Tíminn - 09.06.1974, Síða 29

Tíminn - 09.06.1974, Síða 29
Sunnudagur 9. júni 1974. TÍMINN 29 Steinsteypur gluggi I þýzkri kirkju. Gluggi þessi er einn af fjölmörgum kirkjugiuggum eftir Geröi Helgadóttur, sem prýöa þýzkar kirkjur. Glugginn er „upphleyptur" aö innanveröu lika. Oidtmann i Þýzkalandi steypti gluggann. hafðir lokið við gluggana i Skál- holt? Samkeppnisverkefni — Það tóku við ný og ný verk- efni. Ég sendi tillögur i sam- keppnir og fékk mörg áhugaverð verkefni út úr þvi (það má skjóta þvi hér inn, að Gerður Helgadótt- ir hefur aðeins einu sinni misst af samkeppnisverkefni, sem hún hefur sótzt eftir. JG) —- Hvað er eftirminnilegasta verkefni, sem þér hefur verið fal- ið við húsagerð, eða skreytingar? — Það er auðvitað Skálholt. Annars er mjög erfitt að segja um slikt. öll slik verkefni eru mjög skemmtileg og heillandi. Þó fannst mér eitt verkefni, sem mér var falið, merkilegt, en það var að gera kross fyrir dómkirkjuna i Aachen. Þessi kross var að þvi leyti til merkilegur, að hann var smiðaður úr járni og gulli. Það er hefð þarna i Aachen að vinna úr þessum óskyldu málmum, gulli og járni, og hefur svo verið siðan á dögum Karla-Magnúsar. t Járn og gull Ég gerði fyrst likan að hug- mynd minni um þennan kross og klæddi með látúni i staðinn fyrir gull og þetta sýndi ég prelátunum og þegar ákvörðun lá fyrir, þá geröi ég þennan kross, sem er tæpur metri á hæð. Það var mjög erfitt að smiða þetta, fá gullið til að bindast við járnið og þvi fór mikill timi i verkið. Margir hafa velt þvi fyrir sér, hvort þeir noti járnið til þess að spara gull, en ég held að svo sé ekki, heldur sé þessi hefð orðin til vegna þess hve erfitt er að vinna þessa tvo málma saman. Oidtmann — Svo við vikjum aftur að Oidt- mann. Þú gerir myndina á Toll- stöðina með þeim. Var Skálholts- kirkja og gluggarnir i hana upp- hafið að þvi samstarfi? —■ Já. Ég kynntist þeim gegnum það verk og siðan hefi ég unnið mörg verk með þeim. Það leiðir af sjálfu sér. Slik verk,mosaik og steindir gluggar, eru unnin i sér- stökum verkstæðum, sem hefur á að skipa sérfróðum mönnum, sem lika eru eins konar listamenn i sinni grein. — En sjálfar frumteikningar verkanna. Vinnur listamaðurinn einn að þeim? — Ég hefi mest unnið ein. Þó fékk ég aðstoðarmann til að hjálpa mér við að ljúka vinnu- teikningunum að myndinni á Tollstöðvarhúsinu. Hann heitir Enard og er mörgum kunnur hér á landi og er mjög góður málari. Hann er kvæntur islenzkri konu, Valgerði Hafstað. — Nú ert þú að vinna að alls konar verkefnum i opinberar byggingar, steinglugga, mosaik og kirkjumuni. Tekur það ekki allan timann frá skúlptúrnum? Eilifur erill — Jú ég er á eilifum þeytingi um alla Evrópu út af sérstökum verkefnum, sem aðrir hafa valið mér. Það er hins vegar mjög Þessi mynd er tekin fyrir framan Toilstööina, um þaö leyti, sem myndin var afhjúpuö. Þetta mun vera stærsta mynd á tslandi. Þegar Geröur haföi lokiö námi I Paris, fékk hún sér vinnustofu og byrjaöi aö vinna. — ,,Þá fórégað reyna aö puða svona ein. Fékk mér vinnustofu i Paris og fór aö vinna. Ég bjó til einhverjar fantasiur.”... hafa steðja og fleiri áhöld, eins og gefur að skilja. Nú, ég fór að taka þátt i sýning- um og árið 1952 hélt ég sjálfstæða sýningu i Listamannaskálanum, sem þá var við hliðina á alþingis- húsinu. — Ég hélt nú, að ég yrði að setj- ast að á tslandi, þar eð efnin voru til þurrðar gengin. Sýningin hlaut held ég sæmilegar viðtökur. Þetta voru ný efni, sem ekki teljast þó lengur til nýjunga, en það sem mér kom helzt á óvart var, hversu margar myndir seldust. Þetta gjörbreytti högum minum og ég gat haldið til Parisar á ný, til að sinna listsköpun. Steindir gluggar — mósaik — Hver voru fyrstu verkefnin, sem þér voru fengin við að skreyta byggingar? — Það er svolitill kapituli á undan þvi. Ég fór og lærði að gera steinda glugga hjá Barrie i Paris. Vann ég þar á verkstæði, sem gerir slika glugga og þar lærði ég frá grunni allt um þá, en það er nauðsynlegt. Þessir gluggar eru lagöir i blý og notað er margs konar gler og ennfremur eru þeir málaðir með sérstökum litum, sem siðan eru brenndir, þvi að svona gluggar eiga að geta enzt um aldir. Fyrsta stóra verkefnið, sem ég fékk, voru gluggarnir i Skálholts- kirkju. Bygginganefndin efndi til samkeppni og ég fékk verkefnið. Þessir gluggar voru siðan gerð- ir hjá Oidtmann i Þýzkalandi og þangað fór ég og valdi glerið og málaði á það, sem venja er til. Ef þetta er skýrt svolitið nánar, þá eru litirnir til i gleri — allir litir — en það sem málarinn verður að gera er að mála finni linur i gler- ið. andlit og annað slikt. Alls tók það um eitt ár að vinna þessa glugga og siðan voru þeir settir upp i kirkjuna. — Hvað tók svo við, þegar þú Hér er Geröur Helgadóttir viö glugga, sem er I húsi Asgeirs Bjarnasonar og Unnar Helgadóttur, aö Víg- hólastig 6 i Kópavogi. nauðsynlegt að vinna að ein- hverju öðru en þessum verkefn- um, sem fara eiga á vissa staði. Vinna annað fyrir sjálfan sig, ef svo mætti að orði komast. Þvi er hins vegar ekki að leyna, að það hefur verið mjög erfitt að finna tima til þess að vinna höggmynd- ir þessi tvö siðustu ár. Það fór mjög mikill timi i tvær mosaik- myndir, fyrir Tollstöðina og eins fyrir banka i Linnich. — Er myndin á Tollstöðinni stærsta mynd, sem þú hefúr gert? — Nei, það er hún ekki. Ég hefi gert stærri myndir úr steindu gleri, glugga. T.d. i kirkju i Bille- brinkhohe. — Hvernig er að vinna með Oit- mann verkstæðinu. Framhald á bls. 37 Grein: Jónas Guðmundsson Myndir: G.E. og fl. V___________________________)

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.