Tíminn - 09.06.1974, Qupperneq 40
fyrirgóöan mai
$ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Tlmamynd: Gunnar
Gömlu kaupfélagshúsin á Rauöalæk neöan þjóövegarins
Rauðilækur í Holtum:
Nýtt kauptún í burðarliðnum
KAUPFELAG RANGÆINGA
hefur ár hvert i þjónustu sinni
flokka byggingarmanna, scm
byggja íbúðarhús á Hvolsvclli og
Rauöalæk, þar sem útibú
kaupfiMagsins er, og er húsunum
siðan skilað kaupendum fokheld-
um á kostnaðarvcröi, sem reynst
hefur mjög lágt.
Eins og gefur að skilja hafa
flest húsin verið byggð á Hvols-
velli, sem er kauptún i örum
vexti, en nokkuð hefur einnig ver-
ið byggt á Rauðalæk, svo að þar
má heita kominn visir að þorpi —
hinu þriðja við ,þjóðveginn um
Rangárvallasýslu. Hitt er
enn óráðið, hvaða vöxt það kann
að taka út á næstu árum og ára-
tugum, en alkunna er, að sveita-
þorp þau, sem risið hafa upp i
seinni tið, hafa blómgazt og vaxið
með ótrúlegum hraða, svo að sum
þeirra eru komin i tölu fjöl-
mennustu byggðarlaga i landinu,
eins og til dæmis Selfoss.
Aðeins örfá ár eru siðan
nýbyggðin að Rauðalæk i Holtun
hófst, og komi þangað jafnmargir
til búsetu hin næstu ár og verið
hefur þessi siðustu misseri, er að
minnsta kosti fyrirsjáanleg tals-
verð byggð þar. Með miklum
vegabótum hafa lika þéttbýlis-
staðir á Suðurlandi i rauninni
færzt nær hver öðrum, og munu
vonandi gera það i vaxandi mæli
á komandi árum. Þegar vegur
með varanlegu slitlagi verður
kominn frá Faxaflóa austurá
Hvolsvöll, er nú virðist i sjónmáli,
má nánast heita snertispölur frá
Reykjavik til dæmis austur i
kauptúnin rangæsku. Er mjög
liklegt, og eru raunar þegar ýms
dæmi um það, að fólk, sem ættað
er austan úr sveitum kjósi sér
bólfestu i sveitaþorpunum þar, er
á ævina liður, auk þess sem fleira
ungt fólk staðfestist heima i
héraði en áður, þegar fleiri kosta
er orðin völ um atvinnu en áður.
Og nú er Rauðilækur að komast i
tölu þeirra kauptúna, er, til álita
koma, þegar valið er á milli
byggðarlaga.
BORAÐ EFTIR
HEITU VATNI
Á LEIRA
HHJ-Rvik — Jarðbor frá Orkustofnun hefur verið við’Leirá I sumar, og
hafa verið boraöar tvær 600 metra djúpar holur, sem nú gefa 10-15 lltra
af fimmtiu stiga heitu vanti á sekúndu hverri.
Borinn, sem notaður hefur verið, megnar ekki að bora dýpra, og þvl
hafa Akurnesingar farið þess á leit, að annar og stærri bor verði sendur
upp eftir. Karl Ragnars hjá Orkustofnun sagði Tlmanum, að sá bor
myndi dýpka þær holur, sem þegar hafa veriö boraðar, og þannig yrði
reynt að fá upp meira og heitara vatn en nú fæst.
Vínbúðarmál
Skagfirðinga:
Fram-
kvæmd
atkvæða-
greiðslu
kærð?
UM LEIÐ og sveitar-
st jórnarkosningar fóru
fram, voru atkvæði greidd
um það á Sauðárkróki, hvort
þar skyldi Áfengis- og
tóbaksverzlun rlkisins opna
áfengisbúð. Var það fellt
með verulegum atkvæða-
mun, svo sem frá hefur verið
skýrt.
Þeir, sem töldu áfengisbúð
heldur óliklegt meðal til þess
að bæta bæjarbraginn, voru
að sjálfsögðu ánægðir með
úrslitin, en aðrir' eru þeir,
sem sætta sig ekki fyllilega
við atkvæðagreiðsluna eins
og hún fór fram.
Tvennt er það, sem menn
fetta fingur út i. Annars
vegar er það, að ekki var
unnt að greiða atkv. utan
kjörstaðar um áfengisbúðar-
málið. Telja sumir Sauðár-
króksbúar, sem ekki voru
heima á kjördaginn, sig hafa
verið setta skör lægra en
aðra menn, einkum menn á
hinum nýja fiskiflota Skag-
firðinga. Munu þeir til, er
haft hafa við orð að kæra
atkvæðagreiðsluna af
þessum sökum, þótt raunar
sé heldur ósennilegt, að af
þvi verði.
Á hinn bóginn finnst svo
sumum Skagfirðingum, sem
búsettir eru annars staðar en
á Sauðárkróki, að þetta hefði
átt að vera mál alls
héraðsins, að minnsta kosti
að svo miklu leyti sem öll
kaupstaðarsókn hnigur til
Sauðárkróks. Telja þessir
menn, að það hefði verið
sanngirnismál, að allir
héraðsbúar hefðu greitt
atkvæði um þetta mál.
A móti þessu er þvi teflt,
að þess munu engin dæmi, að
slik atkvæðagreiðsla hafi
náð til viðara svæðis en þess
kaupstaðar eins, er hlut átti
að máli, auk þess sem það
hlýtur að bitna fyrst og
fremst á kaupstaðnum
sjálfum, ef óreiða eykst við
tilkomu vinbúðar.
Hefur þetta orðið sumum
drjúgt umræðuefni siðan á
dögunum, er atkvæða-
greiðslan fór fram, þótt hinir
séu án efa miklu fleiri, sem
láta sig einu gilda, hverjir
áttu þess kost að leggja lóð
sitt á vogarskálina.
Við þetta er þvi einu að
bæta, að heldur mun talið
óliklegt, að fyrirskipuð verði
ný atkvæðagreiðsla á
Sauðárkróki, þótt alvara
verði gerð úr þvi að kæra það
framkvæmdaratriði, að ekki
var unnt að greiða atkvæði
utan kjörfundar. Myndu þá
einnig ólöglegar
atkvæðagreiðslur af þessu
tagi, er áður hafa farið fram
á landinu, þar á meðal
atkvæðagreiðslan á Seyðis-
firði nú á dögunum, er
snerist um það, hvort loka
skyldi vinbúðinni • þar eða
hafa hana opna áfram.