- eyinga til móts við konungsskipið og fagn- aði þvi. Voru bátar Eyjamanna hinir skrautlegustu og blöktu fánar íslands og Noregs við hún. Um það bil konungsskipið renndi inn á höfnina i Eyjum i fylgd Eyjabáta, urðum við að snúa við aftur til Reykjavikur, og getum þvi ekki sagt frá við- tökum þeim, sem konungur hefur hlotið i Eyjum i gær. Þá var klukkan að ganga niu, er við sner- um til baka, en áætlað hafði verið, að klukkan 9.00 legði konungsskipið upp að bryggju i Vest- mannaeyjum. Þar var reiknað með, að konungur hefði nokkra viðdvöl, en klukkan hálftólf stóð til, að konungsskipið héldi aftur á brott frá Eyjum. Þar með lýkur ís- landskomu þessa ástsæla konungs að þessu sinni. Hann hefur með elskulegri fram- komu sinni og vinarþeli i garð islenzku þjóðarinn- ar unnið sér hylli allra landsmanna, sem seint munu gleyma þessum góða gesti. Honum og föruneyti hans fylgja beztu kveðj- ur héðan með þökkum fyrir komuna. er Prýddir fáum beggja þjóðanna komu Eyjabátar til móts viö konungsskipið.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.